Þjóðviljinn - 20.03.1985, Side 6
ÞJÓÐMÁL
Tölvuvinnsla
Hefðbundin
kynjaskipting
Landsfundur KRFÍ: Aukin samsköttun hjóna
er skref aftur á bak
Könnun um þátttöku kvenna í
störfum sem byggja á tölvu-
tækni var mál málanna á nýaf-
stöðnum landsfundi Kvenréttind-
afélags Islands. Könnunin sem
Ragnheiður Harðardóttir, Sig-
rún Jónsdóttir og Sveinbjörg J.
Svavarsdóttir unnu að undirlagi
KRFÍ og með styrk frá fjármála-
ráðuneytinu. Könnunin staðfest-
ir með tölum það sem menn grun-
aði þeas. að hefðbundin verka-
skipting kynjanna fylgir okkur
inn í tölvuöld, sagði Jónína M.
Guðnadóttir, ritari KRFÍ í stuttu
spjalli við Þjóðviljann.
Einnig voru rædd skattamál
hjóna og samþykkti landsfundur-
inn ályktun þess efnis að
breytingin sem gerð var á skatta-
lögunum í átt að aukinni sam-
sköttun hjóna væri skref aftur á
bak og erfitt að sjá hvaða rök
væru fyrir breytingunni.
Launamál, stefnuskrá KRFÍ og
reglugerð 19. júní voru önnur
mál á dagskrá.
- aró
Félagsskapur
Aldraðir
stofna félag
Félagsmenn þegar orðnir 123
Stofnað hefur verið í Reykjavík
félag, sem nefnist „Réttarbót
aldraðra“. Er félagsskapnum
ætlað, svo sem nafnið bcndir til,
að vinna að hagsmunamálum
aldraðs fólks, ,upplýsa það um
réttindi þess, sem mjög mörgum
er ókunnugt um, aðstoða á ýmsan
hátt og efla félagsleg samskipti
þess.
Að undanförnu hefur nokkur
hópur fólks undirbúið þessa fé-
lagsstofnun. Nýlega var svo
stofnfundurinn haldinn að Hótel
Hofi. Var hann mjög vel sóttur,
umræður miklar og áhugi al-
mennur. Samþykkt voru lög fyrir
félagið og kosin stjórn. Aðal-
stjórn skipa: Bjarni G. Tómas-
son, Garðar Víborg, Jónína Jóns-
dóttir, Jóhannes Bergsteinsson
og Ragnar Elíasson. f varastjórn
eru: Lárus Hermannsson, Þóra
Þórðardóttir, Þorkell Sigurðs-
son, Pétur Eiríksson og Anna
Finnbogadóttir.
Skráðir félagar munu þegar
orðnir 123.
- mhg
Auglýsið í Þjóðviljanum
Söluskattur
Viðurlög falla á söluskatt fyrir febrúarmánuð 1985,
hafi hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 25. þ.m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir hvern
byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau eru orðin
20%, en síðan reiknast dráttarvextir til viðbótar fyrir
hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með 16. apríl.
Fjármálaráðuneytð, 18. mars 1985.
Kæru vinir og frændur, nær og fjær.
Hjartanlega þakka ég ykkur öllum, sem glödduð mig
ósegjanlega í tilefni af 90 ára afmæli mínu, með kveðj-
um, höfðinglegum gjöfum og vinafundum.
Guð blessi ykkur öll.
Sigurjón Raftholti.
Skrifstofur okkar verða lokaðar í dag fyrir
hádegi vegna jarðarfarar.
Brunabótafélag íslands
Laugavegi 103.
Ó-vegirnir fá 42 miljónir samtals á þessu ári og verður framkvæmdum við Ólafsvíkurenni lokið í haust. Ljósm. -v.
Vegaáœtlun
1650 miljónir í
vegagerð í ár
11% minna en gildandi vegaáœtlun gerir ráð fyrir
Vegaáætlun til fjögurra ára
var lögð fram á alþingi á mánu-
dag. Samkvæmt henni verður
á þessu ári yarið 1650 miljón-
um króna til vegamála, eða
1,9% af þjóðarframleiöslu.
Tekjur af bensíni nema 975
miljónum og af þungaskatti
265 miljónum er bein framlög
ríkisins 265 miljónum króna.
Samkvæmt langtímaáætlun um
vegagerð sem alþingi samþykkti
1983 skal 2,4% þjóðarframleiðsl-
unnar varið til vegamála, en
verður á þessu ári talsvert undir
því marki eða 1,9%. Framlagið
er 11% lægra en gildandi vegaá-
ætlun. Hins vegar er gert ráð fyrir
að á árunum 1986-1988 verði fra-
mlögin 2,4% af þjóðarfram-
leiðslu.
