Þjóðviljinn - 01.05.1985, Blaðsíða 8
MENNING
Kötturinn slóttugi
Leikfélag Akureyrar sýnir:
KÖTTURINN SEM FÓR SÍNAR
EIGIN LEIÐIR
eftir Ólaf Hauk Símonarson
Leikstjóri: Sigrún Valbergsdóttir
Leikmynd: Messiana Tómasdóttir.
Ólafur Haukur hefur gert svo-
h'tið leikrit upp úr einni af hinum
frábæru sögum Rudyards Kipling
um dýr og menn og hvernig sam-
skipti þeirra hafa þróast í tímans
rás. Hér er sagt frá því hvernig
siðmenningin heldur innreið
sína, en það gerist auðvitað þegar
konan kemur til sögunnar. Fram
að því voru öll dýrin villt og mað-
urinn sömuleiðis. Þá var hins veg-
ar numið úr honum rifbein og af
því gerð kona sem freistaði hans
með alls kyns lífsgæðum til að
láta af villimennsku sinni og ger-
ast taminn hellisbúi. Konan beitti
sfðan hundinn, hestinn og kúna
sömu brögðum, fékk þau til að
þjóna sér gegn borgun í fríðu.
Eina dýrið sem ekki lét temja sig
var kötturinn, en með klækjum
tókst honum að gera einstakan
samning við konuna, þ.e. njóta
allra lífsgæðanna en varðveita þó
frelsið sem hin dýrin höfðu látið
af hendi.
Þetta er skemmtileg og heill-
andi saga sem segir okkur margt
um lífsgæðin og frelsið og hvernig
siðmenningin byggist á því að af-
sala sér ákveðnum hlutum og fá
aðra í staðinn. Persónur eru
mótaðar skýrum og skemmti-
legum dráttum, einkum maður-
inn, konan og kötturinn, og það
eru nokkuð góðir sprettir í text-
anum, en hann hefði vel þolað
rækilegri úrvinnslu og meiri upp-
áfinningasemi af hendi höfundar,
en henni vitum við að Ólafur
Haukur hefur töluvert af. Eink-
um er bagalegt hvað endirinn er
snubbóttur, það er einsog leikrit-
ið gufi bara allt í einu upp.
Það sem vegur upp á móti þess-
um vanköntum er annars vegar
skemmtilegir söngvar Ólafs
Hauks en hins vegar uppáfinn-
ingasöm og skemmtileg uppsetn-
ing Sigrúnar Valbergsdóttur.
Messíana Tómasdóttir gerir
leikmyndina og fylgdi með í þeim
kaupum að hún varð að gera
hana utanum leikmyndina fyrir
Piaf. Það leysir hún með því að
klæða þá leikmynd skemmti-
legum efnum og árangurinn verð-
ur afar skemmtilegt leiksvæði á
mörgum hæðum og pöllum, sem
Sigrún notfærir sér vel til að gera
sýninguna hreyfanlega og til-
breytingarríka. Búningar eru sér-
lega vel unnir og ýmsir leikmunir
bera vott um skopskyn og hug-
myndaflug.
Allir leikaramir standa vel
fyrir sínu. Þráinn Karlsson gerir
manninn skemmtilega sjálfbirg-
ingslegan, hégómlegan og mátu-
lega heimskan. Theodór Jú-
líusson er kattliðugur, kankvís og
slóttugur í hlutverki kattarins,
Marínó Þorsteinsson yndislega
hundslegur og þjónslundaður í
sínu hlutverki, og Pétur Eggerz
og Sunna Borg hafa fallegar
hreyfíngar og skemmtileg gervi
sem hestur og kýr. Þá er Þórey
Aðalsteinsdóttir einkar klæk-
indaleg og kvenleg í sínu hlut-
verki, og Rósberg Snædal leikur
bamið með sannfærandi og
hroðalegum orgum og skemmti-
legum hreyfingum.
Þetta er vel útfærð sýning sem
hlýtur að orka sterkt á
ímyndunarafl og hugsun barna
sem fullorðinna, en hún hefði vel
getað borið töluvert meiri og fjöl-
breytilegri texta.
