Þjóðviljinn - 09.01.1986, Blaðsíða 3
FRÉTTIR
Flugumferðardeilan
Agaleysi eða ofsóknir?
Flugumferðarstjórar kvarta undan sambúðarörðug-
leikum við Pétur Einarsson flugmálastjóra
Ljóst er að deila sú, sem komin
er upp milli flugumferðar-
stjóra annarsvegar og flugmáia-
stjóra og flugráðs hinsvegar getur
dregið dilk á eftir sér og á eftir að
harðna. Það sem deilan snýst um
er að um áramótin tók gildi nýtt
skipulag í flugumferðarstjórn,
sem miðar að bráðnauðsynlegum
þjálfunarmálum flugumferðar-
stjóra og endurskipulagningu á
stjórnun þjónustunnar. Tillögur
þessar voru staðfestar af sam-
gönguráðherra 27. febrúar 1985
og sú staðfesting ítrekuð 11. nóv.
1985. Á fundi í mars 1985 þar sem
tillögurnar voru kynntar flugum-
ferðarstjórum kom ekki annað en
ánægja með þær fram að því er
flugmálayflrvöld segja. Þau segja
einnig að það hafi svo verið í ág-
úst sl. sem flugumferðarstjórar
eða stéttarfélag þeirra FIF snéri
við blaðinu og hafði uppi nýjar
kröfur sem ómerktu samkomulag
sem við flugumferðarstjóra var
gert í janúar 1985. Allir samning-
aumleitanir síðan í ágúst hafa
orðið til einskis.
Flugumferðarstjórar sem
Þjóðviljinn hefur rætt við segja
málið snúast um það, að flugum-
ferðarstjórar ætli ekki að þola yf-
irgang sem þeir segja vera af
hendi flugmálastjóra Péturs Ein-
arssonar. Það sem þessar skipu-
lagsbreytingar miði að sé að bola
úr yfirmannastöðum í flugum-
sjón mönnum með 20-30 ára
starfsferil að baki og setja yngri
menn, vinveitta Pétri í störf
þeirra. Þetta er gert með því að
gefa stöðunum ný nöfn.
Flugumferðarstjóri sem Þjóð-
viljinn ræddi við í gær, sagði að
Pétur vildi aðeins deila og
drottna og ræddi sem minnst við
flugumferðarstjóra og kvartaði
hann mjög yfir sambúðarvand-
amálum. Sagði hann að sam-
þykkt flugráðs frá í fyrradag, sem
skýrt var frá í Þjóðviíjanum í gær,
væri mjög í anda Péturs, sem
FRÉTTASKÝRING
hefði þetta pólitískt skipaða ráð í
hendi sér og því hafi samþykktin
ekki komið á óvart.
Kári Guðbjörnsson talsmaður
flugumferðarstjóra sagði í sam-
tali við Þjóðviljann að flugum-
ferðarstjórar væru ekki með nein
skipulögð mótmæli, þeir hefðu
einfaldlega neitað að vinna botn-
lausa yfirvinnu auk þess sem
veikindatilfelli hefðu komið til
undanfarna daga. Hann sagði að
á síðasta ári hefðu flugumferðar-
stjórar, sem eru 35 talsins, unnið
samtals 1099 yfirvinnutíma en
þeir ganga 12 tíma vaktir. Þetta
samsvaraði 2ja mánaða auka-
vinnu á mann yfir árið. Þetta
vandamál yrði ekki leyst nema
með því að fjölga starfsmönnum.
Flugmálastjóri fékk hingað til
lands bandarískan sérfræðing
árið 1984 til að gera úttekt á flug-
umferðarstjórnarmálunum hér á
landi. Vegna veikinda hefur sá
aðili ekki skilað skýrslu en hann
gaf bráðabirgðaskýrslu að lok-
inni skoðun sinni hér, þar sem
hann telur fjölmargt upp, sem
hann segir að betur mætti fara.
Hann nefnir þar að í flugum-
ferðarstjórn sé um að ræða skort
á aga á vinnustað. í því sambandi
má nefna að flugumferðarstjórar
neita að nota stimpilklukku en
skrifa sína tíma þess í stað og ým-
islegt fleira er talið upp sem lýsi
agaskorti á vinnustað.
