Þjóðviljinn - 20.03.1985, Qupperneq 15
Víkingar
Meistaramir malaðir!
Víkingar í banaformifyrir Barcelonaleikina. Sigruðu FH 30-19 íHöllinni.
Evrópukeppni
Rummenigge
ekki með
Frá Jóni H. Garðarssyni frétta-
manni Þjóðviljans í V. Þýska-
landi:
Karl-Heinz Rummenigge,
vestur-þýska knattspyrnustjarn-
an, mun ekki leika með liði sínu,
Inter Milanó frá Italíu, gegn Köln
í UEFA-bikarnum í kvöld. Rum-
menigge féll og meiddist illa eftir
að hafa skorað fyrir Inter gegn
AC Milano í ítölsku 1. deildinni á
sunnudaginn. Þetta ætti að auka
sigurlíkur Kölnarbúa sem töpuðu
fyrri leiknum í Milano, 0-1.
Blak
ís orðið
meistari
ÍS tryggði sér íslandsmeistara-
titilinn í blaki kvenna um helgina
með tveimur sigrum, 3-0 gegn KA
á föstudagskvöldið og 3-1 gegn
Víkingi á sunnudagskvöldið. Þá
vann Breiðablik sigur á Þrótti, 3-
1, og Þróttur vann KA 3-0. Stað-
an í I. deild kvenna:
IS 15 14 1 44-9 28
Breiðablik 14 11 3 36-17 22
Þróftur 14 5 9 24-28 10
Víkingur 13 5 8 18-30 10
KA 14 0 14 4-42 0
Staðan í 1. deilc I karla eftir síðustu leik i:
Þróttur R 15 14 1 44-14 28
Is 15 11 4 38-18 22
HK 15 7 8 28-34 14
Fram 15 3 12 19-39 6
Vikingur 14 2 12 15-39 4
Staðan
í úrslitakeppni I. deildar karla í hand-
knattleik eftir leikina i gær:
FH.......9 6 2 1 228-208 14
Víkingur.9 4 1 4 190-182 9
Valur....9 3 3 3 164-177 9
KR.......9 1 2 6 189-204 4
Markahæstir
Kristján Arason, FH.................57
Jakob Jónsson, KR...................53
Hans Guðmundsson, FH................52
Viggó Sigurðsson, Víkingi...........50
Þorbergur Aðalsteinsson, Víkingi....47
Watford vann
Watford vann Luton 3-0 í I. deild
ensku knattapyrnunnar í gærkvöldi.
Arsenal og Ipswich gerðu jafntefli, 1-
1, og Birmingham og Man. City
skildu jöfn í 2. deild, 0-0.
íslandsmeistarar FH fengu
háðulega útreið frá Víking er lið-
in áttust við í Höllinni í gær-
kvöldi. Leikurinn sem var loka-
leikur liðanna í I. umferð keppn-
innar, var allan tímann eign Vík-
inga sem fóru á kostum, í hálfleik
var níu marka munur, 18-9, of
lokatölur leiksins 30-19. Úrslitin
breyta því þó ekki að FH stendur
Það var heitt í koiunum þegar Vals-
menn náðu að sigra KR 19-18 í Höll-
inni í gærkvöldi og komast þar með í 9
stig. I lokin fauk auglýsingaspjald
langar leiðir af fæti KR-ings og Vals-
maður mölvaði hurð í Höliinni - já
það gekk mikið á, innan vallar sem
utan.
Þetta var baráttuleikur og
hnífjafn, en mikið af mistökum.
Jafnt á öllum tölum nánast þar til
Valur komst í 11-8 með þremur
mörkum í röð og leiddi 12-11 í
hléi. Valur hélt síðan forystunni
allan síðari hálfleik, eitt til þrjú
enn best að vígi í kcppninni, hafa
hlotið 14 stig, Víkingar 9.
Þorbergur Aðalsteinsson
skoraði fyrsta mark leiksins fyrir
Víking, ÍCristján Arason jafnaði
fyrir FH og var það í eina skiptið í
leiknum að tölur voru jafnar,
Víkingar höfðu töglin og hagld-
irnar og sýndu oft stórkostlegan
mörk. Haukur Geirmundsson
skoraði fyrir KR, 19-18, þegar 26
sek. voru eftir en Valsmönnum
tókst að halda boltanum út leik-
tímann og sigurinn var þeirra.
