Þjóðviljinn - 05.02.1986, Qupperneq 8
MENNING
Sterkar myndir
dauf saga
Amerísk bylting í Háskólabíói
Bylting
Bresk-bandarísk 1985
Leikstjóri: Hugh Hudson
Handrit: Robert Dillon
Kvikmyndun: Bernard Lutic
Leikarar: Al Pacino, Nastassia Kin-
ski, Donald Sutherland, Sid Owen
o.fl.
Háskólabíó
Ég verð að játa að ég kannast
ekki við Hugh Hudson, þann sem
leikstýrir þessari mynd. Hann
hlýtur að vera ungur að árum því
ekkert er á hann minnst í þeim
handbókum sem ég hef tiitækar.
En ég má hundur heita ef Hugh
hefur ekki fengist við að gera
auglýsingar og/eða rokk-video
hér áður fyrr. Mynd sú sem dreg-
in er upp af kraumandi mannlífi
New York borgar og Fíladelfíu á
18. öld, æstur lýðurinn, öngstræti
og undirgöng, hafnarbakkar,
herbúðir og dýflissur, brúnleitur
mýrareimurinn og þrálátar rign-
ingar, allt er þetta svo með end-
emum svipmikið að minnstu
munar að þokkafullt handrit Ro-
bert Dillon, dramatíkin sjálf,
verði undir í samkeppninni.
Á hinn bóginn eru bardagaat-
riðin, þegar konunglegar her-
deildir þramma til atlögu við kot-
ungalýð nýlendunnar, kannski
ANNA THEÓDÓRA i
RÖGNVALDSDÓTTIR :
það eftirminnilegasta úr mynd-
inni. Það og landslagsmyndirnar.
A1 Pacino leikur mann sem
lendir í eftirlætisklípu amerískra
vestra. Hann er maður sem vill
halda friðinn og búa að sínu en
yfirgangur og óréttlæti neyðir
hann til átaka þegar minni menn
annaðhvort flýja af hólmi eða
búa við ofríkið. 1 tímanna rás hef-
ur þessi erkitýpíski ameríkani
orðið breyskari þótt sami
járnviljinn búi alltaf undir að
sjálfsögðu. A1 Pacino er t.d. ólæs
og óskrifandi kotkarl sem er svo
bljúgur og seinþreyttur til vand-
ræða að það er liðið vel á annan
helming þessarar löngu myndar
áður en hann tekur upp vopn af
einhverri alvöru. Pað gerir hann
aðallega fyrir áeggjan eldhugans
Daisy (dásamlega ofleikin af
Nastassiu Kinski) en hún er
kaupmannsdóttir sem snúið hef-
ur frá villum vegar sinnar borg-
aralegu fjölskyldu og lagst út með
byltingarmönnunum. Þarna hafa
frístundastéttirnar greinilega haft
betra tóm til að velta fyrir sér
byltingarhugmyndum. en lýður-
inn.
Annars verður ekki sagt að
myndin veiti neina sláandi innsýn
inn í frelsisstríð Bandaríkja-
manna, þótt tæpt sé á mörgum
skondnum sögulegum atvikum.
Má þar nefna afstöðu indjána, en
þeir virðast hafa barist gegn Bret-
um vegna samstöðu sinnar og
samneytis við Frakka fremur en
að þeir hafi talið sig eiga samleið
með nýlendumönnum. Amerík-
Hándel
Pólýfónkórinn
Messías
fram-
undan
Sennilega í
Hallgrímskirkju, -
söngvarar velkomnir
Messías í nývígöri Hallgríms-
kirkjuíjólamánuöinum,-
segir Pólýfónkórinn og er van-
ur aö standa viö orö sín. Aö
vísu er óvíst hvort sá hinn eini
og sanni á leið um, en að
minnsta kosti óratorían eftir
Hándel, flutt af kórnum og
Sinfóníuhljómsveitinni.
Messías er á dagskrá 11. des-
ember og yrði fyrsta stórverkið í
kirkjunni, að vísu með þeim
fyrirvara að byggingaráætlanir
standist. Nú er stefnt að vígslu 27.
október, á afmælisdegi Hall-
gríms.
Pólýfónkórinn hefur foræfing-
ar á verkinu á miðvikudag í næstu
viku og býður söngvara vel-
komna til liðs við sig. Æfingar
verða einu sinni í viku til vors og
síðan teknar aftur upp með
haustinu. Þess er óskað að þeir
sem vilja taka þátt skrái sig strax
og í síðasta lagi 10. febrúar. Kór-
inn efnir til námskeiðs fyrir bæði
nýliða og reynda kórsöngvara, og
kenna þar kórstjórinn Ingólfur
Guðbrandsson, Margrét Pálma-
dóttir, Helga Gunnarsdóttir og
Jón Karl Einarsson. Skólinn
hefst samhliða foræfingum.
Skráning og upplýsingar: 72797
(Kristján Már), 45799 (Ólöf),
38180 (Ása).
Nancy Weems
Sinfónían
Nancy
Weems
á píanó
Verk eftir Atla Heimi,
Mozart og Kodály
Á Sinfóníutónleikum í
Háskólabíói annað kvöld er
einleikarinn Nancy Weems
fráBandaríkjunum.
Hún kom hingað í apríl 1984 og
var þá á ferð um Norðurlönd og
Sovétríkin sem „listrænn sendi-
herra,“ valin úr fjölmennum hópi
ungra listamanna bandarískra.
