Þjóðviljinn - 14.02.1986, Blaðsíða 8
upp svona sýningu. Maður
verður að taka dálitla áhættu.
Aðalleikarinn þarf að hafa
ábyrgðartilfinningu og hæfi-
leika. Pórey er elst í hópnum
og hún hefur fylgt mér þau
fjögur ár sem ég hef sett upp
leiksýningu í MS en hún hefur
aldrei fengið stórt hlutverk
áður. Þetta var því kærkomið
tækifæri fyrir hana og hún hef-
ur sýnt það að hún uppfyllir
fyllilega þær kröfur sem gerð-
ar eru til hennar.“
Lýsistrata,
fullkomin kona
Pórey, hvernig kona er Lýs-
istrata?
Þórey Sigþórsdóttir: „Við
drögum þá ályktun að hún sé
gift kona annað kemur ekki
fram um starf hennar enda
höfðu konur ekki aðra stöðu
en að vera giftar eða ógiftar,
vændis- eða fylgikonur karl-
manna, þegar ieikritið var
skrifað. Lýsistrata er ein af
þessum giftu húsmæðrum sem
gerir uppreisn. Ef hún væri
uppi í dag held ég að hún væri
menntuð ung kona á „upp-
leið“. Hún ergáfuð, skemmti-
leg, falleg (ekki karl-kona).
Hún hefur hreinlega allt til að
bera og hefur mikil áhrif á
bæði karla og konur. Hún er
líka mjög sjálfstæð og hefur
ríka kímnigáfu. Það er dálítið
erfitt að leika hana því hún er
svo fullkomin. Ég hef reyndar
aldrei hitt svona fullkomna
manneskju."
Hlín: „Enda er þetta leikrit
en ekki raunveruleikinn."
Er þessi gamli texti ekki tor-
skilinn?
Þórey: „Nei, hann er þýdd-
ur á nútíma íslensku af Krist-
jáni Árnasyni. Textinn er
ljóðrænn og mjög auðvelt að
læra hann en nokkuð erfiðara
að túlka hann. Textinn er
mjög tvíræður og skemmti-
legur. Málfar okkar í hópnum
er oft á tíðum orðið ansi tví-
rætt eftir allar þessar æfing-
ar.“
Akropolishæð
á svölunum
Hlín, þetta er fjórða sýning-
in sem þú leikstýrir í MS. He-
furðu tekið ástfóstri við Talíu?
Hlín: „Ja, mérfinnst að vísu
ekki gaman að vera alltaf að
fást við byrjendur, kenna
fólki grundvallaratriði í leik-
list en þetta er góður hópur og
það besta er að húsakynnin
leikstjóri og Þórey Lýsis-
við rætur Akropolis.
hér bjóða upp á svo marga
möguleika. Maður ræður al-
veg hvar sviðið er. Við notum
núna allar svalirnar sem eru
hér í Þrísteini. Svalirnar eru
orðnar að Akropolishæð. En
við getum því miður aðeins
tekið inn 80-100 áhorfendur.
Mig langar til að koma því að,
að leiklistarstarfsemi í landinu
og þá sérstaklega meðal ungs
fólks, er í fullum blóma núna
og sýnir geysilegan áhuga á
leiklist. Hver einasti fram-
haldsskóli er með stór verk í
gangi eða í bígerð og það er
nauðsynlegt að hlúa að þess-
um áhuga. Það vantar húsn-
Hjónabandsverkfallið í fullum
æði og betri aðbúnað. Við
hérnaíTalíueigumt.d. engan
ljósabúnað og erum í mestu
vandræðum, en sýning án
góðrar lýsingar er ekki nema
hálf sýning. Við erum í miklu
stressi að reyna að redda
þessu fyrir frumsýningu."
Hvenœr verður frumsýn-
ing?
Allir: „Við ætlum að reyna
að frumsýna 21. eða 22. feb.
Við búumst við að hafa alla-
vega 8-10 sýningar. Örugg-
lega fleiri því við erum viss um
að þetta verður „Hitt“.“
Höfðar til okkar,
krakkanna
Eruð þið hrifin af þessu
verki?
Allir: „Já, þetta er um mál-
efni sem ungt fólk hefur mik-
inn áhuga á og hugsar um t.d.
ástina og kynlíf. Við höfum
talað mikið saman meðan við
höfum unnið að Lýsiströtu og
kynnst hvert öðru og sjálfum
okkur betur. Þegar við byrj-
uðum á þessu fórum við upp í
Ölfusborgir til þess að tala
saman, kynnast og gera frum-
drög að öllu í sambandi við
uppsetninguna.“
Afhverju eruðþið íleiklist?
Allir: „Félagsskapurinn,
skemmtunin, maður þroskast
og maður kynnist allri vinn-
unni sem er á bak við hverja
sýningu. Þetta hefur svo sann-
arlega verið mikil vinna. í 6
vikur höfum við varla komið
heim til okkar, en þetta er vel
þess virði. Þetta er fyrst og
fremst skemmtun", sögðu
meðlimirTalíu, leiklistarsviðs
MS að lokum.
- SA.
Vinsældalistar Þjóðviljans
Fellahellir (3) 1. Sentimental eyes - Rikshaw (-) 2. The great wall of China - Rikshaw (4) 3.1 am only shooting love -The Time Bandits (-) 4. Gaggó-Vest - Eiríkur Hauksson, Gunnar Þóröarson o.fl. (7) 5. You are a woman - The Bad Boys Blue (-) 6. You little thief - Feargal Sharkey (1) 7. Savingallmyloveforyou-\Nh\lney Houston (5) 8. Pretty young girl - The Bad Boys Blue (-) 9. 1 am loose ... - C.C. Lee (6) 10. Promises promises - Rikshaw Grammió (1) 1. Holidays in Europe - Kukl (7) 2. Once upon a time - Simple Minds (5) 3. Sun City - Artists United Against Apartheid (6) 4. Night Glow - Carla Bley (3) 5. Can your pussy do the dog? - Cramps (4) 6. Kona - Bubbi (-) 7. Nail - Poetus (-) 8. Feargal Sharkey - Feargal Sharkey (-) 9. Rain Dogs -Tom Waits (2) 10. Frankenchrist - Dead Kennedys Rás 2 ( 1) 1. Gaggó-Vest - Eiríkur Hauksson, Gunnar Þórðarson o.fl. ( 3) 2. How will 1 know - Whitney Houston ( 4) 3. Gull - Eiríkur Hauksson, Gunnar Þórðarson o.fl. ( 2) 4. The Sun always shines on TV - Ah-ha! ( 5) 5. Burning heart - Survivor ( 6) 6. Promises, promises - Rikshaw Rikshaw (12) 7. The Great Wall of China - Rikshaw (28) 8. Rebel yell - Billy Idol (10) 9. Walk of life - Dire Straits ( 7) 10. You little thief - Feargal Sharkey