Flugmálastjóri hefur sent frá
sér yfirlit um aðgerðir FÍF á þeim
30 árum sem liðin eru síðan fé-
lagið var stofnað og segir þar að
35 sinnum hafi félagið beitt að-
gerðum til að mótmæla og stöðva
starfsþjálfun, sett á kennslubann
og félagsmönnum bannað að
taka að sér ný starfssvið. Hafi fé-
lögum í FÍF, sem ekki hafi verið
sammála öllu því sem félagið
samþykkir eða stjórn þess ákveð-
ur, verið hótað brottrekstri úr fé-
laginu, síðast nú í þessari deilu,
sem yfir stendur.
- S.dór
Halla Eggertsdóttir: Hvet alla til að koma við í Gerðubergi á laugardaginn en þá
gengst AB Breiðholts fyrir List á laugardegi. Ljósm. Sig.
Gerðuberg
Ust á laugardegi
Menningardagskrá íumsjón AB
Breiðholts
að verður mikið um að vera
hjá okkur á laugardaginn, en
þetta er í þriðja skiptið sem
Breiðholtsdeild Alþýðubanda-
lagsins gengst fyrir menningar-
dagskrá í Gcrðubergi undir
heitinu List á laugardegi, sagði
Halla Eggertsdóttir sem hefur
haft veg og vanda af undirbúningi
dagskrárinnar sem hefst kl.
15.00.
„List á laugardegi verður fjöl-
breytt að þessu sinni og óhætt að
fullyrða að allir sem þangað
koma finna sitthvað við sitt hæfi.
Dagskráin byggist fyrst og fremst
á upplestri, söng og annarri tón-
list. Kolbeinn Bjarnason mun
leika á þverflautu og með honum
Páll Eyjólfsson á gítar. Þá mun
Guðrún Helgadóttir alþingis-
maður og rithöfundur lesa upp og
að því loknu ætlar Jóhanna Þór-
hallsdóttir að syngja nokkur lög
við undirleik Einars Einarssonar.
Að loknu hléi mun svo Eyvindur
Erlendsson lesa upp, og Kristín
Á. Ólafsdóttir syngja fyrir gest-
ina. Tryggvi Þór Aðalsteinsson
verður kynnir,“ sagði Halla enn-
fremur.
„List á laugardegi er auðvitað
opin öllum meðan húsrúm leyfir
og vil ég nota tækifærið til að
hvetja fjölskyldufólk og aðra til
að fjölmenna á þessa dagskrá, en
ég get óhikað fullyrt að enginn á
að þurfa að fara leiður úr Gerðu-
bergi þennan laugardag,“ sagði
Halla að síðustu.
Aðgangseyrir á List á laugar-
degi er 100 kr. fyrir þá sem eru
eldri en 12 ára. Kaffistofan í
Gerðubergi er opin allan daginn,
en skemmtunin hefst eins og áður
sagði kl. 15.00. - v.
Námsmenn
Jafnrétti ógnað
Tugir námsmanna mótmœltu ígœr niðurskurði náms-
lána. Skorað á Sverri aðfallafrá niðurskurði
Tugir námsmanna söfnuðust bjargir bannaðar. Ekki bætir úr ógnað og möguleikar efnaminna
saman í mcnntamálaráðu- skák að jafnrétti til náms skuli fólks skertir. " “88
neytinu síðdegis í gær til að mót-
mæla þcim niðurskurði námslána
sem felst í reglugerðarbreytingu
Sverris Hermannssonar mcnnta-
málaráðhcrra frá 3. janúar.
Staðgengli Sverris voru afhent
mótmæli og skorað á ráðhcrrann
að falla frá áformum sínum um
skerðingu námslána.
í reglugerðinni er kveðið á um
frystingu námslána gagnvart
gengi krónunnar og lánin þannig
bundin gamalli gengisskráningu.
Það hlýtur óhjákvæmilega að
leiða til þess að námslánin lækka í
erlendri mynt og talið er að
niðurskurðurinn verði allt að
35%.
