Þjóðviljinn - 01.05.1985, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 01.05.1985, Blaðsíða 1
1- MAÍ ÞJÓÐMÁL MENNING Fjölmiðlar Fjöldauppsagnir á NT Magnús Ólafsson ritstjórisagði upp störfum í gœrmorgun. Ágreiningur um reksturinn. Síðla gœrdagsins fengu 6 aðrir á ritstjórn uppsagnarbréf. 13 manns á ritstjórninni hœtta störfum. Öánœgjaá blaðinu. Blaðamaður á NT: Sovéskt hreinsunarkerfi Astæðurnar eru fyrst og fremst ágreiningur milli mín og stjórnarinnar um rekstrarleg málefni blaðsins, sagði Magnús Ólafsson ritstjóri NT, sem sagði upp störfum sínum á fundi stjórn- arinnar í gærmorgun. Nokkrir blaðamenn sögðu einnig upp störfum en um fimmleytið í gær var 6 mönnum á ritstjórninni sagt upp. Þannig munu alls um 15 manns af ritstjórn NT hætta störfum í sumar auk þess sem 6 til viðbótar á öðrum deildum blaðs- ins var fenginn reisupassinn í gær. „í minni uppsögn tilgreini ég hættuna á gjaldþroti og blaða- dauða,” sagði einn blaðamann- anna í viðtali við Þjóðviljann í gær. Annar sem fékk uppsagn- arbréf kailaði þessar aðfarir „sov- éskt hreinsunarkerfi”. Gífurleg reiði rfkti meðal starfsmanna blaðsins í gær. Einsog kunnugt er hefur rekst- ur NT gengið fremur illa uppá síðkastið og stjórnin tók ákvörð- un um að hætta mánudagsútgáfu blaðsins fyrir skömmu. Hún hef- ur gert kröfur um frekari niður- skurð við misjafnar undirtektir á blaðinu. Þá hefur ýmsum starfsmönn- um blaðsins gengið erfiðlega að fá laun sín greidd og hefur gætt mikillar óánægju vegna þess. Stjórnarmenn í NT eru m.a. þeir Einar Birnir stórkaupmað- ur, Haukur Ingibergsson fram- kvæmdastjóri Framsóknar- flokksins, Þorsteinn Ólafsson úr SÍS og Hákon Sigurgrímsson stjórnarformaður og fram- kvæmdastjóri Stéttarsambands bænda. Allt frá því í verkfallinu í haust hefur gætt ágreinings milli rit- stjóra og stjórnar hlutafélagsins. Þá hafði náðst samkomulag milli prentara og þeirra dagblaða sem koma út hjá Biaðaprenti, en stjórn hlutafélagsins felldi slíkt samkomulag. I Framsóknar- flokknum hefur og gætt nokkurr- ar óánægju með frelsistilburði á ritstjórninni. Magnús Ólafsson kvaðst hafa tilgreint mjög ítar- lega í uppsögn sinni ástæður hennar, en að svo komnu máli vildi hann ekki fara ítarlegar útí þá sálma. úg. 1. maí Tveir fundir í Reykjavík Tveir fundir verða í Reykjavík að aflokinni kröfugöngu; annar á vegum Samtaka kvenna á vinn- umarkaði niður á Hallærisplani, en hinn á vegum fulltrúaráðsfé- laganna í Reykjavík niður á Lækjartorgi. Safnast verður saman á Hlemmtorgi kl. 13.30 og gengið þaðan niður Laugaveginn í mið- bæinn. Þar mun gangan væntan- lega tvístrast á tvo fundi á Hallær- isplaninu og á Lækjartorgi. Eftir það mun vera boðið uppá kaffi, svosem að Hverfisgötu 105 hjá Alþýðubandalaginu. Um kvöldið verður þar einnig boðað til fagn- aðar á vegum Alþýðubandalags- ins í Reykjavík. Reyndar geta þeir sem vilja farið þegar á stúfana í fyrramálið þarsem herstöðvaandstæðingar verða með kaffi í nýju húsnæði sínu að Mjölnisholti 14. hæð (gengið inn frá Brautarholti). Húsnæðið verður opnað kl. 10.30 f.h. í Þjóðviljanum í dag greinir frá ýmsu öðru víða um landið á þessum baráttudegi. í tilefni baráttudagsins sendum við lesendum og launafólki öllu heitar kveðjur með orðum skáld- sins um hina ungbornu tíð: Heimtar kotungum rétt og hin kúgaða stétt/hristir klafann og sér að hún er voldug og sterk. Neðanjarðarhagkerfið Okurstarfsemi með verðbréf Benedikt Guðbjörnsson lögfrœðingur Landsbankans: Viðskipti með nafnlaus verðbréf stangast á við Ólafslög og opna smugu til okurlánastarfsemi rátt fyrir ótvíræð ákvæði Ól- afslaga frá 10. aprfl 1979 um að verðtryggðar sparifjárkröfur eða skuldbindingar skuli ætíð skráðar á nafn er það samkvæmt heimildum Þjóðviljans viðtekin regla á íslenska verðbréfamark- aðnum að slík skuldabréf séu fram- seld eyðuframsali eða á hand- hafa án þess að nafn kaupandans komi nokkurn tíma fram. Slík verðbréf ganga oft kaupum og sölum með afTöllum á milli fjár- málaspekúlanta án þess að þau viðskipti komi nokkurn tíma fram opinberlega. Þjóðviljinn hefur áreiðanlegar heimildir um þessa viðskiptahætti, þar sem fjársterkir aðilar notfæra sér neyð almennings til okurlána- starfsemi. „Ég veit aö þessi starfsemi tíðkast í stórum stíl, og þessi við- skiptamáti opnar mönnum leið til að fara framhjá okurlögunum,” sagði Benedikt Guðbjörnsson lögfræðingur Landsbankans í samtali við Þjóðviljann í gær. Benedikt sagði að hér á landi hefði þróast neðanjarðarmark- aður með verðtryggð skuldabréf sem væri að nokkru leyti hlið- stæður þeim bflaviðskiptum, sem voru algeng hér á landi í eina tíð, þar sem menn seldu bfla sína með óútfylltu afsali. Bfllinn var síðan seldur þriðja aðila án þess að milliliðurinn kæmi nokkurs stað- ar fram í viðskiptunum. Benedikt sagði að slík viðskipti hefðu á sín- um tíma verið dæmd ólögmæt. Benedikt sagði það algengt að menn seldu verðtryggð skulda- bréf og gæfu viðtakenda umboð til að fylla út nafn eiganda bréfs- ins. Með slíkum viðskiptum gefst engin trygging fyrir því að bréfið hafi ekki gengið á milli tveggja eða fjögurra aðila áður en það kemur í innheimtu, sagði Bene- dikt, og það stríðir gegn umrædd- um lögum um að útgáfa eða fram- sal slíkra bréfa skuli ætíð vera á nafn. -ólg.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.