Þjóðviljinn - 11.02.1986, Side 5
ItClllCl y
Roma
nálgast
Pólski snillingurinn Zbigniew
Boniek var potturinn og pannan í
sigri Roma í Torino, og færist lið-
ið einu stigi nær Evrópumeistur-
um Juventus sem urðu að sætta
sig við markalaust jafntefli gegn
Atalanta.
Eina mark leiksins í Torino átti
Roberto Pruzzo, skallaði inn
sendingu frá Boniek senr hafði
sólað sig gegnum meirihluta
Torino-varnarinnar. Roma hefur
ekki unnið í Torino síðan í nrars
1981. Hvort liðið misnotaði sína
vítaspyrnu í leiknum.
Napoli komst aftur í þriðja sæt-
ið með 1:0 sigri á botnliðinu
Lecce, á niarki argentínumanns-
ins Daniels Bertoni, en Inter Mil-
ano geröi jafntefli heima við
Sampdoria, - öll fjögur mörkin
skoruð í fyrri hálfleik, 1:0 (Bart-
olomei), 1:1 (Vierchwod), 2:1
(Ray Wilkins), 2:2 (Mancini).
Staða efstu liða: Juventus 32
stig, Roma 28, Napoli 24, Inter
Milano 24, Torino 22, Fiorentina
21.
- m/reuter
Mexíkó
DDR vann
búlgara
Austurþjóðverjar unnu búlg-
ara 2:1 í landsleik sem háður var í
Mexíkó, og áttu skilið veglegri
sigur; búlgarska liðið var ekki
svipur hjá sjón sé miðað við
óvænta frammistöðu þess í riðla-
keppni heimsmeistarakeppninn-
ar sem hér var reyndar verið að
æfa sig undir.
Matthias Liebers og Uwe
Zotzsche skoruðu þýsku mörkin,
Diakov hið búlgarska. Sigurinn
var sætur fyrir austur-þjóðverja
sem léku með búlgörum í HM-
riðlinum og lentu í þriðja sæti
eftir þeim og frökkum - en búlg-
arski landsliðsþjálfarinn er sagð-
ur þurfa að hugsa alvarlega sinn
gang áður en hann sendir lið sitt
inn á völlinn gegn ítölum í fyrsta
leik HM í Mexíkó 31. maí.
- m/reuter
Maraþon
Ikangaa
harður í
Tókíó
Tansaníumaðurinn Juna Ik-
angaa vann maraþonhlaupið í
Tókíó á sunnudaginn, hljóp á
2.08.10 sem er fimmti besti mara-
þonárangurinn.
Þetta er fimmti sigur hlaupar-
ans síðan hann hóf maraþon-
keppni 1982. Annar varð eþíóp-
inn Belayenh Densimo sem nú
keppti í fyrsta sinn í maraþoni og
munaði aðeins nokkrum sekúnd-
um á honum og Kiangaa,
2.08.29.
Abebe Mekonnen, Eþíópíu,
varð þriðji. Heimsmethafinn og
ólympíumeistarinn Carlos Lop-
es, Portúgal, hætti keppni eftir 19
kílómetra vegna fótarmeins.
- m/reuter
HVAÐER UGLAN?
Uglan er kiljuklúbbur. Viö bjóöum þeim sem vilja eign-
ast vandaðar bækur betri kjör en áður hafa þekkst á (s-
landi. Þú færö þriár bækur í pakka á sex til átta vikna
fresti fvrir aðeins 498 krónur hvern pakka, auk sending-
arkostnaðar. Stundum fylgir ókeypis aukabók, stund-
um tilboð um ódýra valbók.
HVIRNIG B/IKUR?
Uglubækurnar eru ekki aðeins ódýrar heldur einnig
vandaðar. Við bjóðum þér nýjar þýddar skáldsögur,
sígild verk bæði íslensk og erlend, sem hafa verið
ófáanleg um langt skeið, spennusögur, handbækurog
sígildar vandaðar barnabækur.
ÓVÆNTUR GLAÐNINGUR!
Þú færð fyrsta bókapakkann þinn í seinni hluta mars-
mánaðar. Þeir sem eru með frá byrjun og gerast félag-
ar fyrir þann tíma fá fimm bækur í pakka fyrir 498
krónur. Þæreru:
Leo Tolstoj: STRÍÐ OG FRIÐUR, fyrsta bindi
P.D.James: VITNIDEYR, fyrra bindi
P.D.James: VITNIDEYR, seinna bindi
Aukabók: VEGGJAKROT
Gjöf til stofnfélaga: fimmta bókin!
HVAPÓIRIRÞÚ?
Þú fyllir út meðfylgjandi miða og sendir okkur eða skráir
þig í síma 15199 milli klukkan 9 og 22 alla daga.
Fimm bækur í fyrsta pakkanum fyrir
krónur.
íslenski kiljuklúbburinn,
Laugavegi 18,101 Reykjavík.
ugLan
Já, ég óska eftir aö gerast áskrifandi aö fyrstu þremur bókapökkum UGLUNN-
AR - íslenska kiljuklúbbsins fyrir aðeins 498 kr. hvern 3ja bóka pakka (auk
sendingarkostnaöar).
Jafnframt þigg ég þær tvær aukabækur sem fylgja fyrsta pakkanum mér að
kostnaöarlausu. Þegar ég hef tekið á móti þremur bókapökkum er mér frjálst
aö segja upp áskrift minni án nokkurra frekari skuldbindinga af minni hálfu.
□ Visa
Ég óska eftir aö greiðsla veröi skuldfærö á CH Eurocard reikning minn.
Kortnúmer: □□□□ □□□□ □□□□ □□□□
Gildistími: □□/□□
Nafn: Nafnnúmer:
Heimilisfang: Póstnúmer: Sveitar/bæjarfélag:
Sendið til: Uglan-íslenski kiljuklubburinn
Laugavegi 18
Pósthólf 392
121 Reykjavík
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11