Þjóðviljinn - 01.05.1985, Blaðsíða 3
_____________________FRÉTTIR________
Alþýðubankinn
Viðbygging í portinu
Stefán bankastjóri: hús Nýlistasafnsins ekki rifið nœstu árin
Skipulagsnefnd borgarinnar
hefur fyrir sinn hatt gefíð Al-
þýðubankanum leyfí tU viðbygg-
ingar í portinu bakvið hús bank-
ans á horni Laugavegar og Vatns-
stígs. Þar leigir Nýlistasafnið nú
tvö gömul hús í eigu bankans. Er-
indið á eftir að hljóta samþykki
byggingarnefndar og umhverf-
ismálanefndar. Að sögn Bene-
dikts Davíðssonar bankaráðs-
manns hefur ekki verið tekin
endanleg ákvörðun um byggingar
þarna, og Stefán Gunnarsson
bankastjóri telur víst að hús Ný-
listasafnsins verði ekki rifíð á
næstunni.
1979. Þau voru á sínum tíma
höfuðstöðvar listahópsins í
SÚM. í húsunum er nú hið eigin-
lega Nýlistasafn og þrír sýning-
arsalir. Á síðustu árum hafa
leikfélög á hrakhólum fengið inni
fyrir sýningar, Egg-leikhúsið og
Álþýðuleikhúsið. Alþýðubank-
inn hefur reynst safninu afar
hugnanlegur leigusali og leigan
lág, enda sjóðir „Nýló” ekki digr-
ir. „Ég þori ekki að hugsa þá
hugsun til enda,” sagði Ólafur
Lárusson formaður safnstjórnar-
innar um nýtt leiguhúsnæði fyrir
Nýlistasafnið.
-m.
Víkur nýlistin fyrir fjármunum alþýðunnar? Mynd: Valdís.
Bláa lónið
Biýn þörf á aðstöðu
Hitaveita Suðurnesja kannar áhugann á að koma upp
þjónustufyrir baðgesti í lóninu. 5 miljónirfyrir
lágmarksaðstöðu
Að sögn Stefáns er einkum til
umræðu innan bankans að byggja
í fyrstu um 100 fermetra hús áfast
Laugavegshúsinu. Sú hugmynd
gerir ekki ráð fyrir að gömul hús
víki. „Það verður ekki næstu
árin,” sagði Stefán, - en jafn-
framt að ljóst væri að þessi hús
stæðu ekki til eilífðarnóns. Bene-
dikt sagði að bankinn væri fyrst
og fremst að kanna viðhorf borg-
arnefnda til bygginga í portinu.
Þegar erindi bankans var af-
greitt í skipulagsnefnd gerði Sig-
urður Harðarson athugasemdir
við að auka bankastarfsemi á
þessu svæði. Hann taldi einnig að
byggingarhugmyndum bankans
væri að ýmsu leyti áfátt tækni-
lega.
Nýlistasafnið flutti inní gömlu
húsin í Vatnsstígsportinu árið
Hitaveita Suðurnesja mun á
næstu dögum auglýsa eftir að-
ilum sem vilja taka þátt í því að
koma upp aðstöðu og þjónustu
fyrir baðgesti við Bláa lónið í
Svartsengi. ÖII aðstaða við lónið
er mjög bágborin og brýn þörf á
úrbótum því aðsókn að lóninu
hefur mjög aukist og búist er við
fjölda erlendra ferðamanna í
sumar sem koma gagngert til að
baða sig í lóninu.
„Það er engin aðstaða sem
mönnum er bjóðandi við lónið í
dag og það verður að koma þess-
um málum í lag. Það er spurning
hvort Hitaveitan á að vera aðili
að rekstri slíkrar þjónustu sem
þama þarf að koma upp en við
viljum í það minnsta láta kanna
hvort ekki sé áhugi fyrir því hjá
einhverjum að koma einhverri
aðstöðu upp við lónið,” sagði Júl-
íus Jónsson skrifstofustjóri Hita-
veitu Suðurnesja í gær.
Stjórn Hitaveitunnar hefur
látið gera áætlun varðandi hugs-
anlega uppbyggingu við lónið
fyrir baðgesti og er þar reiknað
með að það kosti um 5 miljónir
að koma málum í viðunandi horf.
-*g-
Skeiðarár-
sandur
hækkar
Skeiðarársandur hefur hækk-
að að meðaltali um 1,73 sentí-
metra á ári frá árinu 1932, eða
samtals 88 sentímetra.
Þetta kemur fram £ síðasta hefti
Náttúrufræðingsins. Þar er frá
því greint, að árið 1932 hafi Helgi
Arason á Fagurhólsmýri sett
koparbolta í Borgarklett, sem er
röskan kílómetra norður af Ing-
ólfshöfða. Merkið var nákvæm-
lega 1 meter ofan við sandinn.
Þegar fjarlægðin var svo mæld
síðast vom einungis tólf sentí-
metrar ofan á sandinn þannig að
hækkunin nemur 88 sentímetrum
á þessum tíma. Þetta er órækur
vitnisburður um að Skeiðarár-
sandur er enn að hækka. ös.
Skákmótið
Meistara-
áfangi
hjá Karli?
Áttunda umferð skákmótsins í
Borgarnesi var tefld í gær. Jansa
vann Hauk, Curt Hansen vann
Dan Hanson, Karl Þorsteins vann
Margeir en Guðmundur Sigur-
jónsson og Morky gerðu jafntefli.
Eftir 8 umferðir eru Jansa og
Curt Hansen efstir með 6 vinn-
inga. Guðmundur Sigurjónsson,
Morky og Karl Þorsteins eru
næstir með 5 vinninga.
Að sögn Guðmundar Arn-
laugssonar vantar Karl Þorsteins
nú aðeins einn vinning úr þrem
síðustu umferðunum til þess að
ná áfanga að alþjóðlegum meist-
aratitli. -ólg.
Sovétríkin-41 ferð 1985
Mest ferðaúrval sem birst hefur. Við fljúgum alla föstu-
dagaog sunnudaga. Til Kaupmannahafnar með Flug-
leiðum og samdægurs eða daginn eftir til Sovétríkj-
anna með stærstaflugfélagi heims, Aeroflot, þotuflug.
Baðstrandarferðir, skoðunarferðir til flestra þekktustu
staða. Danskir fararstjórar. Ótrúlega lágt verð. Fyrsta
flokks hótel (Intourist). Kynnið ykkur af eigin raun
umdeildasta ríki veraldar. Sjón er sögu ríkari. Bæk-
lingar sendir. Aeroflot flýgur til flestra ríkja heims-
Kynnið ykkur verðið.
Allar upplýsingar hjá okkur.
Gleðilega hátíð.
Feróaskritstola
KJARTANS
HELGASONAR
Gnodavog 44 - 104 Reykjavík - Sími 91-68 62 55