Þjóðviljinn - 20.03.1985, Page 9
MENNING
Leiklist
Grimmur
heimur
Herranótt M.R. sýnir
NÁÐARSKOTIÐ
Eftir Ray Herman, byggt á sögu
Horace McCoy
Leikstjórn: Viðar Eggertsson
Þýðing Karl Ágúst Ulfsson
f bók sinni Er hrossum ekki
lógað notar Horace McCoy eina
af hinum alræmdu Maraþondans-
keppnum sem bakgrunn biturrar
afhjúpunar á bandarísku þjóðfé-
lagi kreppuáranna. Vonlaust fólk
er fengið til að leggja á sig ofurm-
annlegar þrautir í von um verð-
laun, það er dregið niður á dýrs-
legt og villimannlegt stig í sam-
keppninni um þessi verðlaun, og
um leið eru óprúttnir spekúlantar
að hafa það að drjúgri féþúfu.
Inn í þessa danskeppni sogast
tvær ungar manneskjur, Róbert
og Gloria, sem hafa komið til
Hollywood í leit að fé og frama
einsog þúsundir annarra. Róbert
dreymir enn um að verða frægur
kvikmyndaleikstjóri, en Gloria
er búin að sjá í gegnum svindlið
og svínaríið, hún hefur enga von
lengur. Þegar maraþondansinum
lýkur er hún útbrunnin, búin að
vera, og óskar þess eins að deyja.
Róbert veitir henni náðarskotið.
Leikritið er sett upp innan
ramma yfirheyrslu yfir Róbert og
gerir það leikgerðarhöfundi
auðveldara að koma ýmsu um
hann og Gloriu til skila, en
leikverkið er býsna þungt í vöfum
og brotakennt. Það er erfitt í upp-
færslu, ekki síst fyrir hóp af nær
óreyndum ungmennum. Þó að
Broadway virðist við fyrstu sýn
kjörinn staður til að setja verkið
upp, sviðsmyndin gefín fyrir-
fram, þótti mér staðurinn verka
truflandi og fannst leikararnir
eiga erfitt með að komast í sam-
band við áhorfendur. Sýningin
varð því býsna gloppótt, en víða
voru góðir sprettir og sýnilegt að
Viðar Eggertsson hefur unnið vel
með þessum stóra hóp.
Margir þessir ungu leikarar
áttu í erfiðleikum með framsögn-
ina, að koma textanum nægilega
vel til skila, og bætti ekki úr skák
að eitthvert undarlegt magnara-
kerfi var í gangi á sviðinu sem
stundum magnaði raddir og
stundum ekki. Sumir leikaranna
voru þó prýðilegir í þessu tilliti,
og ber þar fremst að nefna Hall-
dóru Björnsdóttur í hlutverki
Gloriu, sem einnig bar af að öðru
leyti. Halldóru tókst á stundum,
einni leikendanna, að miðla
raunverulegum tilfinningum, og
túlkun hennar á beiskju og von-
leysi Gloriu var einlæg og sönn.
Þá átti Hilmar Jónsson góðan leik
í hlutverki dansstjórans Rocky,
hann náði vel hinum hávaðasama
glamurhljómi innantómrar aug-
lýsingamennsku og hélt honum
uppi allan tímann. Sæmundur
Norðfjörð átti í erfiðleikum með
framsögn, en kom að öðru leyti
vel til skila sakleysi og einlægni
Róberts, ekki síst í yfirheyrslu-
atriðunum, þar sem Kjartan
Guðjónsson var kröftugur og
valdsmannslegur varðstjóri.
Ekki er ástæða til að telja upp alla
þá mörgu sem fram koma í sýn-
ingunni, en ég vil nefna sérlega
skoplegan leik Helgu Ágústs-
dóttur í hlutverki forseta Mæðr-
asamtakanna og mjög skemmti-
lega persónu sem Brynhildur Ól-
afsdóttir skapar úr þeirri einföldu
og ljóshærðu Mary.
