Þjóðviljinn - 17.03.1985, Page 20
Ný bók eftir
Hemingway
Fjallar um samanburð á nauta-
bönum
Úter komin ný bók eftir Ernest
Hemingway, sem skrifuð var
1959. Deilt er um þessa út-
gáfu, en efni bókarinnar var
áður þekkt í styltra formi.
Forsaga þessa máls er sú, að
árið 1959 fór Hemingway þá Nó-
belsskáld, 'en að því er virtist
þrotinn að hugmyndum, til Spán-
ar. Hann hafði samið við tímarit-
ið Life um að skrifa 10 þúsund
orða grein um tvo þekktustu
nautabana Spánar sem þá voru,
Dominguin og Ordonez, og
keppni þeirra um hylli áhorf-
enda. Úr þessu ferðalagi varð svo
120 þúsund orða frásögn sem
aldrei kom út, heldur var hún
klippt niður í 35 þúsund orð. Hét
greinaflokkurinn þá „Sumarið
hættulega“.
Ekki er allur texti Hemingways
heldur með í þeirri bók sam-
nefndri sem nú kemur út, heldur
tæpur helmingur. Enn treystir út-
gefandi sér ekki til láta frægð rit-
höfundarins vinna bug á tregðu
lesandans við að lesa þær lang-
drengnu og mjög smásmugulegu
lýsingar á nautaati, sem enn eru
óprentaðar.
Hemingway var mikill áhuga-
maður um nautaat, sem honum
Nautabaninn Ordones (til hægri) kastar húfu sinni til Hemingways. Myndin er tekin 1959.
þótti hæfa við þá ímynd karls í
krapinu sem hann vildi samsama
sjálfum sér. Nautaat er veiga-
mikill þáttur f sögunúm Fiesta og
Dauði eftir nón. Sú bók sem nú
kemur út er ekki sögð með betri
textum Hemingways. Samt sýni
hún vel hetjuskapartilburði hans,
umburðarleysi gagnvart þeim
sem veikburða voru og ótta hans
sjálfs við þann dauða sem í hönd
fór.
V\
I0NDON - REYKJAVIK
-á3dögum
Vissirðu að vara sem er í London á föstudegi getur hæglega verið komin
til Reykjavíkur á mánudegi. Lestum í Ipswich alla föstudaga.
HAFSKIP HF.
-framtíð fyrir stafni
°kkar
ugin ■
ÞÍNln W6A
1^9888^ 97?4/5 PSWlcfi
I