Þjóðviljinn - 08.08.1985, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 08.08.1985, Blaðsíða 16
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663. MOÐVIUINN Fimmtudagur &. ágúst 1985 179. tölublað 50. árgangur Áburðarverksmiðjan Verkfall boðað um helgina Guðjón Jónsson: Iðnaðarmenn þar hafa dregist 18% aftur úr ílaunum. Viljum knýjafram leiðréttingu. Höfum kynnt VSÍ okkar kröfur fyrir löngu. h| rjú félög iðnaðarmanna hafa r nú boðað verkfall gegn Áburðarverksmiðjunni í Gufu- nesi þann 10. ágúst næstkomandi. Félög þessi eru Trésmíðafélag Reykjavíkur, Félag íslenskra raf- virkja og Félag járniðnaðar- f samtali við Þjóðviljann sagði Guðjón Jónsson, formaður Fé- lags járniðnaðarmanna, að með þessum aðgerðum hygðust menn knýja fram leiðréttingu á kjörum sínum, en að mati iðnaðarmanna hafa þeir dregist mjög aftur úr í launum miðað við almennan markað. „Það var með samykkti beggja aðila, að kjararannsóknárnefnd var fyrir 3 mánuðum fengin til að gera úttekt á því hvort við hefð- um dregist aftur úr. í niðurstöð- um hennar kemur fram að miðað við maímánuð 1981 vantar okkur ein 18% upp á til þess að fá sambærilegar hækkanir og aðrir á almennum vinnumarkaði“, sagði Guðjón, við höfum kynnt kröfur ökkar á viðræðufundum með Kristjáni Þorbergssyni fulltrúa V.S.I. og framkvæmdastjóra Áburðarverksmiðjunnar síðan í byrjun maí en ekkert gengið." I fréttatilkynningu frá samn- ingaráði V.S.Í. er deilt á það að þið haflð ekki kynnt kröfur ykkar áður en þið boðið til verkfalls. Hvað viltu segja um það? „Það er fjarri lagi að við höfum ekki kynnt þeim málið, þegar í desember hófst þessi umræða, þegar við samþykktum ekki samningana þá. Þeir hafa vitað af þessu í marga mánuði, og það var með samþykki beggja aðila .að kjararannsóknarnefnd gerði þessa könnun.“ Þjóðviljinn hafði samband við Hákon Björnsson framkvæmda- stjóra Áburðarverksmiðjunnar og sagði hann aðspurður að hann teldi að iðnaðarmenn hefðu ekki dregist aftur úr öðrum í launum, og vitnaði í umræddar niðurstöð- ur kjararannsóknarnefndar máli sínu til stuðnings. Einhver mis- munur á túlkun virðist vera á ferðinni samkvæmt þessu. Um 25-30 manns úr hópi iðnaðar- manna hafa starfað hjá Áburðar- verksmiðjunni við viðhald og við- gerðir á vélum og tækjabúnaði og er viðbúið að ef vélar bili þá verði ekkert gert við þær á næstunni ef til verkfalls kemur. Fundur milli deiluaðila verður hjá ríkissátta- semjara fyrir hádegi í dag. -vd. Vegagerð Múlahlíð var vel gróin bráð þó að sáð verði birkikjarri og ýmsu skrúðgresi. Nú er þar risastórt sár eftir Vegagerðina. Hér sést ýta ryðja burt kjarrinu sem ekki mun koma aftur í í sárin. Ljósm.: GFr. Þetta stingur í augun Já, ég viðurkenni að þetta stingur í augun eins og þetta er núna. Það er verið að hækka veg- inn þarna vegna snjóþyngsla og ekki gott að ráða við þetta, sagði Bragi Thoroddsen yfirmaður Vegagerðarinnar í A-Barða- strandarsýslu, þegar Þjóðviljinn grennslaðist fyrir um vegafram- kvæmdir í Þorskafirði en eins og sést á myndinni eru aðfarirnar heldur grófar. „Þetta eru eintómar klappir og klettar, það verður að sprengja mikið þarna og þetta er nú ekki ýkja mikið kjarr sem fer. En það er alltaf ákveðin fjárveiting sem veitt er í að græða upp opin sár eftir vegaframkvæmdir og hún er þegar komin. Sáningarflokkar fara um annað hvert ár og ég vona að þetta svæði verði jafnfal- legt eftir sem áður, þegar það hefur verið grætt upp að fullu.