Þjóðviljinn - 05.12.1985, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 05.12.1985, Blaðsíða 15
ÍÞRÓTTIR Undankeppni HM Skotar heppnir í fyiri hálfleiknum Ekkert mark í Melbourne og Skotar24. og síðasta þjóðin í lokakeppnina í Mexíkó Knattspyrna Guðmundur ráðinn til Völsungs Guðmundur Ólafsson var í gærkvöldi ráðinn þjálfari 2.deildarliðs Völsungs á Húsavík fyrir næsta keppnistímabil. Hann tekur við af Sigurði Halldórssyni sem nú hefur verið ráðinn á Selfoss. Guðmundur hefur síðustu tvö árin þjálfað kvennalið Breiðabliks en áður hefur hann fengist við þjálfun hjá ÍBÍ, Snæfelli og Bolungarvík. „Þetta er spennandi verkefni sem gaman verður að takast á við“, sagði Guðmundur í spjalli við Þjóðviljann í gærkvöldi. -VS 3. deild Týr lagði Reyni Skotland varð í gær 24. og síð- asta þjóðin til að tryggja sér sæti í lokakeppni HM í knattspyrnu sem fram fer í Mexíkó á næsta ári. Skotar gerðu markalaust jafntefli við Astrali í Melbourne og sigr- uðu því samanlagt 2-0. Ástralir gerðu harða hríð að skoska markinu í fyrri hálfleik og óörugg og taugaóstyrk vörn gest- anna slapp oft með skrekkinn. Jim Leighton varði stórglæsilega frá John Kosmina á 22.mínútu og hélt liði sínu á floti. En eftir því sem leið á leikinn náðu Skotar betri tökum á honum. Leighton var þó aftur bjargvættur þeirra um miðjan seinni hálfleik er hann varði hörkuskot frá Jim Patikas af stuttu færi. Skömmu síðar var vítaspyrna höfð af Skotum þegar Frank McAvennie var felldur í vítateig Ástrala. Skotar leika nú í lokakeppni HM fjórða skiptið í röð. Lánið hefur ekki leikið við þá í hin þrjú skiptin, þeir hafa alltaf misst af sæti í milliriðli á óhagstæðri markatölu. -VS/Reuter Týr hafSi betur í toppslag 3.deildarinnar í handknattleik gegn Reyni frá Sandgerði í gærkvöldi. Leikið var í Vestmannaeyjum og Týr- arar sigruðu 26-21 eftir að staðan í hálflcik hafði verið jöfn, 14-14. Keflvíkingar unnu sinn áttunda sigur í níu leikjum, sigruðu Hvergerð- inga 31-18 í Keflavík. Elvar Sigurðs- son skoraði 9 mörk fyrir ÍBK, Theo- dór Sigurðsson þjálfari og Hafsteinn Ingibergsson 5 hvor. Hafliði Hall- dórsson skoraði 6 mörk fyrir Hvera- gerði. Fylkir sigraði ÍH örugglega í Selja- skólanum, 30-19, og Selfoss fékk Skallagrím í heimsókn og þar vann heimaliðið sigur, 23-19. Staðan í 3.deild: Týr............11 9 0 2 301-217 18 ReynirS........11 7 2 2 266-246 16 IBK............. 9 8 0 1 239-177 16 lA...............9 7 1 1 236-192 15 Pór A...........11 6 1 4 258-230 13 Fylkir..........11 5 1 5 240-216 11 UMFN............ 9 3 2 4 239-225 8 IH............. 10 4 0 6 236-268 8 Selfoss......... 9 3 2 4 200-206 8 Völsungur.......11 3 1 7 262-274 7 Skallagrímur... 10 2 1 7 209-252 5 Hveragerði...... 9 2 1 6 220-266 5 ögri............10 0 0 10 144-281 0 Á laugardaginn mætast ÍH-ÍBK, Hveragerði-ÍA, UMFN-Selfoss og Ögri-Reynir. -VS England Enn tapar Man.Utd Everton sigraði Manchester United 1-0 i Stórbikarkeppninni í knattspyrnu í gærkvöldi. Frank Stapleton lék sem varnamaður hjá Man.Utd og skoraði eina mark leiksins, í eigið mark. Li- verpool vann Tottenham 2-0 í sömu keppni í fyrrakvöld og skoruðu Kevin MacDonald og Paul Walsh mörkin. í 2.deild tap- aði Portsmouth sínum fjórða leik í röð, 2-1 gegn Bradford City. -VS/Reuter Knattspyrna Óskar á Ólafsfjörð Óskar Ingimundarson hefur verið ráðinnþjálfari 3.deildarliðs Leifturs á Olafsfirði. Óskar er marksækinn framherji sem lengst af lék með KA og KR en náði góðum árangri sem þjálfari og leikmaður Leiknis á Fáskrúðs- firði sl. sumar. -VS Kvennalandsliðið I handknattleik er á förum til Vestur-Þýskalands I B-heimsmeistarakeppnina semhefst á þriðjudag- inn. Stúlkurnar hafa æft daglega undanfarið undir stjórn Hilmars Björnssonar og E.