Þjóðviljinn - 14.02.1986, Side 16
Aðalsími: 681333. Kvöldsími: 681348. Helgarsími: 81663.
DJOÐVIUlNN
Föstudagur 14. febrúar 1986 37. tölublað 51. árgangur
Mikil flóð og krapahlaup hlupu í Elliðaárnar í vatnsveðrinu sem gengið
hefuryfir suö-vesturhornið og fór allt á flot í Víðidalnum ífyrrinótt. í gær
unnu borgarstarfsmenn við að lagfæra vegi sem höfðu grafist í sundur
og losa um í niðurföllum auk þess sem hestaeigendur áttu annríkt í
fyrrinótt við að vakta hrossin í efstu hesthúsunum í dalnum sem voru
umflotin vatni. Þaðvarláníóláni hvesnjólétthefurveriðívetur, annars
hefði sjálfsagt farið verr en raun varð á. Mynd -E.ÓI.
Menntamálaráðherra
Akureyri
Freyr sagði
af sér
Húsnœðismáladrögin
Veiting í óþökk læknadeildar
Umdeild embœttisveiting Sverris Hermannssonar í lœknadeild. Frumumeinafrœðingur
skipaður prófessor í réttarlœknisfrœði. Rœður sér aðstoðarmann. Misbeiting valds
Sverrir Hermannsson, mennta-
málaráðherra, hefur veitt
Gunnlaugi Geirssyni embætti
prófessors í réttarlæknisfræði,
við læknadeild Háskólans, þvert
gegn vilja dcildarinnar. Þetta
framferði ráðherra er litið mjög
alvariegum augum af læknadeild-
inni, þar sem hún hafði úrskurð-
að að Gunnlaugur væri ekki hæf-
ur til að gegna þessu embætti.
Forsaga málsins er sú að emb-
ætti þetta var auglýst sl. haust.
Sóttu þrír aðilar um embættið,
Gunnlaugur Geirsson, Olafur
Jensson og Bjarki Magnússon.
Meirihluti dómnefndar taldi
Gunnlaug einan hæfan til að
gegna embættinu en minnihlut-
inn taldi engan umsækjenda hæf-
an. Á deildarfundi í læknadeild
gerist það svo að þar sem enginn
umsækjenda er sérfræðingur í
réttarlæknisfræðum þá er mælt
gegn því að einhver þeirra verði
skipaður í embættið.
Menntamálaráðherra er sent
bréf skömmu fyrir jól og honum
gert ljóst að læknadeildin er and-
víg því að Gunnlaugur sé skipað-
ur í embættið og lagt til að staðan
verði auglýst aftur. Þrátt fyrir það
skipar Sverrir Hermannsson
Gunnlaug í embættið, frá og með
áramótum.
Gunnlaugur er líffærameina-
fræðingur að mennt og er frumu-
meinafræði hans sérgrein. Hefur
hann gegnt starfi yfirlæknis hjá
Krabbameinsleitarstöðinni og
talinn mjög hæfur í sínu starfi
þar. Það sem helst er fundið að
því, að hann hljóti prófessors-
embættið í réttarlæknisfræðum,
er að hann hefur enga reynslu við
réttarkrufningu. Enda mun nú
Gunnlaugur hafa ráðið sér að-
stoðarmann til að sjá um þann
þátt starfsins og mun slíkt eins-
dæmi.
Það sem þó er alvarlegast við
þetta mál, að mati manna í lækn-
adeildinni, er hvernig Sverrir
Hermannsson misbeitir valdi
sínu og gengur þvert á vilja
deildarinnar.
-Sáf
Freyr Ófeigsson bæjarfulltrúi
Alþýðuflokksins á Akureyri
sagði sig úr vatnsveitunefnd
bæjarins á síðasta fundi bæjar-
stjórnar. Þjóðviljinn innti Frey
eftir ástæðum.
„Þetta er að vísu löng saga, en í
sem stystu máli er ástæðan sú að á
þessum bæjarstjórnarfundi Iá
fyrir tillaga um fjárveitingu til
vatnsveitunnar til síðari umræðu.
Á fundinum var samþykkt að
strika út nánast allar fram-
kvæmdir vatnsveitunnar og taka
það fé sem annars hefði til þeirra
farið inní bæjarsjóð. Ég var því
andvígur að taka þetta fé í bæjar-
sjóð, á sama tíma sem tekjustofn-
ar hans eru vannýttir. Auk þess
var þessi samþykkt algert skips-
brot fyrir þá stefnu sem verið hef-
ur í stjórn vatnsveitunnar um
framkvæmdir þar og að nýta
bættan hag vatnsveitunnar til að
lækka vatnsskattinn.
Ef til vill eru þetta ekki nægjan-
leg rök til að segja af sér. En mál-
ið er það að ég var kjörinn í vatns-
veitunefnd af formlegum meiri-
hluta bæjarstjórnar, án stuðnings
sjálfs mín eða míns flokks, sem
ekki á aðild að meirihlutanum.
