Þjóðviljinn - 10.05.1985, Side 15
ÍÞRÓTT1R
Ólafur Haukur Ólafsson úr KR
sigraöi fyrir skömmu í (slands-
glímunni sem fram fór að Laugum
eins og áður hefur verið sagt frá.
Ólafur Haukur ber því Grettisbelt-
ið næsta árið og á myndinni hér
að ofan sem Ágúst Snæbjörns-
son tók er kappinn skrýddur
pessum glæsilega og merka grip.
ísí
Tvær nýjar
greinar
íþróttablaðinu breytt
Sambandsstjórnarfundur ÍSÍ
sem var haldinn þann 4. maí sam-
þykkti að viðurkenna nýjar
íþróttagreinar, keilu og vegg-
bolta, þar sem stofnað hefur verið
íþróttafélag um þessar greinar
sem sótt hefur um inngöngu í
IBR. Greinarnar eru þar með
hlutgengnar innan ÍSÍ og teljast
eftirleiðis á meðal þeirra íþrótta-
greina sem eru á stefnuskrá ÍSÍ.
Þá var samþykkt á fundinum
að hætta útgáfu íþróttablaðsins í
samvinnu við núverandi aðila,
Frjálst framtak, og var þeirri
samþykkt vísað til framkvæmda-
stjórnar ÍSÍ. Þess í stað taki fram-
kvæmdastjórnin við útgáfunni og
geri blaðið að málgagni íþrótta-
hreyfingarinnar eins og til-
gangurinn var í upphafi.
Helgar-
sportid
Golf
Opna Hagkaups-mótið, glæsi-
legasta verðlaunamót landsins,
verður haldið á Hólmsvelli í Leiru
um helgina og hefst kl. 9 í fyrra-
málið. Leiknar verða 36 holur
eftir Stableford, 18 holur hvorn
dag.
GSÍ-keppni fer fram á golfvell-
inum í Vestmannaeyjum á morg-
un, laugardag, og hefst kl. 13.
Skráning verður í Golfskálanum
til kl. 20 í kvöld.
Knattspyrna
Forleikur íslandsmótsins -
Meistarakeppni KSÍ - fer fram á
Kópavogsvellinum í kvöld og þar
mætast Fram og ÍA. íslandsmótið
hefst síðan á mánudagskvöldið
með leik KR og Þróttar í 1. deild.
Sjá nánar annars staðar á síðunni.
England
Everton þarf að
vinna alla fjóra
til að ná sambœrilegum árangri og Liverpool 1979.
Geturfengið 99 stig, Liverpool hefðifengið 98.
Kraftlyftingar
Tveir til
Hollands
EM ’86 á íslandi?
Akureyringarnir Kári Elísson og
Víkingur Traustason verða meðal
keppenda á Evrópumeistaramótinu í
kraftlyftingum sem fram fer í Haag í
Hollandi um helgina. Jón Páll Sig-
marsson varð að hætta við þátttöku
vegna meiðsla í ökkla.
Everton jafnaði stigamet Li-
verpool í 1. deild ensku knatt-
spyrnunnar í fyrrakvöld eins og
sagt var frá í blaðinu í gær. Liðið
er komið með 87 stig og á enn eftir
fjóra leiki - getur því náð 99 stig-
um alls.
En þriggja stiga reglan hefur
aðeins verið í gildi í fjögur ár.
Besti árangur framað því er 68
stig, en þeim árangri náði Liver-
pool árið 1979. Vann þá 30 leiki,
gerði 8 jafntefli og tapaði aðeins 4
leikjum.
Til þess að ná sambærilegum
árangri þarf Everton að vinna
alla þá fjóra leiki sem liðið á eftir.
Samkvæmt tveggja stiga reglunni
væri Everton nú með 60 stig og
gæti náð mest 68 stigum, eða
jafnað met Liverpool.
En samkvæmt þriggja stiga
reglunni yrðu 99 stig betri árang-
ur en 68 var hjá Liverpool - ár-
angur Liverpool 1979 hefði fært
liðinu 98 stig nú. Everton getur
því jafnað, eða bætt besta árang-
urinn til þessa, eftir því hvernig
litið er á málið.
Met eða ekki met- Everton
hefur náð stórkostlegum árangri í
vetur, hefur rutt Liverpool af
stalli sínum og er um þessar
mundir yfirburðalið í ensku
knattspyrnunni. -VS
Kári hlaut silfur í 67,5 kg flokki á
síðasta Evrópumeistaramóti en Vík-
ingur keppir í 125 kg flokki og er búist
við honum í baráttu um 4.-5. sæti.
Ólafur Sigurgeirsson formaður
Kraftlyftingasambands fslands verð-
ur fararstjóri. Hann mun dæma á
mótinu og sitja þing Evrópusam-
bandsins og meðal verkefna hans þar
verður að fá næsta Evrópumeistara-
mót hingað til lands á næsta ári.
1. deildarkeppnin
Þrjár umferðir á 10 dögum
Valur
Afmæliskaffi
Knattspyrnufclagið Valur býður
öllum félagsmönnum og velunnurum
sínum í afmæliskaffi á morgun, laug-
ardag, milli kl. 15 og 17. Félagið var
stofnað þann 11. maí 1911 oger því74
ára á morgun.
Fyrstu þrjár umferðir 1.
deildarkeppninnar í knattspyrnu
verða keyrðar í gegn á tíu dögum.
