Þjóðviljinn - 11.02.1986, Blaðsíða 2
Karfa
ÍR fallið
í fyrsta sinn
Tveggja stiga tapfyrir KR
Eini möguleiki ÍR-inga á að
halda sér í Urvalsdeildinni var að
sigra KR á sunnudaginn. Það
tókst ekki og ÍR því fallið í fyrsta
sinn í sögu félagsins. Litlu munaði
þó að liðinu tækist að sigra og í
lokin munaði aðeins 2 stigum,
77:75 KR í hag. Staðan í hálfleik
var 47:37 KR í hag.
KR-ingar byrjuðu leikinn vel
og náðu tíu stiga forskoti sem þeir
héldu allt til leikhlés. í síðari hálf-
leik náðu ÍR-ingar að minnka
muninn og jafna leikinn þegar
tvær mínútur voru til leiksloka.
Hagaskóli 9. febr.
KR-ÍR 77-75 (47-37)
9-8, 19-15, 32-17, 43-33, 47-37, 60-
56, 67-66, 74-74, 77-75.
Stig KR: Guðni Guönason 21, Birgir
Mikaelssen 18, Garðar Jóhannsson
18, Áslþór Ingason 12, Þorsteinn
Gunnarsson 4 og Guðmundur Jó-
hannsson 4.
Stig ÍR: Karl Guðlaugsson 17, Jón
Örn Guðmundsson 14, Jóhannes
Sveinsson 14, Björn Steffensen 13,
Ragnar Torfason 12, Vignir Hilmars-
son 4 og Hjörtur Oddsson 1.
Dómarar: Kristbjörn Albertsson og
Jóhann Dagur mjög slakir.
Maður leiksins: Guðni Guðnason,
KR.
KR-ingar voru svo heppnir á
lokamínútunum og fögnuðu sigri
og áframhaldandi veru í úrvals-
deildinni.
ÍR-ingar töpuðu þessum leik á
slæmri hittni. Leikmenn hittu
mjög illa jafnt í vítaskotum sem
öðru. Þó lék liðið sæmilega,
vörnin var góð í síðari hálfleik og
liðið náði oft að opna vörn KR
vel en hittu svo ekki í opnum fær-
um. Karl og Jóhannes voru bestir
í liði ÍR. Jón Örn lék einnig ágæt-
lega og Björn Steffensen var
sterkur í vörninni.
KR-ingar hittu mun betur en
ÍR-ingar þó að öðru leyti hafi þeir
ekki verið betri. Guðni var mjög
góður og Ástþór kom á óvart
með mjög góðum leik. Aðrir í
liðinu léku sæmilega.
Dómgæslan í þessum leik var
fyrir neðan allar hellur á loka-
mínútunum, en líklega bitnaði
það ekki meira á öðru liðinu.
Það er kannske best fyrir IR að
falla í fyrstu deild. Liðið er skipað
mjög ungum og efnilegum leik-
mönnum sem þurfa tíma til að
þroskast og eftir eitt ár í fyrstu
deild eiga þeir áreiðanlega eftir
að taka úrvalsdeildina með
trompi.
- Logi
Karfa
Kennslushind
Guðni Guðnason, stigahæstur KR-inga gegn ÍR.
í Ijónagiyfjunni
Loftið lak úr Valsmönnum í síðari hálfleik
Handbolti - aukakeppni
KR-ingar steridr
Eftir frekar jafnan og spenn-
andi fyrri hálfleik í leik Njarðvík-
ur og Vals leit allt út fyrir jafnan
og skemmtilegan leik. Svo fór þó
ekki. Njarðvíkingar tóku Vals-
menn í kennslustund, léku sér að
þeim og sigruðu örugglega 95:73.
Staðan í hálfleik var 42:39 Njarð-
vík í hag.
Valsmenn byrjuðu leikinn vel
og skoruðu fyrstu 9 stigin. Njarð-
víkingar jöfnuðu og var leikurinn
nokkuð jafn allt til leikhlés. Þá
tóku Njarðvíkingar við sér og
gerðu útum leikinn. Valsmenn
skoruðu ekki stig í 6 mínútur og
eftir það áttu þeir aldrei mögu-
leika. Mestur varð munurinn 31
stig, 89:58, en eftir það slökuðu
Njarðvíkingar á og Valsmenn
náðu að laga stöðuna aðeins.
