Þjóðviljinn - 19.12.1985, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 19.12.1985, Blaðsíða 2
Hafskip Fá laun fyrir jólin Dagsbrúnarmennfá uppsagnarfrestinn greiddan útá Þorláksmessu. Enn óvíst hvenœr VR-fólkið fœr sitt uppgjör Skiptaráðandi í Hafskipsmál- inu hefur heimilað ríkissjóði að greiða 25 Dagsbrúnar- mönnum sem áttu inni ógreiddan uppsagnarfrest hjá Hafskip, laun sín á Þorláksmessu. Lögfræðing- ur Dagsbrúnar hafði gert þá kröfu að starfsmönnum sem voru látnir hætta störfum 6. desembcr sl. yrði tryggð laun fyrir jól. Óskar Hallgrímsson hjá Vinn- umáladeild félagsmálaráðuneyt- isins sagði í samtali við Þjóðvilj- ann í gær að hann vonaði að dæm- ið gengi upp og starfsmennirnir fengju greiddan uppsagnarfrest- inn á mánudag. Aðsögn Vals Páls Þórðarsonar formanns starfsmannafélags Haf- skips er verið að vinna að því að gera upp laun og uppsagnarrétt skrifstofufólksins en VR hefur gert kröfu til þess að flýtt verði greiðslum tii þessa starfsfólks sem er á fjórða tug talsins. „Það kvíða ef þessar greiðslur koma leitt til mikilla óþæginda", sagði veldur mönnum óneitanlega ekki á réttum tíma og slíkt gæti Valur Páll. -|g. Sendibílar hf. Synjað um leyfi Lmsókn Sendibíla hf. á Stcindórsplani um leyfi til áfram- haldandi reksturs starfseminnar á staðnum var synjað af borgar- ráði fyrir helgi. Sigurjón Pétursson fulltrúi Abl. sat hjá í atkvæða- greiðslunni, þar sem hann telur það ekki hlutverk borgarráðs að ákveða hverjir skuli hafa þennan rétt. -gí! Borðinn klipptur, brúin opin. Mynd. E.ÓI. Bústaðavegsbrúin opnuð r Ifyrradag var Bústaðavegsbrúin svonefnda sem liggur yffr Kringlumýrarbrautina opnuð fyrir almcnnri umferð. Það var Davíð Oddsson, borg- arstjóri, sem klippti á borðann og hleypti umferðinni af stað. Brúin tengir saman Bústaðaveginn og Suðurhlíðarnar en ekki hefur enn verið gengið endanlega frá gatn- akerfinu austanmegin. Þrátt fyrir það er nú hægt að aka eftir Bú- staðaveginum yfir brúna í Öskju- hlíðina. Við opnun brúarinnar varð breyting á akstri vagna SVR, sem aka á leiðum merktum 6 og 7. Vagnarnir aka nú um nýju brúna. en ekki um Suðurhlíð og Sléttu- veg, eins og var fyrir opnun brú- arinnar. Hins vegar er ekið að Borgarspítala, frá Bústaðavegi, í hverri ferð. -IH Hafskip Sölu enn frestað Skiptaráðandi óskaði eftir því í fyrradag að Eimskip fram- lengdi enn frest til að taka afstöðu til tilboðs þess í eignir þrotabús Hafskips hf. og hefur verið ákveðið að fresturinn renni út 6. janúar n.k. Áður var gert ráð fyrir að tekin yrði afstaða til tilboðs Eimskipa- félagsins í gær. í fréttatilkynn- ingu sem blaðinu hefur borist segir að þessi ákvörðun sé tekin til þess að öðrum aðilum gefist kostur á að gera tilboð í eigur þrotabúsins, „auk þess sem til- tekin atriði varðandi tilboðsgerð Eimskipafélagsins þarfnast nán- ari úrvinnslu.“ Skiptaráðandi óskar jafnframt eftir því að þeir sem áhuga kynnu að hafa á því að gera tilboð í þrot- abúið skili skriflegum tilbiðum fyrir hádegi föstudaginn 3. janú- ar. -gg Og ég sem þykist ríkur með mín 60 þúsund; keyri sjálfur, spila ekki golf og hef aldrei flogið með Concord. Úr byggða- blöðunum Neskaupstaður Kosið um áfengi Ásgeir Magnússon bæjarstjóri lagði fram tillögu í bæjarstjórn um að þann 28. desember skuli fara fram kosning um hvort leyfa eigi opnun áfengisútsölu í bæn- um. Tillagan var samþykkt með sjö atkvæðum alþýðubandalags- manna og sjálfstæðismanna, en tveir framsóknarmenn voru á móti. Áður höfðu 370 atkvæðis- bærirmenn, eða liðlega þriðjung- ur, skilað inn undirskriftum sín- um til stuðnings kosningunni. En lögum samkvæmt verður að fara fram kosning ef slíkt hlutfall at- kvæðisbærra manna vill áfengis- kosningu. (Austurland) Akureyri Lyfta í Strompbrekku Skíðaaðstaða í Hlíðarfjalli er ein sú besta á landinu. Nú er fyrirhugað að kosta til níu miljón- um króna til að setja lyftu lang- þráða í Strompbrekku fyrir næsta vetur. Afkastageta lyftanna í Fjallinu ætti þá að aukast um helming, og biðraðir skíðaglaðra norðanmanna að minnka að sama skapi. (Dagur) Hornafjörður Fótbrotinn fálki I mánaðarbyrjun fannst lær- brotinn fálki í Álaugarey, og var að líkindum búinn að liggja um- komulaus nokkurn tíma. Sá sem fann fálkann var níu ára strákur, Snorri Einarsson. (Eystra horn) Eyjar Andríki f bígerð er að búa til vistarver- ur fyrir íslenska og finnska lista- menn í Vestmannaeyjum. Hug- myndin er að Finnarnir leggi til húsið, sem á að innihalda bæði íbúð ogvinnusal,en hinsvegar að bærinn leggi til lóðina og helst á stað þar sem vítt sér yfir, þannig að nægilegt andríki blásist gest- um í brjóst. Málið hefur þegar verið tekið fyrir í bæjarráði. (Fréttir) Útboð Óskað er eftir, f.h. Ríkisspífala, tilboðum í eftirtalda vefnaöarvöru: Sængurveraefni-Koddaveraefni Lakaefni-Skurðstofulakaefni Skurðstofusloppaefni-buxnaefni Handklæði-Handklæði fyrir baö Diskaþurrkudregill frotté Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri. Tilboð verða opnuð á sama staö i viðurvist viðstaddra bjóöenda kl. 11 -00 f.h. föstudaginn 10. janúar n.k.. innkaupastqfnun rikisins Borgartuni 7

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.