Þjóðviljinn - 05.12.1985, Blaðsíða 16
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663.
PJÖÐVIUINN
Fimmtudagur 5. desember 1985 281. tölublað 50. drgangur
Samvinnuhreyfingin
Siðferðilegt áfall
Menn efast um lögmœti afgreiðslu stjórnar KL á aðildþess að Gunnólfi hf
Ágúst Guðröðarson stjórnarmaður:
Siðferðileg áföll Samvinnuhreyfingar íhermangi. Afsala mér ábyrgð á aðild KL að
Gunnólfi hf Rangt að standa að Gunnólfi vegna andstöðufélagsmanna
Eg vil að lokum minna á að
stærstu siðferðilegu áföll sem
samvinnuhreyfingin hefur orðið
fyrir tengjast viðskiptum við er-
lendan her á íslenskri grund,
segir m.a. í bókun Ágústar Guð-
röðarsonar stjórnarmanns í
Kaupfélagi Langnesinga á Þórs-
höfn, sem hann gerði þegar aðild
þess að hermangsfyrirtækinu
Gunnólfi h.f. var samþykkt á
stjórnarfundi 8. nóvember s.l..
Kaupfélagsstjórinn Þórólfur
Gíslason gerði KL að hluthafa í
Gunnólfi, sem er í framkvæmd-
um fyrir NATO, í október, en
málið var ekki tekið fyrir á
stjórnarfundi fyrr en 8. nóvem-
ber. Aðeins tveir af fimm
stjórnarmönnum greiddu at-
kvæði með aðildinni, hinir þrír
sátu hjá. Annar þeirra sem
greiddu atkvæði með aðild, Jón
Gunnþórsson, var á sama tíma á
launaskrá hjá Gunnólfi sem verk-
stjóri og sú spurning hlýtur að
vakna hvort hann verði ekki að
teljast vanhæfur til að greiða at-
kvæði í málinu. í samþykktum
KL segir að tengist eitthvert mál
persónulegum hagsmunum
stjórnarmanns skuli hann víkja í
því máli.
Þjóðviljinn hafði samband við
lögfróða menn í gær og töldu þeir
að ýmsir vankantar gætu verið á
þessari afgreiðslu stjórnar. Einn
taldi að þetta væri óumdeilanlega
hæpið bæði á siðferðilegum og
'lagalegum grundvelli, og annar
sagði að þetta væri tvímælalaust
véfengjanleg afgreiðsla.
í bókun sinni á fundinum sagði
Ágúst Guðröðarson að hann
teldi framkvæmd þessa máls
ranga, bæði ákvörðun þess að
standa að Gunnólfi og hvernig
staðið væri að henni. „Fjöldi fé-
lagsmanna er andvígur því verk-
efni sem félagið hefur tekið að sér
og því var rangt að sækja eftir því
með slíku kappi“. Ágúst afsalaði
sér á fundinum allri ábyrgð á að-
ild KL. að Gunnólfi hf.
-gg
Saga
Pydd eftir
375 ár
Sögufélagið gefur út Crymogœu Arngríms lærða
Fyrsta samfellda íslandssagan
er nú komin út á íslensku: Cry-
mogœa Arngríms lærða Jóns-
sonar sem út var gefin á latínu í
Hamborg árið 1610. Jakob Bene-
diktsson þýddi að tilhlutan Sögu-
félagsins og Helgi Þorláksson bjó
þýðinguna til prentunar og sá um
allan búnað bókarinnar.
Þetta rit Arngríms er merkilegt
fyrir ýmissa hluta sakir, sagði
Jakob á blaðamannafundi í gær, -
með Crymogæu (einskonar
;ríska fyrir ísland) er innleidd á
slandi sú söguskoðun sem á
Norðurlöndum og í norðurhluta
Evrópu er kennd við húmanisma,
og bókin markar nánast upphaf
lærdómsaldar á fslandi, þegar
sautjándualdarmenn taka uppá
að safna fornum sögum, skrifa
þær upp og kanna. Þetta er fyrsta
tilraun til samfelldrar íslands-
sögu, og hér eru fyrsta sinni sett
fram ákveðin söguleg viðhorf
sem lifa langt frammá 19. öld og
jafnvel frammá þá 20. - eiginlega
rómantísk afstaða til fornaldar-
mnar; að þjóðveldisöldin sé gull-
öld íslendinga.
- Arngrímur vekur líka athygli
á íslenskri tungu. Hann leit á
hana sem hina glæstu forntungu
óspillta, sagði Jakob, - en taldi
hana í vissri hættu frá dönsku og
þýsku; og er einna fyrstur manna
í slíkum hugleiðingum.
Crymogæa var ætluð útlend-
ingum fyrst og fremst, og átti
mikinn þátt í áhuga erlendra
fræðimanna á íslenskri fortíð frá
tímum Arngríms; varð einskonar
handbók áhugamanna um fornar
sögur og íslenska háttu næstu
aldirnar.
Jakob sagðist ekki hafa átt í
teljandi erfiðleikum við þýðing-
una, enda hefur Arngrímur áður
komið við hans sögu, Jakob skrif-
aði doktorsritgerð sína um Arn-
grím. - Þetta er venjuleg húman-
istalatína þeirra tíma, sagði þýð-
arinn, - Árngrímur var nú ekki
mikill stflisti og skrifaði heldur
þunglamalegt mál.
