Þjóðviljinn - 10.05.1985, Qupperneq 16
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663.
Föstudagur, 10. maí 1985 104. tölublað 50. örgangur
DJÚÐVIUINN
Launamannasamtök
Kennarar ganga úr BSRB
Valgeir Gestsson Kennarasambandinu: Greinilegur meirihluti, lýðrœðisleg ákvörðun. Munum leita samstarfs og
samstöðu með öðrum samtökum launafólks. Haraldur Steinþórsson BSRB: Nýjar aðstœður. Örlagaríktfyrir
baráttugetuna. Andstœðingarnir aldrei öflugri. Þarfaðfylkja öllum saman gegn sérhyggju ogfrjálshyggju
etta veikir okkur auðvitað,
sagði Haraldur Steinþórsson
varaformaður BSRB að tölum
birtum í gærkvöldi, „en er von-
andi ekkert rothögg. Eg er ósátt-
ur við að slík burðarstoð, sem
Kennarasambandið hefur verið
innan BSRB, skuli brcsta. Ég er
því miður smeykur um að þetta
reynist örlagaríkt fyrir baráttu-
getu launafólks í heild, að þetta
valdi auknum vanda fyrir alla
verkalýðshreyfinguna. En ótví-
ræður meirihluti kennara hefur
afgreitt þetta mál og við í BSRB
höfum lagt á það áherslu að vilji
félagsmanna ráði í hverju máli í
allsherjaratkvæðagreiðslu“.
Þing BSRB hefst eftir fjórar
vikur og sagði Haraldur að það
hlyti að snúast um hvernig haga
ætti kjarabaráttu við þesar nýju
aðstæður.
„Sameinað afl atvinnurekenda
og stjórnvalda hefur aldrei veri
öflugra en að undanförnu, svo að
það verður að leitast við að fylkja
saman öllum þeim sem vilja
vinna gegn styrk vaxandi sér-
hyggju og svokallaðrar frjáls-
hyggju“, sagði varaformaður
BSRB að lokum.
„Þessi úrslit koma mér ekki á
óvart“, sagði Valgeir Gestsson
formaður Kennarasambands ís-
lands í gærkveldi. „Þó þetta séu
ekki endanlegar tölur þá er þetta
greinilegur meirihluti fyrir úr-
sögn, skýr lína á grundvelli lýð-
ræðislegrar ákvörðunar".
„Jú ég veit að þetta kemur til
með að hafa töluverð áhrif á
BSRB en ég vona að samtökin
beri gæfu til að skipuleggja sitt
starf samkvæmt því“.
Valgeir lagði áherslu á að ríkis-
starfsmenn hefðu fyrir verið
skipulagðir í tvennum sam-
tökum. Það hefði verið ljóst í ára-
tug að hverju stefndi. Úrsögn
kennara væri afleiðing af þessum
klofningi.
, „Það sem er náttúrlega stærsta
máli fyrir Kennarasambandið er
að fá samningsrétt og við horfum
til þess að það takist einnig í
framtíðinni að koma á einu stétt-
arfélagi kennara".
Valgeir kvað úrsögnina ekki
taka gildi fyrr en um áramótin og
fram að þeim tíma myndi Kenn-
arasambandið vinna innan BSRB
einsog hingað til. „Við höfum
engan áhuga á að einangra okkur
úti í horni og í launabaráttunni í
ár munum við hér eftir sem hing-
að til vera reiðubúnir til að vinna
með öðrum samtökum launa-
fólks og leita samstöðu og sam-
starfs“, sagði Valgeir Gestsson
formaður Kennarasambands ís-
lands að lokum.
-óg/m
NT
Jón og
Helgi neila
Ritstjórastaðan
virðist ekki kappsmál
Blaðstjórn NT leitar nú að rit-
stjóra í stað Magnúsar Olafs-
sonar sem sagði upp fyrir nokkru
einsog flestir vita. DV hafði í gær
eftir öruggum heimildum að búið
væri að ráð tvo menn til starfans,
þá Helga Pétursson útvarpsmann
og Jón Kristjánsson Framsóknar-
þingmann að austan, og átti sá
síðarnefndi að sjá um stjórnmála-
skrif. Bæði ritstjóraefnin báru
fréttina til baka í samtölum við
Þjóðviljann í gær.
„Hef aldrei heyrt á þetta
rninnst" sagði Jón Kristjánsson,
„þetta hlýtur að vera mikill mis-
skilningur eða tilbúningur". Jón
sagði að ekkert hefði verið
minnst á þetta við sig, „enda hef
ég ekki áhuga á þessu starfi“. í
áðurnefndri frétt sagði að Jón
hefði orðið ofaná í atkvæða-
greiðslu í þingflokki Framsóknar
en helsti keppinauturinn, Ingvar
Gíslason, beðið lægri hlut.
