Þjóðviljinn - 26.01.1986, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 26.01.1986, Blaðsíða 3
DAGSBRÚN 80 ÁRA HHnun t Verkamannabústaöirnir í Reykjavík, sem Héðinn Valdimarsson var frumkvöðull aö. Myndina tók Stefán Ögmundsson. Ur sögusafni verkalýðshreyfingarinnar. Fyrsta kröfugangan á íslandi var farin 1. maí, 1923. Þessa mynd tók óþekktur Ijósmyndari af henni. Mynd frá Ljósmyndasafninu. byggingu verkamannabústaða því húsnæðisvandræðin bitnuðu einmitt harðast á verkafólkinu. En hvaða undirtektir hlaut þessi tillaga hans á Alþingi? Viðhorf alþingismanna í greinargerð með frumvarp- inu um verkamannabústaði kem- ur fram að úrbætur í húsnæðis- málum verkalýðsins sé hið mesta nauðsynjamál og ekki mögulegt nema til komi aðstoð ríkis og sveitarfélaga. Víða sé það talin skylda bæjarfélaga að hjálpa þeim stéttum sem verst eru stadd- ar, til þess að fá viðunandi húsa- kynni. Ein aðalröksemdin fyrir því að ríkið eigi að styrkja þessar framkvæmdir var sú að hið opin- bera hafði styrkt nýbyggingar í sveitum, og þar með viðurkennt skyldu sína í þessum efnum. Því sé erfitt fyrir yfirvöld að neita að styrkja almenning í þéttbýli. Al- menningur í þéttbýli eigi sömu kröfu á hendur ríkisvaldinu og al- menningur í dreifbýli. En þarna var einmitt komið að viðkvæmum punkti á þessum tíma. Togstreita milli dreifbýlis og þéttbýlis var mikil og kom það greinilega fram í umræðunni um verkamannabústaði. Ýmsir töldu frumvarp Héðins stórhættulegt því ef það yrði að lögum þá færi fólk að streyma til bæjanna. „... í þeirri tálvon að það fái þar ágætt húsrúm fyrir lítið verð.“ Margir, þá sérstaklega bændur, álitu að aðstreymi til bæjanna væri óeðli- lega mikið. Nauðsynlegt væri því að beina hugum fólks til sveitanna á ný með stórfelldum umbótum í sveitunum. Flestir viðurkenndu þó að það væri nauðsynlegt að bæta húsnæði verkafólks í þéttbýli en sumir voru hræddir um að það hefði þau áhrif að fólksflóttinn úr sveitunum yrði enn stórfelldari en áður. Ekki voru allir sammála þessum rökstuðningi. Haraldur Guðmundsson, þingmaður Al- þýðuflokksins, benti á að fólk leitaði ekki til kaupstaðanna til að fá betri íbúðir. Ástæðan væri frekar sú að efnalausu fólki veittist þar auðveldara að koma upp eigin heimili. I sveitunum væri það ógerlegt því þar þurfi jörð og skepnur, en fjölskyldu- fólk sætti sig ekki við að skipta sér í vistir á marga bæi. í kaupstöð- unum geti efnalítið fólk komið sér upp heimili og fengið ein- hverja vinnu. Pað væru því ekki bíóin og böllin sem drægi fólk úr sveitunum. Hann benti einnig á að það væri nauðsynlegt að koma upp smábýlum og gera efna- minna fólki þannig kleift að búa í sveitunum. En það voru ekki bara dreifbýlissinnar sem voru á móti frumvarpi Héðins um verka- mannabústaði. Ólafur Thors viðurkenndi að fólk búi í íbúðum sem vart geti talist mannabústað- ir og úr þessu ófremdarástandi yrði að bæta. Hann taldi þó frum- varp Héðins ekki réttu lausnina á þessu vandamáli því öll afskipti hins opinbera dragi úr framtaki einstaklingsins. Löggjöf yrði því almenningi til skaða því hún myndi draga úr húsbyggingum einstaklinga. Eina ráðið væri að útvega góð lán handa þeim sem vildu byggja. Og ef almennum húsbyggingum fjölgaði, lækkaði húsaíeigan að sama skapi. Það er því augljóst af framan- sögðu að skoðanir voru skiptar í þessu máli. Alþýðuflokkurinn virðist hafa verið einhuga í bar- áttunni fyrir þessu mikla nauðsynjamáli alþýðunnar. Sjálfstæðismenn voru á móti en Framsóknarflokkurinn var klof- inn í afstöðunni til verkamanna- bústaðanna. Þó fór svo að þann 18. maí 1929 varð frumvarpið um verkamannabústaði að lögum. Framkvœmdir Jafnskjótt og frumvarpið var orðið að lögum var hafist handa við að framfylgja þeim. í lögun- um er kveðið svo á um að kjósa þurfi fimm manna nefnd á hverj- um stað. Nefnd þessi átti síðan að færa rök að því að slíkrar opin- berrar aðstoðar væri þörf. Hús- næðisnefndvarþví kosin í bæjar- stjórn Reykjavíkur síðla árs 1929. Skömmu síðar ályktaði meirihluti nefndarinnar að stofna skuli byggingarsjóð verkamanna í Reykjavík. Nefndarmenn sóttu rökin eingöngu í húsnæðis- rannsóknina sem getið er hér að framan og bentu sérstaklega á að há húsaleiga, óheilsusamlegt húsnæði og þrengsli séu nægar ástæður fyrir því að hafist skuli handa um byggingu verkamanna- bústaða. Byggingarsjóðurvarþví brátt stofnaður og fyrstu sjóðs- stjórnina skipuðu þeir Magnús Sigurðsson bankastjóri, formað- Sjá síðu 5. ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.