Jakob Benediktsson og Helgi Þorláksson: Tímamótaverk Arngríms lærða loks-
ins á móðurmálinu. Mynd: E.ÓI.
I
Húsavík
20% atvinnuleysi
Nær 250 manns eru nú atvinnu-
lausir á Húsavík og voru um 2
milljónir króna greiddar í at-
vinnuleysisbætur til þessa fólks í
nóvember. „Þetta verður svona
alla vega fram í janúar“, sagði
Snær Karlsson hjá Verkalýðsfé-
lagi Húsavíkur í samtali við Þjóð-
viljann í gær.
„Það er búið að segja nær
öllum upp hjá Fiskiðjusam-
laginu, en fólkið í rækjuvinnsl-
unni heldur starfinu a.m.k. fyrst
um sinn.“ sagði Snær.
Fiskiðjusamlaginu hefur ekki
borist hráefni síðan í byrjun nóv-
ember. Smábátar eru í veiðibanni
fram að áramótum og sem kunn-
ugt er er togarinn Kolbeinsey
ekki lengur í eigu Húsvíkinga,
Bíldudalur
Þingsköp
Svo
bregðast
krosstré...
Þorvaldur Garðar leggur
framfrumvörp sem ekki
standast þingsköp
Sá þingmaður sem hvað
strangastur er á nýju þing-
sköpin, Þorvaldur Garðar
Kristjánsson, sjálfur forseti
Sameinaðs þings hefur nú lent
í þeirri hlálegu stöðu að leggja
fram tvö frumvörp ásamt
þingmanni sem ekki er á þingi
þessa dagana, en það ku bann-
að samkvæmt þingsköpum.
Hefur Þorvaldur Garðar oft-
sinnis neitað öðrum um að
leggja slík skjöl fram og látið
endurprenta þau með ærnum
tilkostnaði með nafni viðkom-
andi varaþingmanns. Er eftir
að sjá hvort hann leiðréttir
sjálfan sig að þessu leytinu.
Þorvaldur Garðar er fyrsti
flutningsmaður, Salóme
Þorkelsdóttir forseti efri
deildar annar flutningsmaður,
en hún er nú úti í New York og
situr Kristjana Milla Thor-
steinsson í sæti hennar. Aðrir
flutningsmenn frumvarpanna
eru Egill Jónsson og Árni
Johnsen.
-ÁI
Kópavogur
10,8% útsvar
Útsvarsálagning í Kópavogi
verður 10,8% fyrir næsta ára
eins og verið hefur undanfarin
ár. Jafnframt hefur verið
ákveðið að innheimta fast-
eignaskatt í Kópavogi með
15% afslætti til einstaklinga
en leggja hins vegar 15% álag
á fasteignaskatta til þeirra
sem ráða yfír atvinnuhús-
næði.
Fasteignaskattar ellilíf-
eyrisþega af eigin íbúð verða
lækkaðir eftir sérstökum regl-
um. Þeir einstaklingar sem
hafa tekjur innan við 366.000
kr. fá engan fasteignaskatt svo
og hjón sem eru ellilífqyris-
þegar bæði og hafa lægri árs-
tekjur en 459.000 kr. Þeir
sem hafa hærri tekjur fá minni
niðurfellingu.
Hlutafjársöfnun gengur vel
Útgerðarfélag Bílddælinga með nœr 15 milljónir í hlutafé til kaupa á
Sölva Bjarnasyni. Fiskvinnsla hafin á ný
Það er ijóst að sveitarfélagið og
Fiskvinnslan verða stærstu
hluthafar í Útgerðarfélagi Bíld-
dælinga og það vantar ekki mikið
upp á að safnast hafí 15 milljónir í
hlutafé, sem við teljum okkur
þurfa til að geta keypt togarann
Sölva Bjarnason af Fiskvciða-
sjóði, sagði Jakob Kristinsson
framkvæmdastjóri Fiskvinnsl-
unnar á Bfldudal í samtali við
Þjóðviljann í gær.
Sölvi Bjarnason er nú í eigu
fiskveiðasjóðs en verður að
öllum líkindum auglýstur til sölu
um áramótin og að sögn Jakobs
ætla Bflddælingar að reyna að
eignast skipið. Sölvi var áður í
eigu aðila á Tálknafirði en hefur
verið leigður af Fiskvinnslunni.
Fiskveiðasjóður keypti skipið á
uppboði í september á 147 milj-
ónir.
Fiskvinnsla stöðvaðist á Bfldu-
dal í byrjun október og hefur
frystihúsið verið lokað, þar til
vinnsla hófst á ný sl. mánudag.
„Við keyptum línubát nýlega og
hann á nokkurn kvóta, svo hægt
verður að halda uppi atvinnu til
áramóta", sagði Jakob.
Að sögn Guðmundar Her-
mannssonar sveitarstjóra voru
um 40 manns á atvinnuleysisskrá
um síðustu mánaðamót. „Það
verður atvinna hér fram að mán-
aðamótum, en það stendur allt og
fellur með togaranum, báturinn
heldur fiskvinnslunni aldrei
gangandi", sagði Guðmundur.