í áskoruninni til Sverris segir
m.a.:
„Þessi skerðing kemur afar illa
við námsmenn erlendis. Þeir hafa
jafnan úr naumu fé að spila og
þykir því ómaklegt að kostur
þeirra skuli þrengdur og það á
miðjum vetri þegar þeim eru allar
Iðnnemasambandið
Fordæmum aðför að LÍN
Iðnnemasamband íslands hefur
sent frá sér yfirlýsingu þar sem
aðför Sverris Hermannssonar að
LIN er fordæmd og lýst yfir
fyllsta stuðningi við starfsfólk og
framkvæmdastjóra sjóðsins
varðandi uppsögn þess síðar-
nefnda.
Yfirlýsing INSÍ sem samþykkt
var í fyrradag er svohljóðandi:
„Iðnnemasamband fslands
fordæmir aðfarir Sverris Her-
mannssonar menntamálaráð-
herra að Lánasjóði íslenskra
námsmanna. Sem þýðir í raun
stórskerta möguleika ungs fólks
til framhaldsnáms, jafnframt
fordæmum við aðfarir mennta-
málaráðherra að starfsfólki og
framkvæmdastjóra sjóðsins og
bera þær ótvírætt keim af pólit-
ískum ofsóknum ráðherra í garð
sjóðsins.
INSÍ lýsir yfir fyllsta stuðningi
við starfsfólic og framkvæmda-
stjóra LÍN og við lýsum yfir undr-
un okkar á meirihluta stjórnar
sjóðsins sem fríar sjálfa sig
ábyrgð með afstöðu sinni, fulltrúi
námsmanna sem tók afstöðu með
meirihluta stjórnar LÍN í þessu
máli virðist vera upptekin af pó-
litískri hagsmunagæslu í stað þess
að gæta hagsmuna námsmanna."
- 88
LÍN
Við stjóm að sakast
Sigurjón rœkti starf sitt af trúmennsku og alúð
Þjóðviljanum hel'ur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá þeim
Ragnari Árnasyni og Einari V.
Ingimundarsyni vegna umræðna
og fréttaflutnings um málefni
Lánasjóðs námsmanna:
Vegna umræðna og fréttaflutn-
ings um málefni Lánasjóðs ís-
lenskra námsmanna (LÍN) telj-
um við undirritaðir óhjákvæmi-
legt að eftirfarandi komi fram af
okkar hálfu:
1. Það er ótvírætt að það er
stjórn Lánasjóðsins en ekki fram-
kvæmdastjórinn, sem ber ábyrgð
á fjármálum og fjárhagsáætlun
LÍN.
Um þetta eru skýlaus ákvæði í
lögum um námslán og námsstyrki
(1. nr. 72/1982). í 5. gr. þeirra
laga stendur eftirfarandi:
„Hlutverk stjórnar sjóðsins er:
„.....“3. Að annast fjármál
sjóðsins og gerð fjárhagsáætl-
ana.“
Verksvið framkvæmdastjóra
er hins vegar skýrgreint í 9. gr.
reglugerðar um námslán og
námsstyrk með eftirfarandi
hætti:
„Hann (þ.e. framkvæmda-
stjórinn (innsk. undirritaðir))
hefur yfirumsjón með öllum
rekstri sjóðsins í umboði
stjórnar og ráðherra.“
Þessi ákvæði sýna svo ekki
verður um villst, að hvað meinta
vanrækslu í áætlanagerð LÍN
snertir, er einungis við stjórn LÍN
að sakast.
2. Framkvæmdastjóri Lána-
sjóðsins hefur, að okkar mati,
rækt starf sitt á undanförnum
árum af trúmennsku og alúð við
afar erfiðar aðstæður. Okkur er
ókunnugt um nokkuð það, sem
réttlætt geti brottvikningu hans
úr starfi.
3. Við höfum á hinn bóginn
mikla fyrirvara vegna þáttar
meirihluta stjórnar LIN, ekki síst
starfandi formanns hennar, í
þessu máli. Munum við taka þá
hlið málsins upp á viðeigandi
vettvangi.
Dr. Ragnar Árnason,
aðalfulltrúi í stjórn LÍN.
Dr. Einar Valur Ingimundarson,
varafulltrúi í stjórn LÍN.
Fimmtudagur 9. janúar 1986 ÞJÓpVILJINN - SÍÐA 3