Þjóðviljinn - 03.05.1985, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 03.05.1985, Qupperneq 5
Fyrsta maí gangan kemur niður Bakarabrekkuna. Sól skín á lofti, logn svo tæpast blaktir á höfði hár, og allir í baráttuhug. Mynd Valdís Úr ræðu Ásmundar Stefánssonar forseta ASÍ í Stykkishólmi Verum viðbúin hörðum átökum „Verkalýðsfélögin hafa alla tíð tekið virkan þátt í þjóðmálabar- áttunni og verið í fararbroddi fyrir félagslegri framfarasókn, sókn til bættra lífskjara, aukins jafnaðar og réttlætis. Stundum vill brenna við að baráttusagan gleymist. Réttindi dagsins eru tekin sem sjálfsagður hluti hins daglega lffs, sem enginn þurfi um að hugsa. Ekkert hefur áunnist af sjálfu sér og allt þarf að verja fyrir ásókn þeirra sem vilja hverfa aft- ur til liðins tíma. Enn þarf að sækja fram og gera betur. Frum- kvöðlar hreyfingarinnar hafa skilað okkur bættu þjóðfélagi. Það er okkar að slá skjaldborg um árangurinn og sækja lengra. í markaðsþjóðfélagi nútímans er sterk tilhneiging til verkaskipt- ingar. Sú verkaskipting nær í dag í hættulegum mæli inn í félags- legar stofnanir þjóðfélagsins. Við kjósum menn í sveitarstjórn til að stjórna sveitarfélaginu og menn á þing til að stjórna þjóðfélaginu. Kjósendur hafa ekki annað verk- efni en bíða næstu kosninga. Sá hugsunarháttur sýnist einnig verða almennari að forusta verkalýðsfélaganna sé kosin til þess að sjá um verkefnin og hinn almenni félagi geti látið nægja að fylgjast með álengdar. Þau við- horf eru verkalýðshreyfingunni hættuleg. Hún þarf á hverjum fé- lagsmanni að halda í hinu daglega starfi. Styrkur hreyfingarinnar er undir því kominn að félagsfólkið fylki sér um þær kröfur sem fram eru bornar og sé tilbúið til þess að fylgja þeim eftir af fullum þunga. Verkalýðshreyfingin stefnir að bættum kjörum vinnandi fólks, en baráttan snýst ekki bara um kjör þeirra sem eru í starfi. Mál- efni æskunnar sem mun axla ábyrgð á framtíðinni og þeirra öldruðu sem hafa skilað okkur því sem við búum að, skipta ekki síður máli. Við berum öll ábyrgð gagnvart sjúkum, öryrkjum og öllum þeim sem aðstoðar þarfn- ast. Veikindaréttur, sjúkrasjóð- ir, lífeyrissjóðir, barnaheimili, elliheimili, almannatryggingar. Allt eru þetta þættir sem verka- lýðsfélögin láta sig skipta.” „Öflug atvinnuuppbygging er í senn forsenda bættra kjara og at- vinnuöryggis. Á síðari árum hef- ur stefnuleysi í atvinnumálum og mikil verðbólga ruglað ákvarðan- ir í fjárfestingum og rekstri og óráðsía vaðið uppi. Stjórnvöld hafa ekki treyst sér til að takast á við þann skipulagsvanda sem við er að etja heldur hent sér í fang hinna einföldu lausna ójafnað- arsinna sem ætla kjaraskerðingu að bæta úr öllu böli, jafnt við- skiptahalla sem verðbólgu, um leið og hún treysti atvinnu og tryggi nýsköpun í atvinnulífi. Þeir þröngsýnismenn sem telja atvinnuiífi það helst til hjálpar að auka á vaxtaokrið og tekjulitlu fólki helst til bjargar að efna- menn fái meira fyrir snúð sinn, skilja lítið í samhengi þjóðfélags- ins. Misskipting í atvinnulífinu milli útflutningsgreina og þeirra greina sem öllu geta velt af sér á aðra verður seint hornsteinn bættra lífskjara. Misskiptingin í afkomu einstakiinga er óþolandi. Það koma engar einfaldar lausnir í stað samræmdrar stefnu- mótunar og skipulegrar fram- kvæmdar. Forsenda árangurs er skýr stefna þar sem lykilorðin eru: atvinnuöryggi, traustur kaupmáttur, réttlát skipting, fé- lagslegt öryggi og áhrif hvers og eins á sitt umhverfi. Á þeim for- sendum einum er framtíðin okk- ar. Að öðrum kosti kann hvort tveggja að blasa við efnahagsleg stöðnun og atvinnuleysi jafnvel alvarlegra en í nálægum löndum. Kaupgeta hefur farið þverr- andi síðustu misserin. Þegar við förum með budduna út í búð reynist hún þurrausin fyrr en var- ir. Á