“ -vd. Þorskkvótinn 25 bátar á mörkunum Veiðieftirlit sjávarútvegsráðu- neytisins hefur sent nokkrum bátaeigendum viðvörun þar sem minnt er á að aflakvóti viðkom- andi báta er að verða uppurinn. Nú þegar hafa nokkrir bátar orðið að hætta veiðum þar sem kvóti þeirra er fylltur. Það eru eingöngu bátar sem völdu sökn- arkvóta og hafa ekki heimild til að kaupa sér viðbótarkvóta. „Það eru um 25 bátar sem hafa fengið senda viðvörun frá okkur að undanförnu. Þeir eru allir komnir á mörkin", sagði Björn Jónsson hjá veiðieftirlitinu í sam- tali í gær. Björn sagði að flestir þessara báta fengju viðbótarkvóta ann- aðhvort millifærðan frá sömu út- gerð eða aðkeyptan. „Við viljum að menn gangi frá öllum pappír- um strax og kvótinn er fylltur en bíði ekki með þetta þar til í árs- lok, þannig að menn viti hverju sinni hvernig staðan er.“ -lg- Lambakjötið Nóg til af kjöti Jóhann Steinsson hjá SÍS: Það geta allir fengið kjöt. Ingi Tryggvason: Það grœðir enginn á geymslugjaldinu. Það er hugsanlegt að einhverjir ódýrir gæðaflokkar séu að verða uppseldir, en annars er nóg kjöt til í landinu og það geta allir fengið sem um það biðja. Staðhæfingar um að við liggjum á kjötbirgðum vegna geymslu- gjalds eru algjörlega úr lausu lofti gripnar, því fyrr sem við losnum við þctta, því betra, sagði Jóhann Steinsson hjá búvörudeild SÍS í samtali við Þjóð.viljann vegna fregna um að Sambandið liggi á kjötbirgðum vcgna hagnaðar af gcymslugjaldi. Frétt Þjóðviljans um kvartanir vegna kjötskorts er tekin úr blað- inu Austuríand. Þar eru nefnd þrjú dæmi þar sem fyrirtækjum tókst ekki að fá lamba- og kinda- kjöt í júlí. Eitt dæmanna er stór- verslun í eigu SS í Reykjavík, en þegar blaðið bar þetta undir Jó- hannes Jónsson hjá SS sagði hann þetta vera út í hött. Jóhannes sagðist hafa hringt í allar verslan- ir SS í Reykjavík vegna þessa og fengið þau svör að á þessu ári hefði það aldrei borið við að kindakjöt hafi vantað í verslan- irnar. „Ef einhver telur sig græða á því.að liggja á kjötbirgðum vegna geymslugjaldsins þá er það mis- tök. Það borgar sig bara ekki að gera þetta, til þess er gjaldið of lágt. Auk þess er kostnaður við þessa aðferð töluverður. Mönnum er það frekar keppikefli að losna við þetta sem fyrst“, sagði Ingi Tryggvason hjá Bún- aðarfélagi íslands í samtali við Þjóðviljann. Töluverðar birgðir eru nú til af lambakjöti í landinu og er talið að þegar sláturtíð hefst í haust verði til um eins til tveggja mánaða birgðir frá í fyrra. -gg Sumarferð ABR Maríuhöfn heimsótt í sumarferð ABR þann 17. ág- úst næstkomandi verður fyrsti áningarstaðurinn Maríuhöfn á Hvalfjarðarströnd. Eins og menn minnast e.t.v. fór þar fram forn- leifauppgröftur sumarið 1983. Þá kom fram að sú mikla verslunar- höfn sem í annálum er sögð hafa verið í Hvalfirði hefur verið í Maríuhöfn og nágrenni hennar. ” í sumarferð ABR verður sér- fróður maður á staðnum og mun ítann upplýsa fólk um sögu og staðháttu. í jólablað Þjóðviljans 1975 skrifaði prófessor Björn Þorsteinsson grein um hinn forna kaupstað í Hvalfirði þar sem hann segir að „Hvalfjörður virð- ist hafa verið aðalkaupstaður landsins frá því um 1380 og fram um svarta dauða". En við fáum sjálfsagt að heyra meira um Maríuhöfn og sögu hennar í sumarferðinni þann 17. ágúst. IH

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.