Þjóðviljinn - 08.08.1985, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 08.08.1985, Blaðsíða 3
FRETflR Trilluveiði Guðlaugur Tryggvi Karlsson fararstjóri Fáksmanna á Evrópumeistaramóti ís- lenskra hesta situr hér á „Ljónslöpp" frá Kirkjubæ á Rangárvöllum. Óvíst með framhald veiða Trillusjómenn komnir velfram úr árskvótanum. Ovissa um framhaldið íráðuneytinu. Fundarhöld og undirbúningur aðstofnun heildarsamtaka trillusjómanna um nœstu helgi. Mikil óvissa ríkir meðal trillu- sjómanna um hvað tckur við eftir næstu mánaðamót, en trill- urnar eru komnar töluvert yfir þann aflakvóta sem þeim var út- hlutaö fyrir allt þetta ár. Heildarþorskkvóti báta undir 10 lestum er um 10 þús. lestir sem skipt var niður á árshluta og áttu um 1400 lestir að vera til skipt- anna frá septemberbyrjun til árs- loka. í júnílok var þorskafli trillu- bátanna liins vegar kominn uppí rúmar 11.500 lestir og í júlí var dágóð veiði. Sjávarútvegsráðherra hefur heimild samkvæmt kvótareglu- gerðinni að úthluta 1000 tonnum til viðbótar lianda trillum fram til ársloka. Verða trillueigendur að óska eftir heimild til áframhald- andi veiða til ráðuneytisins fyrir miðjan þennan mánuð. Óvíst er enn með öllu hvernig staðið verð- ur að framhaldi veiðanna en Halldór Ásgrímsson er á förum til Sovétríkjanna og kemur ekki heim fyrr en um rniðjan mánuð- inn. Töluvert skiptar skoðanir eru meðal trillusjómanna hvernig best sé staðið að þessum veiðum en menn eru sammála um að nú- verandi kerfi sé gagnslaust. Um næstu helgi hefur verið boðaður samráðsfundur með trillusjó- mönnum alls staðar af landinu þar sem þessi mál verða rædd og undirbúin stofnun hagsmuna- samtaka trillusjómanna en þeir hafa til þessa ekki starfað saman í neinurn skipulögðum samtökum. -*g- Svíþjóð íslenskt hestamót Aðeins íslenskir hestar á Evrópumóti í Svíþjóð 15.-18. ágúst. Guðlaugur Tryggvi: andinnþar verður vinátta, Evrópumeistaramót íslenskra hesta vcrður haldið dagana 15.- 18. ágúst í Tánga í Svíþjóð, sem er nálægt Gautaborg. Það, sem er sérstakt við mótið, er að íslcnski hesturinn verður einráður. Þegar eru 7 hestar farnir sjóleiðis á mótið, en hinir hestarnir eru bú- settir víðsvegar um Evrópu. Gall- inn við þátttöku á slíkum mótum erlendis er að gæðingarnir okkar eiga ekki afturkvæmt heim til feðra sinna. Guðlaugur Tryggvi Karlsson fer sem fararstjóri Fáksmanna og kom og spjallaði við Þjóðvilja- fólk um þennan atburð. „Þetta verður meiri háttar mót, þarna verður samankomið fólk frá 14 þjóðríkjum, sem hefur eitt sameiginlegt áhugamál, að dýrka íslenska hestinn. Þetta er gífurleg landkynning því þarna verður fjölmiðlafólk frá öllum þessum 14 þjóðríkjum sem munu fylgjast með af áhuga, hvað er að gerast í málum ís- lenska hestsins. Það verður tilkomumikil sjón á opnuninni að sjá íslensku gæð- ingana marsera um hinn erlenda völl, og auðvitað halda knaparnir á fánum og er hinn íslenski með þeim fremstu. Það fer hrollur um mann. Hinir ýmsu aðilar eins og t.d. ullariðnaðurinn okkar gæti svo sannarlega makað krókinn á mótinu. Mér er tjáð að tískan meðal hestamanna á íslenska he- stinum sé íslenska Iopapeysan. ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3 Sólarparadísin við Svartahafið „Elenite holiday village" er nýr sumardvalarstaður í sólarparadísinni við Svartahafið. Gestir velja á milli dvalar í nýtísku hótelherbergi eða í nýjum og stórglæsi- legum studio íbúðum steinsnar frá ströndinni. Fjöldi úrvals skemmti- og matstaða er í boði, fullkomin íþróttaaðstaða og yndislegt veðurfar. Fararstjóri í þessum ferðum er Guðbrandur Gíslason. Innifalið í fargjaldi er: flug, gisting, fullt fæði, leiðsögn og ferðir til og frá flugvellinum Næsta brottför 10. ágúst. Nánari upplýsingar hjá okkur á skrifstofunni FERDAZÍlZVAL TRAVEL AGENCY Lindargata 14 sími: 14480

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.