Fyrst á efnisskránni er Hjakk
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 5. febrúar 1986
sem Atli Heimir Sveinsson lauk
við 1979, frumflutt 1981 af Fíl-
harmóniusveitinni í Stokkhólmi.
Höfundur mun hafa sagt um
þetta verk sitt að það sé að vísu
ekki fallegt, en muni fegra önnur
verk.
Þá kemur píanókonsert nr. 21.
eftir Mozart, eitt af vinsælustu
verkum tónskáldsins, og loks
Háry János-svítan eftir ungverj-
ann Zoltan Kodály, sem ásamt
Bartók var frumkvöðull í ung-
versku tónlistarlífi á millistríðsár-
unum. Háry János er ungversk
hetjuhliðstæða þeirra Don Kík-
óta og Múnchausen, einskonar
vellygni Bjarni þeirra í Ungó, og
verkið um hann var upphaflega
ópera, frumflutt 1926. Kódaly
samdi síðan sexþátta hljóm-
sveitarsvítu uppúr óperunni. í
Ungverjalandi er þjóðtrú að
hnerri áheyrandi lygilegrar sögu
sé sagan sönn, - og svítan hefst
einmitt á hnerra.
Kristinn
Háskólatónleikar
ítölsk
lög
Áfyrstu háskólatónleikum
ársins syngur Kristinn Sig-
mundsson ítölsk lög, einkum
frá 17. öld, viö undirleik Jón-
anar voru á þessum tíma safn
ólíkra manna að uppruna og efn-
um, þjóðarvitund þeirra og sam-
einingarvilji fyrst og fremst við-
brögð við ofríki bresku herra-
þjóðarinnar og heimskulegum
stjórnarháttum.
Hugmyndir sameiginlegar
frönsku byltingunni dugði þeim
til sigurs í sjálfstæðisbaráttunni
en nýja ríkið byggir á þrælahaldi.
Ein af sterkari ímyndum Bylting-
asar Ingimundarsonar píanó-
leikara.
Tónleikarnir eru í dag, í Nor-
ræna húsinu, hefjast kl. 12.30 og
standa í um það bil hálftíma. Há-
skólatónleikum er svo fram hald-
ið á sama stað og sama tíma vik-
unnar frammí miðjan apríl meö
páskahléi.
Kjallarabandið
Djass í
Hlað-
varpa
Hlaövarpinn Vesturgötu þrjú
veröurannað kvöld lagður
undirdjass: Þarleikursvo-
nefnt Kjallaraband listir sínar
frákl.tíu.
í því eru Ari Haraldsson,
Gunnlaugur Briem, Birgir
Bragason og Friðrik Karlsson.
Búist við stemmningu í þessum
nýja djasskjallara, - og „Djús-
barinn“ verður opinn.
Leiðrétting
í frétt um tímaritið Bókaorm í
þessum blaðhluta fyrir skömmu
var farið rangt með nafn eins
þeirra sem hafa lagt efni til tíma-
ritsins, Steingríms Gauts Krist-
jánssonar borgardómara.
Illt er að fara rangt með nöfn
manna, því, einsog Steingrímur
Gautur segir sjálfur, „þótt ég
hefði ekkert á móti því að heita
Gauti Ieiðist mér að vera kallaður
það ranglega,“ og biður Þjóðvilj-
inn Steingrím Gaut og lesendur
velvirðingar.
-m
ar kemur fyrir í lokin. Þá hafa
borgarar New York flykkst út á
göturnar í sigurvímu, syngjandi
og dansandi. Á einum stað á
götunni hefur verið reistur pallur
og á pallinum berjast tveir vöðv-
astæltir menn, annar hvítur og
hinn svartur. Æstur múgurinn
fylgist með. Þannig endar mynd-
in í spurn, hvernig mun nýju
þjóðinni takast að lifa með sjálfri
sér?
Edda Heiðrún mundar vopnið
Kvikmyndir
Skepnan
frumsýnd
22. mars
Kvikmyndaáhugamenn sýni
biðlund; frumsýning fyrstu
myndar Hílmars Oddssonar
dregst heldur á langinn frá
fyrstu áætlun, en aöstand-
endur hafa tekið Stjörnubíó
frá þann 22. mars og áfram.
Hilmar sagði í gær að í vikunni
væri verið að leggja hina frægu
lokahönd á klippingu og hljóð-
setningu „er núna í fínasta niður-
skurðinum“, og um helgina verð-
ur filman send frændum okkar
dönum til tæknilegrar vinnslu.
Kvikmyndin Eins og skepnan
deyr sem þegar er orðin kunn af
tónlist sinni (Hróðmar Sigur-
björnsson, Hilmar/Bubbi/Guðni
Bragason) er tekin í Loðmundar-
firði og nágrenni og fjallar um
ástir, átök og örlög á afskekktum
stað; aðalhlutverkin eru í hönd-
um Eddu Heiðrúnar Backman,
Þrastar Gunnarssonar og Jó-
hanns Sigurðarsonar. Leikstjóri
og handritshöfundur er Hilmar
Oddsson, tökumaður Sigurður
Sverrir Pálsson. Sennilegur
kostnaður við frumsýningu er
einhversstaðar kringum níu
milljónir, þaraf frá Kvikmynda-
sjóði tæpar fjórar. -m