Þjóðviljinn - 06.03.1985, Page 4
LEIÐARI
Ragnhildur og kennaradeilan
Þaö hefur verið býsna fróölegt að fylgjast
meö tvöfaldri afstööu Ragnhildar Helgadóttur,
menntamálaráðherra, í kennaradeilunni sem
nú stendur yfir. Með annarri tungunni keppist
hún við að lýsa því yfir við kennara að auðvitað
skilji hún málstað þeirra og hafi samúð með
þeim. Hina tunguna notar hún hins vegar til að
fordæma launabaráttu þeirra í fjölmiðlum, og
ásakar þá um ábyrgðarleysi fyrir að „skilja nem-
endur eftir í reiðileysi".
Nú hefur þessi undarlega tvíbenta afstaða
ráðherrans komið í Ijós með enn gleggri hætti.
Fyrir helgina lýsti hún því yfir án nokkurs fyrir-
vara, að tekið yrði „tillit til sérstöðu kennara".
Um helgina kom svo fram álit svokallaðrar
endurmatsnefndar, sem hefur unnið að endur-
mati á kennarastarfinu. Frá því er skemmst að
segja, að í álitinu er greint frá því að kennarar
hafi dregist aftur úr hvað varðar launakjör, og
auk þess bent á ýmislegt sem kennarar reiða af
höndum án þess að metið sé til launa. Á mánu-
daginn kom svo fram tilboð frá samninganefnd
ríkisins til Bandalags háskólamanna: þar var
lagt til 5 prósent launahækkun yfir línuna - án
þess að nokkurt tillit væri tekið til „sérstöðu
kennara“
Orð Ragnhildar um „tillit“ til kennara eru
því greinilega einskis virði. Hún segir eitt í
daa og annað á morgun.
A meðan að æðsti yfirmaður skólamála á
landinu horfir þannig aðgerðarlaus á fram-
haldsskólana lamast, þá vofir yfir að námsvetur
þúsunda ungmenna um allt land eyðileggist að
meira eða minna leyti. Hvað finnst þeim fjöl-
mörgu foreldrum og kennurum sem hingað til
hafa stutt Ragnhildi og flokk hennar, um
frammistöðu beggja í kennaradeilunni?
Staðreyndin er því miður sú, að frumkvæði
Ragnhildar Helgadóttur í menntamálum hefur
einungis beinst að því að hnika skólastarfinu
aftur á bak. Um það votta mýmörg dæmi:
• Á síðasta ári kom hún í kring 2.5 prósent
niðurskurði á kennslukostnaði í grunn-
skólum og framhaldsskólum.
• Á síðasta ári beitti hún sér fyrir 4 prósent
„sparnaði“ í rekstri grunnskóla.
• Hún skar niður endurmenntunarnámskeið
Kennaraháskólans að verulegu leyti í sumum
greinum.
• Hún skar niður prófanefnd, sem sá um sam-
ræmdu prófin.
• Hún rak alla námsstjórana á síðasta ári og
Það hefur tæpast farið fram hjá neinum að
formaður Alþýðuflokksins leggur ofuráherslu á
að biðla til hins hefðbundna fylgis Sjálfstæðis-
flokksins.
í því skyni hefur hann meðal annars tekið upp
þá sérstæðu tækni að í öllum efnum sem varða
utanríkismál límir hann sig einsog frímerki aftan
á bakhluta Sjálfstæðisflokksins. Þetta kemur
einna best fram í því að hann hefur - andstætt
fyrri stefnu Alþýðuflokksins - lýst sig andvígan
hugmyndinni um kjarnorkuvopnalaus Norður-
lönd.
Af þessu tilefni er rétt að minna á, að allir
réði síðan einungis þá, sem voru að hennar
eigin höfði. Þróunarstarfið sem unnið var á
þeirra vegum hefur síðan minnkað verulega,
meðal annars vegna breytinga á störfum
þeirra sem Ragnhildur kom í kring.
• Hún batt enda á mjög merkilegt þróunarstarf
í samfélagsfræði sem naut alþjóðlegrar at-
hygli og stöðvaði starfsemi Wolfgangs Edel-
stein, víðskunns sérfræðings í skólamálum,
sem hafði unnið um 15 ára skeið að uppbygg-
ingu samfélagsfræðikennslu hér á landi.
Staðreyndin er einfaldlega sú að Ragnhildur
Helgadóttir hefur lamað þann vaxtarbrodd sem
var að finna í íslenskum skólamálum.
