Þjóðviljinn - 11.02.1986, Qupperneq 6
Visa skákmótið
Bandaríkjamenn mörðu jafntefli
Þröstur Amason Reykjavíkurmeistan í skák leikur fyrsta leikinn i landskeppninni fyrir hinn bandariska Seirawan gegn Svíanum Andersson a tyrsta tjoroi. Kogan, Guðmundur
Sigurpnsson, Einar S. Einarsson Visa-stjón og Bent Larsen fylgjast með. Mynd: EÓI.
Stjörnulið Bandaríkjanna
og Norðurlanda skildu jöfn í
viðureign sinni nú um helgina.
Norðurlöndin náðu forystu
eftirfyrri keppnisdaginn með
naumum sigri 6V2-5V2, en
seinni daginn snerist dæmið
viðogjafntefliðvarð
staðreynd 12-12.
Norðurlandabúar mega vel
við una því geysileg gróska er
í skáklífinu vestanhafs og
breiddin mikil. Með smá
heppni hefði tekist að leggja
lið kanans, en meira um það
síðar.
í báðum liðum var valinn mað-
ur í hverju rúmi, tólf í hvoru og
varamaður að auki. Yassir
Seirawan (2605, elo) leiddi
bandaríska liðið, en hann er eins
og flestir vita einn af albestu stór-
meisturum heims. Hinn tékknesk
ættaði Ljubomir Kavalek kom
næstur með 2560 stig. Larry
Cristiansen (2555) þriðji. Fjórði
Joel „Wunderkind" Benjamín
(a.m. 2555). Næstur kom Nick
deFirmian (2520). Þá núverandi
skákmeistari Bandaríkjanna Lev
Alburt, sovéskur að uppruna
(2515). Sjöundi Walter Browne
(2510). Gamla kempan Robert
Byrne varáttundi (2505). Níundi
Ron Henley (2505). Tíundi John
Fedorowicz (a.m. 2500). Ellefti
sovétættaði Boris Kogan (a.m.
2495). Og tólfti séra William
Lombardy (2470). Varamaður
bandarísku sveitarinnar var Max-
im Dlugy sem er ættaður frá Mos-
kvu og er núverandi
heimsmeistari unglinga. Diugy
þessi er orðinn stórmeistari með
2545 stig aðeins 19 ára og verður
því að teljast með efnilegri skák-
mönnum heims. Meðalstigatala
liðsins var 2526 sem er geysihá
tala.
Norðurlöndin stilltu einnig
upp sterku liði þar sem meðal-
stigatalan var 2514, en það sem
gleður undirritaðan hvað mest er
að uppistaðan í sveitinni voru
ungir skákmenn með framtíðina
fyrir sér. 1. Ulf Anderson (2585)
er ekki hár í loftinu, en skák-
styrkleikann verður sennilega að
mæla í kílómetrum. 2. Bent Lar-
sen (2575) frekari kynning ekki
nauðsynleg. 3. Helgi Ólafsson
(2545). Simon Agdestein (2535)
er norskur og einungis 18 ára,
mikill baráttuskákmaður. 5.
Margeir Pétursson (2520). 6.
Curt Hansen (2510) danski krón-
prinsinn, ungur en teflir eins og
fullorðinn maður. 7. Jóhann
Hjartarson (2505). 8. Jón L.
Árnason (a.m. 2500). 9. Karsten
Rasmussen (a.m. 2500) danskur.
Efnilegur og hefur tekið ótrú-
Iegum framförum á skömmum
tíma, hækkaði um 200 elo stig í
fyrra. 10. Guðmundur Sigurjóns-
son (2495). 11. Harry Schiissler
(a.m. 2455) sænskur. Oft kallað-
ur„vörnin“, seigari en flestir. 12.
Jouni Yrjöla (2440) eini fulltrúi
Finna. Sókndjarfur eins og þeir
flestir. Varamaður sveitarinnar
var Friðrik Ólafsson. Athygli
vekur að við eigum hvorki fleiri
né færri en sex af þessum þrettán.
Fyrri umferð:
1. Seirawan-Anderson.... V2-V2
2. Larsen-Kavalek...... V2-V2
3. Cristiansen-Helgi...... 0-1
4. Agdestein-Benjamín..... 1-0
5. Dlugy-Margeir........ V2-V2
6. Hansen-Alburt....... V2-V2
7. Browne-Jóhann.......... 1-0
8. Jón L.-Byrne......... V2-V2
9. Hertley-Rasmussen... V2-V2
10. Federowicz-Guðmundur
1-0
11. Schússler-Kogan...... 1-0
12. Lombardy-Yrjöla...... V2-V2
Samtals: Norðurlöndin 6'/2,
Bandaríkin 5*/2.
