Þjóðviljinn - 28.11.1985, Síða 2
FRÉTTIR
Undirskriftasöfnun hefst á morgun. Hingað og ekki lengra. Nú
stöndum við saman. Atakanleg dœmi um ástandið tíunduð
Eignin varð
að stórskuld
r
Amorgun föstudag fer af stað
undirskriftasöfnun sem ungt
fólk stendur að, sem ýmist er búið
eða er við það að missa húsnæði
sitt vegna svikinna loforða
stjórnvalda, okurvaxtastefnunn-
ar og ránskjaravísitölunnar. í
texta undirskriftaskjalsins er
skorað á ríkisstjórnina að cfna
gefin loforð í húsnæðismálum og
bæta það tjón sem vanefndir
stjórnvalda hafa valdið íbúða-
kaupendum og húsnæðisbyggj -
endum.
Eins og Þjóðviljinn skýrði frá
um sl. helgi tók hópur ungs fólks
sig til á föstudag og dreifði bæk-
lingi fyrir utan helstu stórmark-
aði í Reykjavík undir yfirskrift-
inni hingað og ekki lengra
STOPP.
í þessum bæklingi er að finna
tvö átakanleg dæmi um hvernig
komið er fyrir fjölda fólks sem er
að missa eigur sínar þessa dag-
ana.
Við birtum hér að neðan fyrra
dæmið sem er lýsandi fyrir það
sem er að gerast.
-Jg
íbúð árið 1982. tbúðin kostaði 1
milljón og áttu þau 400 þúsund til
að borga við samning. Þar sem
þau gátu ekki staðgreitt íbúðina
(venjulegt fólk) fjármögnuðu
þau mismuninn með lánum
(skammtíma og langtíma).
Skammtímalánin gerðust erfið,
þó voru þau bæði í fullri vinnu,
þungar mánaðargreiðslur og
hækkuöu ört. Fleiri skammtíma-
lán til að borga hin fyrri. 1983 eru
verðbætur teknar af launum.
Laun lækka, lán hækka. Meiri
vinna, meiri skattar.
Snemma árs 1985 blasir gjald-
þrotið við. Þá er að vísu komin
hin svokallaða ráðgjafarþjónusta
hjá húsnæðisstofnun og var hægt
að fá lán allt að 150 þúsund. En
þar sem skuldir voru orðnar svo
miklar á íbúðinni þá var ekki til
veð. Og þetta átti að hjálpa þeim
sem verst voru settir!
Fljónin flýta sér að selja og
kaupa 2ja herb. íbúð (þau áttu
3ja herb. fyrir). Þá sjá þau að þau
höfðu verið of sein, svo þau selja
2ja herb. íbúðina (fá auðvitað
ekki staðgreitt) en reyna að
borga skuldir eins hratt og hægt
er því skuldin hækkar mánaðar-
lega en ekki útborgunin. Það sem
eftir stendur þegar upp er staðið
er 400 þúsund króna skuld, sem
er lífeyrissjóðslán sem er nú á
veðrétti hjá foreldrum konunnar.
Þar verður það næstu árin og
smánagar upp þeirra eign.
Svona fór um sjóferð þá.
Hjón með tvö börn keyptu
Leiðrétting
í frétt á forsíðu Þjóðviljans
þann 22. þessa mánaðar er frá því
greint að Ari Traustason hyggist
taka þátt í friðargöngu í Mið-
Ameríku. Það er ekki rétt, það er
Ari Tryggvason sem ætlar að
ganga í þágu friðar í þessum
heimshluta. Blaðið biðst hér með
velvirðingar á þessum mistökum.
í Norræna húsinu hefur nú verið hleypt af stokkunum sýningu á list Sama, handíðum og listiðnaði. Þetta er
farandsýning og eru munir á henni allir nýunnir, en samkvæmt gamalli hefð
Húsnæðissvikin
Fólk er að gefast upp
Hver hreppir efsta sætið á
áfengislistanum í Firðinum?
Eyrarbakki
Dvalarheim-
ili
fyrir aldraða
Stefnt að opnun á miðju
nœsta ári
Stofnuð hafa verið á Eyrar-
bakka Samtök áhugamanna um
dvalarhcimili. Fimmtíu manns
hafa gerst stofnfélagar og er ungt
fólk þar áberandi.
Markmið samtakanna er að
koma á fót dvalarheimili fyrir
aldraða á Eyrarbakka. Hug-
myndin er að leigja Sólvelli -
fýrrverandi læknisbústað - af
sveitarfélaginu, fyrir þessa starf-
semi. Verður þá húsið nokkuð
endurbætt bæði hið ytra og innra.