stuttum tíma hefur fjórð- ungi verið kippt burtu með snörpum viðbrögðum stjórn- valda. Snerpan er ekki sú sama til að taka til hendi á öðrum sviðum. Eignamenn maka krókinn og skattur lækkar hjá þeim sem græða. Skipulagsleysi einkennir framkvæmdir og rekstur. Óvissa í atvinnumálum fer vaxandi og lítið miðar að þoka framleiðslu þjóðfélagsins fram. Við verðum að snúa vörn í sókn. Við verðum að tryggja aukinn kaupmátt og örugga at- vinnu. Á liðnum vetri var samið um sæmilega kauphækkun en allir endar opnir sem snéru að kauptryggingum. Kaupgeta jókst um stund, en stóð ekki lengi. f dag hefur verðbólgan eytt því sem ávannst og kaupmáttur fallið í það sama og var fyrir samninga. Staðan í maí verður svipuð og í október í fyrra. Framundan er frekari skerðing því verðbólgan æðir fram, þó nokkuð hafi dregið úr, frá því sem mest var. Gengi hefur lækkað töluvert að undan- förnu og hækkun landbúnaðar- vara er í undirbúningi. Þegar kemur fram í ágúst/september verður kaupmáttur 3-4% lakari en nú. Það getur orðið erfitt að komast upp úr þeirri djúpu lægð sem við erum að síga í dýpra og dýpra. Okkur ógnar sú sýn og við viijum því láta á það reyna hvort hægt er að ná kauphækkunum fram strax í vor. Á liðnu hausti var rætt um ýms- ar leiðir til þess að tryggja kaup- mátt. Fyrir forgöngu VMSÍ og LI var sérstaklega fjallað um svo- nefnda skattalækkunarleið. Þær hugmyndir fengu sums staðar óblíðar móttökur og e.t.v. er rétt að rifja upp hvað í þeim fólst. í fyrsta lagi var stefnt að því að auka það sem fólk hefði til ráð- stöfunar með lækkun skatta. Af því dró leiðin nafnið, en það var hins vegar engan veginn eina at- riðið sem um var rætt. Meginefn- ið fólst í öðrum atriðum. Fyrst og fremst því að stefnt var að því að gera ráðstafanir til þess að hamla gegn verðhækkunum. Það var rætt um fastar viðmiðanir í geng- ismálum, þannig að samningar yrðu lausir ef gengisbreyting færi yfir fyrirfram ákveðið mark. Eins og allir vita ræður gengið miklu um verðlagið í landinu ekki að- eins á innfluttum vörum heldur einnig innlendum. Það var rætt um verðstöðvun á opinberri þjónustu, þannig að hún hækkaði ekki, jafnframt því sem rætt var um takmarkanir á hækkunum landbúnaðarvara. Kaupmáttur- inn ákvarðast annars vegar af kaupinu og hins vegar af verð- laginu, sem sker úr um það, hvað fæst fyrir kaupið. Það er því ekki síður mikilvægt að hindra verð- hækkanir en hækka kaupið. Auk þessa var rætt um félagsleg atriði eins og húsnæðismál, sem þá eins og nú voru mörgum þung í skauti. í stuttu máli var verið að ræða um samning um lífskjör, ekki að- eins samning um kaup. Það er rétt að kauphækkanir í þeirri um- ræðu voru lægri en endanlega var um samið, en með því er ekki sagt að kaupmátturinn væri lægri en er í dag, cf sú leið hefði verið valin. Reynslan sýnir að trygg- ingar skipta meira máli en krónu- tölur. Á fyrsta maí horfum við fram á við og lítum til næstu verkefna. Við spyrjum okkur sjálf, hvernig eigum við að takast á við vanda dagsins og að hverju eigum við að stefna til lengri framtíðar. Kjaraskerðing síðustu missera brennur á fólki einkum þeim, sem minnst bera úr býtum fyrir vinnu sína svo og lífeyrisþegum. Því aldraða fólki og öryrkjum sem er gert að halda sér uppi eitt á eigin vegum, jafnvel í leiguhús- næði, fyrir tólf þúsund krónur á mánuði, raunar rúmar þrettán eftir boðaða hækkun, er ekki bú- inn lífvænlegur kostur. Fyrir fullvinnandi fólk eru fjórtán þús- und knappur framfærslueyrir. Við sækjum fram til bættra kjara og í þeirri sókn eigum við að láta þetta fólk hafa forgang. Það er hljótt um fátæktina á íslandi í dag. Við nefnum naumast fátækt nema vera að tala um ástand í öðrum löndum. Við Framhald á bls. 6 Föstudagur 3. maí 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.