Þjóðviljinn - 08.08.1985, Síða 1
Skák
Teflt í Moskvu
Karpoff og Kasparoff hefja einvígið
3. september
Tass-fréttastofan skýrði frá því
í gær að einvígi þeirra Anatól
Karpoffs og Garrí Kasparoffs
hefjist í Moskvu þriðja septemb-
er.
Nokkur áhöld höfðu verið um
einvígisstaðinn og vildi áskorand-
inn Kasparoff tefla utan höfuð-
borgarinnar eða utan Sovétríkj-
anna, og hafði nefnt Leníngrad
heppilegan stað. Febrúareinvígi
þeirra í Moskvu var hleypt upp af
FIDE-forsetanum Campomanes
eftir 48 skákir og var staðan þá
5-3 Karpoff í vil.
Nú verður tala tefldra skáka
takmörkuð við 24. Teflt verður í
Tsjækovskí-tónlistarhöllinni sem
áður hefur rúmað nokkrar frægar
viðureignir á hvítu og svörtu
reitunum, meðal annars einvígi
áskorandans Bronsteins við
heimsmeitarann Botvinnik 1951.
Botvinnik varði þá titilinn á
jöfnum vinningum.
-m/rauter
Hún Mariko Ragnarsdóttir, japönsk-íslensk stúlka, búsett í Réykjavík, lét sig ekki vanta á fund Samtaka herstöðvaand-
stæðinga við hlið bandarísku herstöðvarinnar í Keflavík sl. þriðjudagskvöld þrátt fyrir hvassa NA-átt og hitastig við
frostmark. Minnst var fórnarlamba kjarnorkuárása Bandaríkjahers á japönsku borgirnar Hirosima og Nagasaki 1945.
gósm. Ari. gjá bls2.
Framhaldsskólarnir
kennaraskortur
Rolf Johansen: Vissi ekki að ég œtti eftirað
lifa það að vera tekinnfyrir ólöglegar veiðará
sportbát
Víða
Víða úti á landi gengur mjög
erfiðlega að ráða hæfa kenn-
ara til kennslu í framhalds-
skólum. Erfiðast virðist að fá
kennara í raungreinar og í tölvu-
fræði. Algengt er að ráðnir séu
réttindalausir kennarar til starfa
og til að mynda í Kefiavík er
helmingur kennaraliðsins rétt-
indalaus.
Samkvæmt upplýsingum úr
menntamálaráðuneytinu vantar
skólastjóra og nokkra kennara
við Iðnskólann á ísafirði. Við
Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki
vantar kennara í eðlisfræði.
stærðfræði og tölvufræði. Á
Laugarvatni vantar kenhara í
stærfræði og ensku. í
Vestmannaeyjum hefur enn ekki
tekist að ráða kennara í þýsku,
stærðfræði og féiagsfræði. Sumir
segja að ástandið hafi ekki verið
jafn slæmt í' fjölda ára. gg
etta var svo mikið grín að ég
trúi því varla, sagði Rolf Jo-
hanscn heiidsali í samtali við
Þjóðviljann en hann var ásamt fé-
lögum sínum staðinn að ólögleg-
um veiðum í Faxaflóa fyrir
nokkru síðan.
Þeir félagar fóru á sportbát á
flóann um helgi og uggðu ekki að
sér fyrr en flugvél Landhelgis-
gæslunnar flaug mjög lágt yfir
bátinn.
Ég hafði heyrt talað um þetta
helgarbann en hélt það næði ekki
til skemmtibáta þar sem menn
eru að þvælast með eina stöng
eða svo. Ég hafði samband við
gæsluna þegar við komum í land
og þá kom í ljós að þeir höfðu
tekið mynd af bátnum sem og
öðrum sem voru að ólöglegum
veiðum þessa helgina, en viður-
lögin eru víst engin.
Ég vissi ekki að ég ætti eftir að
lifa það að vera tekinn fyrir ólög-
legar veiðar á sportbát hérna í
flóanum. Annars hefur móðir
náttúra séð fyrir því að maður
hefur ekki komist á sjó í viku fyrir
roki. Það er yfirleitt besta veðrið
um helgar“, sagði Rolf Johansen.
-•g
UODVIUINN
ATVINNUUF
MENNING
HEIMURINN
ágúst
1985
fimmtu-
dagur
179. tölublað 50. árgangur
Fuglategund sem talið er að tjóni í skógræktarstöð ríkisins á að hann hafi gjöreyðilagt sáningu
heiti Krossnefur olli miklu Hallormsstað í sumar. Má heita á lerki, greni og furu í ár. Kross-
nefurinn komst inn í gróðurhúsið
á Hallormsstað og át innan úr
nær öllum fræjum sem sáð hafði
verið um vorið eða vel á annað
hundrað þúsund fræjum.
Fuglinn brýtur skelina utan af
fræjunum og étur síðan fræhvít-
una. Þetta mun vera aðalfæða
krossnefs.
„Það kom ekki upp nema
planta og planta á stangli eftir að
fuglarnir höfðu etið nægju sína.
Við sáðum rúmlega 200 þúsund
fræjum, aðallega lerki, en við
munum ekki uppskera nema
hluta af því, slík var græðgin.
Meirihluti þeirra fræja sem skilin
voru eftir var ónýtur, fuglinn hef-
ur flokkað þetta nákvæmlega og
vitað upp á hár hvað væri boðlegt
og hvað ekki. Tjónið hefur ekki
verið metið í peningum enn sem
komið er, en það er ljóst að það
er verulegt. Ekkert þessu líkt hef-
ur komið fyrir hér áður“, sagði
Erla Vilhjálmsdóttir garðyrkju-
maður á Hallormsstað í samtali
við Þjóðviljann vegna þess.
Ævar Petersen fuglafræðingur
sagði í samtali við blaðið, að
krossnefur væri flökkufugl og
tæki sig stundum upp í stórum
hópum og yfirgæfi sín venjulegu
heimkynni. „Þetta er spörfugl,
lítið eitt minni en skógarþröstur.
Það hefur nokkuð orðið vart við
krossnef í sumar og hann hefur
einnig sést þó nokkuð í Færeyjum
á sama tíma og hans varð vart á
íslandi. Síðast er talið að
krossnefur hafi heimsótt ísland
fyrir um 10 árum en í mestum
mæli var hann hér árið 1953. Þá
sást hann hér í stórum hópum.
Krossnefur á heimkynni sín víða í
Evrópu, en þessir fuglar sem
heiðra okkur með nærveru sinni
held ég að komi frá Rússlandi og
Fi'nnlandi. Þetta er mjög sér-
kennilegur fugl“, sagði Ævar.
gg
Helgarbannið
Rolf
tekinn í landhelgi
Hallormsstaður
Krossnefur veldur stórtjóni
Flökkufugl austan úrRússía herjar á lerkifrœ á
Hallormsstað. Sáningin í ár meira og minnafyrir bí