Sverrir Hólmarsson.
Stökur
Þingeyingar hafa átt og eiga
marga snjalla hagyröinga.
Einn af þeim er Snorri Gunn-
iaugsson bóndi á Geitafelli.
Allir vísnavinir í Þingeyjarsýsl-
um kannast við Snorra á
Geitafelli eins og hann er jafn-
an nefndur og vísur eftir hann
hafa birst í Víkurblaðinu á
Húsavík. Snorri erorðinn 82
ára gamall og er hættur að
standa fyrir búi en sonur hans
ertekinn við búskap áGeita-
felli. En lítum þá á nokkrar vís-
urSnorra.
Þessi vísa er ort um tólf bama
faðir.
Brakaði lengi í reiða og rá
rétt þó gengi að stíma.
Lífsirts strengi lék hann á
langan fengi tíma.
Snorri heyrði á tal tveggja
manna sem vildu komast á loðnu-
bát:
Eftur hverju eruð þið
ungu menn að bíða?
Á þurru landi loðnumið
leynast furðu víða.
Svona yrkir Snorri um björtu
hliðar tilvemnnar.
Þó að sitthvað þyki að
þá mun lífið sanna,
að samt er enn á sínum stað
sálargöfgi manna.
Starfsbræður Snorra munu ef-
laust flestir taka undir með hon-
um þegar hann segir:
Bóndann varla bugað fá
björg þó falli í vegi.
Bóndann kalla annir á
áður en hallar degi.
Frekast em það bændur sem
yrkja þannig:
Oft er svalt um sumarmál
svellalög um flóann.
Seinn gœgist gróðurnál
gegnum sinuþófann.
Þegar jarðýtur djöfluðust við
gerð Kísilvegarins í túni Snorra
orti hann:
Kísillœtin leiðast mér
landið tcetist niður,
þar við bætist að hér er
enginn nœturfriður.
Snorri hefur alla tíð verið mik-
ill hestamaður og sem slíkur að
sjálfsögðu ort hestavísur eins og
til að mynda þessa:
Blœrinn strýkur hvíta kinn
hvetur góða Sörla minn,
er stígur vikivakann sinn,
viljugur og ganglaginn.
Einhvem tímann rétt fyrir jólin
var Snorri staddur í verslun á
Húsavík, þar var kaffikanna á
miðju gólfí og Snorra var sagt af
afgreiðslustúlku að hann fengi
ekki sopa nema hann kæmi með
góða vísu, jólavísu:
Að því marki mun ég keppa
meðan í mér leynist sinna
að ég megi aðeins skreppa
inná milli lœra þinna.
Snorri hefur lagt svo fyrir að
við útför hans verði aðeins þetta
sagt og ekki orð meira:
Ævivinur Ijóðs og lagsins
lagði úr vör með forgangsharði,
aðrir voru í önnum dagsins,
enginn granni fylgdi úr hlaði.
Á öllum sviðum visinn var ’ann,
verkasmár og hvergi laginn,
ekki í neinu af öðrum bar ’ann
enda gleymdur sama daginn.
Snorri hefur alltaf haft gaman
af að dansa, en segist nú vera
hættur að fara á böll. Síðast þegar
hann fór á dansleik orti hann
þessa vísu:
Þó ég reyni að horfa hátt,
og hreykja mér í sollinn,
verður alltaf ósköp lágt
uppá tómann kollinn.
Við kveðjum Snorra á Geita-
felli með vísu sem hann orti til
konu sinnar einhverju sinni um
sauðburðinn, þegar þau vom
orðin þreytt, en hún taldi of
snemmt að fara að sofa, margt
væri ógert:
Þú ert dugleg, það ég finn,
þú skaltfá að ráða.
Nœgir annar armur þinn
á við mína báða.
- S.dór.
„Rosberg Snædal leikur bamið með sannfærandi og hroðalegum orðum og
skemmtilegum hreyfingum.“
Leiðinlegt
Bostonfólk
BOSTONFÓLKH) (The Bostonians)
Bandaríkin 1984.