Markverðir liðanna, Einar
Þorvarðarson hjá Val og Jens
Einarsson hjá KR, voru þeir einu
sem héldu virkilega haus í
leiknum. Hjá Val lék Valdimar
Grímsson vel, Júlíus Jónasson
sömuleiðis í fyrri hálfleik og Ing-
var Guðmundsson vakti athygli,
ungur og efnilegur hornamaður.
handknattleik, fallegar leikflétt-
ur þeirra gáfu góðan árangur og
strax eftir aðeins nokkurra mín-
útna leik munaði fimm mörkum,
7-2, litlu síðar höfðu Víkingar
skorað tíu mörk gegn aðeins
þremur mörkum Hafnfirðinga. í
leikhléi var 18-9 og víst er að FH
er ekki vant slíkri markasúpu
eftir hálftíma leik.
Jakob Jónsson byrjaði vel hjá
KR, skoraði fjögur af fimm fyrstu
mörkunum, en var með hræði-
lega skotnýtingu eftir það.
Mörk Vals: Valdimar 5, Júlíus 4, Ingvar
3, Jón Pétur 3(3v), Þorbjörn Guömunds-
son 2, Þorbjörn Jensson 1 og Geir Sveins-
son 1.
Mörk KR: Jakob 7, Haukur G. 6(2),
Haukur Ottesen 2, Páll Björgvinsson 1,
Friðrik Þorbjörnsson 1 og Jóhannes Stef-
ánsson 1.
Gunnlaugur Hjálmarsson og
Óli Ólsen dæmdu ekki vel og var
það í samræmi við leikinn.
hs/VS
Allar efasemdir um úrslit
bráðnuðu á fyrstu mínútum
seinni hálfleiks er Víkingar náðu
11 marka forskoti 22-11. Munur-
inn varð mestur 13 mörk, 28-15
en Víkingar leyfðu sér að setja
varamenn inn á í lokin, nokkuð
sem ekki er algengur hlutur hjá
Víking sem notað hafa sama átta
manna kjarnann í allan vetur,
Iokatölur 30-19.
Liðsheildin var óumdeilanlega
ofur einstaklingsframtakinu hjá
Víkingum, jafnvel þegar Viggó
Sigurðsson og Þorbergur fengu á
sig yfirfrakka þá virtist það ekki
breyta neinu fyrir Víkinga. Guð-
mundur Þ. Guðmundsson og
Hilmar Sigurgíslason léku nær
því óaðfinnanlega í gærkvöldi og
víst er að Carl Lewis hefði ekki
haft roð í Guðmund, svo ótrúlega
fljótur var hann í hraðaupphlaup-
unum. Það er sama hvar komið er
niður í Víkingsliðinu, allir leik-
menn þess stóðu sig vel, Kristján
Sigmundsson lokaði markinu
heilu kaflana og múrveggurinn
fyrir framan hann var breiður.
Einar Jóhannesson á hrós skilið
fyrir varnarleikinn, hann var
mjög hreyfanlegur. Þetta var
„generalprufa" liðsins fyrir Evr-
ópuslaginn á sunnudaginn þar
sem þeir mæta Barcelona og ekki
er hægt að segja annað en að þeir
hafi staðist hana vel.
Þó að FH-ingar hefðu náð
toppleik þá er mjög vafasamt að
þeir hefðu náð að velgja Víking-
unum undir uggum, það er ekki
hægt að rökræða það en tvær
ástæður eru líklegar fyrir því að
skellurinn varð svo stór er raun
ber vitni. í fyrsta lagi kann stór-
sigur þeirra í fyrrakvöld gegn Val
hafa skapað einhvern ofmetnað í
herbúðum þeirra og í öðru lagi
kann þreyta að hafa skipt
sköpum, leikmenn liðsins eru
flestir ungir og kannski ekki alveg
tilbúnir ennþá til að standa heilt
keppnistímabil í þeirri erfiðu bar-
áttu sem íslandsmótið er. Engin
ástæða er þó fyrir Hafnfirðinga
að örvænta, einn tapleikur á
keppnistímabili flokkast ekki
undir slæman árangur, liðið hefur
sýnt það í vetur að þeir eru titils-
ins verðugir og því er um að gera
að halda haus.
Mörk Vikings: Viggó 7/3, Guömundur
Þ. og Steinar Birgisson 5, Þorbergur 4,
Hilmar og Karl Þráinsson 3, Einar Jóhann-
esson, Siguröur Ragnarsson og Guð-
mundur G. Guðmundsson 1.
Mörk FH: Kristján Arason 8/2, Hans
Guðmundsson 4, Guðjón Guðmundsson
og Sigþór Jóhannesson 2, Óskar Ár-
mannsson, Sveinn Bragason og Þorgils
Óttar 1.
-Frosti
Hilmar Sigurgíslason línumaður hjá Víkingi í ströggli gegn vörn FH. Guðjón Guðmundsson og Kristján Arason eru til
varnar, en þeir fengu í heildina ekki rönd við reist góöum leik Víkinga, frekar en aðrir FH-ingar.Mynd: E.Ól.