Takið eftir hinum góða árangri
á fjórum efstu borðunum, 3-1.
Annars var það Helgi sem gaf
tóninn með glæsilegum sigri á
Cristiansen. Helgi hefur ekki
teflt mikið að undanförnu og var,
að eigin sögn, orðinn hungraður í
baráttuna. En sjón ersögu ríkari:
Hvítt: Cristiansen.
Svart: Helgi Ólafsson.
Drottninearbragð.
1. d4 Rf6
2. c4 e6
3. Rf3 d5
Helgi ákveður að beina skákinni
inn í drottningarbragð en segja
má með sanni að staðan bjóði
upp á marga möguleika. Þeir eru
3. -b6, 3. -Bb4 og 3. -c5.
4. Rc3 Be7
5. Bf4
Þessi leikur varð vinsæll í kjölfar
einvígis Kortsnojs og Karpovs
1978, þar sem hinn fyrrnefndi
notaði hann með ágætisárangri.
Þess ber að geta að leikurinn nýt-
ur sérstakra vinsælda vestanhafs
og það hefur varla farið fram hjá
okkar manni.
5. -0 -0
6. e3 c5
7. dxc5 Bxc5
8. a3
AÍgengara er 8. Dc2 Rc6 9. a3
Da5 10. Hd 1 Be7 en þannig tefld-
ust áðurnefndar einvígisskákir.
Áætjún hvíts með textaleiknum
er m.a. að vinna rými á drottning-
arvæng.
8. -Rc6
9. b4 Be7
10. Dc2 Bd7
11. Be2 Hc8 •
12. 0-0
Hvítur afræður að fórna peði. 12
c5 er varla góður leikur og 12.
cxd5 -.gengur ekki vegna 12.
-Rxb4 13. axb4 Bxb4 14. Be5
Rxd5 með yfirburðastöðu.
12. -dxc4
13. Hadl De8
Við fyrstu sýn óeðlilegur leikur
en gegnir margþættu hlutverki
m.a. að koma drottningunni úr
skotlínu hróksins á dl. Mögu-
leikar-eins og e5 og Ba4 opnast,
en hér var Helgi reyndar búinn að
ákveða komandi mannsfórn...
14. Hd2
Cristiansen á sér einskis ills von
og undirbýr að auka þrýstinginn á
d línunni með tvöföldun.
14. -a5
15. b5
Hvað annað?
15. -Rb4
Djarflega teflt. Helgi fær tvö peð
fyrir manninn og þau komast í-
skyggilega langt með leikvinn-
ingi.
16. axb4 axb4
17. Re4 b3
18. Rxf6 Bxf6
19. Dbl c3
20. Hxd7
Cristiansen sér enga aðra leið en
að fórna skiptamun og hefur því
tvo létta menn gegn hrók, stærð-
fræðilegir liðsyfirburðir en svart-
ur hefur peðið á c línunni upp í.
20. -Dxd7
21. Dxb3 c2
22. e4 Hc3
23. Da4 Hfc8
24. Bcl h6
„Komdu ef þú þorir" segir þessi
litli leikur sem engu að síður
krafðist mikilla útreikninga.
Hvítur tekur áskoruninni og hef-
ur sóknaraðgerðir á kóngsvæng.
Fæstir í salnum voru hér sammála
um það hvort stæði betur.
25. e5 Be7
26. Dg4 Kh8
27. Dh5 Ba3
28. Dg4
Cristiansen hefur tapað tíma með
aðgerðum sínum, en eins og
menn geta gengið úr skugga um
stenst 28. Bxh6 ekki. 28. -gxhó
29. Dxhó Kh8 30 Rg5 cl:D 31.
Dh7 Kf8 32. Df6 Ke8 33. Bh5
Dxfl og svartur mátar.
28. -Bxcl
29. Hxcl Hb3
30. De4 Hbl
31. Hxbl cl.D
32. Rel
Ef 32. Hxcl þá 32. -Hxcl 33. Bfl
Ddl og vinnur.
32. -Dd2
33. Bd3 g6
34. h4 Dd5
35. Dg4 Dxe5
36. Rf3 Def4
Hvítur getur gefið með góðri
samvisku, eina ástæða áfram-
haldsins er mikið tímahrak
Helga.