„Nei, kannast ekki við það“
sagði Helgi Pétursson spurður
hvort hann yrði ritstjóri á NT.
„Það er talað við marga, og að ég
sé í einhverjum hópi, sem verið
er að spyrja, það getur vel verið. “
-m/ÁI
„Dýrin mín stór og smá“ gæti hún Brynhildur sagt þar sem hún hallar sér upp að einu af stærri gerðinni. Brynhildur Þorgeirsdóttir myndlistarmaður var
ein þeirra listamanna sem hlutu 12 mánaða starfslaun við úthlutun í fyrradag. Hún er nú að vinna að uppsetningu sýningar íslenskra glerlistarmanna á
Kjarvalsstöðum sem opnuð veröur á morgun. Mynd: Valdís.
SVR - útboð
Volvo í 5. sæti
Tilboð Í20 nýja vagna opnað. Scanía með
lœgsta tilboðið. Volvo aðeins Í5. sœti.
Sem kunnugt er hefur Volvo
einokað Strætisvagna Reykja-
víkur um langt árabil. Volvo-
vagnar hafa verið teknir þegar
margir vagnar hafa verið keyptir
í einu og síðan hefur Volvo líka
haft alla endurnýjun. Nú þessa
dagana er verið að taka einn
Volvo-vagn í notkun og kostar
hann á götuna 4,6 miljónir króna.
Aftur á móti lét Innkaupastofnun
Reykjavíkur gera tilboð í 20
vagna nýlega og kom þá í Ijós að
fjögur fyrirtæki buðu vagna á
lægra verði en Volvo.
Lægsta tilboðið kom frá Scanía
Vabis, uppá 4,0 miljónir króna
fullbúinn vagn. Mercedes Benz
bauð 4,2 miljónir, danskt fyrir-
tæki bauð vagna fyrir 4,3 miljón-
ir, Leyland var með tæpar 4,4
miljónir en Vplvo með rúmar 4,4
miljónir króna. Hér er um að
ræða fullsmíðaða vagna, yfir-
byggingar Bflasmiðjunnar eru
orðnar það dýrar að vart kemur
til greina að flytja vagnana inn án
yfirbygginga.
Nú bíða menn eftir því hvað
Sjálfstæðismenn í borgarstjórn
gera. Menn muna íkarus-málið
fræga þegar margfalt ódýrari
vögnum frá íkarus var hafnað
fyrir Volvo. Hér gæti því nýtt
lkarus-mál verið í uppsiglingu.
-S.dór.
Utanríkisverslun
Fálkasala ríkisins
Járnblendi-Jón villflytja útfálka, stöðvaþarmeð smygl ogefla
rannsóknir. Ævarfuglafrœðingur:Ágœthugmynd, en ýmisþrándur í
götu.
í staðinn fyrir að standa í sí-
felldum, eltingarleik við fálka-
þjófa eigum við að kippa undan
þeim fótunum með því að ryðjast
sjálfir inná fálkamarkaðinn.
Þetta segir Jón Sigurðsson for-
stjóri í Morgunblaðsgrein í gær
og leggur til að hjálpar- og björg-
unarsveitir verði launaðar á vorin
til að taka egg úr hreiðrum, úr
eggjunum klekjast svo fálkaung-
ar sem yrðu þjálfaðir og seldir
auðmönnum erlendis. Hagnaður
yrði svo nýttur til rannsókna á
fálkastofninum.
„Hugmyndin ein og sér er
ágæt“ sagði Ævar Petersen fugla-
fræðingur við Þjóðviljann í gær,
en taldi þó að á væru ýmsir
skeinuhættir annmarkar. Fálka-
viðskipti væru illa séð í grann-
löndum okkar sem eru flestöll
skuldbundin af Washington-
samningnum sem bannar meðal
annars sölu villtra fálka. Þetta
mundi torvelda fálkaviðskiptin
og ekki síður hitt að náttúru-
verndarsamtök erlendis gætu
snúist öndverð með ýmisskonar
afleiðingum fyrir íslendinga og
íslenskar vörur á erlendri grund.
„Ég tek ekki afstöðu með eða á
móti“, sagði Ævar. „Hugmyndin
einangruð er að mörgu leyti skyn-
samleg, en fálkasala gæti skemmt
fyrir okkur á öðrum sviðum.
Þetta þyrfti að kanna mjög vel
áður en af stað væri farið".
-m