Handbolti
Hurðir og spjöld fuku
Valur vann KR 19-18 í miklum baráttuleik
Þórsarar
Vinnubrögum HSÍ mótmælt
✓
Urslit4. flokks flutt suður með litlumfyrirvara
Úrslitakeppni í 4. flokki karla á ís-
landsmótinu í handknattleik átti að
fara fram á Akureyri um síðustu
helgi. Á miðvikudag ákvað hins vegar
stjórn HSÍ að keppnin skyldi haldin í
Reykjavík og telja Þórsarar að sú
ákvörðun hafi verið tekin án þeirra
samþykkis. Þórsarar fóru framá að fá
75 þúsund krónur uppí ferðakostnað
ef mótið yrði flutt suður, en sú
greiðsla nam síðan 40 þúsund krón-
um.
Þórsarar hafa sent frá sér langa
greinargerð um málið sem því miður
er ekki hægt að birta í heilu lagi. Þar
átelja þeir mjög framkomu HSÍ í
þessu máli og segja meðal annars:
„Hvers eigum við að gjalda? Allir
yngri flokkar Þórs eru í úrslitum fs-
landsmótsins, en enginn á heimavelli.
Meistaraflokkur karla þarf að fara í
tvær turneringar til Reykjavíkur.
Sem sagt, eintómur kostnaður. Svona
ósanngirni í niðurröðun er hroðaleg
aðför að handknattleiksíþróttinni úti
á landsbyggðinni og þeir háu herrar
sem við stjórnvölinn standa hjá HSÍ
ættu að gjamma minna um þörfina á
að byggja upp handknattleiksíþrótt-
ina í landinu þegar þeir bókstaflega
ganga framhjá landsbyggðinni í að-
gerðum sínum með hjálp Reykjavík-
urfélaga, sem eru jú ekkert annað en
HSÍ... Við Þórsarar mótmælum harð-
lega vinnubrögðum HSÍ í þessu máli.
Við gáfum aldrei samþykki okkar
fyrir því að flytja keppnina suður. Við
vorum tilbúnir til að flytja hana gegn
hærri greiðslu, því að 40 þúsund
króna greiðsla er nánast hlægileg þeg-
ar litið er á heildarkostnað í þessu
dæmi. Ég held að HSÍ ætti að sjá
sóma sinn í því að greiða íþróttafé-
laginu Þór þann mismun sem um er
rætt, 35 þúsund krónur, vegna þess
virðingarleysis sem HSÍ sýnir okkur
með því að taka mótið frá okkur...“
Þórsarar benda einnig á tekjutap
íþróttahallarinnar á Akureyri sem
stóð auð yfir helgina vegna tilfærsl-
unnar, kostnað foreldra sem margir
eiga 2-3 börn í yngri flokkum Þórs og
segja síðan:
„Á næsta HSÍ-þingi verður að
ganga frá satneiginlegri kostnaðar-
hlutdeild allra félaga sem þátt taka í
úrslitum íslandsmótsins, og þá kemur
það af sjálfu sér að öll mót verða í
Reykjavík sem ekkert er athugavert
við, svo framarlega að kostnaðinum
við að komast til Reykjavíkur verði
deilt milli félaga.“
Undir greinargerðina ritar Páll
Stefánsson, formaður handknatt-
ieiksdeildar Þórs.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
V. Þýskaland
Tekur Csemai
við Stuttgart?
Líklegasti eftirmaður Benthaus
Frá Jóni H. Garðarssyni frétta-
manni Þjóðviljans I V. Þýska-
landi:
Eins og fram hefur komið,
hættir Helmut Benthaus störfum
hjá (fráfarandi) meisturum Stutt-
gart í vor og gerist að nýju þjálf-
ari hjá svissneska I. deildarfé-
laginu Basel.
Því eru hafnar vangaveltur um
eftirmann Benthaus og í ljós hef-
ur komið að Ungverjinn Pal
Csernai er efstur á óskalistanum.
Csernai hver? Jú, einmitt sá
Csernai sem var þjálfari Bayern
Múnchen þegar Ásgeir Sigur-
vinsson lék með félaginu, sá
Csernai sem hafði ekki pláss fyrir
Ásgeir í sínu liði og orsakaði
þannig sölu Ásgeirs til Stuttgarts
en hún hefur verið grátin æ síðan í
herbúðum Bayern. Nú er Ásgeir
samningsbundinn Stuttgart til
ársins 1987 og er þar í aðalhlut-
verki (að vísu ekki sem stendur
vegna meiðslanna). Mjög athygl-
isvert, ekki satt?
Willibert Kremer, þjálfari
Dússeldorf, er einnig tilnefndur
en hann hættir Iíklega hjá Dúss-
eldorf í vor. Kremer er virtur
þjálfari sem nokkur félög í Bund-
esligunni hafa augastað á.