Þjóðviljinn - 10.05.1985, Page 2
HVERNIG
ENDAST
LAUNIN?
Katrín Helgadóttir
Farið
versnandi
„Það gengur alls ekki vel. Þetta
hefur farið versnandi enda allar
vörur hækkað mikið. Það er erfitt
að ná endum saman“, sagði Katr-
ín Helgadóttir verslunarmaður.
„Mér finnst þessar kauphækk-
anir aldrei hafa skilað sér til okk-
ar. Ég vil helst ekki verkföll, mér
finnast þau leiðinleg, en ég held
að það gerist karinski ekkert
öðruvísi. Það situr aldrei neitt
eftir þegar búið er að semja“,
sagði Katrín. -fg.
Alda Tómasdóttir
Verðum að fá
kauptryggingu
„Það gengur alls ekki nógu vel og
ég myndi segja að þetta væri
verra en áður var“, sagði Alda
Tómasdóttir verslunarmaður.
„Prósentuhækkanir hafa alls
ekki komið okkur til góðs. Þeir
sem mest hafa fyrir hafa hirt allan
ágóðann af þeim. Það verður að
ná fram einhverri kauptryggingu
sem ekki má vera lakari en láns-
kjaravísitalan. Annað gengur
ekki. Ég hef annars enga trú á því
að nokkuð gerist, það gerist aldei
neitt af viti í þessum málum“,
sagði Alda. -íg.
Eygló Jónsdóttir
Knýja á
um bætur
„Við erum tvö sem vinnum úti
og ég þarf því ekki að kvarta, en
ég veit að mörgum gengur illa að
láta enda ná saman", sagði Eygló
Jónsdóttir verslunarmaður.
„Ég held að það sé betra að
hafa stutta samninga og reyna að
knýja einhverjar bætur fram
strax. Hins vegar hef ég því miður
enga trú á því að það takist en það
væri reynandi að gera eitthvað
átak í þessum málum. Ég heyri í
kringum mig að fólk er farið að
tala meira um þessi mál en áður“,
sagði Eygló. -Ig
FRETTIR
Neskaupstaður
Hækka kaupið!
Síldarvinnslan býður starfsfólki 7% hœkkun
ofaná bónus. Greiðir dagvistargjöld niður um
helming. Vilja halda starfsfólkinu. Guðjón
Smári Agnarsson framkvstj.: Hefur haftgóð
áhrif
Sfldarvinnslan í Neskaupstað
borgar starfsfólki sínu 7%
aukaálag á bónusgreiðslur og
greiðir niður dagvistargjöld fyrir
börn starfsmanna um helming.
Með þessu móti hefur fyrirtækinu
tekist að halda sínu fólki og
tryggja full afköst í frystihúsinu
en mannekla vegna lélegra launa
hefur komið illa við frystiiðnað-
inn í vetur.
„Við gripum til þessa ráðs um
áramótin að hækka bónusinn og
greiða niður dagvistargjöldin og
ég er alveg viss um að þetta hefur
haft góð áhrif og tryggt okkur
vinnuafl", sagði Guðjón Smári
Agnarsson framkvæmdastjóri
Sfldarvinnslunnar í samtali við
Þjóðviljann í gær.
Niðurgreiðslur dagvistargjalda
nema um 1500 kr. á mánuði fyrir
heilsdagsvistun og bónusaukinn
getur skipt þúsundum króna.
„Ég tel þetta vera ákveðna við-
leitni en það er alveg vitað mál að
lág laun í fiskvinnslunni hafa fælt
frá og það hefur komið mjög illa
við þessa vinnslu að geta ekki
boðið uppá betri launakjör. Þaö
verður að búa þannig að fisk-
iðnaðinum að hann geti greitt
fólki viðunandi laun“, sagði
Guðjón Smári.
-Jg-
Ég fyrirbýð að minn póstur fari
í gegnum hendurnar á þessum
Jóhanni!
Keflavík
Fær póstinn eftir allt saman
Bæjarstjóri vildi ekki una samþykkt bœjarstjórnar. Bœjarráð bókaði gegn samþykktinni.
Bœjarstjórn tók málið aftur upp. Jóhann Geirdal: Fagna endanlegri niðurstöðu
Bæjarstjórn Keflavíkur ræddi í
þrjár klukkustundir á fundi
sl. þriðjudagskvöld um bréfa -
sendingar bæjarstjóra til bæjar-
fulltrúa. Eins og Þjóðviljinn hef-
ur áður skýrt frá fékk Jóhann
Geirdal bæjarfulltrúi Alþýðu-
bandalagsins í Keflavík samþykkt
i bæjarstjórn í síðasta mánuði að
allur póstur er stflaður er á bæ-
jarstjórn bærist í hendur bæjar-
fulltrúa en áður hafði Jóhann
mótmælt því að fá ekki þau erindi
er ættu að berast bæjarstjórn.
Ekki var bæjarstjóri sáttur við
afgreiðslu bæjarstjórnar og tók
málið fyrir á fundi bæjarráðs, er
taldi samþykktina á misskilningi
byggða. Bókaði bæjarráð að það
sæi ekki ástæðu til að breyta
dreifingu bréfa og gagna til
bæjaryfirvalda frá því sem verið
hafði.
