Þjóðviljinn - 10.05.1985, Blaðsíða 8
GLÆTAN
Erla Sœvarsdóttir,
15 ára:
Nei, ég er sko ekki búin aö
fá vinnu og ekkert búin að
sækja um ennþá. Veit eigin-
lega ekki hvar ég á að sækja
um. Nei, ég kemst ekki í vinnu
á írafossi, það er bara fyrir þá
krakka sem eiga heima fyrir
austan.
Júlíana Kristjáns-
dóttir, 15 ára:
Já, ég fékk vinnu í bakaríi.
Ég sótti bara um og fékk strax
svar. Vel borgað? Já, já,
kaupið er allt í lagi. Ég byrja á
mánudaginn en veit ekki hvort
ég verð í allt sumar eða tek
eitthvert frí.
ívar Örn Þór-
hallsson, 15 ára:
Ég er búinn að sækja um
hjá Sláturfélagi Suðurlands
og á að tala við þá aftur um
miðjan mánuð og fæ þá svar.
Nei, ég hef ekki unnið þar
áður, sótti bara um. Það er
ekkert ákveðið hvað ég geri ef
svarið verður nei.
Litli bróðir (vars, Þórhallur 2
ára vildi fá að vera með á
myndinni og sagðist vera bú-
inn að fá vinnu sem aðstoðar-
leiðsögumaður á Rhodós í
sumar.
Jónas Finnbjörns-
son, 22 ára:
Já, ég er búinn að fá vinnu í
sumar. Annars er ég ekki
dæmigerður unglingur því ég
var að Ijúka sveinsprófi í mál-
araiðn og fékk vinnu í faginu.
Það er vel borgað enda mikil
vinna.
Ragna Kristins-
dóttir, 15 ára:
Ég er ekki búin að fá neina
vinnu, vil allt annað en ung-
lingavinnuna. Ég spurði mann
sem á fiskbúð um vinnu pg
hann ætlar að tékka á því. Ég
hef unnið hjá honum 1 dag í
viku í vetur. Mig langar sko
ekki í unglingavinnuna, það er
meira en illa borgað, 35 krón-
ur var borgað á tímann í fyrra.
Barnapössun er líka illa borg-
uð. í fyrrá vann ég í frystihúsi
útá landi en hér í bænum fæ
ég ekki vinnu í frystihúsi fyrr
en ég er oðin 16.
vjníí'W'9*''
hug'eið'ngum
Atvinnumiðlun
námsmaraia
Unglingavinnan
Á Ráðningarskrifstofu Reykja-
víkurborgar er rekin atvinnu-
miðlun fyrir unglinga. Gunnar
Helgason upplýsti að annars veg-
ar væri það atvinnumiðlun fyrir
14 til 15 ára unglinga, öðru nafni
unglingavinnan eða Vinnuskóli
Reykjavíkurborgar.
Undanfarin ár hafa um 11 til
1200 unglingar sótt um vinnu hjá
vinnuskólanum og sagðist Gunn-
ar búast við að fjöldinn yrði svip-
aður í ár en of snemmt væri að
segja til um það því innritun hófst
síðastliðinn mánudag. Unglinga-
vinnan er frá 1. júní (3. júní í ár)
til 1. ágúst. Kaupið væri ekki búið
að ákveða enn en það yrði gert
fljótlega af skólanefnd vinnu-
skólans. Að sögn Gunnars fá allir
þeir sem um sækja vinnu í vinn-
uskólanum.
Hins vegar er um atvinnumiðl-
un fyrir 16 ára unglinga og eldri
að ræða. „Við reynum að hjálpa
þeim eftir megni. Það fer eftir
atvinnumöguleikum og ýmsu
öðru hvort það er hægt og eins
hvort þau þurfa að bíða lengi
áður en úr rætist. Það er þó óhætt
að segja að meirihlutinn fær
vinnu. Það hafa færri sótt um en
undanfarin ár. Bæði virðist það
vera vegna þess að skólunum
seinkar þetta árið og eins virðist
meira framboð á vinnu, sagði
Gunnar Helgason. -aró.
Gunnar Helgason, Ijósm. Valdís.
Atvinnumiðlun námsmanna
tók til starfa 2. maí og nú þegar
eru um 180 manns búnir að láta
skrá sig, sagði Soflía Karlsdóttir,
annar starfsmaður atvinnumiðl-
unarinar. Við höldum áfram
skráningu út júní.
Að atvinnumiðluninni standa
samtök framhaldsskólanema og
stúdenta. Við erum með fólk á
skrá frá 16 uppí 25 ára aldur. Þeir
Soffía Karlsdóttir. Ljósm. Valdís.
sem eru eldri eru yfirleitt lengra
komnir í námi og eiga auðveldara
með að fá vinnu.
Þetta er 8. árið sem AN starfar
og það hafa sjaldan svona margir
verið búnir að skrá sig fyrstu vik-
una. í fyrra voru það alls 514 sem
skráðu sig, 185 fengu vinnu í
gegnum AN en 285 útveguðu sér
starf sjálfir. Skráningargjald er
200 krónur en viðkomandi fær
það endurgreitt ef hann fær ekki
vinnu gegnum AN. Atvinnumiðl-
unin rekur sig að mestu leyti sjálf
en í ár fengum við 120 þúsund
króna fjárveitingu frá ríkinu.
Við sendum út bréf til um 200
atvinnurekenda áður en við byrj-
uðum og þeir hringja svo hingað
og biðja um fólk. Það eru um 20
atvinnurekendur sem hafa leitað
til okkar. Mér finnst þeir ekki
gera nógu mikið af því að hafa
samband við okkur. Við erum
með mikið framboð af fólki með
sérþekkingu á ýmsum sviðum og
oft víðtæka starfsreynslu. En
þetta er auðvitað allt breytt í ár
vegna verkfalla og uppsagna í
skólunum. Það voru margir sem
hættu og fengu sér vinnu og því
kannski ekki ráðið eins mikið í
sumarvinnifcpg oft áður. -aró.
Vinsældalistar Þjóðviljans
Fellahellir (1) 1. We are the world - USA for Africa (-) 2. Rythm of the night - Debrage (-) 3. Behind the mask - Greg Phillinganes (-) 4. Look Mama - Howard Jones (-) 5. The heat is on - Glenn Frey (2) 6. Things can only get better-Howard Jones (—) 7. Wide boy - Nik Kershaw (-) 8. Welcome to the pleasuredome - Frankie goes to Hollywood (-) 9. Kiss me - Stephen Tintin Duffy (-) 10. Would 1 lie to you - Eurythmics Rás 2 (2) 1. Wide boy - Nick Kershaw (3) 2. Behind the mask - Greg Philliganes (1) 3. We are the World - USA for Africa (8) 4. Kiss me - Stephen Tintin Duffy (-) 5. A view to kill - Duran Duran (4) 6. Some like it hot - Powerstation (7). 7. The beast in me - Bonnie Pointer (5) 8. Welcome to the Pleasure Dome - Frankie goes to Hollywood (9) . 9. Look mama - Howard Jones (-) 10. Lad det swinge - Bobbysocks Grammið (1) 1. Meat is murder - The Smiths (3) 2. Stella - Yellow (2) 3. First circle - Pat Methany Group (4) 4. Nighttime - Killing Joke (8) 5. Power Station - Power Station (—) 6. Centerfield - John Foggerty (—) 7. Who’s afraid - Art of Noise (5) 8. Treasure - The Coucteau Twins (6) 9. It will end in tears - This mortal coil (-) 10. Part time - James Blood Ulmer