Þjóðviljinn - 29.03.1985, Page 6
AUGLÝSING
um styrki til leiklistarstarfsemi
(fjárlögunum fyrir árið 1985 er 1,4 millj. kr. fjárveiting,
sem ætluð ertil styrktar leikstarfsemi atvinnuleikhópa,
er ekki hafa sérgreinda fjárveitingu í fjárlögum.
Hér með er auglýst eftir umsóknum um styrki af fjár-
veitingu þessari. Umsóknareyðublöð fást í ráðuneyt-
inu.
Umsóknir sendist Menntamálaráðuneytinu fyrir 10.
maí næstkomandi.
Menntamálaráðuneytið,
27. mars 1985.
agfc, Laust embætti
|9§ sem forseti íslands veitir
Embætti prófessors í lyfjagerðarfræði í læknadeild
Háskóla íslands (lyfjafræði lyfsala) er lausttil umsókn-
ar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf um-
sækjenda, ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil
og störf, skulu sendar menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6,101 Reykjavík, og skulu þær hafa borist
fyrir 25. apríl n.k.
Menntamálaráðuneytið
27. mars 1985.
Tölvuútboð Alþingis
Alþingi óskar eftir að kaupa 14 einka-
tölvurog viðeigandi búnað til ritvinnslu
og spjaldskrárvinnslu. Útboðsgögn
liggja frammi á skrifstofu Alþingis frá
kl. 10 mánudaginn 1. apríl og verða
skýrð á fundi í Vonarstræti 12, kl. 10
þriðjudaginn 2. apríl. Tilboð verða opn-
uð á skrifstofu forseta sameinaðs Al-
þingis kl. 10 mánudaginn 29. apríl n.k.
Blikkiðjan
Iðnbúð 3, Garðabæ
Önnumst þakrennusmiði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmiði.
Gerum föst verðtilboð
SÍMI 46711
Sáttmálasjóður
Umsóknir um styrki úr Sáttmálasjóði Háskóla íslands,
stílaðar til háskólaráðs, skulu hafa borist skrifstofu
rektors fyrir 1. maí 1985. Tilgangi sjóðsins er lýst í 2.
gr. skipulagsskrár frá 29. júní 1919, sem birt er í Árbók
Háskóla íslands 1918-19, bls. 52. Umsóknareyðublöð
og nánari úthlutunarreglur, samþykktar af háskóla-
ráði, liggja frammi í skrifstofu Háskóla íslands hjá
ritara rektors.
Rektor Háskóla íslands
Verkamannafélagið
Dagsbrún
og
Sjómannafélag
Reykjavíkur
halda skemmtifund og félagsvist fyrir eldri félagsmenn
laugardaginn 30. mars kl. 15 í Lindarbæ, Lindargötu 9.
Stjórnir félaganna.
ÞJÓDMÁL
Fjallkóngar iðnaðarráðherra hafa ekki haft erindi sem erfiði í leit sinni að erlendum samstarfsaðila um Kísil-
málmverksmiðju á Reyðarfirði.
Kísilmálmverksmiðjan
Enginn arangur
hjá stóriöjunefnd
Ráðherra neitar að gefa alþingi upplýsingar um gang viðrœðna við
erlendfyrirtœki
Eftir 22ja mánaða leit Sverris
Hermannssonar að erlendum
samstarfsaðiia um byggingu og
rekstur Kísilmálmverksmiðju í
Reyðarfirði, er málið enn í sömu
óvissunni. Ráðherra neitaði á
þriðjudag að gefa alþingi upplýs-
ingar um við hvaða erlenda aðila
hefði verið rætt og hvað hefði
komið fram í þeim viðræðum.
Hann sagði aðeins að þeir væru
hátt á annan tug og væru ekki
reiðubúnir til að ganga til samn-
inga á grundvelli 18 millidala raf-
orkuverðs, en við það eru arð-
semisútreikningar verksmiðj-
unnar miðaðir. Ekki hafa verið
gerð formleg tilboð um annað
raforkuverð eða breytta eignar-
aðild, en Sverrir kvaðst reiðubú-
inn til að beita sér fyrir laga-
setningu um meirihlutaeign út-
lendinga í verksmiðjunni ef þeir
óskuðu þess.
