Þjóðviljinn - 15.03.1985, Side 3
FRETTIR
Álver í Eyjafirði
Mengun á 500 hektumm
Óráðlegt að stunda búskap á 6 býlum nœst Dysnesi.
Samkvæmt bráðabirgðaniður-
stöðum norskra sérfræðinga
mun flúormengun frá 130 þúsund
tonna álveri við Dysnes í Eyjafirði
hugsanlega hafa áhrif á búskap á
um 5 þúsund hektara svæði. Á því
er nú 41 býli með um 18.500 ær-
gildi: 530 kýr og 3.900 ær. Áhrif
loftmengunar fara vaxandi eftir
því sem nær dregur verksmiðj-
unni innan þessa svæðis og er tal-
ið óráðlegt að stunda hefðbund-
inn búskap á um 600 hekturum
næst Dysnesi. Þar eru nú 6 býli.
Staðarvalsnefnd kynnti bráða-
birgðaniðurstöðurnar á Akureyri
á miðvikudag en lokaskýrsla
Norðmannanna er væntanleg í
lok apríl.
Miðað er við norsk skaðsemis-
mörk, þ.e. 0,2-0,4 míkrógrömm
flúors í hverjum rúmmetra lofts,
sem þýðir að hey og bithagi hafa
sjaldnast meira en 30 milligrömm
flúors í hverju kílói þurrefnis.
Meira magn er talið skaðlegt
grasbítum. Norsku skaðsemis-
mörkin eru með hinum lægstu
sem þekkjast í heiminum í dag,
en mörk af þessu tagi fara sífellt
lækkandi.
Á 600 hekturum lands næst
verksmiðjunni er talið að flúor-
magnið fari yfir 1 míkrógramm í
hverjum rúmmetra lofts og sem
fyrr segir telur staðarvalsnefnd
óráðlegt að stundaður verði hefð-
bundinn búskapur þar ef álverið
verður reist.
Á næsta svæði, um 2000 hekt-
urum lands innan 0,4 míkró-
gramma markanna, er talið lík-
legt að hefðbundinn búskapur
verði fyrir áhrifum sem leitt gætu
til tjóns en á því (utan 600 hekta-
ranna) eru nú 9 býli með tæplega
6000 ærgildi.
Á hættusvæðinu fjærst Dys-
nesi, milli 0,4 og 0,2 míkrógram-
ma línunnar, eru nú 26 býli á
2.600 hekturum lands. Þar er tal-
in ástæða til að ætla að hefðbund-
inn landbúnaður geti orðið fyrir
áhrifum af völdum mengunar og
þurfi að vera undir eftirliti.
-ÁI
Björgunarstörf
Beltabíll
tekinn í notkun
Slysavarnadeildin Ingólfur hefur
fest kaup á nýjum beltabíl
Björgunarsveitin Ingólfur í
Reykjavík hefur tckið í notk-
un beltabifreið sem hægt er að
aka á malbiki sem og í snjó og
mun hún koma í góðar þarfir við
hjálparstörf á höfuðborgarsvæð-
inu, en hingað til hefur verið til-
finnanleg vöntun á slíku tæki. Til
að fjármagna starfsemi sína hefur
Björgunarsveitin Ingólfur efnt til
happdrættis sem ætlunin er að
efna til á meðal fyrirtækja um
land allt.
Þeir björgunarsveitarmenn
láta ekki þar við sitja. Frá Bret-
landi hefur verið pantaður 25 feta
björgunarbátur sem er að hluta
yfirbyggður og mun hann nýttur
til björgunarstarfa á hafnarsvæði
Reykjavíkur og nágrennis. Báta-
kaupin eru hluti landsátaks í end-
urnýjun björgunarbáta og verða
þrír aðrir afhentir á nokkrum
stöðum fram til vors. Auk þessa
hyggur Björgunarsveitin Ingólfur
á byggingu húsnæðis við Gróu-
búð á Grandagarði og er það gert
til að mæta sívaxandi starfsemi
síðustu árin.
Nokkrir félagar í Slysavarnadeildinni Ingólfi fyrir framan nýja beltabílinn. Ljósm.: eik.
Reykjavík
Framsókn mótmælir stjóminni
Kosningar í
Háskólanum
í gær var kosið til stúdentaráðs og
Háskólaráðs í Háskóla íslands. Til
stúdentaráðs fékk Vaka 657 atkvæði
og 5 menn kjörna, vinstrimenn 563
atkvæði og 5 menn kjörna og umbóta-
sinnar 382 atkvæði og 3 menn kjörna.
Til Háskólaráðs fékk Vaka 687 at-
kvæði, vinstrimenn 548 og umbóta-
sinnar 437 atkvæði.
Á kjörskrá voru 4369 og af þeim
kusu 1793 eða 41% sem er minnsta
kosningaþátttaka í HÍ sl. 6 ár.
- S.dór.
Stjórn Framsóknarfélags
Reykjavíkur telur sérstaka
ástæðu til að mótmæla stefnu
Seðlabankans og ríkisstjórnar-
innar, sem fylgt hefur verið í
vaxtamálum. Sú stefna hefur leitt
til Jtess, að miklir greiðsluerf-
iðleikar hafa skapast jafnt hjá
fyrirtækjum sem einstaklingum,
Bridge
Alþjóðlegt stómiót í kvöld
Stórfé í verðlaun. Heimsfrœgir erlendir gestir
I leiðum Bridgehátíð 1985. Dav-
íð Oddsson borgarstjóri mun
hefja leikinn, með fyrstu sögn, í
tvímenningskeppni 48 para. Þar
af eru 14 pör erlendis frá, þar á
meðal núverandi ólympíumeist-
arar í bridge og einn frægasti spil-
ari heims, Zia Mahmood frá Pak-
istan.
Tvímenningskeppninni lýkur
svo annað kvöld, en á sunnudag-
inn hefst svo Opna Flugleiða-
mótið, sem er sveitakeppni með
þátttöku 36 sveita. Því lýkur svo á
mánudagskvöld.
Mjög góð aðstaða er fyrir
áhorfendur á Loftleiðum meðan
á Bridgehátíð stendur. Sýnt verð-
ur frá sveitakeppninni í Áuditori-
um, valdir leikir úr hverri um-
ferð.
Verðlaunafé í mótinu eru milli
7000 og 8000 US-dalir. Móts-
stjóri er Björn Thfeodórsson en
keppnisstjóri Agnar Jörgensson.
- Ó.L.
ekki síst húsbyggjendum, og blas-
ir víða gjaldþrot við.
Telur stjórn Framsóknarfélags
Reykjavíkur með öllu óverjandi,
að lán séu verðtryggð meðan laun
eru óverðtryggð.
Verði núverandi vaxtastefnu
fylgt óbreyttri er líklegt, að hún
leiði til gengisfellingar, sem bitn-
ar ekki síst á sparifjáreigendum,
sem upphaflega átti að vernda
með núverandi vaxtastefnu.
Þá lýsir stjórn Framsóknarfé-
lags Reykjavíkur yfir furðu sinni
á því, að núverandi vaxtastefna
hefur verið framkvæmd, þrátt
fyrir andstöðu meirihluta þing-
flokks Framsóknarflokksins.“
Undir fréttatilkynninguna frá
stjórninni ritar Alfreð Þorsteins-
son nýkjörinn formaður félags-
ins.
-óg.
Föstudagur 15. mars 1985 ÞJOÐVILJINN — SlÐA 3