Þjóðviljinn - 28.11.1985, Page 7

Þjóðviljinn - 28.11.1985, Page 7
ÞJÖÐVILJINN Rangheiður H. Þórarinsdóttir borgarminjavörður: Það vefst kannski ekki fyrir verkfræðingum þó það vefjist fyrir mér hvernig á að varðveita þessa gömlu eldstó eftir að húsið hefur verið rifið! Ljósm. Sig. Kvosarskipulagið Ekki sátt við tillöguna RagnheiðurH. Þórarinsdóttir, borgarminjavörðw^ Lítið eða ekkert tillit tekið til mats á varðveislugildi gömlu húsanna. „Þessi skipulagstiliaga er ekki unnin í samvinnu við Árbæjar- safn að öðru leyti en því að höf- undar hennar hafa haft undir höndum húsakannanir safnsins í Kvosinni og vitna til þess í greinargerð sinni að söguleg út- tekt á húsunum sé ekki til. Hins- vegar sýnist mér lítið eða ekkert tillit tekið til þess mats sem Ár- bæjarsafn hefur lagt á varðveislu- gildi hinna ýmsu húsa sem gert er ráð fyrir að víki“, sagði Ragn- heiður H. Þórarinsdóttir, borg- arminjavörður. Árið 1979 var Árbæjarsafni falið að gera sögulega könnun á húsum í Kvosinni og skyldi hún vera ein af undirstöðum nýs deili- skipulags sem þá var í bígerð. Fyrsti hluti könnunarinnar, Kvosin milli Austurvaliar og Lækjar, kom út 1979, annar hluti, Kvosin sunnan Kirkju- torgs,kom 1980, Kvosin milli Kir- kjustrætis og Tjarnar kom 1983 og á sama ári fjórði hlutinn, Kvosin milli Aðalstrætis og Austurvallar. Síðasta þætti verksins, Kvosin norðan Austur- strætis, er ekki lokið og auk þess má nefna að Júlíana Gottskálks- dóttir fyrrum starfsmaður safnsins vinnur nú í Kaupmanna- höfn að lokaritgerð sinni í arki- tektúrum hús við Hafnarstræti. Byggingarlist og saga „f þessum skýrslum er bygg- ingarsaga hvers húss rakin og safnað saman upplýsingum um hverjir hafa búið í þeim“, sagði Ragnheiður. „Markmiðið er að meta varðveislugildi húsanna út frá menningarsögu og byggingar- sögu þeirra. Ég er sammála for- sendum tillögunnar að því leyti að það þarf að taka til og breyta ýmsu í Kvosinni, m.a. fylla í þau skörð sem komin eru í byggðina. Hins vegar finnst mér mikilvægt að gamli bærinn haldi svipmóti sínu og að nýbyggingar taki mið af því sem fyrir er í stað þess að farga flestum byggingum sem eru eldri en frá 1925-1930. Með því móti eru öll tengsl við sögu borg- arinnar rofin auk þess sem sjón- arsviptir yrði að mörgum þessara húsa. Lækjargatan þarfnast svo sannarlega andlitslyftingar, en spurningin er hvort það er eina leiðin og sú rétta að fjarlægja allt sem er lægra en Nýja bíó og reisa ný hús sem eru jafnhá því í stað- inn. Með því móti er líka lokað fyrir útsýni frá brekkunni inn yfir Kvosina að Dómkirkjunni og Alþingishúsinu og það þætti mér miður. Eflaust þurfa einhver þessara húsa samt að víkja og ég ætla höf- undum ekki að vilja rífa þau eða eyðileggja, heldur hljóta þeir að reikna með að þau verði flutt á annan stað. Sum hver hafa t.d. nýlega verið endurbyggð eins og Tjarnargata 11. Þau eiga hins vegar ekki öll erindi í Árbæjar- safn eins og við getum komið nánar að. Rætur borgarinnar Mörg þeirra húsa sem deili- skipulagstillagan gerir ráð fyrir að víki hafa ótvírætt varðveislu- gildi enda er þetta elsti hluti borg- arinnar og sá vettvangur sem saga okkar gerðist að mestu leyti á. Það var nefnilega svo lengi að Reykjavík var ekkert nema Kvosin. Menningarsögulegt gildi hús- anna er hins vegar mismikið og spurningin er hvernig á að skil- greina það og meta. Þessi tillaga byggist ekki á mati Árbæjarsafns á þeim hlutum og það væri fengur að því að vita hvaða rök höfundar leggja til grundvallar henni en þeir segjast einmitt vilja halda í þau hús sem hafa menningar- sögulegt gildi. í tillögunni kemur hins vegar ekkert fram sem bend- ir til þess að slíkt mat ráði nokkru. Það er t.d. vandséð hvernig á að varðveita elstu eldstóna í Reykjavík sem er í umsjá