Þjóðviljinn - 17.03.1985, Blaðsíða 6
Samfélagið í upplausn
eflir ránsherferð
leiftursóknarinnar
Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalagsins: Það verður að verja
samneysluna og það verðurað taka á vanda húsbyggjenda strax í dag
Svavar Gestsson: íhaldið og Alþýðubandalagið eru meginandstæður íslenskra
stjórnmála.
Það þarf að heimta það aft-
ursem frjálshyggjuöflin hafa
rœnt af fólkinu, - það þarf
líklega að hœkka kaupið í
sumar um 44% til þess að ná
meðaltalskaupmœtti
áranna 1980-82, segir Svav-
arGestsson formaður Al-
þýðuþandalagsins m.a. í
viðtalinu sem hér fer á eftin
- Forðum var Alþýðubanda-
lagið hinn stóri valkostur sem jók
fylgi sitt mjög í stjórnarandstöðu.
Nú hefur setið að völdum ein æg-
ilegasta hægristjórn sem sögur
fara af, en fylgið virðist rýrna
fremur en hitt?
- Alþýðubandalagið er sá stóri
flokkur íslenskra vinstrimanna
en ekki nærri nógu stór einkum
ekki í samanburði við íhaldið. AI-
þýðubandalagið hefur 10 þing-
menn; aðrir stjórnarandstöðu-
flokkar minna. I næstu kosning-
um verður Alþýðubandalagið
næststærsti flokkur landsins -
hvenær sem þær kosningar verða.
Ég vildi gjarnan fá þær sem fyrst.
Það er reyndar ekkert sjálfgef-
ið að flokkur auki fylgi sitt í
stjórnarandstöðu - einkum ekki
ábyrgur flokkur eins og Alþýðu-
bandalagið. Við erum ábyrg
gagnvart umbjóðendum okkar,
íslensku verkafólki. Við iðkum
ekki trúðleika en leggjum áherslu
á að pólitík snýst um málefni en
ekki leikaraskap.
Tvœr
meginandstœður
í þjóðfélaginu takast á tvær
meginandstæður- launavinnu og
auðmagns, verkalýðshreyfingar
og fj ármagnseigenda, Alþýðu-
bandalag og Sjálfstæðisflokkur.
Launamenn - þeir sem eiga ekk-
ert að selja nema vinnuafl sitt -
eru yfirgnæfandi meirihluti þjóð-
arinnar og einmitt þeir þurfa að
eiga öflugan stjórnmálaflokk sem
hefur í fullu tré við afturhaldsöfl-
in. Milliflokkar sem eru ýmist
heilir eða hálfir á kafi í viðhorfum
afturhaidsins geta aldrei myndað
það mótvægi við Sjálfstæðis-
flokkinn sem dugar til langframa.
Nú hefur Alþýðubandalagið
tapað fylgi samkvæmt öllum
skoðanakönnunum sem gerðar
hafa verið á þessu ári. í septem-
ber sl. mældist Alþýðubandalag-
ið með yfir 20% fylgi, en hefur nú
samkvæmt flestum könnunum í
kringum 13-14%. Hvað hefur
gerst frá því í september sem
skýrir þetta fylgistap?
- Alþýðubandalagið hefur
ekki tapað fylgi frá síðustu kosn-
ingum. Það mun koma í ljós.
Eftir því sem nær dregur kosning-
um vega málefnin þyngra. Hér
hefur verið einsflokkskerfi í
kosningabaráttu í þrjá mánuði.
Sveifla til Jóns Baldvins skýrist af
því. Hættan sem við stöndum
frammi fyrir nú er að mynduð
verði viðreisnarstjórn íhalds og
krata eftir næstu kosningar. Það
má ekki gerast. Það var sú stjórn
sem innleiddi það efnahags-
stjórnkerfi sem nú er að sliga
þjóðina - ekki síst eftir að núver-
andi ríkisstjórn gekk feti framar.
Fagleg og
pólitísk barótta
- Er þá Alþýðubandalagið á
uppleið um þessar mundir?
- Hvað segja þér 30 fundir frá
áramótum í öllum kjördæmum
landsins, ágætar undirtektir á
nærri hundrað vinnustöðum í
Reykjaneskjördæmi, glæsileg
kvennastefna Alþýðubandalags-
ins, stefnuumræða og almennt
eitt líflegasta flokksstarf sem
lengi hefur verið í flokki okkar?
