Þjóðviljinn - 09.01.1986, Síða 14
I
Lausar stöður
Lausar eru til umsóknar eftirtaldar hlutastööur við læknadeild Há-
skóla íslands, sbr. 10 gr. laga nr. 77/1979 um Háskóla íslands:
Hlutastaða lektors í geðlæknisfræði, viðtalstækni og sállækningum
(dynamisk psykiatry).
Hlutastaða dósents í handlæknisfræði.
Hlutastaða dósents í bæklunarlækningum.
Hlutastaða lektors í heimilislækningum.
Hlutastaða dósents í hjartasjúkdómafræði innan lyflæknisfræði.
Hlutastaða dósents í meltingarsjúkdómum innan lyflæknisfræði.
Hlutastaða dósents í svæfingalæknisfræði.
Hlutastaða dósents í taugasjúkdómafræði. Staðan sé bundin
rannsóknaraðstöðu á taugalækningadeild Landsspítalans.
Hlutastaða dósents í húð- og kynsjúkdómafræði.
Einnig er laus til umsóknar lektorsstaða í lífeðlisfræði (heil staða)
við læknadeild Háskóla íslands. Gert er ráð fyrir að ofangreindar
stöður verði veittar til fimm ára frá 1. júlí 1986.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf umsækjenda,
ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil og störf, skulu sendar
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, og skulu
þær hafa borist fyrir 7. febrúar nk.
Menntamálaráðuneytið, 6. janúar 1986.
Flensborgarskóla
Nemendur í dagskólanum sæki stundatöflur
sínar í skólann föstudaginn 10. janúar kl. 10
árdegis.
Skólameistari.
Styrkir úr Minningarsjóði
Theódórs B. Johnsons
í samræmi viö skipulagsskrá Minningarsjóðs Theó-
dórs B. Johnsons hefur Háskóli íslands ákveðiö að
úthluta tveimur styrkjum, að upphæð kr. 60 þús. hvor.
í 4. gr. skipulagsskrár sjóðsins segir m.a.:
„Þeim tekjum, sem ekki skal leggja við höfuðstól sbr.
3. gr., skal varið til að styrkja efnilega en efnalitla
stúdenta, einn eða fleiri, til náms við Háskóla íslands
eða framhaldsnáms erlendis að loknu námi við Há-
skóla íslands.”
Umsóknareyðublöð fást í skrifstofu háskólans. Um-
sóknarfrestur er til 15. febrúar 1986.
Dagvist barna
á einkaheimilum
í janúar- og febrúarmánuði verður tekið við umsókn-
um um leyfi til að taka börn í dagvist á einkaheimilum.
Þeir, sem hafa hug á að sinna þeim störfum, vinsam-
legast hafi samband sem fyrst þar sem skortur er á
slíkri þjónustu.
Upplýsingar gefnar hjá umsjónarfóstrum að Njálsgötu
9, í síma 22360 og 21596.
Útboð
Fjölbrautaskóli Suöurlands óskar eftir tilboö-
um í smíöi á gluggum og útihurðum í nýbygg-
ingu skólans á Selfossi.
Útboösgagna má vitja á skrifstofu skólans,
Austurvegi 10, Selfossi, eöa á Teiknistofu
Magga Jónssonar, Ásvallagötu 6, Reykjavík,
gegn 5 þús. kr. skilatryggingu. Frestur til aö
skila tilboðum er til 21. janúar kl. 11.
Bygginganefnd F. Su.
Er^^l“fcrWi?
að gera DJÚÐVIUINN
Frakkland
Rúmenskur njósnari
á Evrópuþingið
Keypti sig inn á Þjóðfylkingu Le Pen með tuttugu
milljóna krónaframlagi
HEIMURINN
Le Pen - Pordea er á litlu myndinni: hittust á einkamessu fyrir fína fólkið í París.
Mjög sérkennilegt pólitískt
hneykslismál er komið upp í
Frakklandi. Það þykir sannað að
einn þeirra manna sem Frakkar
kusu til Evrópuþingsins í Stras-
bourg sé erindreki rúmensku
leyniþjónustunnar. Hafi hann
keypt sér sæti ofarlega á lista
Þjóðfylkingar Le Pen, sem er ein-
att kenndur við nýfasisma eða
eitthvað þesslegt, fyrir upphæð
sem svarar til rúmra tuttugu milj-
óna króna.
Maður þessi heitir Gustave
Pordea, franskur ríkisborgari
rúmenskrar ættar, sem kosinn
var á Evrópuþingið í júní 1984.
Upplýsingar um að hann sé á
snærum rúmensku leyniþjónust-
unnar DIE koma frá Ion Mihai
Pacepa, sem áður var háttsettur í
þeirri leyniþjónustu, en flúði til
Vesturlanda árið 1978. Hann
segir að Rúmenar leggi á það
mikla áherslu að tryggja sér vel-
vild og pólitískan stuðning á
Vesturlöndum og hafi þeir áður
reynt að koma sínum mönnum
fyrir á þingum þjóðríkja. Hér við
bætist að Rúmenía hefur sér-
stöðu meðal ríkja Austur-
Evrópu að því er varðar Efna-
hagsbandalagið vesturevrópska.
En það má þykja dæmi gott um
hina órannsakanlegu vegi leyni-
þjónustanna, að erindreki Rúm-
ena kýs að koma sér á Evrópu-
þingið fyrir tilstilli Le Pen og hans
manna, sem telja sér það helst til
ágætis að vera svarnir andkom-
múnistar og reyndar fjandsam-
legir öllum útlendingum!
