Þjóðviljinn - 20.03.1985, Síða 14
;ypu$TOí*
VIÐSKIPTI
ÍÞRÓTTIR
Erla Einarsdóttir er ritstjóri bókarinnar.
Örn og Örlygur
Orðabókagetraun
Á síðasta ári efndi Bókaútgáf-
an Örn og Örlygur til verðlaunag-
etraunar í tengslum við væntan-
lega útgáfu hinnar ensk-íslensku
orðabókar. Getraunin varfólgin í
því að þátttakendur áttu að svara
fjórum spurningum sem reyndu á
þekkingu þeirra í ensku og öðr-
um sviðum en svörin var að finna
í hinni væntanlegu orðabók. Til
verðlauna var heitið tíu orðabók-
um, einni í hverjum vinningi.
Þátttaka í getrauninni var mjög
mikil og nú hefur verið dregið í
henni að viðstöddum fulltrúa frá
borgarfógeta. Þeir sem fengu
verðlaun voru: Dröfn Vilhjálms-
dóttir, Seljubraut 22, Rvk.,
Hjördís Gunnarsdóttir, Vestur-
brún 16, Rvk., Ágústa Hugrún
Ingólfsdóttir, Skúlagarði, N-
Þing., Guðrún Emilsdóttir,
Hólmgarði 29, Rvk., Baldur
Steingrímsson, Austurgerði 11,
Rvk., Kristín Sigurðardóttir,
Giljalandi 6, Rvk, Erling Aðal-
steinsson, Framnesvegi 88, Rvk.,
Sigríður Pétursdóttir, Giljalandi
23, Rvk., Erla Gissurardóttir,
Furugrund 30, Rvk., Sigríður
Gunnarsdóttir, Meistaravöllum
33, Rvk. (Fréttatilkynning)
K-gler frá Glerborg
í kjölfar nýrrar byggingareglu-
gerðar á íslandi, sem gerir meiri
kröfur til einangrunargildis glers
en áður hefur tíðkast, hefur Gler-
borg h.f. nú hafið framleiðslu
nýrrar tegundar einangrunar-
glers sem kynnt verður undir
samheitinu K-gler. K-glerið
eykur einangrunargildi tvöfalds
glers verulega. Með þessari nýju
glertegund er komið í veg fyrir að
íslenskir húsbyggjendur neyðist
til þess að glerja hús sín með þre-
földu gleri til þess að uppfylla
hinar nýju kröfur byggingayfir-
valda um einangrunargildi glers.
í tvöföldu K-gleri er önnur
glerskífan húðuð sérstöku ein-
angrandi efni sem hleypir sól-
arljósi og yl inn en kemur í veg
fyrir að hitinn streymi út. Tvöfalt
K-gler gefur meiri einangrun en
þrefalt venjulegt gler og eru því
miklar vonir bundnar við þennan
möguleika í framleiðslu einang-
runarglers á íslandi.
Einangrunargildi K-glers er
unnt að auka enn frekar með því
að fylla loftrúmið á milli glerja
með argon-gasi. Til þess að hægt
sé að bjóða húsbyggjendum
argon- fyllt einangrunargler
verður glerið að vera samsett
með „tvöfaldri límingu“, en
Glerborg h.f. er eini fram-
leiðandinn á fslandi sem býður
upp á það. „Tvöföld líming" er sú
samsetningaraðferð sem er sú
langútbreiddasta í heiminum í
dag og hefur Glerborg h.f. fram-
leitt einangrunargler með þeim
hætti síðan í september 1978.
Verð á K-glerinu er ívið lægra
en á þreföldu gleri, en kostir K-
glersins umfram þrefalt gler eru
ótvíræðir, þar sem ekki þarf að
gera ráðstafanir með dýpra fals,
ekki er þörf á efnismeiri
gluggum, glerið er léttara í með-
förum, auðveldara í flutningi og
ekki er þörf á að styrkja hurðir og
opnanleg fög sérstaklega vegna
aukinnar þyngdar sem þrefalt
gler hefur augljóslega í för með
sér.
