Þjóðviljinn - 26.01.1986, Blaðsíða 5
DAGSBRÚN 80 ÁRA
vorifhíbýli þSaSte átrum fyTrí "Mynd^g: VerkafÓ'kS 1 Úthverfi ReykjaVÍkur ^ á öldinni. Ljósm. Sig. Guttormsson. úr sögusafni verkalýðshreyfingarinn-
Guttormsson. Úr sögusafni verkalýðshreyfingarinnar.
Héðinn
ur, Stefán Jóhann Stefánsson, Jó-
hann Ólafsson, Jakop Möller og
Haraldur Guðmundsson. Hús-
næði verkafólks var ekki aðeins
slæmt í Reykjavík og voru því
byggingarsjóðir einnig stofnaðir
á Akureyri, Siglufirði, Patreks-
firði og Flateyri. I kjölfarið voru
stofnuð byggingarfélög verka-
manna á þessum stöðum.
í apríl 1930 var Byggingarfélag
verkamanna í Reykjavík stofnað.
Stofnfélagar voru 217 en formað-
ur félagsins var Héðinn Valdim-
arsson. Auk hans voru í stjórn
félagsins þeir Pétur Hjaltesteð og
Stefán Björnsson. Félagið fór
þess strax á leit við Byggingar-
sjóð Reykjavíkur að hann útveg-
aði félaginu nægilegt lánsfé til
þess að hægt væri að byggja um
100 íbúir árið 1931. Byggingarfé-
lagið fékk svo lóð austan elli-
heimilisins, á skikanum milli
Hringbrautar og Ásvallagötu og
árið 1932 voru fyrstu íbúðirnar
tilbúnar. Voru það 54 íbúðir,
tveggja og þriggja herbergja, all-
ar sambyggðar.
Á árunum 1931 til 1937 voru
byggðar alls 172 íbúðir á vegum
byggingarfélags verkamanna,
þar af 79 tveggja herbergja íbúðir
og93þriggjaherbergja. Öllhusin
voru byggð úr steinsteypu, tvær
hæðir og kjallari og einungis fjór-
ar íbúðir.í hverjum stigagangi.
Hverri íbúð fylgdi eldhús með
eldavél og skápum og baðher-
bergi vel búið hreinlætistækjum.
I kjallara húsanna voru engar
íbúðir heldur eingöngu rúmgóðar
geymslur og sameiginleg þvotta-
og þurrkherbergi.
Mikil umskipti
Það var Héðinn Valdimarsson,
þingmaður Alþýðuflokksins,
sem lagði fram frumvarp um
verkamannabústaði á Alþingi
árið 1928. Frumvarp þetta var
sett fram af brýnni þörf, húsnæð-
isástandið í Reykjavík var bág-
borið samkvæmt ýtarlegri húsn-
æðisrannsókn sem fram fór um
sama leyti. Niðurstöður þessarar
rannsóknar og svo sú staðreynd
að Alþingi hafði nýverið sam-
þykkt að styrkja nýbyggingar í
sveitum landsins voru sterkustu
rökin með frumvarpinu og fór
svo að það var samþykkt þó
vissolega væru ekki allir alþingis-
menn sammála um ágæti þess.
Strax og frumvarpið var orðið
að lögum var hafist handa. Bygg-
ingarsjóðir voru stofnaðir og eins
byggingarfélög og á árunum 1931
til 1937 voru byggðar 172 íbúðir á
vegum byggingarfélags verka-
manna í Reykjavík. Það er óhætt
að segja að þessir fyrstu verka-
mannabústaðir hafi verið vönduð
og glæsileg húsakynni og hafa
umskiptin eflaust verið mikil hjá
þeim sem voru svo heppnir að fá
íbúð í þessum bústöðum.
Gerður Róbertsdóttir
Launafólk, tryggiö Alþýdubankanum
hlutdeðd í þróun peningamála.
Þaö eru hagsmunir beggja!
í þeim grannlöndum, þar sem lýðfrelsi er mest og Að stofnun Alþýðubankans stóð fjöldi félaga launa- <
lífskjör best, eru alþýðubankar löngu grónar stofn- fólks um land allt og bankinn setti frá upphafi það 1
anir, sem átt hafa drjúgan þátt í heillavænlegri markmið, að gera hagsmuni launafólks að sínum |
þróun efnahagsmála. hagsmunum; með það að leiðarljósi hefur hann i
Þeir hafa ávaxtað bæði sjóði launafólks og sparifé, ávaxtað það fé, sem honum er trúað fyrir og veitt
en jafnframt hlutast til um atvinnustefnu, stefnuna fjármagni sínu þangað sem það hefur komið vinn-
í peningamálum, skipulag fjárfestinga og húsnæð- andi fólki að mestu gagni. Hvort sem þú færð laun
ismál, alltaf með það fyrir augum að tryggja hags- þín í landbúnaði, útvegi, iðnaði eða verslun, þá er
muni launafólks og stuðla að almennri velsæld. Alþýðubankinn banki þinn.
Alþýöubankinn hf.
LAUGAVEGI 31. SUÐURLANDSBRAUT 30. SKIPAGÖTU 14. AKUREYRI.