Þjóðviljinn - 20.03.1985, Side 16
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 816ó3.
DJÓÐVIUINN
Miðvlkudagur 20. febrúar 1985 66. tölublað 50. árgangur
Tillögur Alþýðubandalagsins
Stórlækkun húsnæðisskulda
Tillögur AB myndu stórminnka greiðslubyrði. Heildarminnkun á 190 þús. króna
frá 1982 yrði 106 þús. krónur í ár. Heildarskuldir vœru 1,1 miljarði minni
Væri verðtrygging lána hjá
húsnæðiskaupendum miðuð
við bygginarvísitöluna en ekki
lánskjaravísitöluna einsog gert er
í dag, þá hefðu heildarskuldir
húsnæðiskaupenda við síðustu
áramót verið 1,1 miljarði lægri en
þær voru. Þetta kemur fram í út-
reikningum sem Stefán Ingólfs-
son, yfirmaður Fasteignamats
ríkisins hefur gert að beiðni Al-
þýðubandalagsins.
En Alþýðubandalagið hefur á
Alþingi lagt fram tillögur sem
gera einmitt ráð fyrir því að
verðtrygging á lánum húsnæðis-
kaupenda verði ævinlega reiknuð
út frá þeirri af þessum tveimur
vísitölum, sem er hægri hverju
sinni. Samkvæmt útreikningum
Stefáns væru því skuldir hús-
byggjenda 1,1 miljarði lægri ef
tillögur Alþýðubandalagsins
væru í gildi.
Stefán gerði ennfremur saman-
burð á því hvernig 190 þús. króna
sem tekið var 1982 hefði komið út
miðað við tillögur Alþýðubanda-
lagsins. Lánið var tvískipt: ann-
ars vegar lífeyrissjóðslán upp á
100 þúsund krónur með 2,5 pró-
sent vöxtum, tekið 1982 til 25 ára.
Hinn hluti lánsins var G-lán til 15
ára með 2,25 prósent vöxtum.
Rétt er að geta þess, að hér er um
tiltölulega lítið lán að ræða, sem
að dómi Stefáns hefði á sínum
tíma rétt nægt til að greiða 40
prósent í 2ja herbergja íbúð.
Samkvæmt tillögum Alþýðu-
bandalagsins hefði afborgun á ár-
inu 1983 orðið 24 prósent minni
en hún varð, 44 prósent minni á
árinu 1984 og líklega 73 prósent
minni á þessu ári.
Heildarleiðrétting til minnk-
unar á láninu á þessu ári - þ.e.
með endureiknaðri verðtrygg-
ingu á höfuðstól samkvæmt til-
lögum Alþýðubandalagsins -
hefði orðið hvorki meira né
minna en 106 þúsund krónur á
árinu 1985!
-ÖS
Korpulfs-
stöðum
breytt
í hótel
Sigurður Dagbjartsson hcfur
óskað eftir formlegum við-
ræðum við Reykjavíkurborg um
leigu á húseignum borgarinnar að
Korpúlfsstöðum. Hyggst hann
reka þar hótel og jafnvel hcima-
vist yfir vetrartímann ásamt ferð-
aþjónustu, veitingasölu, ráð-
stefnuhaldi og galleríi.
Ekki hefur verið tekin afstaða
til þessarar beiðni og er hún nú til
athugunar hjá skipulagsnefnd og
umhverfismálaráði. Korpúlfs-
staðir eru um 2000 fermetrar að
flatarmáli og geysilegir mögu-
leikar á fjölbreyttri nýtingu þessa
mikla húss, ekki síst þegar byggð-
in fer að nálgast það úr Grafar-
vogslandi.
Húsið er nú nánast ein allsherj-
ar geymsla, nema hvað Mynd-
höggvarafélagið hefur þar vinnu-
stofur sem félagsmenn nýta. _Ái
Flensa
Davíð
veikur og
allt stopp
Sá fáheyrði atburður gerðist í
gær að felldur var niður reglu-
legur fundur í borgarráði
Reykjavíkur vegna veikinda
borgarstjóra og formanns borg-
arráðs Davíðs Oddsonar.
