Þjóðviljinn - 06.03.1985, Page 3
FRETTIR
Húsavík
Atvinnulífið hrynur
Verður Kolbeinsey ÞH10 seldfrá Húsavík á uppboði? Mikill kvíði meðal bœjarbúa
Ljóst er að skuttogarinn Kol-
beinsey ÞH 10 frá Húsavík fer
á uppboð. Greiðslufrestur út-
gerðarfélagsins Höfða h.f. á tæp-
um 200 miljónum króna rann út
sl. mánudag og þessi skuld verður
ekki greidd, það er einfaidlega
ekki hægt að greiða hana. Skuld
þessi er tilkomin vegna gengis-
hækkunar dollarans, en veitt var
5 miljón doliara ián til smíði
skipsins á Akureyri 1981. Utgerð-
arfélagið hefur alltaf staðið í
skUum með hin lögboðnu 20% af
skiptaverðmæti afla.
Hvaða þýðingu hefur það fyrir
Húsavík verði Kolbeinsey ÞH
seld burt frá Húsavík á nauðung-
aruppboði? Svörin voru öll á eina
leið þegar spurt var á Húsavík:
Hrun atvinnulífsins á staðnum,
fólksflótti og stórfelld lækkun á
fasteignaverði.
Á síðasta ári aflaði Kolbeinsey
PH 3200 lestir af bolfiski, sem er
40% af þvi hráefni sem barst til
Fiskiðjusamlagsins, en það er
eina frystihúsið á staðnum með
200 til 250 manns í vinnu í öllum
greinum fiskvinnslunnar. Verði
skipið selt burtu munu strax
missa vinnuna 100 til 150 manns,
sjómenn og landverkafólk. Talið
er að á bak við hvert starf í fram-
leiðslu séu 2,5 störf í þjónustu,
sem aftur þýðir að á milli 300-400
manns mun að lokum missa vinn-
una. Þegar þess er gætt að alls eru
íbúar Húsavíkur 2500 er hér ekki
um neitt smámál að ræða fyrir
kaupstaðinn.
Talið er að tekjumissir bæjar-
búa sem af þessu hlytist gæti orð-
ið 130 til 150 miljónir króna á ári,
eða sem jafngildir einu togara-
verði. Þá er ótalin sú röskun sem
yrði á högum bæjarbúa, svo sem
íækkað fasteignaverð, fólksflótti
úr bænum í leit að atvinnu og
fleira.
Þjóðviljinn var á ferð um
Húsavík um síðustu helgi og
spurði nokkra aðila um þetta mál
og fara svörin eftir hér á síðunni.
-S.dór
Kristján Ásgeirsson framkv.stj. Höfða hf.
Þessu fylgir mikil óvissa
Jósef Matthíasson og Elísabet Sigurðardóttir
Jósef Matthíasson og Elísabet Sigurðardóttir
Þá fer illa fyrir mörgum
Greiðslufresturinn rennur út
mánudaginn 4. mars og það
eru rétt tæpar 200 miijónir
króna, sem við eigum að greiða,
vegna gengishækkunar dollarans
frá því við tókum 5 miljón dollara
lán 1981. Þessar 200 miljónir get-
um við að sjálfsögðu ekki greitt
og því verður skipið sjálfsagt að
fara á uppboð og það verður án
efa slegið Fiskveiðasjóði. Þar
með þyrfti Fiskveiðasjóður að fá
um 260 miljónir fyrir skipið, sem
að sjálfsögðu aldrei fæst. Sam-
kvæmt tillögu ráðherra á sjóður-
inn að finna út viðmiðunarverð
og selja skipið á því og að heima-
menn hafi forgang þegar sú sala á
sér stað, þ.e. að þeir gangi inní að
jöfnu. Alt er þó í óvissu um fram-
kvæmdina á tiimælum ráðherra
og þannig stendur þetta mál nú,
sagði Kristján Asgeirsson útgerð-
arstjóri Höfða h.f. sem gerir Kol-
beinsey út.