Mér segja þessar staðreyndir það
að íslenskir sósíalistar gera sér
betur grein fyrir því að það er
lífsnauðsyn fyrir verkalýðsbarátt-
una og þjóðfrelsisbaráttuna ein-
mitt nú að eiga öflugt Alþýðu-
bandalag. Það kom til mín maður
eftir borgarstjórnarkosningarnar
1982 þegar íhaldið hafði unnið
borgina og við höfðum tapað
borgarfulltrúum og sagði að nú
hefði hann ákveðið að ganga í
flokkinn: Nú finn ég að það er
þörf fyrir mína starfskrafta -
þetta má ekki ganga svona lengur
til. Þessar raddir hef ég heyrt að
undanförnu hjá fjölda félaga.
Við skulum muna að flokkur
okkar er málstaður. Við skulum
einnig muna að verkalýðshreyf-
ingin nær aldrei að breyta þjóðfé-
laginu varanlega - nema hún eigi
stjórnmálaflokk. Þannig verður
faglega og pólitíska baráttan að
fara saman, hlið við hlið, eins og
Eðvarð Sigurðsson benti oft á.
Hann sagði reyndar líka í síðustu
ríkisstjórn: Kaupmátturinn er
þetta hár vegna þess að Alþýðu-
bandalagið er í ríkisstjórn. Þessi
orð Eðvarðs er hollt að hafa í
huga.
- Alþýðubandalagið hefur boð-
ið hinum stjórnarandstöðuflokk-
unum upp á viðræður um nýtt
landsstjórnarafl. Undirtektirnar
hafa vægast sagt verið nei-
kvæðar. Hafa aðrir en Alþýðu-
bandalagið engan áhuga á sam-
starfi félagshyggjuafla?
- Alþýðubandalagið er
samfýlkingar-einingarflokkur.
Það Iiggur í eðli Alþýðubanda-
lagsins. Sundrung félagshyggju-
fólks er ein meginástæða kjara-
skerðingarinnar og árásanna á
þjóðfrelsið á undanförnum miss-
erum. Frammi fyrir þeim verk-
efnum sem blasa við í dag er það
einfaldlega ábyrgðarleysi að
reyna ekki allt sem unnt er til að
laða þá saman sem saman eiga.
Ábyrgðarlausir
sundrungaraðilar
Það ber að gagnrýna þá
ábyrgðarlausu sundrungaraðila
sem stýra Bandalagi jafnaðar-
manna og Kvennaframboðinu í
Reykjavík. En ég hef líka orðið
var við að stuðningsmenn þessara
afla hafa lýst óánægju með skiln-
ingsleysi forystumanna sinna. Ég
hef orðið var við áhuga á því og
skilning um allt land að nauðsyn-
legt sé að félagshyggjufólk þjappi
sér saman. Alþýðubandalagið
mun aldrei láta undan síga við að
boða það erindi: Annað hvort
Alþýðubandalagið eitt eða í
bandalagi við aðra er eina svarið
sem við eigum í dag andspænis
miskunnarlausri harðstjórn pen-
ingaaflanna sem nú er að svipta
fólk eigum á nauðungaruppboð-
unum, þau eru orðin táknrænasta
afleiðing stjórnarstefnunnar
ásamt Lögbirtingarblaðinu sem
þeir Albert og Steingrímur gefa
út til þess að tilkynna um
nauðungaruppboðin.
- Heidur þú að viðræðutilboð
Alþýðubandalagsins hafi verið
mistök?
- Af hverju? Þó að þessir aðilar
- einkum Bandalag jafnaðar-
manna og Kvennaframboðið í
Reykjavík - hafi svarað út úr
breytir það engu um að erindið á
og átti rétt á sér. Það er ekki síður
nauðsynlegt að fá það fram hverj-
ir það eru sem vilja iðka sundr-
ungariðju í stað samstarfs félags-
hyggjufólks. Það er eins gott að
það liggi þá fyrir svart á hvítu.
Vonbrigði
Morgunblaðsins
- Andstæðingarnir segja, að
innan Alþýðubandalagsins sé
óeining í kjaramálum og í
verkalýðshreyfingunni. Er
Alþýðubandalagið með trú-
verðuga pólitík um bætt kjör og
hærra kaup?
- Já, sú stefna liggur fyrir í
frumvarpi um alhliða aðgerðir í
efnahagsmálum sem við lögðum
fram í haust a) um að tryggja
kaupmátt b) um fulla atvinnu og
c) um að ekki yrði verðbólgu-
skriða á nýjan leik.
Ég hef tekið eftir því að Morg-
unblaðið og afturhaldið er að
gera sér vonir um að við séum á
einhverju undanhaldi.
Morgunblaðið og íhaldið eiga
eftir að verða fyrir vonbrigðum:
Það mun koma í ljós þegar líður á
árið að samstaða verður betri
með verkalýðshreyfingunni í bar-
áttu hennar en 1984. Það var
ógæfan að verkalýðssamtökin
skyldu ekki ná betur saman; þar
er engum einum um að kenna.
Aðal atriðið er heldur ekki það
heldur hitt að menn læri af
reynslunni. Um þessi mál verður
meðal annars fjallað á mið-
stjórnarfundi okkar í lok þessa
mánaðar.
- I tengslum við svonefnda
skattalækkunarleið hefur stund-
um borið á góma að „ný-
sköpunarstjórn“ gæti verið
lausnarorðið. Hafa skoðanir þín-
ar eftir lélegar viðtökur stjórnar-
andstöðunnar breyst í þessu efni?
- Eins og Guðmundur J. benti
á í Hafnarfjarðarbíói á fundi okk-
ar þar: Það er ólíklegt annað en
heildsalarnir og braskararnir ráði
ferðinni í Sjálfstæðisflokknum.
Þeir hafa ekki áhuga á stjórnar-
samstarfi við Alþýðubandalagið.
Og þeir ráða. En það er jafnljóst
að margir atvinnurekendur, í
framleiðslugreinunum telja að
launamenn og framleiðslan þurfi
nú að eiga samleið gegn millilið-
unum og vaxtaokrinu. Um þetta
erum við sammála og um þetta
skrifaði ég reyndar grein í þetta
blað í fyrrasumar.
En aðalatriðið er að menn átti
sig á meginandstæðum íslenskra
stjórnmála, þær eru íhaldið og
Alþýðubandalagið. Framsókn-
arflokkurinn er nú að fram-
kvæma leiftursóknarstefnuna
fyrir íhaldið. Svona fer fyrir
veiklunduðum miðflokkum sem
snúast eins og vindhanar.
Margir Sjálfstæðismenn eru
þeirrar skoðunar að engu breyti
hvort atkvæði íhaldsins eru hjá
þeim eða Jóni Baldvin; atkvæðin
sem íhaldið leggi inn hjá krötun-
um fyrir kosningar verði tekin út í
pólitík eftir kosningar. Þar með
er spurningin um öflugan and-
stæðing íhaldsins og hverjir aðrir
en Alþýðubandalagið hafa þrótt,
dug, kjark og stefnu til þess að
ráðast gegn afturhaldi þessa
lands? Svar: Enginn annar.
Skattabreytingar
- Samningar eru lausir í haust.
Hvaða kröfur telur þú árang-
ursríkast að setja á oddinn?
- Það þarf að heimta það aftur
sem frjálshyggjuöflin hafa rænt af
fólkinu á undanförnum misser-
um. Það þarf líklega að hækka
kaup í sumar um 44% til þess að
ná meðaltalskaupmætti áranna
1980-1982. Það þarf að verja
samneysluna og það verður að
taka á vanda húsbyggjenda strax.
Það verður að semja um skatta-
breytingar, því neðanjarðarhag-
kerfið hefur sogað til sín stórfellt
fjármagn sem næst ekki eftir
venjulegum beinum skattlagn-
ingarleiðum. Allt þetta hlýtur að
verða undir í samningum í haust
og sjálfsagt margt fleira. En aðal-
atriðið er: kaupmáttartryggingin,
og það þarf að byrja á því fyrst af
öllu. Það á ekki að setja trygging-
arkröfurnar fram síðast heldur
fyrst, svo ég vitni enn í Guðmund
J. í Reykjanesför okkar á dögun-
um.
6 SIÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 17. mars 1985