37. Dxf4 Dxf4
38. Bfl Hcl
39. g3 Hxfl og hvítur gafst upp
um leið. Glæsileg skák. Umferð-
in var í heild sinni mjög skemmti-
leg og gaman var að fylgjast með
skák Andersson og Seirawan. Sá
fyrrnefndi jafnaði taflið auðveld-
lega með svörtu, vann peð en
tókst ekki að nýta sér það þrátt
fyrir mikla tilburði. Guðmundur
tefldi allt of hvasst í góðri stöðu
og tapaði sem og Jóhann sem átti
greinilega erfitt með einbeitingu.
Þeir sem hafa séð Browne tefla
vita af hverju.
Seinni umferð:
1. Andersson-Seirawan. v V2-V2
2. Kavalek-Larsen...... 1-0
3. Helgi-Cristiansen... V2-V2
4. Benjamen-Agdestein V2-V2
5. Margeir-Dlugy....... 0-1
6. deFirmian-Hansen ..... V2-V2
7. Jóhann-Alburt........ 0-1
8. Browne-JónL........ V2-V2
9. Rasmussen-Byrne..... V2-V2
10. Henley-Friðrik..... V2-V2
11. Schússler-Fedorowicz .. 1-0
12. Lombardy-Yrjöla..... 0-1
Guðmundur skipti út af og
Friðrik kom inn, tefldi sína fyrstu
kappskák í langan tíma. deFirmi-
an tók sæti sitt í liði Bandaríkj-
anna, en veikindi hafa hrjáð
hann.
Bandaríkjamönnum tókst að
snúa blaðinu við í þessari umferð
og bjarga sér fyrir horn með 6V2-
5V2 sigri. Nokkrar skákanna urðu
fljótt jafntefli enda keppendur
lúnir eftir baráttu fyrri umferðar-
innar. Helgi tók að sjálfsögðu
enga áhættu, tryggði sér saman-
lagðan sigur. Athygli ,vekur
hversu Rasmussen r^yndist
auðvelt að halda tyeim stóimeist-
urum í skefjum þrátt fyrír tak-
markaða reynslu. Margeir varð
að þola tap gegn Dlugy, hann var
með öllu óþekkjanlegur. Sömu-
leiðis Jóhann og vonar maður að
hér rætist úr hið bráðasta. Svíinn
Schússler vann Fedo í furðulegri
skák sem hér birtist án skýringa,
einfaldlega vegna þess að undir-
ritaður skilur ekkert í henni.
Fróðir menn segja að hér sé um
mikla teóríu að ræða sem getur
passað því eftir 16 leiki höfðu
keppendur notað 24 mínútur
samanlagt.
Hvítt: Schússler.
Svart: Fedorowicz.
Benoni vörn.
1. d4 Rf6 2. Rf3 e6 3. c4 c5 4. d4
exd5 5. exd5 d6 6. Rc3 g6 7. Bf4
Bg7 8. Da4 Bd7 9. Db3 Dc7 10. e4
0-0 11. Rd2 Rh5 12. Be3 f5 13.
exf5 gxf5 14. Be2 f4 15. Bxc5 Ra6
16. Ba3 Hae8 17. Rce4 Rf6 18.
Bxd6 Da5 19. Rc3 Hxe2 20. Kxe2
He8 21. Kfl Bf5 22. Kgl Rg4 23.
RO Rxf2 24. Kxf2 Rc5 25. Db5
Rd3 26. Kgl Dd8 27. Bc5 Bxc3 28.
bxc3 He2 29. Bd4 De7 30. h3 Hb2
31. d6 og svartur gafst upp.
Mikill darraðadans var í skák
Friðriks og Henley. Þeir notuðu
mikinn tíma þar sem Friðrik
byggði upp góða stöðu. Síðan
kom geysilegt tímahrak þar sem
áhorfendur vissu lítið um hvað
var að gerast, en að lokum þrá-
skákaði Friðrik (svartur) í þessari
stöðu.
Úrslit þessarar keppni réðust í
skák Kavalek og Larsen. Daninn
hafði peði minna í hróksendatafli
og þurfti að halda jöfnu til að
tryggja samanlagðan sigur
Norðurlandanna. Kavalek var
hins vegar ekki á þeim buxunum
og vann og nú er bara að vona að
framhald verði á þessari keppni
sem svo sannarlega réttlætti til-
verurétt sinn nu um helgina.
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 11. febrúar 1,986