Þjóðviljinn - 06.03.1985, Qupperneq 2
FRETTIR
Sjómannasamningarnir
Víða mikil óánægja
70-80% á móti í Vestmannaeyjum. Skiptar skoðanir á Snœfellsnesi.
Eyfirðingar fresta ekki verkfalli.
Austfirðingar fella samninginn ínœr öllumplássunum
Ljóst er að sjómannasamning-
arnir hafa hlotið mjög mis-
jafnar móttökur á fundum sjó-
mannafélaganna um land allt og
víða í stærstu verstöðvum er talið
vist að mikill meirihluti sjómanna
hafi greitt atkvæði gegn samning-
unum. Forystumenn sjómanna
telja töluverðar líkur á því að
samningarnir hafí verið felldir og
verkfall sjómanna skelli á að nýju
þegar í dag þegar búið verður að
telja upp úr kössunum.
í Vestmannaeyjum greiddu um
230 sjómenn atkvæði um nýju
samningana og sagði Elías
Björnsson formaður sjómanna-
félagsins Jötuns í gær, að líklega
hefðu 70-80% fundarmanna ver-
ið á móti samningunum. „Það var
mikill hiti í mönnum og stór
meirihluti greinilega á móti“.
Á Suðurnesjum samþykktu öll
sjómannafélögin utan Grinda-
víkur að aflétta ekki verkfalli fyrr
en þeir bátar er þjófstörtuðu
væru búnir að taka upp net sín og
komnir að Iandi. Baldur Matt-
híasson í Sandgerði sagði að mikil
reiði væri í sjómönnum þar, en
óvíst að segja til um hvernig
kosningin fór.
í Hafnarfírði greiddu 50 sjó-
menn atkvæði og var mikill meiri-
hluti þeirra á móti samningunum.
í Reykjavík voru um 60 á fundi
sjómannafélagsins og að sögn
Guðmundar Hallvarðssonar kom
fram mikil óánægja, einkum um
útgöngu yfirmanna og kostnaðar-
hlutdeildina. Einnig hefðu togar-
asjómenn verið óánægðir, en þeir
fengu minnst út úr samningun-
um.
Á Akranesi var yfirgnæfandi
hluti fundarmanna á móti samn-
ingunum að sögn Guðmundar M.
Jónssonar formanns sjómanna-
deildar verkalýðsfélagsins. „Ég
hef aldrei staðið frammi fyrir öðr-
um eins fundi.“ sagði Guðmund-
ur.
Sjómenn á Snæfellsnesi virtust
flestir gera sig ánægða með samn-
inginn, en að sögn forystumanna
félaganna hefur verið rhjög góð
veiði í Breiðafirði og menn vildu
komast sem fyrst á sjó. Á Hellis-
sandi var hins vegar mikil óá-
nægja og greinilegur meirihluti á
móti. í Olafsvík og í Stykkishólmi
voru menn frekar ánægðir, en
skiptist í tvö horn í Grundarfirði.
„Það var ekki gott hljóð í
mönnum hér,“ sagði Guðjón
Jónsson formaður Sjómannafé-
lags Eyjafjarðar, en þar greiddu
um 100 manns atkvæði. Félagið
frestaði ekki verkfalli og sömu
sögu er að segja frá félagsfundum
á Olafsfirði, Siglufírði og Sauðár-
króki.
Á Austurlandi er talið sérstak-
lega hjá hverju félagi og voru
samningarnir felldir á Vopna-
firði, á Seyðisfirði, í Neskaupstað
og á Eskifirði, Fáskrúðsfirði og
Breiðdalsvtk, en samþykktir á
Reyðarfirði og á Stöðvarfirði.
Sigfinnur Karlsson formaður
Alþýðusambands Austurlands
sagði í gær að enginn frestur yrði
gefinn. „Fyrst búið er að fella
samningana, þá ætlum við að fá
eitthvað út úr því. Enginn árang-
ur varð af fundi með útgerðar-
mönnum á Austfjörðum vegna
sérkjara".
Á Höfn í Hornafirði voru menn
einnig óánægðir með samninginn
og sagðist Sigurður Örn Hannes-
son, formaður verkalýðsfélagsins
Jökuls, telja víst að mikill meiri-
hluti félagsmanna hefði greitt at-
kvæði gegn samningunum.
-*g-
'TORGIÐ:
Það hillir undir
Skýrsluvéla og
deildarinnar!
sameiningu
Hreinsunar-
Kennarar
Steingrímur tekur á móti framhaldsskólakennurunum Heimi Pálssyni (íslenska, MH) og Kristjáni Thorlacius, formanni
HÍK (danska, saga, Fjölbraut Ármúla): málið er í höndum annarra ráðherra... Mynd: -eik.
Fundur
í dag
F ramhaldsskólakennarar
halda fund með samninganefnd
rflrisins í dag og er að sögn Krist-
jáns Thorlaciusar formanns HÍK
ætlunin að reyna að fá frekari
skýringar á skriflegum yfirlýsing-
um nefndarinnar um sérstöðu
kennara. Einnig verða rædd áhrif
skýrslu endurmatsnefndar á
samningaviðræður kennaranna.
í gær gengu fulltrúar kennara á
fund forsætisráðherra og fræddu
hann um kjör sín. „Við áttum við
hann notalegt spjall," sagði
Kristján Thorlacius, og sagðist
Steingrímur munu reyna að beita
sér einsog hann gæti, - málið væri
að vísu í höndum annarra ráð-
herra.