Sum hópatriðin eru prýðilega
sviðsett, einkum varð hið
grátbroslega brúðkaup átakan-
lega skoplegt. Lokaatriðinu þótti
mér verulega spillt af alltof há-
væru öldugljáfri gegnum hátalara
sem varð til þess að varla heyrðist
í leikurunum. Hvernig væri að
skrúfa niður í þessu?
Hljómsveitin stóð sig með
prýði, en töluvert vantaði uppá
að söngvararnir væru vanda sín-
um vaxnir og hefði ég talið rétt að
sleppa söngvunum alveg, einkum
af því að þeir verka bara truflandi
á gang leiksins og lengja sýning-
una óþarflega.
Islenska hljómsveitin
Kona heldur á sprota
Tólftu tónleikar (slensku
hljómsveitarinnar á þessu
starfsári verða í Bústaðakirkju
í dag, miðvikudag, kl. 20.30.
Bera þeir yfirskriftina M AE-
STRA. Sérstakurgestur
hljómsveitarinnar er banda-
ríski stjórnandinn Margaret
Hillis, einn þekktasti kven-
stjórnandi heimsins, sem
með því starfi sínu hefur rutt úr
vegi mörgum fordómum og
þröngsýni. Er það ánægju-
legt, nú ílokkvennaáratugar-
ins, að fá konu hingað sem
hljómsveitarstjóra.
Margaret Hillis er einkum
þekkt fyrir stjórn sína á viðamikl-
um kór- og hljómsveitarverkum.
Mozart samdi ekki færri en sex
píanókonserta fyrir kvenleikara
og oftar en ekki urðu þau tónverk
íburðarmeiri en endranær. Mun
þó varla hafa hvarflað að honum
að kona ætti eftir að stjórna kons-
ertum hans.
Margaret Hillis vakti alþjóð-
lega athygli haustið 1977 er hún
stjórnaði Sinfóníuhljómsveit
Chicago í Lincoln Center í New
York, við flutning á 8. sinfóníu
Mahlers, sem hún gerði fyrir-
varalaust í forföllum Georgs
Solti. Hún hefur fengist við kór-
og hljómsveitarstjórn í þrjá ára-
tugi og stjórnað mörgum helstu
hljómsveitum Bandaríkjanna í
sinfónískum verkum, kórverkum
og óperum, tekið upp fjölda
hljómplatna og fimm sinnum
hlotið „Grammy“-verðlaunin
fyrir kórstjórn. Hún er nú fastur
stjórnandi Chicago Symphony
Chorus og tónlistarstjóri banda-
rísku kórasamtakanna. Hljóm-
sveitarstjórn hennar byggist á
festu og yfirvegun og hún fylgir
fyrirmælum tónskáldanna til hins
ítrasta.
Efnisskrá hljómleikanna er
þessi:
Bohuslav Martinu: Svítan úr
Gleðileiknum á brúnni, fyrir
kammerhljómsveit.
Hróðmar I. Sigurbjörnsson:
Skref, fyrir kammerhljómsveit,
frumflutningur. Hróðmar samdi
þetta verk í haust að tilhlutan ís-
lensku hljómsveitarinnar.
Wolfgang Amadeus Mozart:
Píanókonsert í C dúr, K 415, ein-
leikari er Anna Guðný Guð-
mundsdóttir.
Joseph Háydn: Sinfónía nr. 63 í
C dúr - „La Roxolane”.
Anna Guðný Guðmundsdóttir
hefur verið atkvæðamikil í ís-
lensku tónlistarlífi. Hún hefur
starfað með Söngsveitinni Fíl-
harmoníu, íslensku óperunni, ís-
lensku hljómsveitinni og er auk
þess á kafi í kammermúsik og
ljóðaflutningi.