Og án nokkurra samninga um
samstarf í bæjarstjórn. Ég hafði
verið formaður vatnsveitunnar
næsta kjörtímabil á undan og leit
svo á að þetta kjör mitt væri
stuðningur við þá stefnu sem
stjórn veitunnar hafði meðan ég
var formaður stjórnar. En með
samþykktinni á síðasta bæjar-
stjórnarfundi tel ég allar forsend-
ur brostnar fyrir veru minni í
stjórninni", sagði Freyr að lok-
um. -S.dór
Skiptar skoðanir lífeyríssjóðanna
Hrafn Magnússon, Sambandi almennra lífeyrissjóða: Jákvœðar hugmyndir.
Pétur H. Blöndal, Landssambandi lífeyrissjóða: Oskhyggja, verið að misnota
fjármuni lífeyrissjóðanna til að leysa samningana
Afstaða lífeyrissjóðanna til sínum hjá lífeyrissjóðunum.
hugmynda ASI og vinnu- Hannsagðistengaráhyggjurhafa
veitenda um aðgerðir í húsnæð- af því. Húsnæðisstofnun hefur
ismálum skiptist algjörlega í tvö ætíð staðið við skuldbindingar
horn. Einsog kunnugt er þá ganga sínar. Sagðist hann hafa meiri
þær hugmyndir út á að stórauka áhyggjur af að fbúðarkaupendur
ráðstöfunarfé byggingarsjóð- gætu ekki staðið í skilum við líf-
anna með því að lífeyrissjóðirnir eyrissjóðina.
greiði 70% af eigin ráðstöfunarfé Hjá Landssambandi lífeyris-
til byggingarsjóða Húsnæðis- sjóða er tónninn allur annar. Þeir
stofnunar. _____________________________
hafa mótmælt harðlega þessum
hugmyndum og í gær sendu þeir
aðilum vinnumarkaðarins bréf
þar sem þeir fara fram á úttekt á
fjármagnsbyrði byggingarsjóð-
anna verði þessar hugmyndir að
veruleika.
Pétur H. Blöndal hjá Lands-
sambandinu sagði við Þjóðvilj-
ann, að með þessum hugmyndum
væri verið að afhenda ráðstöfun-
arréttinn yfir fjármagni lífeyris-
sjóðanna og einum aðila veitt
frelsi til að ákveða vexti af þess-
um fjármunum. Sagðist hann
stórefast um að ríkissjóður gæti
greitt vaxtamuninn. Sagðisthann
álíta að þarna réði óskhyggja
ferðinni, að menn hefðu ekki
hugsað málið til enda. -Sáf
Hrafn Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Sambands al-
mennra lífeyrissjóða, segist vera
hlynntur þessum hugmyndum
þar sem þessar hugmyndir geri
ráð fyrir að vaxtatekjur lífeyris-
sjóðanna stóraukist, úr 5% eins-
og nú er í 9%, eða hæstu vexti af
ríkisskuldabréfum á hverjum
tíma. Jafnframt lækkar vaxta-
byrði íbúðarkaupenda þar sem
þeir þurfa bara að greiða um
3,5% vexti. Mismuninn mun svo
ríkissjóður bera. Sagði hann
þetta sambærilegt við það sem
gerist í nágrannalöndum okkar
en þar greiða stjórnvöld víða nið-
ur vexti.
Hrafn var inntur eftir því hvort
hann væri ekki áhyggjufullur yfir
að Húsnæðisstofnun ætti erfitt
með að standa í skilum af lánum
íslenska útvarpsfélagið
Allt í mótun
Einar Sigurðsson nýráðinn útvarpsstjóri: Leitum að hentugu
húsnœði. Dagskráímótun. Stefnt að 10-16 tíma útsendingu á
sólarhring. Byrjun síðsumars
Einar Sigurðsson fréttamaður á
sjónvarpinu, nýráðinn út-
varpsstjóri íslenska útvarpsfé-
lagsins, sagði í samtali við Þjóð-
viljann í gær, að þessa dagana
væri verið að móta starfsemi-
væntanlegrar útvarpsstöðvar fé-
lagsins. Verið er að leita að hent-
ugu húsnæði, en mikið úrval væri
í Reykjavík af húsnæði sem henta
myndi þessari starfsemi.
Hann sagðist sjálfur vera að
móta drög að dagskrá stöðvar-
innar. Stefnt væri að því að um
samfellda 10-16 tíma dagskrá
verði að ræða þegar stöðin hefur
starfsemi. Hann sagðist enn ekki
vera farinn að ráða starfsfólk, að
því færi að draga.
Einar sagði að enn væri ekki
ákveðið hvenær starfsemin hæf-
ist, það gæti orðið í byrjun
sumars en gæti líka dregist fram
til síðari hluta sumarsins, það færi
eftir ýmsu.
„En það er alveg ljóst að við
förum ekki af stað með útvarps-
stöðina fyrr en allt er fullbúið og
hægt að starfa á fullu“, sagði Ein-
ar Sigurðsson.
Eins og skýrt hefur verið frá
hafa sex aðilar sótt um leyfi til
útvarpsreksturs til útvarpslaga-
nefndar.
-S.dór