Aðgerðarleysi hennar í kennaradeilunni sem
nú stendur yfir er því í stíl við fyrri afrek ráðherr-
ans.
jafnaðarmannaflokkar hinna Norðurlandanna
eru hliðhollir því að Norðurlöndin verði lýst
kjarnorkuvopnalaus svæði.
Sinnaskipti Alþýðuflokksins eru auðvitað stór-
pólitísk tíðindi og Jón Baldvin hlaut enda fyrir
verðskuldaða rassskellingu frá Anker Jörgen-
sen oddvita danskra Jafnaðarmanna, sem
kvaðst lítt fýsa að hitta hinn íslenska kollega
sinn.
Þetta sýnir auðvitað það eitt að Jón Baldvin er
á hraðri leið með Alþýðuflokkinn frá hinni hefð-
bundnu jafnaðarstefnu og stefnir bersýnilega
rakleiðis í náðarsæng íhaldsins. ÖS
Ferðalag Alþýðufloklcsins
KLIPPT OG SKORHE)
Nú er að líða árið sem ríkisstjórnin rændi af nemendum. (Sbr. árin sem engispretturnar átu).
Kaldlynd
ráðsmennska
Menntamálaráðherrar þeirra
ríkisstjórna sem sátu að völdum
fram að valdatöku núverandi
stjórnar gættu þess mjög í störf-
um sínum að húmanismi nyti sín á
alla lund. Mildi þessara ráðherra
verður enn auðsærri þegar sam-
anburður er gerður við þá ráðs-
mennsku sem nú þykir fín.
í umræðu á alþingi orðaði
Hjörleifur Guttormsson breyt-
inguna í viðhorfum til skólanna
svo: „Sú bjartsýni sem einkenndi
störf í skólunum fyrir nokkrum
árum hefur eðlilega farið dvín-
andi í Ijósi þeirra sérkennilegu
viðhorfa sem komið hafa frá ráð-
herrum þessarar ríkisstjórnar og
skýrast komu fram í ummœlum
hjá hœstvirtum fjármálaráðherra
á síðasta hausti og landsfleyg
urðu“.
Tilboð ríkisvaldsins í fyrradag
um 5%-kauphækkun til BHM-
ara er dæmigert fyrir þessi sér-
kennilegu kaldlyndu viðhorf
ríkisstjórnarinnar til menntamála
og afhjúpa svo ekki verður um
villst viðhorf til kennara og
menntamála.
Hið virta
fréttablað
Hið virta fréttablað Morgun-
blaðið gleymdi að segja frá til-
boði ríkisvaldsins til BHM-
manna í gær. Það sætir þannig
ekki tíðindum á því bóli, að kenn-
urum, sem fram að þessu hafa
notið sérstaklega árvekni
menntamálaráðherrans og ríkis-
stjórnarinnar allrar samkvæmt
túlkunum Morgunblaðsins, skuli
vera pakkað inní heildarsamn-
ingaviðræður við rúmlega 20 að-
ildarfélög BHM. Það er nú for-
gangurinn og flýtirinn á málinu í
menntamáia- og fjármálaráðun-
eytunum.
5%-tilboðið er ekki síður at-
hyglisvert fyrir þá sök, að marg-
sinnis hefur komið fram viður-
kenning ríkisvaldsins á því að
launamismunur ríkisstarfsmanna
og þeirra sem eru á almennum
vinnumarkaði er gífurlegur.
Gunnar Schram benti ráðherrum
sínum á þetta í umræðu á alþingi:
„Ef laun framhaldsskólakennara
eru borin saman við meðaltal
launa háskólamanna sem vinna
hjá einkafyrirtækjum kemur í
ljós að laun framhaldsskólakenn-
ara eru 81% lægri en það meðalt-
al sem er í einkageiranum. Og
munurinn á launum háskóla-
menntaðra manna hjá ríkinu og á
frjálsa markaðnum er í dag 61%
Tilboð ríkisstjómarinnar var
ekki 81%, ekki 61% - það var
5%.
Hurðarásinn
Kunningi klippara, sem er
framhaldsskólakennari, leit við
þegar verið er að hamra þessar
línur á blað. „Ég hefþað sjálfsagt
mun skárra en ýmsir aðrir, - en
hjá mér gengur dæmið samt sem
áður ekki upp“.
Hann er með 22 þúsund króna
grunnlaun, en með yfirvinnu yfir
vetrarmánuðina getur hann haft
uppí 30 þúsund króna mánaðar-
laun. Þetta er karl giftur og þau
hjón eiga tvö börn. Eiginkonan
vinnur í einkageiranum, sem
skrifstofumaður og hefur ögn
skárri laun, er með um það bil 18
þúsund króna mánaðarlaun fyrir
60% vinnu. Og hvernig gengur
að lifa? „Petta er allt einn hurðar-
ás,“ segir hann.