Hróðmar I. Sigurbjörnsson
nam gítarleik og tónsmíðar hér
heima en stundar nú nám við
tónlistarháskólann í Utrecht í
Hollandi, hjá Jósep Straesser.
Hann hefur samið verk fyrir ým-
iss konar hljóðfæraskipan auk út-
setninga og leikhústónlistar.
-mhg
Margaret Hillis stjórnar leik ls-
lensku hljómsveitarinnar í Bú-
staðakirkju í kvöld.
Hvítur úlfur
í Safari
Annaö kvöld, fimmtudag, efn-
ir hljómplötuútgáfan
Grammið til rokkhátíðar í Saf-
ari og hefst hún stundvíslega
kl. 21.30 (svo?). Þar koma
fram þrjár íslenskar hljóm-
sveitir ásamt frönsku sveitinni
Etron Fou Leloublan sem á
íslensku mun útleggjast „hvít-
urúlfur". Erþettaeinkunn-
asta rokksveit Frakka ífram-
sækna poppinu að því ersegir
ífréttfráGramminu
íslensku sveitirnar sem fram
koma á hátíðinni eru Oxsmá sem
er nýkomin úr velheppnaðri Hol-
landsför, Dá sem hefur verið
hlaðin lofi bæði í þessu blaði og
öðrum sem ein skærasta vonin og
dúettinn Björk Guðmundsdóttir
og Sigtryggur Baldursson sem
glöggir lesendur kannast við sem
burðarstoðir Kuklsins. - ÞH
Ekki vitum við hvað þessi mynd á að fyrirstilla en hún fylgdi af einhverjum
ástæðum fréttatilkynningu frá Gramminu.
Miðvikudagur 20. mars 1984 pjÓÐVILJINN - SÍÐA 9
Sinfónían og
Pólýfón
Flytia
h-moll
messu
Bachs
Á morgun, fimmtudag, verða
liðin 300 ár frá fæðingu Jó-
hanns Sebastians Bachs. Af
því tilefni var haldin kynning á
h-moll messu Bachs í Nor-
ræna húsinu sl. sunnudag og
annað kvöld verður sú sama
messaflutt í Háskólabíói.
Flytjendur verksins verða Sin-
fóníuhljómsveit íslands, Pólý-
fónkórinn og fjórir erlendir ein-
söngvarar. Stjórnandi verður
Ingólfur Guðbrandsson en Pólý-
fónkórinn hefur áður flutt h-moll
messuna undir hans stjórn sem og
ýmis stórverk tónlistarsögunnar.
Tónleikarnir verða endurfluttir á
sama stað á laugardaginn kl. 14.
Einsöngvararnir sem koma
fram á hljómleikunum eru sópr-
ansöngkonan Jacquelyn Fugelle
sem lærði við Guildhall í London
og síðar í Róm og Vín. Hún hefur
sungið í flestum helstu tónleika-
húsum og kirkjum Englands og
víða annars staðar. Altsöngkon-
an Manca di Nissa er frá Sardiníu
en hún lærði í Salzburg og hefur
síðan komið víða fram í óperum
og á tónleikum, svo sem í Fen-
eyjum, Róm, Berlín og Köln.
Hún þykir frábær túlkandi
barokk-tónlistar, en syngur einn-
ig nútímatónlist. Tenórsöngvar-
inn Renzo Casellato er frá Italíu
og nam í Feneyjum. Síðan hefur
hann starfað mikið við Scalaóp-
eruna í Mflanó en einnig komið
fram víða um lönd, svo sem í Vín,
París, London, Berlín, Kaup-
mannahöfn og Rio de Janeiro.
Bassasöngvarinn Carlo de Bort-
oli hefur sungið í mörgum þek-
ktustu óperuhúsum Ítalíu og er
með ein 50 óperuhlutverk á verk-
efnaskránni. Hann tók þátt í
flutningi Sinfóníunnar og Pólý-
fónkórsins á Stabat Mater eftir
Rossini í fyrra. - ÞH