Þjóðviljinn - 13.12.1985, Blaðsíða 3
FRÉTTIR
Matador
Forstjóramir með
enn eitt fyrirtækið
Björgúlfur og Ragnar í stjórn Reykvískrar endurtryggingar,
Staðastaðar og líftryggingafélagsins Varðar. Eiginkonurnar meðal
stofnenda
eir Björgúlfur Guðmundsson
og Ragnar Kjartansson eru
ekki einungis tveir af þremur
Stjórnarmanna í stjórn Reyk-
vískrar Endurtryggingar og
Staðastaðar hf, einsog greint hef-
ur verið frá í Þjóðviljanum, held-
ur virðist þriðja fyrirtækið koma
við sögu í sama rekstri: „Líftrygg-
ingafélagið Vðrður hf,“ þarsem
þeir Ragnar og Björgúlfur eru
einnig í stjórn.
Hlutverk Varðar er að hafa á
hendi hvers konar líftryggingast-
arfsemi, aðra vátryggingastarf-
semi og lánastarfsemi.
Samkvæmt hlutafélagaskrá er
hlutverk Staðastaðar hf, sem hýs-
ir Reykvíska endurtryggingu hf
við Sóleyjargötu „að kaupa, eiga
og reka fasteignir". Stofnendur
Staðastaðar eru þremenningarnir
sem sitja í stjórn og eiginkonur
þeirra. -óg
Jónas Árnason og Rúnar Armann Arthúrsson verða í dag í Bókabúð Máls og menningar, árita þar viðtalsbók sína og spjalla við gest og gangandi milli tvö og
fjögur. „Þessi bók er ekki eintóm gloría um mig eða mína nánustu, í einkalífi eða pólitík," sagði Jónas Arnason þegar kynnt var ný viðtalsbók Rúnars Ármanns
Arthúrssonar (t.v.) við Jónas. Jónas sagði að viðtölin hefðu farið fram á hunda dögum 1985 og hefði Rúnar komið „vel undirbúinn í tíma". Jónas kemur víða við
og ræðir menn og málefni með þeirri blöndu glettni og alvöru sem honum er lagið. Ljósm. Sig.
I
HP
Skattfrjáls
glaðningur
HP ígær: 25 % launa
stjórnenda Hafskips
framhjá skatti undir
eftirliti og umsjón
endurskoðandans.
Helgarpósturinn segist í gær
hafa heimildir fyrir því að á
hverju ári hafl „tugum miljóna
verið veitt til stærstu hluthafa og
viðskiptavina Hafskips“. I
umfjöllun HP undir fyrirsögninni
„Tugir miljóna í skattfrían afslátt
- 25% launa stjórnenda Hafskips
framhjá skatti undir eftirliti og
umsjón endurskoðandans“ segir
cinnig að stjórnin hafi verið
afskiptalítil og aldrei farið í
saumana á plöggum og pappírum
sem hún fékk í hendur.
í HP segir m.a. að í hverjum
desembermánuði hafi verið
greiddur afsláttur til stærstu
hluthafa og viðskipavina. „Slíkt
mun ekki ógjarnan tíðkað. Hins
vegar hefur Hafskip sérstöðu því
afsláttur þess mun hafa hlaupið á
1.5-2.5 miljónum króna ár hvert
handa þeim stærstu. Og í öðru
lagi mun forstjóri Hafskips hafa
fullvissað viðtakendur „feitu
desembertékkanna" að þessir
fjármunir kæmu ekki til skatts“.
-óg
Eimskip/Hafskip
Kaup í dag
Frestur Eimskipafélagsins til
að ganga frá kaupum á eignum
Hafskips hf. rennur út kl. 17.00 í
dag. Að sögn Harðar Sigurgests-
sonar forstjóra Eimskips er mjög
líklegt að gengið verði frá
kaupunum fyrir þann tíma.
Upphaflegur frestur til
kaupanna var tveimur sólar-
hringum fyrr, en Eimskipsmenn
fengu framlengingu þar til í dag.
„Við höfum verið að kanna þessi
mál nánar og ganga frá ýmsum
lausum endum,“ sagði Hörður í
gær, en vildi ekki tjá sig nánar um
hvað hefði orsakað töf á kaupun-
um. Hámarkstilboð félagsins
hljómar nú upp á rúmar níu milj-
ónir dollara.
Hafskip - USA
„Vil ekki
tjá mig“
VSÍ kærir fyrir Eimskip
VSÍfellir málshöfðun gegn Dagsbrún niður. Kærir nú í umboði
Eimskipafélagsins. Halldór Björnsson: Slæmt málfyrir VSI.
Helgi Magnússon
löggiltur endurskoðandi:
Vil ekki tjá mig um þetta
mál að neinu leyti
„Ég vil ekkert tjá mig um þetta
mál að neinu leyti, ekki að svo
stöddu,“ sagði Helgi Magnússon
löggiltur endurskoðandi Hafskips
er Þjóðviljinn óskaði í gær eftir
upplýsingum um hver afskipti
hans hefði verið af endurskoðun
reikninga dótturfélags Hafskips í
Bandaríkjunum, Hafskip USA.