Hinn besti reyfari
Þessi reyfaralega saga hefst á
því að Pordea hélt til Vínar í des-
ember 1983 til fundar við yfir-
mann sinn í rúmensku leyniþjón-
ustunni, sem Costel Mitran
heitir. Þar fékk hann upplýsingar
um að Rúménar hefðu áhuga á að
koma sínum manni inn á Evrópu-
þingið og væru reiðubúnir til að
borga sem svarar 20 miljónum
króna í herkostnað.
Pordea sneri heim til Parísar og
reyndi að koma sér inn á sam-
eiginlegan lista hinnar hægrisinn-
uðu stjórnarandstöðu - Gaullista
og Giscardista í UDF, Franska
lýðræðisbandalaginu. En þeim
leist ekki meira en svo á kauða,
sem þó hafði sambönd góð í sam-
tökum sem kalla sig Evrópu-
stofnunina og njóta víst virðingar
á hægrivængnum.
Fer nú að æsast leikurinn og
verður sagan eins og í skásta
reyfara. A einum degi er Pordea
orðinn eindreginn stuðningsmað-
ur Þjóðfylkingar Le Pen, sem
hefur heíst orðið þekktur fyrir
mikinn fjandskap við erlenda far-
andverkamenn, og þykir sá
flokkur bera svo mikinn keim af
nýfasisma, að viðrulegir borgara-
flokkar keppast um að sverja af
sér möguleika á að starfa með
honum. Pordea reyndi fyrst að
nálgast Le Pen gegnum vini hans í
Moonistakirkjunni í Frakklandi,
en Moonistar hafa mikið dálæti á
ystahægrinu í stjórnmálum og
gefa því stundum úr sínum gildu
sjóðum. En meira að segja
Moonistum leist ekkert á Rúm-
enann. Pordea var samt ekki af
baki dottinn. Hann kom sér fyrir
á gestalista í einkamessu fyrir fínt
fólk í kirkju Heilagrar Klóthild-
ar, en þangað var Le Pen líka
boðið, og hittust þeir kumpánar
augliti til auglitis á eftir messu í
kökuboði hjá gamalli vinkonu
Pordea, de Solliers Holtzer greif-
ynju. Það var einmitt greifynja
þessi sem kom á framfæri tilboði
Pordea um fjögurra miljóna
franka framlag í kosningasjóð Le
Pen. Le Pen var fljótur að gleypa
við þessu og sagði sem skjótast
við konu sína,.sem bar boð á
milli: Pordea verður fjórði á mín-
um lista!
Snjóboltinn veltur
Félagar Le Pen í Þjóðfylking-
unni tóku þessa ráðstöfun óstinnt
upp. En í þeim flokki er það Le
Pen sem ræður, rétt eins og
Sverrir í sínu ráðuneyti og Davíð í
sínum borgarstjórnarflokki, og
hann sagði félögum sínum að
halda sér saman, þetta væri hans
mál!
Þjóðfylkingunni vegnaði furðu-
vel í kosningum til Evrópuþings,
flokkurinn fékk um 11% atkvæða
og tíu fulltrúa kjörna og Pordea
komst í göfugan selskap í Stras-
bourg - og hefur reyndar nú þeg-
ar sýnt nokkurn lit í þágu rúmen-
skra stjórnvalda. Hann lagði
fram á þinginu tillögu varðandi
ungverska minnihlutann í Rúm-
eníu, þar sem gengið var út frá
því, að kvartanir frá því fólki um
að það sæti yfirgangi rúmenskra
stjórnvalda væru „ekki á rökurn
reistar"!
Franska blaðið Le Matin fór
fyrst af stað með skrif um að ekki
væri allt með felldu með þing-
manninn, en Le Pen og Pordea
brugðust við hart og fóru í mál við
blaðið og unnu það - vegna
skorts á sönnungargögnum. En
breska blaðið Sunday Times telur
sig nú hafa upplýst allt það sem
að ofan var rakið - og höfuðvitn-
ið er þá fyrrnefndur Pacepa,
landflótta leyniþjónustumaður.
Kosningar í nánd
Nú má velta því fyrir sér, hvaða
afleiðingar mál þetta kunni að
hafa í þeim kosningaslag sem nú
er hafinn í Frakklandi. Kosið
verður til þings í mars. Sósíalista-
flokkur Mitterrands forseta á það
á hættu að missa þann meirihluta
sem hann hefur nú á þingi - m.a.
fyrir tilstilli kosningabandalags
við kommúnista, sem nú er úr
sögunni. Sósíalistar hafa brugðið
á það ráð að breyta kosninga-
lögunum og nú eru hlutfallskosn-
ingar teknar upp aftur (í stað þess
að kjósa í tveim umferðum og þá
milli tveggja sterkustu frambjóð-
endanna í seinna skiptið, en þetta
er aðferð sem í rauninni krefst
þess að það myndist tvær kosn-
ingablakkir til hægri og vinstri.
Eftir þær breytingar átti Þjóð-
fylking Le Pen von á slatta af
þingsætum, og Sósíalistar hafa
óspart veifað þeirri grýlu, að
kannski myndist borgaralegur
meirihluti á þingi - með tilstyrk
Le Pen. Gaullistar og UDF hafa
fussað og sveiað - en hefðu vafa-
laust lent í nokkrum pólitískum
freistingum til að nota þinglið Le
Pen ef hann hefði nú bætt við sig
fylgi. En kannski verður ævintýr-
ið rúmenska til þess meðal annars
að draga nokkuð úr aðdráttarafli
Þjóðfylkingarinnar með allri
hennar þjóðrembu og kynþátta-
hatri.
ÁB tók saman.
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 9. janúar 1986