-m
Miðstjórn ASÍ
Virðisaukaskattur eykur
skattbyrði launafólks
Upptaka virðisaukaskatts í stað söluskatts myndi spara atvinnu-
rekendum tvo miljarða. Einkaneysla myndi hœkka um 3 prósent.
Lánskjaravísitala um 4.5 prósent. Byggingarkostnaður um 8 prósent
M
eð því að taka upp virðis-
aukaskatt í stað söluskatts
munu atvinnurekendur spara
nærri tvo miljarða króna. Til að
standa straum af þeim tekjumissi
sem rflrissjóður yrði fyrir af þess-
um sökum þyrfti álagningarpró-
senta að hækka úr 23,5 prósent-
um i 29 prósent til að ná sömu
Og-þú-líka-Brútus
Oþolandi athafnaleysi
Samband ungra Framsóknarmanna:
Þingflokkar stjórnarliðsins bera höfuðá-
byrgðina
Þetta athafnaleysi er óþolandi -
athafnir verða að koma í stað
orða. Þingflokkar stjórnarliðsins
bera höfuðábyrgð á þeirri töf sem
orðið hefur, segir m.a. í harð-
orðri ályktun frá miðstjórn Sam-
bands ungra Framsóknarmanna
sem fjölmiðlum hefur borist. Ein-
ungis slík stefnubreyting ríkis-
stjórnarinnar getur orðið ,/or-
senda þess að rflrisstjórnin öðlist
traust almennings á nýjan leik“.
í ályktuninni sem ber heitið
„Athafnir í stað orða“ (Hjá
Verslunarráðinu var heitið á
leiftursóknarstfefnunni nánast hið
sama), segir m.a., að áherslu
þurfi að Ieggja á að „laða til þátt-
töku í íslensku atvinnulífi erlenda
aðilja". En „í allan vetur hefur
þjóðin beðið með eftirvæntingu
eftir ráðstöfunum ríkisstjórnar-
innar til nýsköpunar atvinnulífs-
ins. Enn hefur ekkert gerst, en
því fleiri yfirlýsingar gefnar um
væntanlegar aðgerðir". _^g
tekjum af sömu vöru og þjónustu.
Þessar upplýsingar koma fram
í umsögn miðstjórnar ASÍ, sem
samþykkt var fyrir skömmu um
frumvarp til laga um virðis-
aukaskatt.
í umsögninni segir meðal ann-
ars: „Frumvarpið gerir ekki ráð
fyrir því að skattprósentan í virð-
isaukaskattkerfi verði hærri en er
í núverandi söluskattskerfi, held-
ur verði sparnaði atvinnurekenda
mætt með því að fella niður þær
undanþágur sem eru varðandi
söluskatt af ýmsum nauðsynjum.
í þessu sambandi vegur þyngst
hækkun matvæla um 18.9 prósent
að mati þeirra sem sömdu
greinargerðina með frumvarp-
inu.
Þá er orka til húshitunar und-
anþegin söluskatti í dag og mundi
húshitun því hækka sem skatt-
prósetnunni nemur. Byggingar-
kostnaður er að hálfu leyti und-
anþeginn söluskatti í dag en sam-
kvæmt frumvarpinu yrði
greiddur virðisaukaskattur af
íbúðabyggingum og byggingar-
kostnaður þeirra mundi því
hækka um nálægt 8 prósent en
samtímis myndi kostnaður við at-
vinnuhúsnæði lækka“.
í umsögninni er talið að verð-
lag einkaneyslu muni hækka að
minnsta kosti um 3 prósent og
lánskjaravísitalan um 4 og hálft
prósent við breytinguna.
Miðstjórn ASÍ er því andvíg
frumvarpinu, þar sem það felur í
sér verulega tilfærslu á skattbyrði
frá fyrirtækjum til neytenda, og
telur „brýnna úrlausnarefni að
herða innheimtu söluskatts og
tryggja betri skattskil almennt".
(Nánar verður greint frá þessu
síðar).
-ÖS
■ 2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN
Meindýr
Tölvuvædd rottugildra
fra Japan
Rottur valda skemmdum á tölvum í Japan
með því að pissa á þœr og éta leiðslur
Rottur eru fjórði mesti skaðvaldur tölva í Japan á eftir vatni, bruna
og eldingum. Þær laðast að suðinu í tölvunum og hafa svo þann
leiða sið að éta rafleiðslur í tölvunum og pissa á þær.
Japanskir tölvusérfræðingar hafa hins vegar skotið rottuplágunni ref
fyrir rass með því að búa til tölvuvædda rottugildru.
Gildran gefur frá sér suðhljóð, sem rottunum finnst jafnvel enn
ómótstæðilegra en suðið í tölvunum. Þegar rotta laðast svo að suðinu
og kemur upp að gildrunni fer af stað tölvustýrð loftsuga sem sýgur
rottumar upp í gildruna. Þvínæst er dælt á hana koltvísýringi svo
veslings rottan hverfur á örskammri stund yfir í annan heim,
Tölvugildran pakkar svo hinum jarðnesku leifum nagdýrsins á sjálf-
virkan hátt inní snyrtilegar umbúðir sem eru jafnframt sótthreinsaðar.
Leifum rottunnar er þvínæst spýtt út úr gildrunni og morguninn eftir
kemur svo starfsfólkið og fleygir innpakkaðri rottunni útí tunnu!
-ÖS