í Helgarpóstinum hefur því
verið haldið fram að Helgi hafi
skrifað undir reikninga Hafskips
USA, þrátt fyrir að endurskoð-
unarfyrirtækið Coopers og
Lybrand hafi lýst því yfir að það
vildi ekki koma nálægt reikning-
um fyrirtækisins vegna óreiðu-
bókhalds.
„Ég vil ekki tjá mig neitt um
þetta. Ég tel það ekki eðlilegt á
þessu stigi. Ég tjái mig ekki um
nein mál, því miður“, voru einu
svör Helga Magnússonar við
spurningum Þjóðviljans. -Ig.
Vinnu veitendasambandið felldi
í gær niður málshöfðun sína
gegn Dagsbrún vegna uppskipun-
arbanns á suðurafrískum vörum,
en stefndi síðan á nýjan leik og að
sögn Atla Gíslasonar lögfræðings
Dagsbrúnar mun það inál að
öllum líkindum verða þingfest í
næstu viku.
Ástæðan fyrir þessum aðgerð-
um VSf er sú að á málatilbúnaði
þess fyrir Félagsdómi voru ýmsir
gallar og fyrir lá krafa Dagsbrún-
ar um frávísun. „Gallarnir voru
svo augljósir að þeir ákváðu að
fella málið niður,“ sagði Atli í
gæj.
1 þetta sinn kærir VSI fyrir
hönd Eimskips, en hafði áður
kært í eigin nafni. Hörður Sigur-
gestsson forstjóri Eimskipafél-
agsins sagði í gær, að upphaflega
hafi kæra komið fram að ósk fél-
agsins. „Við lítum á þetta sem
grundvallaratriði og viljum fá
skorið úr því hvort þessar aðgerð-
ir Dagsbrúnar séu lögmætar.
Málið verður áfram í höndum
VSÍ,“ sagði Hörður í gær.
„Þetta er slæmt mál fyrir
Vinnuveitendasambandið, sér-
staklega ef litið er á þann málstað
sem við erum að styðja með þess-
um aðgerðum. Við teljum að við
séum í rétti í þessu máli og okkar
aðgerðir eru í samræmi við vilja
ýmissa alþjóðastofnana svo dæmi
séu tekin. Uppskipunarbannið er
okkar leið til að sýna baráttu
svarta meirihlutans í Suður-
Afríku stuðning," sagði Halldór
Björnsson varaformaður Dags-
brúnar í samtali við blaðið í gær.
-gg
Opið bréf til Ólafs Ragnars
Davíð Sch. Thorsteinsson skrifar
Hæstvirti varaþingmaður.
Rétt í þessu var mér að berast
hluti ræðu þinnar á Alþingi okkar
íslendinga á þriðjudaginn.
í ræðunni veitist þú tvívegis að
fyrirtæki því, sem ég vinn hjá, og
því þessar línur.
1.
Þú býsnast yfir því að okkur
hafi verið veittur afsláttur af
farmgjöldum hjá Hafskip h.f.
Sem framkvæmdastjóri Smörlíki
h.f. hef ég jafnan talið það skyldu
mína að versla þar sem við njót-
um bestu kjara og vil gjarnan
upplýsa þig um að við reynum
hvað við getum og njotum afslátt-
ar, meðal annars hjá Eimskip,
h.f. né Sól h.f. hafa nokkru sinni
Kassagerðinni, Plastprent, Vöru-
merkingu, Völundi, B.M. Vallá,
Morgunblaðinu og Þjóðviljan-
um, sem og hjá ótal mörgum öðr-
um góðum viðskiptavinum okkar
og tel ég ekkert athugavert við
það, þvert á móti ég tel okkur
þetta til hróss.
2.
Þú segir að „greiddar hafi verið
desember- og jólauppbætur fyrir
þessa herra til þess að þeir færu
ekki í jólaköttinn“ og að Smjör-
líki h.f. hafi verið notað til að
„mjólka lán úr þjóðbankanum
yfir í Tropicana-smjörlíkið".
Þetta er rugl. Hvorki Smjörlíki
fengið „desember- og jólaupp-
bætur“ frá Hafskip h.f. og heldur
ekki frá neinum örðum viðskipta-
vini og vil ég biðja þig um að upp-
lýsa hvaðan þú hefur þessar upp-
lýsingar.
Þá er ég heyri aðdróttanir og/
eða ásakanir þínar og annarra
fjölmiðlamanna af þínu sauða-
húsi, í skjóli þinghelgi, í garð Al-
berts Guðmundssonar, og at-
vinnurekstrar á íslandi, kemur
mér í hug - þeir sletta skyrinu,
sem eiga það.
Með tilhlýðilegri virðingu,
Davíð Sch. Thorsteinsson