Þjóðviljinn - 17.03.1985, Qupperneq 5
Landvinningar nor-
rœna kattastofnsins
Stuðningur við kenninguna
um Vínlandsfund Leifs heppna
Árið 1977 var dr. Stefán Að-
alsteinsson inntur eftir því
hvort hann hefði áhuga á sam-
starfi við Neil B. Todd við há-
skóiann í Boston í Massachus-
ets í Bandaríkjunum um að
kanna dreifingu á húsdýrum í
Norðvestur-Evrópu á víking-
atímunum, en Todd er sér-
fræðingur í útbreiðslu katta-
stofna.
- Jú, ég hafði áhuga og sló til,
sagði dr. Stefán, er blaðamaður
forvitnaðist hjá honum um þessar
rannsóknir. - Nú, sjálfur gat ég
þegar í upphafi lagt dálítið af
mörkum þar sem var samanburð-
ur á íslensku og færeysku sauðfé,
en megin viðfangsefnið átti nú
samt sem áður að vera kötturinn.
Hér hafði farið fram nokkur
könnun á því hversu algengir ein-
stakir kattalitir eru. Var sú rann-
sókn einkum bundin við Reykja-
vík og nágrenni hennar. Ég bætti
nú við Austurlandi, Snæfellsnesi
og Hrunamannahreppi, en þar
annaðist Guðmundur Jónsson á
Kópsvatni þessar athuganir.
Hvaðan eru
kettirnir
okkar?
Nú er hægt, út frá litum, að
segja fyrir um hvaða erfðavísum
hver köttur búi yfir í allt að sex
erfðavísa sætum. Þannig má
rekja tíðnina á einstökum litaaf-
brigðum á hverju svæði. Síðan er
hægt að bera þessa tíðni í litum
saman frá landi til lands og kanna
þannig hvaða stofnar eru líkastir
að erfðafari og hverjir ólíkastir.
Áhugi minn beindist að því að
kanna hvaðan ískenski kötturinn
kynni að vera upprunninn og bar
hann saman við kattastofna í ná-
grannalöndum okkar hér í Ev-
rópu.
Sá samanburður leiddi í ljós,
að íslensku kettirnir voru líkastir
sænskum og færeyskum köttum
og svo köttum á eyjunni Yell í
Hjaltlandseyjaklasanum en
ólíkir köttum á Suður-Englandi
og írlandi. Orkneyjar og hluti
Hjaltlandseyja lá þarna á milli en
engar upplýsingar eru til um lita-
tíðni kattastofna í Noregi.
Aðalályktun mín var sú að,
kattastofninn væri upprunninn
frá Norðurlöndunum. hefði síðan
borist, á Víkingaöld, til Hjalt-
lands, Færeyja og íslands.
Slóðin
rakin ófram
Til þess að fá einhvern mæli-
kvarða á það hversu mikill þessi
stofnamunur innan Norðvestur-
Evrópu væri, var mér bent á að
gaman væri að athuga hversu lík-
ur eða ólíkur „Víkingastofninn"
væri köttum á austurströnd
Bandaríkjanna. í þessu sam-
bandi valdi ég kettina í Boston í
Massachusets. Þá koma þau
undur í ljós að sá kattastofn
reyndist vera því nær alveg eins
og „Víkingastofninn“, en veru-
lega ólíkur breska stofninum.
Þessi uppgötvun varð svo til
þess að uppruni Boston-kattanna
var tekinn til sérstakrar rann-
sóknar, sem ég svo vann að í sam-
vinnu við fræðimann í Boston,
Ben Blumenberg. Rannsóknir
okkar staðfestu að öll leyti fyrri
niðurstöðu: að Boston-kettirnir
væru svo líkir norrænum köttum,
að mjög sennilegt mætti telja að
þeir væru af sama uppruna.
Leifs þóttur
heppna
Ritgerð um þetta efni var svo
birt í þýsku tímariti, þar sem við
bentum á þann möguleika, að
kettirnir í Boston værru afkom-
endur norrænna katta, sem hefðu
borist þangað vestur með land-
námstilraunum norrænna manna
á dögum Leifs heppna. Þessir
kettir hefðu svo lagst þarna út er
dvöl norrænna manna lauk og
villikattastofninn verið orðinn
það stór er breskt landnám hófst
á þessu svæði, að hann hafi ráðið
lögum og lofum í æxluninni og
mótað framtíðarstofninn með
sínu eðli.
Það er athyglisvert í sambandi
við þessa tilgátu, að Helge Ings-
tad, Norðmaðurinn, sem fann
norrænu víkingaaldarrústirnar á
Nýfundnalandi, segir í skrifum
sínum, að Vínland kunni að hafa
verið tvö lönd, annarsvegar Ný-
fundnaland og hinsvegar hafi ver-
ið til Vínland mun sunnar á
ströndinni. Það staðsetur hann
norðan við suðurmörk laxgengd-
ar í ár og sunnan við norðurmörk
vínviðartegundar, sem vex villt á
þessu svæði. Boston liggur nokk-
urn veginn mitt á milli þessara
marka.
Viðbrögð við þessari ritgerð
eru nú að koma fram í Bandaríkj-
unum á þann veg, að útdráttur úr
henni er farinn að birtast í frétt-
abréfum sagn- og fomleifafræð-
inga. Það sýnir að menn eru farn-
ir að velta þeim möguleika fyrir
sér, að þarna sé um að ræða leifar
frá landnámi norrænna manna í
Norður-Ameríku, sagði dr. Stef-
án Aðalsteinsson.
-mhg
STOR-
UEKKUN
AUGLÝSIR
U.N.I
vegna hagstæðra
innkaupa
Nautahakk kr. 198,- kg.
Nautagúllas kr. 271,- kg.
Nautasnitsel kr. 289,- kg.
Nautabuff kr. 419.- kg.
Nautalundir / og hryggvöðvar kr.449.- kg.
Nautabógsneiðar kr. 198,- kg.
Framhrygg jarsneiðar kr. 239,-kg.
Verð þetta bjóðum
við meðan birgðir
Tilboð
helgarinnar
Erlend sulta
Jarðarberjasulta
Ferskjusulta
Apríkósusulta
Appelsínusulta
Eplasulta
500 grömm
Verd adeins kr.
41
40
Munið JI5 - hornið
í JI5 portinu
öl og gosdrykkir á kassaverði
Grænmet! og kartöflur — Veljið ajál
JIS
CaCQ JI 23 I
CQIICuU
ui ^ u,- a mjQcui-
lUUUUUDI ««k
Jón Loftsson hf. _____________
^ ^ ^Hringbraut 121 Sími 10 600
Sunnudagur 17. mars 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5