Þjóðviljinn - 19.12.1985, Blaðsíða 8
BUSYSLAN
Hagstceð
jólainnkaup
hjá okkur
Toshiba ER 5300 örbylgjuofn -
kennsla fylgir.
Verð kr. 13.990 stgr.
Wave Ware áhöld fyrir örbylgju
ofna. Mesta urval bæjarins.
Verð kr. 510.
Petra vöfflujárn. Vestur-þýsk
úrvalsvara.
Verð kr. 3.180.
Toshiba ferðatæki, geysilegt
úrval, RT 6015.
Verð kr. 6.915 stgr.
Petra hárbursti með blásara.
Jólagjöf unglinganna.
Verð kr. 1.990.
Toshiba vasadiskó
og heyrnartækjaútvörp.
Verð kr. 3.880.
Petra km310 10 bolla kaffivél.
Alhvít glæsileg kanna.
Verð kr. 1.990.
TOSWáA Foaj Praœsscr
Toshiba TFP 1200 fjölhrærivél,
ótrúlegir möguleikar.
Verð kr. 5.650 stgr.
Petra FHT12 hitabiásari. Má
festa á vegg.
Verð kr. 1.700.
Toshiba stereo ferðatæki með
heyrnartæki, RP 700.
Verð kr. 3.690 stgr.
Pickering heyrnartæki fyrir
stereo-unnendur.
Verð frá kr. 1.980.
Toshiba ER 674, alhvítur ör-
bylgjuofn.
Verð kr. 21.565.
Pickering hljóðdósir fyrir plötu-
unnendur.
Verð frá kr. 1.150.
Lítið við hjá okkur- við seljum aðeins
viðurkenndar gœðavörur.
EINAR FARESTVEIT & CO HF
BERGSTAÐASTRÆTI I0A - SlMI 16995
Demantsíld söltuð á Reyðarfirði.
Humall
Demantsíld
Nýtegund af marineraðri síld á markaðinn. Uppskriftin frásíldarárun-
umáSiglufirði.
Síðastliðið vor hófst fram-
leiðsla á marineraðri Demants-
síld á Reyðarfirði og er dreifing
nú hafin víða um land. Það er
fiskréttafyrirtækið Humall sem
hefur tekið að sér dreifinguna.
Demantsíldin er seld í 200
gramma plastkrukkum, og er
uppskriftin frá síldarárunum á
Siglufirði.
Mest af síldinni veiðist inni í
Reyðarfirði, þannig að ferskara
hráefni er ekki hægt að hugsa sér.
Strax og síldin er veidd er hún
vandlega kæld þegar í land er
komið. Þar fer síldin í gegnum
strangt gæðaeftirlit. Eftir söltun
er síldin verkuð við nákvæmt
hitastig og fær reglulega hreyf-
ingu og pæklun til að tryggja gæð-
in.
Demantsíldin er aldrei fryst og
fær aðeins viðurkennda rólega
saltverkun og marineringu til að
tryggja að hún sé svo ljúffeng að
hún beri Demantastimpilinn.
Ýmsar hraðvirkar aðferðir hafa
skotið upp kollinum og sumir
spara sé að salta síld áður en hún
er marineruð. En hin hefðbund-
na verkunaraðferð á Dem-
antsfldinni hefur skapað henni al-
þjóðlega viðurkenningu og hæsta
verð á mörkuðum erlendis.
(Fréttatilkynning)
Miðlun
Verðhækkun 34-46%
á einu ári
í verðkönnun Miðlunar: „Verðhækkun helstu vöruflokka til heimilisnota á bilinu
34-46% á síðustu 12 mán. Hækkun framfærsluvísitölu á sama tímabili er
38,9%.“
í verðkönnun Miðlunar kemur
fram, aö verðhækkun helstu
vöruflokka til heimilisnota er á bil-
inu 34 til 46% á síðustu 12 mán-
uðum. Hækkanir einstakra vöru-
tegunda eru hinsvegar mun
breytilegri, á bilinu 2-90%.
Hækkun framfærsluvísitölu á
sama tímabili, nóvember 1984 til
sama mánaðar 1985 er hinsveg-
ar 38,9%.
Þetta kemur fram í fréttatil-
kynningu Miðlunar. Ennfremur
segir:
Meðaltalshækkun niðursuðu-
og pakkavöru er 46%, á hreinlæt-
isvörum 42%, korn og sykur-
vörum 39%, á kjöti og fiski 35%
og 34% á öðrum kælivörum.
Könnunin náði til fimm fyrr-
greindra vöruflokka, sem allir
búa við frjálsa verðlagningu.
Verðþróun á vörum háðum verð-
lagsákvæðum var ekki könnuð.
Einnig er rétt að benda á, að í
nóvember á þessu ári var útsala á
kindakjöti en ekki á sama tíma í
fyrra.
Verðkönnun Miðlunar náði að
þessu sinni til fimm vöruflokka
og alls 100 einstakra vörutegunda
innan þeirra. Hún er unnin í ná-
inni samvinnu við þær verslanir,
sem þátttöku óska og niðurstaða í
einstökum verslunum er trúnað-
armál milli Miðlunar og viðkom-
andi verslunar. Sameiginleg
niðurstaða er send hverjum þátt-
takanda, honum til glöggvunar
og samanburðar eigin verðlagn-
ingar við meðaltalið. Einstaka
verslanir geta einnig keypt sam-
anburð á eigin verði og meðaltöl-
um, þó þær séu ekki beinir þátt-
takendur í verðkönnunum Miðl-
unar.
Verðkannanir eru unnar af
Markaðsdeild Miðlunar. Starf-
semi deildarinnar felst í öflun úr-
vinnslu og túlkun á hverskonar
markaðsupplýsingum.
FRAMFÆRSlUVISITALA 38,9%
i i i i
OJ -c* ÝMSAR 1
o5 KÆLIVÖRUR 1
OJ oi KJÖT OG
5? FISKUR
w (D KORN OG
5? SYKURVÖRUR
ÞO HREINLÆTIS -
5? VÖRUR 1 L
01 NIOURSUÐU- l
s? OG PAKKAV. !