Jóhann Geirdal tók þessa
bókun fyrir þegar á næsta fundi
bæjarstjórnar og benti á að það
væri engan veginn í verkahring
bæjarráðs að segja til um fram-
kvæmdir á samþykktum bæjar-
stjórnar. Urðu miklar umræður
um málið á fundinum og lögðu
fulltrúar meirihlutans um síðir
fram nýja tillögu þar sem segir að
senda skuli bæjarfulltrúum til fjölföldunar. Var tillagan sam- skipta bæjarráðs af málinu. Ég
fundargerðir bæjarráðs næsta þykkt en Jóhann sat hjá. fagnaði þesari niðurstöðu en
virka dag eftir fund ráðsins ásamt „Þessi samþykkt er til veru- benti jafnframt á að bæjarstjóri
ljósriti þeirra erinda sem þar eru legra bóta og þarna er í raun til- hefur þverskallast við að hlýta
tekin fyrir sé þar ekki um sérstök gangi minnar upphaflegu tillögu fyrirmælum bæjarstjórnar að
trúnaðarmál að ræða eða ljóst náð. Hins vegar sat ég hjá við hluta“, sagði Jóhann Geirdal.
megi vera að efnið sé ekki ætlað afgreiðsluna vegna furðulegra af- -Ig.
Landbúnaðarmál
Vantraust á Jón!
Bœndafundur íHúnaveri ályktar: Vítum harðlega þátttöku fulltrúa og
framámanna bœnda ískrípaleiknum. Krefjumstþess að afgreiðsla
frumvarpsins um Framleiðsluráðslögin verði stöðvuð. Bœndurfái
frumvarpsdrögin til lýðrœðislegrar umfjöllunar!
Aðalfundur Búnaðarfélags Ból-
staðarhlíðarhrepps, haldinn í
Húnaveri 24.4. 1985, lýsir yfir
vantrausti á landbúnaðarráð-
herra vegna málsmeðferðar við
,Jrynningu“ á framkomnu stjórn-
arfrumvarpi til veigamikilla
breytinga á lögnm um Fram-
leiðsluráð landbúnaðarins, segir í
skeleggri ályktun sem samþykkt
var með öllum greiddum at-
kvæðum á fundinum.
„Fundurinn vítir harðlega þátt-
töku fulltrúa og frammámanna
bænda í þeim skrípaleik og krefst
þess, að afgreiðsla málsins verði
stöðvuð, þartil bændur hafa feng-
ið frumvarpsdrögin í hendur til
umfjöllunar á lýðræðislegan hátt.
Ályktun þessi skal send til land-
búnaðarráðherra, Framleiðslur-
áðs landbúnaðarins og Stéttars-
ambands bænda, strax!“
-óg
Bækur
Stjúpforeldrar
fræðast
Um næstu helgi, föstudags-
kvöld og laugardagseftirmiðdag
þ. 10. og 11. maí, mun ráðgjafar-
og fræðsluþjónustan Tengsl sf.
efna til fræðslu- og umræðunám-
skeiðs fyrir stjúpforeldra.
Leiðbeinendur eru Nanna K. Sig-
urðardóttir og Sigrún Júlíusdótt-
ir.
Fólki gefst hér tækifæri til að fá
aðgengilega fræðslu um tilfinnan-
leg málefni, finna leiðir við lausn
vanda og deila reynslu sinni með
öðrum sem eru í svipaðri stöðu.
Hér er því ekki um meðferð að
ræða heldur fræðslu og stuðning í
lokuðum hópi undir leiðsögn sér-
hæfðs fagfólks.
Nánari upplýsingar fást hjá
Tengslum sf. á Vesturgötu 10 kl.
14-18 alla virka daga.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
Ný saga frá AB
„Þrír heimshlutar, 1945-1965“ fyrst af fimmtán bindum
Almenna bókafélagið hefur
gefið út fyrstu bókina af
fimmtán í nýrri ritröð um sögu
mannkyns. Verkið er samið á
vegum Aschehoug-forlagsins
norska af kunnum norrænum
sagnfræðingum og kemur út i
samprenti samtímis á Norður-
löndum.
Hin nýja mannkynssaga hefst
hálfri fjórðu milljón árum fyrir
Krists burð, en AB ríður á vaðið
með bindinu „Þrír heimshlutar"
sem fjallar um tímabilið 1945-
1965. Bækurnar verða svo þrjár
aga mannkyn
'tiöó AB
árlega og lýkur útgáfu ritraðar-
innar árið 1989.
Þýðandi fyrsta bindis er Lýður
Björnsson sagnfræðingur og
næstu binda Gunnar Stefánsson,
Snæbjörn Jóhannsson, Lýður og
Helgi Skúli Kjartansson. Sá síð-
astnefndi er ritstjóri verksins
fyrir hönd AB ásamt Eiríki
Hreini Finnbogasyni.
Hvert bindi er um 270 síður í
stóru broti, ríkulega mynd-
skreytt. „Saga mannkyns“ er gef-
in út innan Bókaklúbbs Almenna
bókafélagsins.
- m