Kristján sagði að allt frá því
Kolbeinsey kom til Húsavíkur á
miðju ári 1981 hafi skipið aflað
vel og rekstur þess gengið mjög
Kristján Ásgeirsson
Selfoss
~nr
rauna-
strætó
í þessum mánuði verður gerð
tilraun með innanbæjarstrætó á
Selfossi. Það er foreldra- og
kennarafélag Barnaskólans sem
stendur fyrir framtakinu í sam-
vinnu við Séleyfisbifreðar Sel-
foss.
Farnar verða fjórar ferðir á dag
um bæinn eftir tveimur leiðum. I
morgunsárið, á hádegi og síðdeg-
is. Þessi tilraunaakstur mun
standa út þennan mánuð. Far-
gj aldið er 5 kr. fyrir börn og 15 kr.
fyrir fullorðna.
- >g-
vel. Hinar lögboðnu greiðslur í
vexti og afborganir, sem eru 20%
af skiptaverðmæti afla hefðu
ævinlega verið greiddar. Skulda-
söfnunin sem átt hefði sér stað
væri eingöngu afleiðing af gengis-
hækkun dollarans.
Allir stjórnmálaflokkarnir sem
aðild eiga að bæjarstjórn Húsa-
víkur eru sammála um að halda
skipinu. í því augnamiði var
skipuð nefnd sem í eiga sæti efstu
menn bæjarstjórnarlistanna og
hefur hún unnið og vinnur enn að
lausn málsins. Enda er það eðli-
legt að bæjarstjórnin hafi for-
göngu í málinu, sagði Kristján,
vegna þess að missir skipsins
snertir alla bæjarbúa.
Til þess að gera sér grein fyrir
því hve mikilsvert málið væri fyrir
Húsvíkinga nefndi Kristján að út-
flutningsverðmæti þess afla sem
Kolbeinsey kom með að landi á
síðasta ári væri um það bil 130
miljónir króna. Laun til sjó-
manna og þess fólks er unnið
hefði aflann í landi væri um 52
miljónir. Þessa upphæð mætti svo
margfalda með 2,2 þegar hún
veltist út í bæjarlífið. Allir gætu
séð hvaða áhrif það hefði fyrir
bæjarlífið að missa útsvar af þess-
ari upphæð. Óhætt væri að áætla
að tekjumissir bæjarins yrði um
það bil helmingur ef Húsvíkingar
misstu skipið. Því myndi einnig
fylgja fólksflótti úr bænum í
kjölfar þess atvinnuleysis sem
verður ef skipið fer.
Hér er því um svo stórt mál að
ræða, að menn þora varla að
hugsa þá hugsun til enda hvað
verður ef okkur tekst ekki að
halda skipinu, sagði Kristján Ás-
geirsson. -S.dór
að hefur áður komið fram í
fréttum að þetta yfirlit yfir
þingfréttir Sjónvarpsins sem ég
vann að beiðni útvarpsstjóra ber
ekki að skoða sem þá úttekt sem
Ingibjörg Hafstað fór fram á,
sagði Páll Magnússon fréttamað-
ur þegar Þjóðviljinn leitaði álits
hans á ummælum Ingibjargar
sem birtust hér í blaðinu í gær.
- Þetta yfirlit er listi yfir þær
fréttir sem sagðar voru af þingi á
umræddum tíma, þar sem til-
greint er hvaða mál var fjallað
um, sagt hverjir voru nefndir
með nafni og hve löng fréttin var í
flutningi. Það var svo um það tal-
að að ef útvarpsráð tæki ákvörð-
un um að gerð yrði nánari úttekt
á fréttaflutningi Sjónvarpsins
Verði Kolbeinsey seld burtu frá
Húsavík fer illa fyrir mörg-
um. Eg er hræddur um að margir
hér í nýja hverfinu muni þá missa
húsin sín. Ef svo illa fer, þá sé ég
enga aðra leið en fara héðan burt
í atvinnuleit, hér á Húsavík yrði
yrði hún falin manni utan stofn-
unarinnar, enda fáránlegt að ég
geri úttekt á sjálfum mér. Þess
vegna skil ég ekki hvað Ingibjörg
á við með tali sínu um hroka.
í öðru lagi er störfum Alþingis
svo háttað að langflest mál eru
lögð fram í upphafi þings en þessi
tími sem yfirlitið nær til eru þing-
lok í fyrra, þegar umræðan sner-
ist mest um fjárlagagatið, og
byrjun nóvember í haust, mánuði
eftir að þing kom saman. Það er
því eðlilegur fréttaflutningur að
fjalla um þau mál sem eru í
deiglunni hverju sinni.
Loks hef ég ekki farið fram á
neina afsökunarbeiðni frá Ingi-
björgu. í bókun hennar segir ber-
um orðum að þingfréttaritari
þá enga vinnu að fá, sagði Jósef
Matthíasson rúmlega tvítugur
háseti á Kolbeinsey, sem ásamt
konu sinni, Elísabetu Sigurðar-
dóttur, er nýbúinn að byggja sér
hús og að sjálfsögðu með allt í
skuldum.
Sjónvarpsins hafi margbrotið lög
í umfjöllun sinni um störf þings-
ins. Ég tel mig hafa beitt almennu
faglegu fréttamati í mínum störf-
um og svo fæ ég að heyra það frá
einum yfirmanni mínum að með
því hafi ég brotið lög. Það sem ég
er að leita eftir er úrskurður um
það hvort svo sé og þá frá þeim
sem telur sig þess bæran að kveða
upp slíkan úrskurð. Ég vil ekki
sitja undir þessu, sagði Páll.
Inga Jóna Þórðardóttir for-
maður útvarpsráðs sagði að til
hefði staðið að ræða yfirlit Páis á
fundi ráðsins sl. föstudag en af
því gat ekki orðið og er þess að
vænta að málið verði aftur á dag-
skrá næsta föstudag.
Þau sögðu að þeim hefði tekist
að standa í skilum með því að
Jósef var á skipinu 310 af 355 út-
haldsdögum þess í fyrra og hún
vinnurutan heimilis. Málin stæðu
þannig hjá þeim að ekkert mætti
útaf bera í atvinnumálunum,
boginn væri spenntur til hins ítr-
asta.
Og þannig er ástatt með fleiri
hér í hverfinu, sjáðu þessi 3 hús
hér fyrir ofan okkur. Það fólk
sem á þau, á allt sitt undir því að
Kolbeinsey verði áfram gerð héð-
an út. Ef ekki, þá blasir íbúða-
missir við þeim eins og okkur og
mörgum fleirum, sagði Jósef.
Hann sagði að málið hefði að
sjálfsögðu hvergi verið meira rætt
en um borð í Kolbeinsey. Mjög
margir um borð segjast munu
flytja burt frá Húsavík ef skipið
verður selt héðan.
Og ég er nærri viss um að við
missum skipið, sagði Jósef, og
þeir eru margir hér á Húsavík
sem nú bíða milli vonar og ótta
um framhald málsins.
Ef skipið verður selt og menn
ætla að flytjast burtu, hver er þá
til að kaupa húsin þeirra?
Enginn, þau verða bæði verð-
lítil og sjálfsagt óseljanleg, segja
þau hjónin. Þeim bar einnig sam-
an um að þessi óvissa gerði þeim
ókleift að gera einhverjar fjár-
hagslegar ráðstafanir. Maður
þorir engu í því sambandi eins og
málin standa nú, sagði Elísabet.
-S.dór
Kœrumál
Yfirlit, ekki úttekt
Páll Magnússon fréttamaður: Fáránlegt að ég geri út-
tekt á sjálfum mér. Vil fá úr því skorið hvort ég hafi
brotið lög
- ÞH
Miðvikudagur 6. mars 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3