Þjóðviljinn - 17.02.1985, Blaðsíða 20
Hún Júdít
sem drap
forsetann
Þýsk leikhús vilja koma sér hjo því
að sýna nýtt verk eftir Rolf Hochhuth
Hiö þekkta þýska leikskáld
Rolf Hochuth hefur samið nýtt
leikrit, sem stefnt er gegn víg-
búnaðarbrjálæðinu eins og
höfundur kemst sjálfur að
orði. Þýsk leikhús hafa hvert
af öðru færst undan því að
sýna leikinn og verður hann
frumsýndur í Glasgow í Skot-
landi. Verkið heitir Júdít.
Júdít fjallar um mjög „við-
kvæmt“ efni eins og fyrri verk
Hochuths. Þar segir frá blaða-
konu og friðarsinna, Júdít, sem
ræður bandarískan forseta, sem
líkist í ýmsu Ronald Reagan, af
dögum. Ástæðan er sú að forset-
inn hefur efnt til vígbúnaðar-
kapphlaups á sviði eiturefna, sem
mannkyni stafar bráður háski af.
’ýmsir gagnrýnendur, sem les-
ið hafa leikinn, segja að leikritið
sé slæmt, ekki nógu vel skrifað og
þar fram eftir götum. Rolf Hoc-
huth er vantrúaður á einlægni
þeirra og vitnar í mörg dæmi um
það, hvernig menn reyna að
kenna listrænum ávirðingum um,
ef þeir þora ekki að flytja eða
prenta verk sem er mjög „heitt“
pólitískt.
Rolf Hochuth hefur áður orðið
fyrir hnjaski. Árið 1963 var frum-
sýnt verk hans „Staðgengillinn“
sem fól í sér ásakanir á hendur
Píusi páfa fyrir að hann hafi með
þögninni gerst meðsekur um
fjöldamorð nasista á gyðingum.
Kaþólskir menn urðu mjög reiðir
og fjölmörg leikhús þorðu ekki
að flytja verkið, sem reyndar var
sýnt víða um heim.
Svo er á hitt að líta að pólitísk
Sjórœningja-
stöðvar
Fyrir skemmstu lét stjórn
Margaret Thatcher loka sex
sjóræningjaútvarpsstöðvum í
London. Eigendurólöglegra
útvarpsstöðva eru þó ekki af
baki dottnir og ætla þeir innan
tíðar að byrja rekstur þriggja
nýrra slíkra stöðva af sjó,
skammt fyrir utan austur-
strönd Englands. Og mávera
að sumir þeirra sem ekki fá
rekstrarleyfi í landi nú fari
sömu leið. Stöðvarnar þrjár
eru allar reknarfyriramerískt
fé.
Stærsta stöðin verður að lík-
indum „Wonderful Radio
London“ sem einhverjir ríkis-
menn í Texas standa á bak við.
Þeir ætla að setja upp allöfluga
stöð á skipi fyrir utan mynnni
Thames og reyna að ná eyrum
meira en hundruða miljóna
manna allt frá Cornwallskaga til
Kaupmannahafnar. Talsmaður
stöðvarinnar segir, að hún muni
veita gullin tækifæri áfengis- og
tóbaksfyrirtækjum, sem ekki fá
að auglýsa í útvarpi hvorki í Bret-
landi né heldur ýmsum nálægum
Evrópulöndum.
-áb
efni eru ekki „í tísku“ í leikhúsi
nú. Nú er það sálarangistin og
mjög grimmar ástir.
Júdít með bróður sínum lömuðum - minnið er sjálfsagt tengt þeirri Júdít sem drap fjandann Hólófernes.
Engar áhyggjur
því
H-vaxtareikningur
ávaxtar fé þitt
á arðbæran
hátt
Meö Hávaxtareikningi
Samvinnubankans komst á nýtt
og eftirtektarvert fyrirkomulag.
Stofnskírteini er gefið út fyrir
innborgun, en gegn framvísun
pess er innstæöan ávallt laus
til útborgunar án fyrirvara.
Þú getur því tekiö þaö rólega,
Hávaxtareikningur Samvinnu-
bankans tryggir sparifé þitt
gegn veröbólgu.
vaxtareikningur
og þú ert áhyggjulaus.
Betri kjör bjóðast varla
20 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN