Þjóðviljinn - 17.03.1985, Qupperneq 13
SKAK
Seltjarnarnes
Öflugt meistaramót '85
Um þessar mundir stendur
yfirí Valhúsaskólaá
Seltjarnarnesi Meistaramót
Seltjarnarness 1985. T eflt er í
tveimur riðlum, A- og B-riðli.
A-riðillinnerskipaðursterkum
skákmönnum og má þar
nefna Róþert Harðarson
núverandi skákmeistara
Reykjavíkur, HalldórG.
Einarsson, Hilmar Karlsson
fyrrverandi íslandsmeistara
og GunnarGunnarsson
fyrrum knattspyrnukapþa og
fyrrverandi forseta Skáksam-
bandsins.
Þegar þessar línur eru ritaðar
hafa fimm umferðir verið tefldar
á mótinu. í A-riðli er staðan
þannig:
1.-2. HalldórG. Einarsson
3*/2 af 5
1.-2. Hilmar Karlsson 3'/2
3.-4. Róbert Harðarson 3
3.-4. HannesH.Stefánsson 3
5.Snorri G. Bergsson 2*/2
6.-8. GunnarGunnarsson
2 + biðskák
6.-8. Gunnar F. Rúnarsson
2 + biðskák
6.-8. Þráinn Vigfússon
2 + biðskák
9.-11. HaraldurHaraldsson
l'/2 + biðskák
9.-ll.TómasBjörnsson
IVi + biðskák
9.-ll.JónÁ. Halldórsson IV2
12.GylfiMagnússonl + biðskák
Það þykir sýnt að baráttan um
efsta sætið í Á-riðli verði spenn-
andi og komi til með að standa á
milli þeirra Halldórs, Hilmars og
Róberts.
Árangur Hannesar H. Stefáns-
sonar er mjög athyglisverður ef
tekið er tillit til þess að drengur-
inn er aðeins 12 ára gamall og
næststigalægstur keppenda.
Hannes hefur nú 1880 eló-stig en
með sama áframhaldi verður
honum ekki skotaskuld úr því að
rjúfa 2000-stiga múrinn!
í 3. umferð gerði Hannes sér
lítið fyrir og sigraði einn af okkar
sterkustu skákmönnum Gunnar
Gunnarsson:
Hvítt: Hannes H. Stefánsson
Svart: Gunnar Gunnarsson
Italski lcikurinn
1. e4 e5
2. Rf3 Rc6
3. Bc4 Rf6
4. Rg5
Það hefur yfirleitt verið talið
hæpið að hvítur nái nokkru frum-
kvæði með þessum leik. Algengt
er 4. d4 exd4 5. 0-0 Re4 6. Hel d5
7. Bxd5 Dxd5 8. Rc3 Da5 9. Re4
Be6 og staðan er tvísýn.
4. — d5
5. exd5 b5?!
Vafasamur leikur. Best er 5. -
Ra5, t.d. 6. Bb5+ c6 7. dxc6 bxcó
og svartur verður á undan í liðs-
skipan.
6. Bfl! Rxd5
7. Bxd5 Bb7
8. d3 Be7
9. Dh5!
Þvingar fram veikingu á kóngs-
vængnum.
9. -g6
10. Dh6 Bf8
11. Dh3 Bg7
12. Rc3 Rxc3
13. bxc3 Df6
Svarta staðan er þegar orðin erf-
ið, enda hefur svörtum ekki tek-
ist að fá mótspil fyrir hið fórnaða
peð. Ekki gekk 13. -e4 vegna 14.
d4! Sömuleiðis var slæmt að leika
13. -h6 14. Re4De7 15. a4! ásamt
16. Ba3 og hvítur hefur vinnings-
stöðu.
14. Re4 Df5
Gunnar ákveður að fara út í
endatafl þar sem það hefur verið
viðurkennd staðreynd að enda-
töflin eru lakasta hlið „yngri kyn-
slóðarinnar“. í þessu tilviki er
hvíta staðan hins vegar svo góð
að auðvelt er að nýta sér hana til
sigurs.
15. Dxf5 gxf5
16. Rc5 0-0-0
17. Rxb7 Kxb7
18. Hbl Hd6
Nú vinnur hvítur annað peð.
Eftir 18. - f6 er svarta staðan hins
vegar ekki glæsileg.
19. Bc4+ Kc8
20. Bxf7 e4
21. d4 Rd8
22. Bc4 Rb7
23. Bf4 Hg6
24. Bf7! Hf6
Ef 24. - Hxg2 þá 25. Be6+ Kb8
26. Bd5 og vinnur.
25. Bd5 Rd6(?)
26. Be5 Hg6
27. Bxg7 Hxg7
28. Be6+ Kd8
29. Hb8+ Ke7
30. Hxh8 Kxe6
Með skiptamun og 2 peð yfir átti
Hannes ekki í erfiðleikum með
að innbyrða vinninginn. Gunnar
gafst upp eftir 49 leiki. Örugg
taflmennska hjá Hannesi!
Þegar tveir sóknarskákmenn
mætast er ekki við öðru að búast
en að viðureign þeirra verði
fjörug. Sú varð raunin í 1. umferð
er Halldór G. Einarsson og
Gunnar Gunnarsson leiddu sam-
an hesta sína.
Hvítt: Ilalldór G. Einarsson
Svart: Gunnar Gunnarsson
Kóngspeðs-byrjun
1. e4 e5 6. c3 Bg4
2. Bc4 Rf6 7. h3 Bh5
3. d3 Bc5 8. Hel 0-0
4. RO d6 9. Bb3 h6
5. 0-0 Rc6 10. g4
Þessi hvassi leikur lýsir skákstíl
Halldórs vel. Varkárari sálir
hefðu leikið 10. Rbd2 ásamt Rfl
og Rg3
10. - Rxg4!?
Gunnar tekur hraustlega á móti!
Þessi fórn stenst þó ekki gegn
bestu taflmennsku. Eftir 10. -
Bg6 11. Rbd2 He8 ásamt 12. - d5
hefur svartur ágætis tafl.
11. hxg4 Bxg4
12. Be3 Df6
13. Rbd2 Dg6
14. Kfl Kh8
Svartur undirbýr framrás f-
peðsins.
15. Bxc5 dxc5
16. Dbl f5
17. Rgl fxe4
18. Rxe4 Hf4
19. Bdl Bf5
20. b3?
Þessi leikur þjónar engum til-
gangi. Eftir 20. He3 Hf8 21. Dc2
er ekki auðvelt að benda á fram-
hald fyrir svartan til að viðhalda
sókninni.
20. - Hf8
21. Dc2 b5!
Hugmyndin með þessum leik er
að leika 22. - b4, 23 - bxc3 og
koma síðan riddaranum í
ógnvekjandi stöðu á d4. Nú kem-
ur í ljós hversu slæmur 20. leikur
hvíts var; ef b-peðið stæði enn á
b2 gæti hann varið d4 reitinn.
22. Rxc5??
Hrikalegur afleikur! Halldóri
yfirsést hinn firnasterki svar-
leikur Gunnars.
22. - Bxd3+!
Gerir út um taflið vegna þess að
hvítur getur ekki varið f2-reitinn.
23. Rxd3 Dxd3+
24. Re2 Dh3+
25. Kgl Hxf2
Og hvítur gafst upp enda mát í
næsta leik.
Hugdjörf taflmennska hjá
Gunnari!
-HL
AÐALFUNDIR
DEILDA KRON
verða sem hér segir:
3. og 4. deild
Aðalfundur mánudag 18. mars kl. 20.30 í Afurðasöiu
SÍS, Kirkjusandi.
Félagssvæði: Laugarneshverfi, Kleppsholt, Heima-
og Vogahverfi. Hlíðarnar, Holtin, Túnin
og Háaleitishverfi.
1. og 2 deild
Aðalfundur þriðjudag 19. mars kl. 20.30 í Hamragörð-
um, Hávallagötu 24.
Félagssvæði: Seltjarnarnes, Vesturbær og Miðbær
að og með Rauðarárstíg og Flugvall-
arbraut.
5. deild
Aðalfundur mánudag 25. mars kl. 20.30 í fundarstofu
KRON í Stórmarkaðnum Skemmuvegi 4 A.
Félagssvæði: Smáíbúðahverfi, Gerðin, Fossvogur,
Breiðholt, Árbær og staðir utan Reykja-
víkur.
6. deild
Aðalfundur þriðjudag 26. mars kl. 20.30 í fundarstofu
KRON í Stórmarkaðnum Skemmuvegi 4 A.
Félagssvæði: Kópavogur.
Dagskrá skv. félagslögum.
Kaffiveitingar.
Sjá einnig auglýsingar í verslunum KRON.
KAUPFÉLAG REYKJAVÍKUR 0G NÁGRENNIS
Sælueyia Jóhannesarrlddaranna. Nú bjóöast ódýrar
sólskinsferóir til Miðjaröarhatseyjarinnar Möltu.
Þessi sögufræga sólskinsparadis býóur upp á flest þaö,
sem fólk leitar aó i sólarlandaferðum.
Fluqferbir
— Sólarflug Veslurgolu 17 Simar 10661 15331 og 22100
22 dagar 29 dagar
júl-sep apr-jun okt jul-sep
26.600 25.600 27.500
27.000 26.000 28.100
27.400 26.400 28.700
28.200 27.300 29.800
29.300 28.200 31.400
31.000 30.300 34.200
37.000 35.600 42.100
15dagar apr-jún
apr-jún júl-sep
okt okt
7 í íbúð 24.400 25.700 25.000
6 í íbúð 24.600 25.900 25.300
5 í íbúð 24.800 26.100 25.600
4 í íbúð 25.100 26.600 26.200
3 í íbúð 25.400 27.200 26.800
2 f íbúð 26.100 27.800 28.200
1 í íbúð 28.800 31.800 32.200
Innifalið í verði: Flug, akstur frá og til flugvallar á Möltu. Matarpakki við
komuna í íbúðina.
Aðstoð umboðsmanna okkar á Möltu.
Barnaafsláttur: Börn 2 - 12 ára fá 50% afslátt.
JÁRNBLENDIFÉLAGIÐ HF.
auglýsir starf
VERKFRÆÐINGS EÐA EÐLIS/EFNAFRÆÐINGS
í ofndeild laust til umsóknar.
Starfið er einkum fólgið í umsjón með daglegum
rekstri járnblendiofna. Ennfremur verður unnið að ým-
iss konar sérverkefnum.
Æskilegt er að viðkomandi hafi einhverja reynslu í
stjórnun. Ennfremur er menntun á rafeinda- og tölvu-
sviði æskileg en ekki skilyrði.
Allar nánari upplýsingar um starfið veitir Helgi Þór-
hallsson, verkfræðingur, í síma 93-3944.
Umsóknir skulu sendar járnblendifélaginu eigi síðar
en 9. apríl n.k. Umsókn fylgi ýtarlegar upplýsingar um
náms- og starfsferil ásamt prófskírteinum.
Grundartanga, 14. mars 1985.
Svæðisstjórn málefna fatlaðra
Norðurlandi eystra
Vistheimilið Sólborg
Þroskaþjálfarar óskast til starfa frá 1. apríl í verkstjórn
á deild upp frá 1. maí f stöðu deildarstjóra.
Upplýsingar í síma 96-21755 virka daga frá k. 10-16.
Forstöðumaður