Kristján Benediktsson borgar-
ráðsfulltrúi Framsóknarflokksins
sagði í gær að greinilegt væri að
borgarstjóri treysti engum til að
stýra fundum ráðsins, en varafor-
maður þess er Magnús L. Sveins-
son.
Mál hafa hrannast uppog bíða
nú milli 30 og 40 mál afgreiðslu
borgarráðs. -ÁI
Kratar
Danskan blífur!
Fordi jeg er í udlandet kan jeg
ikke tage Jon Baldvin Hanni-
balssons plads i Altinget!
Eitthvað á þessa leið hljóðaði
skeytið, sem formaður kjörbréf-
anefndar, Eiður Guðnason, las á
sameinuðu þingi í gær frá Bjarna
Guðnasyni, fyrsta varaþing-
manni krata í Reykjavík. f hans
stað tók Maríanna Friðjónsdótt-
ir, dagskrárgerðarmaður sæti
Jóns Baldvins, sem er farinn til
Portúgal á leiðtogafund krata-
flokka. -ÁI
Landbúnaður
Milliliðir hirða 214 miljónir
Milliliðir taka nœr 17%
niðurgreiðslum
afútflutningsbótum og
upp í kostnað
M
illiliðir í útflutningi og sölu
landbúnaðarafurða fengu á
síðasta ári nær 214 miljónir
króna úr ríkissjóði í vaxta- og
geymslugjald. Er þetta fé tekið af
framlögum til útflutningsbóta og
niðurrgreiðslna á landbúnaðar-
vörum.
Þetta kemur fram í skriflegu
svari fjármálaráðherra við fyrir-
spurn Sighvats Björgvinssonar og
Eyjólfs Konráðs Jónssonar al-
þingismanna.
Heildarútflutningsbætur 1984
námu 468 miljónum króna, lang-
mest á kindakjöt, 318 miljónir,
en 82 á mjólkurafurðir. 51,4 milj-
ónir fóru í vaxta- og geymslugjald
af þessum vörum.
Niðurgreiðslur námu í fyrra
813 miljónum króna, þar af fóru
297 miljónir í niðurgreiðslu á
mjólk og 173 á kindakjöt. Vaxta-
og geymslugjald af þessum niður-
greiddu afurðum nam 162,5 milj-
ónum króna.
Það er framleiðsluráð land-
búnaðarins sem fær útflutnings-
bætur og niðurgreiðslufé frá rík-
issjóði og greiðir viðkomandi að-
ilum, bændum og útflutningsaðil-
um. Hinir helstu eru: Búvöru-
deild Sambandsins, SS, Osta- og
smjörsalan, Álafoss, ísmat og
Garðar Gíslason.
Laxveiði
Bjartar horfur fyrir sumarið
Finnur Garðarsson fiskifrœðingur: Flest bendir til
þess að mikið af ársgömlum laxi, 4-6 punda, gangi í árnar í sumar
Samkvæmt rannsóknum á
þeim gögnum sem okkur hafa
borist víðsvegar af landinu má
gera ráð fyrir mikilli smálaxa-
gengd í laxveiðiárnar næsta sum-
ar. Hér er um að ræða fisk sem
hefur verið eitt ár í sjó og ætti að
vera þetta 4 til 6 pund á þyngd,
sagði Finnur Garðarsson fiski-
fræðingur hjá Veiðimálastofnun í
samtali við Þjóðviljann í gær.
Ástæðuna fyrir þessari
bjartsýni sagði Finnur vera þá að
í fyrra var vorið gott og ástand
sjávar hefur einnig verið gott í
haust og vetur, þannig að gert er
ráð fyrir að gönguseiðum hafi
vegnað vel í hafinu. Þótt búist sé
við mikilli smálaxagengd um allt
land er álitið að hún verði mest í
ám á Norðurlandi.
Finnur sagði margar sam-
verkandi ástæður fyrir þeirri
niðursveiflu laxastofnsins síðan
1978. Áhrifamestu þættirnir væru
veðurfarið, sem hefur verið mjög
kalt, árin 1979 og 1983 einhver
köldustu ár á öldinni og eins sjáv-.
arkuldi sem hefur verið mikill,
þar til nú.
Nú teljum við að horfurnar séu
bjartari og að stangveiðimenn
geti litið björtum augum til kom-
andi sumars, sagði Finnur Garð-
arsson.
-S.dór