Njarðvíkurliðið lék þennan
Staöan
í úrvalsdeildinni i körfu:
UMFN........... 18 15 3 1558-1420 30
Haukar......... 17 13 4 1441-1367 26
Valur.......... 18 18 10 1422-1432 16
IBK............ 17 8 9 1330-1353 16
KR............. 18 6 12 1413-1508 12
(R............. 18 3 15 1445-1529 6
Stigahæstir:
Valur Ingimundarson, UMFN..........455
PálmarSigurðsson, Haukum...........403
BirgirMikaelsson, KR...............352
RagnarTorfason, |R.................320
JónKr. Gíslason, IBK...............299
gegn Þrótti
Njarövík 7. feb.
UMFN-Valur 95-73 (42-39)
0-9, 17-17, 35-33, 42-39, 56-45, 69-
45, 77-55, 89-58, 95-73.
Stig UMFN: Kristinn Einarsson 24,
Valur Ingimundarson 20, Helgi Rafns-
son 14, Jóhannes Kristbjörnsson 14,
Ingimar Jónsson 10, Árni Lárusson 7,
Ellert Magnússon 4 og Isak T ómasson
3.
Stig Vals: Jóhannes Magnússon 15,
Tómas Holton 11, Leifur Gústafsson
9, Sturla Örlygsson 8, Kristján Ágústs-
son 8, Jón Steingrímsson 7, Einar Ól-
afsson 7, Björn Zöega 6 og Torfi
Magnússon 4.
Dómarar: Ómar Scheving og Jóhann
Dagur - góðir.
Maður leiksins: Kristinn Einarsson,
UMFN.
leik mjög vel. Liðið lék vel saman
og minna bara einstaklingsfram-
taki en ísíðustu leikjum. Kristinn
átti sinn besta leik í langan tíma
og hitti mjög vel, Valur lék einnig
vel og Helgi var sterkur í fráköst-
unum.
Valsliðið byrjaði vel en síðari
hálfleikurinn var hreinasta hörm-
ung. Liðið virkaði baráttulaust
og það eitt að skora ekki stig í 6
mínútur ætti ekki að geta gerst
hjá neinu liði. Á þessum tíma lak
allt loft úr Valsmönnum.
Jóhannes Magnússon var eini
Valsmaðurinn sem lék sæmilega
allan leikinn, þó áttu þeir Einar
og Leifur ágætis spretti inná milli.
SÓM/suðurnesjum.
KR-ingar sigruðu Þróttara
nokkuð örugglcga í aukakeppn-
inni um 1. deildarsæti á laugar-
daginn. Leiknum lauk 33:21,
staðan í hálfleik var 19:12 KR í
hag.
KR-ingar þurftu lítið að hafa
fyrir þessum sigri, þeir voru yfir
allan leikinn og gátu leyft sér að
gera mikið af mistökum.
Þróttarar, sem komu nokkuð á
óvart gegn Haukum, áttu sér
aldrei viðreisnarvon og var þessi
leikur í sama gæðaflokki og aðrir
leikir liðsins í vetur.
Það var mikil barátta í leik HK
og Hauka í aukakeppninni um 1.
deildarsæti. Leikurinn fór fram í
Digranesskóla og sigruðu Haukar
19-17, eftir að hafa verið yfir all-
an leikinn.
Þó að Haukar hafi verið yfir
allan leikinn var leikurinn spenn-
andi og HK var nálægt því að
jafna í lokin. Þá var Magnúsi
Stefánssyni markverði HK vikið
Bestir í liði KR voru þeir
Ólafur, Stefán og Jóhannes.
Konráð var sá eini sem stóð upp
úr slöku liði Þróttar.
Mörk KR: Ólafur Lárússon 10, Jó-
hannes Stefánsson 7, Konráö Ölafs-
son 5, Stefán Arnarson 5, Bjarni Ól-
afsson 4, Páll Björnsson 1 og Haukur
Geirmundsson 1.
Mörk Þróttar: Konráð Jónsson 7,
Nikulás Jónsson 3, Sveinn Tómas-
son 3, Sigurjón Gylfason 3, Haukur
Hafsteinsson 2, Benedikt Ingvason 2
og Helgi Helgason 1.
- Logi
tvívegis af leikvelli en hann hafði
varið mjög vel. Haukar náðu að
halda forskotinu og sigruðu eins
og áður sagði.
Mörk Hauka: Ingimar Haraldsson 5, Pétur
Guðmundsson 4, Snorri Leifsson 4, Sindri
Karlsson 2, Sigurjón Sigurðsson 2 og Árni
Sverrrisson.