Leikstjóm: James Ivory.
Handrit: Ruth Prawer Jhabwala
(eftir skáldsögu Henry James).
Leikarar: Vanessa Redgrave, Christ-
opher Reeve, Jessica Tandy o.fl.
James Ivory leikstjóri mun
hafa skilað af sér nokkrum
þokkalegum kvikmyndum, þará-
meðal einni (The Europeans)
sem byggð er á sögu eftir Henry
James, bandarískan nítjánduald-
arhöfund sem kjölfróðir bók-
menntamenn tala um ósköp
notalega.
James Ivory leikstjóri hefði átt
að hlífa okkur við nýjustu mynd
sinni, Bostonfólkinu, sem Regn-
boginn er enn að reyna að sýna í
A-salnum. Ýmsir mikilhæfir
karlpungar brugðust á sínum
tíma við blásokkahreyfingunni af
mikilhæfu ráðleysi og eðlilegum
sálarháska. Þannig verður
Strindberg til dæmis karl- og
kvenfólki ennþá tilefni frjórra
deilna um ótta, eðli og uppreisn.
Bostonbók Henry James í þessari
útgáfu James Ivory vekur nú-
tímamanni hinsvegarþá huggun-
arhugleiðingu eina saman að
víðar sé pottur brotinn í leik-
stjórn og handritsgerð en hér á
Fróni. Hvað gengur mönnum til
að kasta milljónum í jafnfráleitan
efnivið?
Þetta er sumsé eitthvað útfrá
súffragettum kringum 1875; ást-
arþríhyrningur þarsem uppþorn-
uð kvenréttindajússa og myndar-
legur karlhlunkur keppa um hylli
ungrar fegurðardísar. Þrátt fyrir
ágætan leik, sérstaklega Vanessu
Redgrave, er áhorfandanum
nánast alveg sama hvorumegin
hryggjar skvísan liggur að lokum;
og að leita innsýnar, upplýsinga,
boðskapar, tilfinninga um við-
fangsefni í þessari mynd er gamla
sagan um nálina og heystakkinn.
Enda gekk fólk af öllum gerðum
út unnvörpum fyrir hlé og eftir.
MÖRÐUR
ÁRNASON
Soldið skrítið að þetta skuli
vera svona þreytandi. Þarna eru
góðir leikarar, Vanessa, Reeve
súpermaður, Linda litla Hunt og
fleiri, fallegt umhverfi, smekkleg •
kvikmyndataka.
En eftir stendur ekki neitt
nema helst endirinn sem er ennþá
bjánalegri en happíend happí-
endanna í Foringjanum og fyrir-
manninum þegar Ríkarður Gere
bar lágstéttarbrúðina á höndum
sér útúr ljótu verksmiðjunni til
hamingjunnar í millistéttareld-
húsinu.
’Borgarnesdagar '85
Ingiríður Óskarsdóttir
sýnd í Austurbœjarbíói
í tengslum við „Borgarnes-
dagana ’85“ sem byrja í
Laugardalshöllinni 2. maí,
mun leikdeild ungmennafé-
lagsins Skallagríms í Borgar-
nesi sýna í Reykjavík gaman-
leikinn „IngiríðurÓskarsdótt-
ir, eða Geiri djók snýr heim
eftiralllangafjarveru“, eftir
T rausta Jónsson veður-
fræðing.
Leikurinn verður sýndur tvisv-
ar í Austurbæjarbíói föstudaginn
3. maí, kl. 20.30 og kl. 23.30.
„Ingiríður" hefur verið sýnd
hvorki meira né minna en 20
sinnum í Borgarnesi, við ágæta
aðsókn og undirtektir. Hlutverk
eru 9 en alls taka um 20 manns
þátt í sýningunni.
Leikstjóri er Guðjón Ingi Sig-
urðsson, tónlist og söngtextar eru
eftir Bjarna Valtý Guðjónsson,
útsetning eftir Bjöm Leifsson,
sem einnig stjómar hljóm-
sveitinni.
- mhg.
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Mlðvikudagur 1. maí 1985