Fyrsti leikurinn fer fram á mánu-
dagskvöldið en síðasti leikur
þriðju umferðar fer fram tíu
dögum síðar, fímmtudaginn 23.
maí. Þessi lið mætast í þremur
fyrstu umferðunum:
13. mai ■
14. mai ■
14. maí ■
14. maí
16. maí
17. maí -
17. maí -
17. mai -
19. maí -
19. maí -
1. umferð:
- KR-Þróttur
- Vikingur-Valur
- Víðir-FH
- Þór A-lA
- Fram-lBK
2. umferð:
■ lA-Víðir
• FH-KR
■ Valur-Þróttur
IBK-Þór A.
■ Víkingur-Fram
Síðast þegar ÍA og Fram mættust, í
bikarúrslitaleiknum í fyrra, var mikið
fjör og margt sögulegt gerðist - eins
og jöfnunarmark ÍA sem sést á þess-
ari mynd. í kvöld má búast við
skemmtilegum leik þegar félögin
leika I Meistarakeppninni á Kópa-
vogsvelli.
Knattspyrna
Gunnar
meðKR?
Gunnar Gíslason ætti að geta
leikið með KR-ingum á mánu-
Meistarakeppnin
í Kópavogi í kvöld
ÍA og Fram leikaforleik íslandsmótsins
Meistarakeppni KSÍ fer fram í 17. skipti í kvöld
þegar íslands- og bikarmeistarar Akurnesinga
mæta silfurliðinu úr bikarnum, Frömurum, á
Kópavogsvellinum kl. 19.30. Þetta er þriðja árið í
röð sem 1A leikur í Meistarakeppninni en liðið tap-
aði fyrir ÍBV í fyrra og fyrir Víkingi í hittifyrra.
Það er hægt að kalla leikinn í kvöld forleik ís-
landsmótsins sem hefst á mánudaginn. ÍA og Fram
eru í upphafi móts talin tvö af þremur sigurstrang-
legustu liðum 1. deildar, ásamt Val, og leikurinn í
kvöld ætti að geta gefið einhverjar vísbendingar í
þeim málum.
fA hefur misst sterka menn frá því í fyrra en
Framarar hafa hins vegar bætt við sig mannskap
þannig að saman hefur dregið. Leikurinn í kvöld er
sá fyrsti í ár á „alvörugrasi" en liðin koma óvenju vel
undirbúin til leiks að þessu sinni, sérstaklega Fram-
ara vegna gervigrassins.
Fram hefur þrívegis sigrað í Meistarakeppninni,
1971, 1974 og 1981 en ÍA einu sinni, 1978.
Keflvíkingar hafa hins vegar oftast sigrað, fimm
sinnum alls. Dómari í kvöld verður Þorvarður
Björnsson.
-VS
3. umferð:
21. maí - KR-lA
22. mai - Fram-Valur
22. maí - Víðir-lBK
22. mai - Þór A.-Víkingur
23. maí - Þróttur-FH
Síðan kemur rúmlega viku hlé
vegna HM-leiks íslands og Skot-
lands þann 28. maí og síðan hálfs-
mánaðar hlé í kringum HM-
leikinn við Spán þann 12. júní.
Eftir það verður leikið þétt framí
miðjan september, nema hvað
ríflega hálfsmánaðar frí verður í
kringum verslunarmannahelg-
ina. -VS
Tvær umferðir
leiknar í maí
Keppni í 2. deild i knattspyrnu hefst
á fimmtudaginn, uppstigningardag,
meS heilli umferð. Tvær umferðir
verða leiknar í þessum mánuði og þar
mætast þessi lið:
1. umferb:
16. maí - KS-lBV
16. maí - Skallagrímur-KA
16. maí - Njarðvík-Breiðablik
16. maí - Völsungur-Leiftur
16. mai - Fylkir-lBl
2. umferð:
19. maí - (BV-Breiðablik
19. mai - Leiftur-Njarðvík
19. mal- iBl-Völsungur
19. mal- KS-Skallagrímur
29. maí - KA-Fylkir
dagskvöldið þegar þeir mæta
Þrótti í fyrsta leik íslandsmótsins
í knattspyrnu. Gunnar meiddist í
leik fyrir nokkrum vikum og var í
gipsi um tíma en er óðum að ná
sér. Þá er ekki útilokað að Sæ-
björn Guðmundsson geti leikið en
hann hefur verið að komast í gang
að undanförnu eftir meiðsli.
Guðmundur Magnússon ung-
lingalandsliðsmaður er hins veg-
ar enn á hækjum eftir að hafa
meiðst í leik með unglingalands-
liðinu gegn drengjalandsliðinu
fyrri skömmu.
-VS
Gunnar Glslason - óðum að ná sér.
Föstudagur 10. maí 1985
Knattspyrna
ÍA vann 5-0
í A vann Hauka 5-0 í Hafn-
arfirði og Keflavík vann
Breiðablik 3-1 í Kópavogi í
síðustu umferð Litlu bikar-
keppninnar um síðustu helgi.
Lokastaðan í keppninni varð
því þessi:
|A................4 4 0 0 12-3 8
FH.................4 2 11 8-7 5
IBK................4 2 0 2 7-6 4
Breiðablik.........4 1 1 2 13-9 3
Haukar...........4 0 0 4 4-19 0
Knattspyrna
Frakkar mæta
Uruguay
Keppni milli Evrópu- og Suður-
Ameríkumeistara landsliða í knatt-
spyrnu fer í fyrsta skipti fram á þessu
ári. Það eru Frakkland og Uruguay
sem ríða á vaðið og verður leikið í
Frakklandi þann 21. ágúst. Stefnt er
að því að þetta verði fastur viðburður
á fjögurra ára fresti og leikið í
heimsálfunum til skiptis.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15