Til nýrra þjóðvega verður sam-
kvæmt áætluninni varið 678 milj-
ónum í ár en til viðhalds þjóðvega
661 miljón. Til brúargerðar verð-
ur varið 57 miljónum, til sýslu-
vega 45 miljónum, til vegagerðar
í þéttbýli 96 miljónum og til fjall-
vega 19 miljónum. Stjórnunar-
kostnaður nemur 81 miljón, véla-
kaup o.fl. 8 miljónum og 5 milj-
ónum verður varið til tilrauna.
Svokallaðir Ó-vegir, þ.e.Ól-
afsvíkurenni, Óshlíð og Ólafs-
fjarðarmúli, eru aðskildirfrá öðr-
um verkefnum vegna sérstöðu
þeirra og stærðar verkefnanna.
Til þeirra renna 42 miljónir á
þessu ári. Framkvæmdum í Ól-
afsvíkurenni lýkur á árinu, gert
ráð fyrir að framkvæmdir í Óshlíð
verði langt komnar 1988 og byrj-
unarframkvæmdir við Ólafsf-
jarðarmúla hefjist 1988.
Alþingi
Launamannasjóður
Frumvarpi Alþýðubandalagsins vel tekið
Frumvarp Alþýðubandalags-
manna í efri deild alþingis um
íjárfestingarsjóð launamanna
var til fyrstu umræðu á miðviku-
dag. Valdimar Indriðason,
Sjálfstæðisflokki, var sá eini sem
lýsti beinum efasemdum um rétt-
mæti frum varpsins og taldi að hér
væri um skyldusparnað launa-
manna að ræða. Davíð Aðal-
steinsson og Eiður Guðnason
tóku frumvarpinu hins vegar vel,
þótt báðir gerðu þeir athuga-
semdir við einstakar greinar þess.
Markmið frumvarpsins, sem
nú fer til fjárhags- og viðskipta-
nefndar deildarinnar, er þríþætt:
- að stuðla að innlendum sparn-
aði og draga þar með úr er-
lendum lántökum, - að fjárfesta í
atvinnulífi og efla atvinnuvegi
landsmanna og að ávaxta inn-
eignir launamanna í sjóðnum og
auka eignaraðild þeirra í atvinnu-
rekstri.
20% ofan á
öll laun
Gert er ráð fyrir að launagreið-
endur í öllum atvinnurekstri
greiði.2% útgreiddra launaí sjóð-
inn eftir fjögurra ára aðlögunar-
tímabil þannig að greiðslan
aukist um fjórðung úr prósentu á
hverju ári eftir 1986. Greiðslan
skal færð á reikning viðkomandi
launamanns og teljast inneign
hans hjá sjóðnum en að 8 árum
liðnum fær hann hálfa upphæðina
endurgreidda. Endanlegt uppg-
jör fer fram að 12 árum liðnum og
skulu endurgreiðslur færðar til
gildandi verðlags en ekki bera
vexti.
Starfsmannafélög
fari með
eignarhlutinn
k Fjármagn sjóðsins skal lagt í
arðbæran atvinnurekstur, sem
stofnfé í nýjum rekstri og til
aukinna fjárfestinga í starfandi
fyrirtækjum, ýmist sem hlutafé
eða með lánveitingum. Starfs-
mannafélög fyrirtækja fara með
eignarhlut sjóðsins í hverju fyrir-
tæki og hefur hver starfsmaður,
sem á inneign í sjóðnum eitt at-
kvæði á fundi starfsmanna, óháð
því hversu há inneign hans er.
Sjóðnum stjórnar 45 manna
fulltrúaráð og lagði Ragnar Arn-
alds áherslu á það í framsögu
sinni að fulltrúaráðið yrði að vera
það fjölmennt að það verði í raun
vettvangur verkalýðshreyfingar-
innar í heild, þannig að verka-
lýðsfélög víðsvegar um landið
hefðu þar eitthvað að segja. í
ljósi þessa taldi hann ofmælt að
kalla stjórnina bákn eins og
Eiður Guðnason gerði, enda
héldi hún ekki nema nokkra
fundi á ári.
Ragnar lagði einnig áherslu á
að hér væri ekki um skyldusparn-
að eða álögur á launamenn að
ræða. Greiðslan félli á launa-
greiðandann en ekki launþegann
og væri frádráttarbær í rekstri og
frá skatti.
-ÁI
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 20. mars 1984
Mannaskipti
í þinginu
Á mánudag tók Ólafur Ragnar
Grímsson sæti Svavars Gests-
sonar á alþingi, en Svavar er á
förum til útlanda.
Geir Hallgrímsson utanríkis-
ráðherra tók þá einnig sæti Frið-
riks Sófussonar, Magnús R. Guð- •
mundsson tók sæti Ölafs Þ. Þórð-
arsonar og Karvel Pálmason tók
aftur sæti sitt eftir veikindafrí.
Þá tók Jónína Leósdóttir sæti
Stefans Benediktssonar, Banda-
lagi jafnaðarmanna.
-ÁI