Endurbæturnar og væntanlegur
rekstur heimilisins verða í hönd-
um félagsins.
í húsinu verða 8 vistherbergi, 3
þeirra fyrir tvo menn. Tala vist-
manna verður 8-11. Ætlunin er
að afla fjár til framkvæmdanna
með frjálsum framlögum fyrir-
tækja, félaga og einstaklinga
innan sveitarfélagsins og utan.
-mhg
Dýrtíðin
Ostur
200%
150%
bitapakkaður 26%
100%
Hækkun:
129.6%
50%
Frá því ríkisstjórnin kom til valda í maí 1983 hefur kíló af 26% sterkum
osti hækkað um 129.6%. Þá kostaði osturinn 135.25 kr. en kostar í
dag 310.60 kr.
Á sama tíma hafa meðallaun iðnaðarmanna samkvæmt
upplýsingum Kjararannsóknarnefndar hækkað um 80.4%
(svarta súlan). Þjóðviljinn mun á næstu dögum taka
fleiri vöruflokka til samanburðar.
Alþýðubandalagið - Reykjavík
Kjömefnd tekin til starfa
Nýjarforsvalsreglurfyrir framboðslista Alþýðubandalagsins í
borgarstjórnarkosningunum
í næsta mánuði, des., verður hugmyndir og hafa þannig áhrif á
haldinn almennur félagsfundur mótun endanlegrar borgarmála-
þar sem félagsmönnum gefst stefnuskrár.
kostur á að ræða og meta þessar -mhg
Keflavík
Nýtt skurðstofurými
Sex sérfrœðingar starfa nú við sjúkrahúsið
Asíðasta fundi Alþýðubanda-
lagsins í Reykjavík var skipuð
nefnd, sem ætlað er það hlutverk
að tilnefna menn í forval fyrir
borgarstj órnarkosningarnar.
Nefndina skipa: Arnmundur
Backmann, Arnór Pétursson,
Guðbjörg Sigurðardóttir, Lena
M. Rist, Margrét Pála Ólafs-
dóttir, Þorbjörn Guðmundsson
og Steinar Harðarson og er hann
formaður ncfndarinnar.
Nefndin stefnir að því að skila
15 manna tilnefningu sinni, (skv.
nýju forvalsreglunum), það
snemma, að unnt verði að birta
nöfnin í helgarblaði Þjóðviljans
14. des. n.k. Eftir það geta 5 fé-
lagar, - bundið við þá tölu, - til-
nefnt einstakling til forvals, sé
viðkomandi því samþykkur.
Frestur til tilnefningar stendur til
áramóta. Forvalið fer nú fram í
einni umferð í stað tveggja áður.
Sjálft forvalskjörið fer svo fram
um mánaðamótin janúar-
febrúar. Kjörnefnd óskar þess,
að þeir sem vilja koma með til-
nefningar, sendi þær annað
tveggja til skrifstofunnar í Mið-
garði (hús Ab. að Hverfisgötu
105) eða til kjörnefndarmanna.
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN
Isumar hafa staðið yfir
breytingar á skurðstofurými
Sjúkrahúss Keflavíkurlæknishér-
aðs. Hefur skurðstofan nú form-
lega verið tekin í notkun en reglu-
bundin starfsemi hefur þó raunar
farið þar fram síðan um miðjan
september.
Sjúkrahús læknishéraðsins var
formlega vígt fyrir 30 árum. Var
þá miðað við að einn sjúkiahúss-
læknir væri í starfi. Áridt«Sl var
einni álmu aukið við a/mennt
sjúkrarými og reist ný og
fullkomin fæðingardeild, sem
starfað hefur síðan. Nú starfa við
sjúkrahúsið 6 sérfræðingar, ýmist
að hluta eða í fullu starfi. Áður
var skurðstofan í einu herbergi og
aðstaða öll úr takt við tímann.
Nýja skurðstofan er vel búin ný-
tísku tækjum, björt og rúmgóð.
Sjúkrahúsinu hafa borist veg-
legar gjafir, bæði frá einstak-
lingum, félagasamtökum og
fyrirtækjum. Nemur andvirði
þeirra kr. 6.000.000,- að með-
töldum aðflutningsgjöldum og
söluskatti, sem hafa verið felld
niður. Verður þessi rausn seint
fullþökkuð. Nú er sú þörfin brýn-
ust að bæta hjúkrunaraðstöðu
aldraðra.
-mhg