ÓI. tók þessa mynd af þeim í gærkvöldi. Karate Stjarnan UMSK-meistari Stjarnan varð sigurvegari í UMSK- mótinu í karate sem fram fór í Ásgarði í Garðabæ sl. miðvikudagskvöld. Stjarnan hlaut alls 16 stig cn Gerpla og Breiðablik 13 stig hvort og keppnin var geysispennandi og hnífjöfn. Kristjana Sigurðardóttir, Gerplu, sigraði í kata unglinga, Kristín Ein- arsdóttir, Gerplu, í kata kvenna, Stefán Alfreðsson, Stjörnunni, í kata karla, Ævar Þorsteinsson, Breiða- bliki, í kumite og Breiðablik vann sveitakeppni félaganna í kumite. Ævar var ósigrandi í kumite að vanda og hefur ekki tapað glímu hér á landi í tæp tvö ár. 1x2 Hlutverkaskipti á toppnum Enn hafa orðið hlutverkaskipti í toppbaráttu getraunakeppni fjölmiðlanna. DV og Þjóðviljinn komu best útúr 15. ieikviku en Morgunblaðið og útvarpið duttu af toppnum. DV er með 15 rétta alls, Þjóðviljinn, Morgunblaðið og Alþýðublaðið 14, Útvarpið 13, NT 12 og Dagur rekur lestina með samtals 10 rétta. Spá fjölmiðlanna fyrir ló.leikviku er þessi: V 2 O z o > c o- o; < H “ -cr ? Landsleikirnir Forsalan hefst í dag Forsala fyrir landsleiki íslands og Vestur-Þýskalands í handknattleik hefst í dag á skrifstofu HSÍ í íþróttamið- stöðinni í Laugardal, við hlið Laugardalshallarinnar. Hún verður kl.16-19 í dag og síðan hefst hún kl. 18 á morgun, föstudag. Fyrsti leikurinn fer fram í Laugardals- höllinni kl.20 annað kvöld. HSÍ býður áhorfendum nú uppá Visa-kortaþjónustu og mun þetta vera í fyrsta skipti sem hún er veitt við miðasölu á íþróttaviðburði hér á landi. “Við vitum að jólamánuðurinn er mörgum erfiður og landsliðið leikur átta leiki gegn sterkum þjóðum hér á landi í desember þannig að við reynum að koma til móts við handknatt- leiksáhugamenn með þessu móti“, sagði Jón H.Karlsson formaður landsliðsnefndar. Annar landsleikur þjóðanna fer fram á Akureyri á laugardaginn kl. 13.30 og sá þriðji og síðasti í Laugardals- höllinni kl.20 á sunnudagskvöldið. Spánverjar leika tvo leiki hér á landi um aðra helgi og Danir koma í sína jólaheimsókn milli jóla og nýárs. -VS Blrmingham-Watford................................x x 1 1 x x x Leicester-Man.City................................1 111111 Luton-Newcastle...................................1 111111 Q.P.R.-WestHam....................................2 2 1 2 x x 2 Sheff.Wed.-Nottm.For..............................x 11x111 Southampton-Arsenai............................. x x 2 1 2 1 x Tottenham-Oxford..................................1 111111 W.B.A.-Everton....................................2 2 2 2 2 2 2 Charlton-Sheff.Utd................................2 1 x 2 1 x x Norwich-Blackburn.................................1 111111 Shrewsbury-Oldham.............................. 1 x 2 x x x x Sunderland-Portsmouth.............................1 12 12 2 2 í 15. leikviku var enginn með 12 rétta. Með 11 rétta voru 28 raðir og gefur hver 57,175 krónur. Þá voru 376 raðir með 10 rétta og gefur hver 1,824 krónur. Heildarvinningsupphæð var 2,287,095 krónur, sú næsthæsta í sögunni. Knatt- spyrnudeild Framvar söluhæsti aðili en síðan komu Fylkir, ÍR(hand), KR, Fram(hand), ÍBK, Víkingur, ÍR(knatt), Haukar og Þór Akureyri. Vestur-Pýskaland Jafntefli í Stuttgart Stuttgart og Leverkusen skildu jöfn, 2-2, í Bundcsligunni í knatt- spyrnu í fyrrakvöld. Karl Allgöwer skoraði bæði mörk Stuttgart en Herbert Waas bæði mörk Leverkusen, jafnaði leikinn á lokamínútunni. Stuttgart færð- ist upp um tvö sæti við þetta. Frankfurt vann óvæntan sigur á Hamburger SV, 3-0, og var þetta aðeins annar sigurleikur liðsins í deildinni. Hannover vann Kaiserslautern 3-2 og Köln tapaði 0-1 fyrir Mannheim. Staða efstu liða: Bremen........ 17 11 3 3 50-27 25 Gladbach.........16 9 4 3 37-22 22 Bayern...........17 10 2 5 32-20 22 Hamburger........17 9 3 5 27-16 21 Leverkusen.......17 7 6 4 34-23 20 Mannheim.........16 7 4 5 28-22 18 Bochum...........16 8 1 7 33-26 17 Stuttgart........17 7 3 7 30-30 17 -VS Fimmtudagur 5. desember 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.