íslensk fyrirtæki 1985
Frjálst framtak hf. hefur sent
frá sér bókina „íslensk fyrirtæki
1985“ en bókin er uppsláttarrit
yfir fyrirtæki, félög og stofnanir.
Er þetta í fimmtánda sinn sem
Frjálst framtak gefur slíka fyrir-
tækjabók út.
Bókin skiptist í fjóra megin-
kafla: Fyrirtækjaskrá; Vöru- og
þjónustuskrá; Umboðaskrá og
Skipaskrá. í fyrirtækjaskránni er
að finna nafn, heimilisfang og
símanúmer allra starfræktra fyr-
irtækja á íslandi og auk þess eru
fýllri upplýsingar um starfssvið
fyrirtækjanna. í vöru- og þjón-
ustuskránni er að finna upplýs-
ingar um hvaða aðilar hafa á boð-
stólum tiltekna vöru eða þjón-
ustu. Eru um tvö þúsund flokkar
vörutegunda og þjónustu í
skránni. í umboðaskránni eru
skráð erlend umboð og upplýs-
ingar um hver er umboðsmaður á
íslandi. í skipaskránni er að finna
upplýsingar um íslensk skip, ein-
kennisstafi þeirra, eigenda eða
útgerðarmanna og fl.
I bókinni er sérkafli á ensku
þar sem fram koma upplýsingar
um ísland og viðskiptalíf á íslandi
auk þess sem skýrt er hvernig
unnt er að nota bókina.
Ritstjóri „íslenskra fyrirtækja
1985“ er Erla Einarsdóttir og er
þetta annað árið sem hún gegnir
því starfi.
Lyftingar/kraftlyftingar
Ekkert sameiginlegt
nema útbúnaðurinn
Nú í nokkur ár hefur verið að koma
í Ijós, að lyftingar og kraftlyftingar
eiga ekki heima í sama sérsambandi.
Ástæða tilvistar þeirra beggja í L.S.Í.
hefur sennilega verið sú, að báðar
íþróttir eru jafngamlar hér á landi, en
eiga þó ekkcrt annað sameiginlegt en
útbúnaðinn, sem notaður er, lyftinga-
stöngina. Á sömu forsendum mætti
hugsa sér eitt boltasamband fyrir
boltaíþróttir.
Á ársþingi L.S.I. 1983 átti að leysa
þennan vanda með tveimur nefndum
fyrir íþróttirnar, sem var til bóta en
gallað þó. Upp úr sauð svo á fundi hjá
lyfingasambandinu 28. febrúars.l. og
ákvað stjórn sambandsins með rök-
stuðningi til Í.S.f. að hætta afskiptum
af kraftlyftingum á íslandi. Ekki
heyrðist stuna frá Í.S.f. eftir þá til-
kynningu.
Úr vöndu var að ráða fyrir
kraftlyftingamenn, öll stærstu mótin
á næsta leyti m.a. fyrsta íslands-
meistaramótið í bekkpressu 2. mars.
Þann dag var því ákveðið að stofna
sérstakt kraftlyftingasamband utan
Í.S.f. til að byrja með, þar sem ekki
var von snöggra viðbragða úr þeirri
átt, þegar heill kraftlyftinga er annars
vegar, en f.S.f. forystan hefur jafnan
drepið á dreif allri umræðu um sér-
stakt kraftlyfingasamband.
Á stofnþingið mættu yfir 30 manns
víða að af landinu, þar sem íslands-
mót fór í hönd. Þar voru samþykkt
lög fyrir sambandið og lagt fram bréf
frá lyftingasambandinu til alþjóða
kraftlyftingasambandsins (IPF), þar
sem það samband afsalaði sér aðild-
inni til Kraftlyftingasambands ís-
lands.