borg- arminjavarðar, eftir að húsið sjálft, Austurstræti 22, hefur ver- ið rifið. Slíkt vefst kannski ekki fyrir verkfræðingum þótt það vefjist fyrir mér. í fljótu bragði virðist mér sem það hús hafi hvað mest varðveislugildi sögu sinnar vegna af þeim húsum sem eiga að hverf samkvæmt tillögunni, að öðrum þó ólöstuðum. ísafoldarhúsið Höfundar gera tillögu um að eitt hús, ísafoldarhúsið gamla við Austurstræti 8, verði flutt í Ár- bæjarsafn. Þetta er mjög gott hús og sögufrægt en það á ekki endi- lega erindi í safnið. í Árbæjars- afni er haldið til haga sýnishorn- um af mismunandi byggingarstíl- um og einstök hús í safninu sýna þróun byggingarlistar í Reykja- vík. Það er búið að þrengja veru- lega að safnsvæðinu og hér verð- ur að halda eftir plássi fyrir þær húsagerðir sem vantar í safnið. Árbæjarsafn gerði á sínum tíma tillögu um að ísafoldarhúsið yrði flutt á annan stað og betri, þar sem það er nú mjög aðþrengt milli tveggja 4urra hæða stórhýsa en tillagan um að flytja húsið í Árbæjarsafn er ekki frá okkur komin. Um leið og hús fer á safn er notkun þess breytt, það hættir að gefa mælanlegan arð og al- menningur borgar brúsann. Það er því mikilvægt að velja og hafna í þessu tilliti. ísafoldarhúsið getur þjónað sínu hlutverki lengi enn og á ekki endilega heima á safni. Lækurinn og Nýhöfnin Sum önnur hús sem gerð er til- laga um að víki eru hins vegar einstök hvað byggingarsögu varðar. Ég get nefnt sem dæmi Kokkhúsið, Lækjargötu 8, sem er frá 1870, þótt ótrúlegt megi virðast og óþekkjanlegt í dag. Þetta var eitt fyrsta húsið í bæn- um sem byggt var með kvisti þvert í gegnum húsið. Það var reist af Jónasi landlækni og á sér merka sögu, auk þess sem bygg- ingarlag hússins er einstakt. Því þyrfti að breyta til upprunalegs horfs og jafnvel flytja í Árbæjar- safn ef annar staður finnst ekki fyrir það. Það má líka nefna Lækjargötu 4, þar sem Verslunarmannafélag Reykjavíkur var stofnað 1891. Það er kannski ekki hægt að verj a þetta hús sem stendur þétt undir Nýja bíói, en það á tvímælalaut að varðveita t.d. hér í Árbæjar- safni ef það þarf að víkja. Það yrði þó svo sannarleg sjónarsvipt- ir að því húsi og eins hornhúsinu Lækjargötu 2, en þau setja hvað mestan svip á Lækjargötuna og þar með gamla miðbæinn." - Hvcrnig líst þér á það scm koma á í staðinn fyrir þessi gömlu hús samkvæmt tiliögunni? „Ekki nógu vel. Það eru sögn eiga að koma reisuleg miðborgar- hús í þeirra stað. Lækjargata 6A og 6B eru reyndar ekki augna- yndi í dag af gömlum ljós- myndum og reyndar á húsunum sjálfum, ef vel er að gáð, má sjá hversu gífurlega mikið hefur ver- ið lagt í þau. Þetta eru dæmigerð íslensk borgarhús síns tíma og reist á allt öðrum forsendum en þau sem skipulagið sýnir. Þau minna helst á Nýhöfnina í Kaup- mannahöfn eða bryggjuhúsið við skurðinn í Hollandi.“ Hlutur alþingis „Ég er ekki sátt við þessa til- lögugerð. Dapurlegast af öllu er þó að það skuli vera alþingi ís- lendinga sem gengur fram fyrir skjöldu í því að kaupa upp allar lóðir kringum þinghúsið til þess að efna þar til niður- rifssamkeppni. Árbæjarsafn hef- ur varað við þeim áætlunum og vitnað m.a. til greinargerðar húsameistara ríkisins frá 1977 þar sem lögð er áhersla á að tengja saman nýbyggingar og gamlar á lóðum alþingis. Húsið næst þing- húsinu, Kirkjustræti 10, er t.a.m. einu ári eldra en þinghúsið og mörg önnur eru lítið yngri en það. Þinghúsið nýtur sín einmitt vegna þess hversu hógvær húsin í kringum það eru. Menn verða að gæta þess að rjúfa ekki öll tengsl við söguna þó þörf sé á nýjum húsum. Hver veit hvort við þekkjum okkur sem Reykvíkinga þegar öll þessi hús verða horf- in?“, sagði Ragnheiður að lok- um. -ÁI Sjá opnu. Fimmtudagur 28. nóvember 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.