„Ég á ekki annað orð yfir þá
ríkisstjórn sem nú situr að völd-
um, heldur en að þar séu saman
komnir ótíndir rœningjar".
Heyrðu vinur, svona fullyrðingar
verðurðu að rökstyðja í virtu dag-
blaði, segi ég við hann. „Fyrst
rœnir þessi ríkisstjórn af launa-
fólki jafnt og þétt laununum. Pað
er ekki annað en rán, að afnema
með lögum verðbætur á laun. Og
þegar ránskjaravísitalan og fjár-
magnsránið bætist við, þá er
nafngiftin komin á hreint. Égskal
segja þér dæmi um litlu íbúðina
okkar“
Miljona-
ævintýrið
„Þegar við keyptum íbúðina
okkar fyrir fjórum árum, var ætl-
unin að gæta hófs, enda töldum
við okkur geta ráðið við litla þrig-
gja herbergja íbúð, 80 fermetra að
stærð"
„Lánin á íbúðinni þóttu viðráð-
anleg á sínum tíma, um áramótin
1980181. Pá tókum við lífeyris-
sjóðslán að upphæð 90 þúsund
krónur. Afþví höfum við borgað
um 100 þúsund krónur þessi
fjögur ár. Um síðustu áramót var
þetta 90 þúsund króna lán komið
uppí með öllu 360 þúsund krón-
ur“.
„Þá tókum við lítið G-lán hjá
Húsnæðisstofnun uppá 40 þús-
und krónur. Það lán er núna
komið uppí 111 þúsund krónur.
Þetta miljónaævintýri er ekki
komið til vegna þess að við höfum
reist okkur hurðarás um öxl,
heldur vegna þess í fyrsta lagi að
ríkisstjórnin kippti launavísitölu-
nni úr sambandi og í öðru lagi
hefur hú tekið upp geggjaða
frjálshyggjupeningastefnu. Við
gjöldum þess og nú segi égstopp".
Engu
að tapa
Pessi framhaldsskólakennari í
fjögurra manna fjölskyldu kvaðst
engu hafa að tapa lengur. „/
fyrsta skipti í okkar heimilisrekst-
ri þurftum við að taka lán einfald-
lega fyrir nauðþurftum heimil-
isins, nú eftir áramótin, launin
duga okkur einfaldlega ekki til
framfærslu“.
Kennarinn tók fram, að að-
stæður hans væru alls ekki verri
en margra annarra kollega hans.
Þetta væri það sem háskólamenn
byggju almennt við í dag - og
margt annað launafólk í landinu.
Hann benti á að afleiðingarnar af
kaupráninu væru mun skugga-
legri en atvinnulausir kennarar:
grunnskólakennarar hafa þegar
flúið tugum saman, virtir skóla-
menn í framhaldsskólunum væru
að hætta endanlega, nemendurn-
ir væru að glata öryggi og
menntun. „Þetta er árið sem ríkis-
stjórnin stal frá nemendum, “
sagði hann, með tilvísun til
áranna sem engispretturnar átu.
-«g
DJÓÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufólag Þjóðviljans.
Rltstjórar: Árni Bergmann, össur Skarphóðinsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Oskar Guðmundsson.
Fréttastjóri: Valþór Hlöðversson.
Blaðamenn: Aðalbjörg Óskarsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Guðjón
Friðriksson, Helgi Guðmundsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gísla-
son, Mörður Árnason, ólafur Gíslason, Sigurdór Sigurdórsson,
Víðir Sigurðsson (íþróttir).
Ljósmyndir: Einar Ólason, Einar Karlsson.
Otllt og hónnun: Filip Franksson, Þröstur Haraldsson.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrlfstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson.
Útbreiðslustjóri: Sigríður Pótursdóttir.
Auglýsingastjóri: Ragnheiður Óladóttir.
Auglýsingar: Anna Guðjónsdóttir, Ásdís Kristinsdóttir,
Hreiðar Sigtryggsson.
Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pótursdóttir.
Símavarsla: Margrót Guðmundsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir.
Húsmæður: Bergljót Guðjónsdóttir, Ólöf Húnfjörð.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ólafur Björnsson.
Bflstjóri: Ólöf Sigurðardóttir.
Utkeyrsla, afgreiðsla, augiýsingar, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 30 kr.
Sunnudagsverð: 35 kr.
Askriftarverð á mánuði: 330 kr.
Afgreiðsla blaðsins er opin á laugardögum
frá kl. 9 til 12, beinn sími: 81663.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 6. mars 1985