Viðbrögð f.S.f. voru engin í rúma
viku, en 11. mars hafði framkvæmda-
stjóri Í.S.Í. samband við mig, er orð-
inn var formaður nýstofnaðs
kraftlyftingasambands, og bað mig
boða kraftlyftingamann til lyfjapróf-
unar. Þessu neitaði ég og tjáði fram-
kvæmdastjóranum, að enginn kraft-
lyftingamaður mætti til lyfjaprófunar
•hjá Í.S.Í. fyrr en stofnað hefði verið
sérstakt kraftlyftingasamband innan
Í.S.Í.. Framkvæmdastjórinn sagði
mér þá í föðurlegum umvöndunar-
tón, eins og hann notar jafnan við
heilalausa vöðvaræktendur, að mitt
samband væri ólöglegt og að hætta
væri á að beitt yrði keppnisbanni, ef
ég yrði ekki við hans tilmælum.
Næsta dag fékk ég skeyti frá Í.S.Í.,
þar sem ég var titlaður formaður
kraftlyftinganefndar L.S.f. og tilmæl-
in ítrekuð. Skeyti var setn um hæl og
f.S.Í. tilkynntar staðreyndir málsins,
og aðallega það, að kraftlyftinga-
nefnd L.S.Í. væri ekki lengur til.
Sá íþróttamaður sem þannig varð
bitbein milli mín og f .S.í. forystunnar
hefur heitið félögum sínum að bregð-
ast ekki sínu sambandi. Hann er
drengur góður og maður til að taka
því skítkasti, sem oft fylgir því að taka
einarðlega afstöðu.
Að lokum vil ég taka fram, að sam-
kvæmt 73. grein stjórnarskrár íslands
er félagafrelsi hér á landi og ekkert
félag verður leyst upp nema með
dómi. íþróttalögin íslensku eru
rammalög um afskipti hins opinbera
af íþróttum í formi fjárveitinga.
styrkja og fyrirgreiðslu. Samþykkja
þarf íþróttir inn á ríkisjötuna (Í.S.f.).
en ekki út úr. Þess vegna standa ýmis
landsambönd utan I.S.Í., eins og
Skáksambandið, Bridgesambandð og
Landssamband vaxtarræktarmanna.
Yfirstjórn f.S.Í. nær einungis til
eirra íþrótta, sem eru aðilar aé
.S.Í., sem þýðir að Í.S.f. getur ekk
tekið lyfjapróf af skákmanni.
Alþjóða kraftlyftingasambandic
samþykkir eingungis eitt samband frí
hverju landi og að fenginni aðilc
L.S.Í. að IPF eru fulltrúai
Kraftlyfingasambands íslands einii
hlutgengnir á erlend mót. Bréf fr:
Í.S.L forustunni um annað yrði ein
ungis notað í cndurvinnslu á pappír
aðseturslandi IPF. Þá varðar ekker
um pólitískar deilur í aðildarríkjun
um- Ólafur Sigurgeirssoi
FH-ingar reyndust sterkastir þegar upp, var staðið í úrslitakeppni 3. flokks
karla á íslandsmótinu í handknattleik. Úrslitakeppnin fór fram I Hafnarfirði
og FH sigraði Gróttu 9-8 í úrslitaleiknum, KR varð í þriðja sæti eftir 15-6
sigur á Þór A. Á mynd E.ÓI eru meistararnir ásamt þjálfara sínum, Guðjóni
Guðmyndssyni.
Afturelding úr Mosfellssveit eignaðist sína fyrstu íslandsmeistara um helg-
ina þegar 5. flokkur félagsins sigraði í úrslitakeppni sem fram fór að Varmá.
Afturelding vann Val 6-5 í úrslitaleik og sjást sigurvegararnir á mynd E.ÓI.
hér að ofan. Fylkir sigraði Fram 5-4 í úrslitaleik um þriðja sætið á mótinu.
I4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 20. mars 1984