Mörk HK: Elvar Óskarsson 5, Ólafur Pét-
ursson 3, Rúnar Einarsson 2, Björn Björns-
son 2, Ragnar Ólafsson 2, Gunnar Eiríks-
son 2 og Jón Einarsson 1.
- Logi
Handbolti
Naumt hjá Haukum
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 11. febrúar 1986
3. deild
Þór ógnar
Reyni
Norðanliðin Þór og Völsungur
unnu góða sigra á gestum sínum
úr Ögra og ÍH í 3. deildarkeppn-
inni um helgina, og munar nú að-
eins markatölu á Þór og Reyni í
fjórða sætinu, sem að lokum gef-
ur aðgang að 2. deild.
Keflvíkingar unnu slaka Skaga-
menn á Akranesi og treysta enn
möguleika sína á að færa sig til
um deild.
Eyjamennirnir úr Tý, efsta liði
deildarinnar, léku tvo leiki, unnu
Hvergerðinga af öryggi, 31:21,
en biðu lægri hlut á Selfossi í
þriðja tapleik sínum í deildinni,
16:14.
Á Skaga höfðu heimamenn
ekkert í sterka Keflvíkinga að
gera, töpuðu 18:24. „Einn af
þeim leikjum sem maður reynir
að gleyma strax“, sagði Skaga-
þjálfarinn.
Þór hækkaði stigatölu sína lag-
lega með tveimur traustum vinn-
ingum, 25:10gegn Ögra, og26:19
gegn ÍH. í sömu ferðinni töpuðu
Ógramenn og ÍH-arar á Húsavík,
Völsungur-Ögri 27:20, Völsung-
ur-ÍH 36:29.
Fylkir vann Skallagrím í Borg-
arnesi 25:19, og var þó jafnt í
hálfleik 11:11. Suðurnesjaliðin
UMFN og Reynir áttu einnig í
snörpum slag; Reynir tók foryst-
una og hafði yfir í hálfleik 17:13,
síðan komust Njarðvíkingar yfir
22:20, en höfðu ekki í Reynis-
menn síðustu mínúturnar, úrslit-
in Reynissigur 28:25. - m
Staðan f þriðju deildinni eftir
leiki helgarinnar:
Týr .18 15 0 3 470:346 30
IBK ..17 14 0 3 460:324 28
ÍA ..17 11 3 3 432:354 25
ReynirS ..17 11 3 3 415:360 25
Þór A ..17 11 2 4 398:336 24
Fylkir ..17 9 1 7 371:344 19
Selfoss ..17 8 3 6 373:359 19
UMFN ..18 5 3 10 438:439 13
Völsungur „17 6 1 10 411:417 13
Hveragerði ..18 6 1 11 425:495 13
IH ..17 5 0 12 393:463 10
Skallagrímur.. ..17 3 1 13 342:438 7
Ögri „19 0 0 19 271:536 0
Frjálsar
Hjörtur jafn
sjálfum sér
Á Meistaramóti íslands í frjáls-
um íþróttum innanhúss um helg-
ina jafnaði Hjörtur Gíslason
(KR) íslandsmetið í 50 m grinda-
hlaupi í undanrásum. Islands-
metið átti hann áður ásamt Gísla
Sigurðssyni, 6,7 sek., Hjörtur
sigraði í greininni. Jón A.
Magnússon varð þriðji í þrístökki
með nýju drengjameti, 13,84 m.
Sund
Telpnamet í
skriðsundi
Á sundmóti Ægis í Sundhöll-
inni á sunnudag varð Ingibjörg
Arnardóttir, Ægi, í öðru sæti í
400 m skriðsundi á nýju telpna-
meti, 4.39,80.
Magnús M. Ólafsson (Þór)
vann 400 m skriðsund karla og
100 m flugsund, Eðvarð Þór Eð-
varðsson (UMFN) vann 100 m
bringusund, 200 m baksund, 200
m fjórsund, sveit UMFN vann
4x100 m fjórsund karla.
Hugrún Ólafsdóttir (Þór) vann
400 m skriðsund kvenna og 200 m
fjórsund, Þuríður Pétursdóttir
(Vestra) vann 200 m bringusund,
Ingibjörg Arnardóttir vann 200
m flugsund, Þórunn Guðmunds-
dóttir (Ægi) vann 100 m baksund
kvenna, og A-sveit Ægis vann
4x100 m fjórsund kvenna.