Það var Helgi Seljan sem hóf
umræðuna með fyrirspurn um
gang viðræðnanna. Hann benti á
að það skipti miklu fyrir íbúa við
Reyðarfjörð hvað úr þessu máli
yrði og að úrslit þyrftu að fara að
fást. f fjölmiðlum hefði oftlega
verið sagt frá hinu og þessu fyrir-
tækinu sem verið væri að ræða við
og jafnvel látið í veðri vaka að
málið væri að komast í höfn. Eftir
Það skiptir miklu fyrir íbúa Reyðar-
fjaröar hver úrslit þessa máls verða,
sagði Helgi Seljan á alþingi.
22ja mánaða meðgöngutíma væri
eðlilegt að ráðherra gæfi alþingi
skýrslu, en hún hefði verið sorg-
lega rýr, þar sem hann kysi að
skýla árangursleysi sínu bak við
leynd sem viðkomandi aðilum
hefði verið lofað.
Síðan sagði Helgi: „í kosninga-
baráttunni fyrir austan var mikið
talað um að hægt gengi, en það
myndi nú breytast ef aðrir tækju
við. Nú eru fjallkóngur þeirra
leitarmanna, Birgir ísleifur
Gunnarsson og aðrir nefndar-
menn búnir að þeytast út um allar
holtagrundir til að leita að til-
tækum aðila til að framkvæma
óskastefnu iðnaðarráðherra, en
án árangurs. Og nú kemur fram
að það er orkuverðið sem er
hindrunin. Auðvitað viljaútlend-
ingar þrýsta 18 millidalaverðinu
niður m.a. í ljósi þeirra samninga
sem gerðir hafa verið við Alusu-
isse. Ég skil mætavel að þeir kæri
sig ekki um að fara upp fyrir það
verð sem ráðherra þótti þar hæfi-
legt,“ sagði Helgi. - ÁI.
Ragnhildur
Hundsar samþykkt alþingis
Ekki ennfarið að kanna kostnað við einsetinn skóla ári eftir að alþingi
samþykkti að það skyldi gert
Þann 10. apríl nk. er liðið heilt
ár frá því alþingi samþykkti
þingsályktunartillögu frá Guð-
rúnu Helgadóttur um að könnun
skyldi gerð á kostnaðarauka ríkis
og sveitarfélaga við einsetningu
skóla, samfelldan skóladag og
máltíðir í skólum landsins.
Niðurstöðurnar átti að leggja
fyrir yfirstandandi þing, en
könnunin er ekki farin af stað,
ennþá!
Þetta kom m.a. fram í umræð-
um á alþingi vegna fyrirspurnar
Guðrúnar um hvað framkvæmd
þingsályktunarinnar liði. Ragn-
hildur Helgadóttir menntamála-
ráðherra sagðist hafa vísað fram-
kvæmdinni til nefndar sem er að
kanna tengsl heimila og skóla og
Salóme Þorkelsdóttir er formað-
ur fyrir. Nefndin hefur rætt málið
á einum fundi með fræðslu-
stjórum landSins og er beðið eftir
tillögum frá þeim um hvernig
best væri að kanna þessi mál.
Fyrr verður ekkert gert, sagði Sa-
lóme.
Guðrún Helgadóttir og Eiður
Guðnason gagnrýndu þessa
málsmeðferð ráðherra harðlega.
Nefndinni væri ætlað allt annað
hlutverk, m.a. að stuðla að sam-
heldni fjölskyldunnar og það væri
ekkert annað en að drepa málinu
á dreif að vísa þingsályktuninni
þangað. Nefndin hefði unnið
ágætt starf á allt öðru sviði, og
spurning væri hvort alþingi ætti
að láta bjóða sér að ráðherra
hundsaði samþykktír þess á
þennan hátt. - ÁI.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 29. mars 1985