Þjóðviljinn - 15.02.1986, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 15.02.1986, Qupperneq 1
MENNING SUNNUDAGS- BLAÐ Láglaunastefnan Við sækjum réttlætið Húsnœðishreyfingin og Lögvernd boða tilfundarí Háskólabíó á morgun. Við erum búin aðfá nóg. Komum ráðamönnum ískilning um staðreyndir. Við erum manneskjur - og þannig á að umgangast okkur Við erum búin að fá nóg, en munum aldrei gefast upp, sögðu talsmenn húsnæðishreyf- ingarinnar á blaðamannafundi í gær, en þeir hafa boðað til stór- fundar í Háskólabíói á morgun, sunnudag kl. 13.30. „Við ætlum okkur að sækja réttlætið.“ Það var baráttuglaður hópur sem var í anddyri Háskólabíós í gær að boða þennan fund um á- standið hjá húsnæðiskaupend- um, Það er annars vegar Sigtúns- hópurinn og hins vegar Lögvernd sem standa fyrir fundinum í Háskólabíói og í gær var dreift miða í Reykjavík þarsem segir m.a.: Þorir þú að standa á rétti þín- um og þinna. Við höfum fengið nóg af sviknum loforðum í hús- næðismálum. Komum ráða- mönnum í skilning um staðreynd- ir. Við erum manneskjur, - og þannig á að umgangast okkur. Sýnum samstöðu og styrk. Mætum öll! A meðan fundinum stendur verður barnagæsla í anddyri og sögðust menn á fundinum í gær reikna með fjölskyldufólki, - ráðamönnum væri hér með boðið að hlusta á fólkið og jarðsam- band við veruleikann. -óg Ofnæmi Kaldar klósettsetur Sydney - Sérstakur dómstóll í Ástralíu hefur úrskurðað að maður sem getur ekki sest á kaldar klósettsetur skuli fá bætur frá fyrirtæki sínu vegna þess að hann var lækkaður í launum vegna „krankleika" síns. Þessi maður, Keith Dare 41 árs sem vinnur hjá Flugráði Ástralíu, var færður í annað starf innan dyra fyrir þrem árum en var lækk- aður í launum um leið. Dare kærði fyrirtækið og í gær vann hann málið og var hækkaður í launum á ný. Dómstóllinn skýrði úrskurð sinn á þann veg að þegar Dare settist á klósettið fengi hann bólgur og kláða. -IH/reuter Launaskrið Margfalt minna hjá konum Við viljum hreinsa andrúmsloftið, sögðu bílstjórarnir hjá Mjólkursamsölunni í gær. Ljós. SigMar Mjólkursamsalan Tíu búðir í banni Starfsfólk mjólkursamsölu vill að allir sitji við sama borð í mjólkursvikamálinu. Vinnustöðvun ígœr. Afgreiðslubann sett á 10 verslanir. — Ólafur Ólafsson trúnaðarmaður: Fleiri bœtast viðþegar grunur okkar verður staðfestur Launaskrið hjá konum innan ASÍ varð tuttugu sinnum minna en hjá körlum, samkvæmt upplýsingum frá starfsmönnum kjararannsóknarnefndar. Hjá konunum varð það ekki nema 0,2 prósent, en hins vegar fjögur prósent hjá körlunum að meðal- tali. Miðað var við tímann frá þriðja ársfjórðungi 1984 til jafn- lengdar 1985. Að meðaltali varð launaskrið- ið 2,7 prósent hjá öllum þeim sem voru í úrtaki kjararannsóknar- nefndar. Meðaltöl eru hins vegar varasöm og geta falið mikilvægar staðreyndir. Þannig kemur í ljós, að hjá sumum hópum er ekkert launaskrið, og meira að segja eru hópar með hækkanir sem eru undir áætluðum taxtahækkun- um. Karla við afgreiðslustörf skortir þannig 2,3 prósent til að ná þeim. Hlutur kvenna við slík störf er enn verri: Þær skortir 3,1 prósent. Það er athyglisvert að hjá þess- um konum eykst vinnutími til muna. Samkvæmt fréttabréfi kjararannsóknarnefndar unnu þær á þriðja ársfjórðungi röskum tveimur stundum lengur á viku hverri en árið áður. Þetta jafngildir því, að þær leggi á sig um 110 stunda vinnu í viðbót, til að ná upp kjararýrnuninni.- ÖS Sjá leiðarasíðu í Sunnudagsblaði Starfsfólk Mjólkursamsölunn- ar í Reykjavík hefur sett út- keyrsiubann á 10 matvöruversl- anir á höfuðborgarsvæðinu, 9 í Reykjavík og 1 í Hafnarfirði um óákveðinn tíma. Búast má við að fleiri vcrslanir bætist í hópinn næstu daga, en eigendur þessara verslana eiga það sammerkt að hafa keypt undir borðið stolnar mjólkurafurðir af fyrrum út- keyrslumönnum samsölunnar. Engin vinna var í Mjólkursam- sölunni frá í gærmorgun fram á miðjan dag vegna óánægju starfs- fólks með hvernig tekið hefur verið á mjólkursvikamálinu. Á fundi starfsfólks í gærmorgun var þess krafist að Rannsóknarlög- reglan og forráðamenn Mjólkur- samsölunnar gæfu út lista yfir þær verslanir sem keyptu stolnu mjólkina. „Við vildum með þessum að- gerðum knýja á um að fá að vita hvaða kaupmenn það eru sem' tóku þátt í þessum svikum. Við getum ekki horft aðgerðarlaus á það að bílstjórar sem vorif í þessu séu tíndir út úr húsinu en kaup- mennirnir fái áfram afgreidda mjólk eins og ekkert hafi gerst. Andrúmsloftið hér í stöðinni hef- ur verið mjög þungt vegna þessa og við vildum hreinsa þetta út. Þetta er búin að vera erfið vika hjá okkur og það var ekki um annað að gera en hreinsa út,“ sagði Ólafur Ólafsson aðaltrún- aðarmaður starfsmanna í samtali við Þjóðviljann í gær. Ólafur fór við annan mann á fund rannsóknarlögreglunnar í gærmorgun og óskaði eftir því að fá listann yfir þau fyrirtæki sem tóku þátt í svindlinu. Lögreglan neitaði að láta listann af hendi taldi sig ekki hafa heimild til þess og slíkt gæti tafið rannsókn máls- ins. „Við höfum fengið staðfesta þátttöku þessara 10 verslana sem við höfum stöðvað afgreiðslu til og öðrum verður kippt út jafnóð- um og við fáum okkar grun stað- festan", sagði Ólafur. Hann sagði að forstjóri Mjólkursamsölunnar hefði ekki gert neinar athuga- semdir við afgreiðslubann starfs- manna og enn væri óvíst hversu lengi þetta afgreiðslubann stæði. -Ig- Veiðikló Köttur drnp mink Kom svo með hann heim í þvottahús Síðastliðinn þriðjudag gerðist sá fáheyrði, ef ekki óheyrði at- burður á Haukagili á Hvítársíðu að köttur drap mink. Og þetta er hirðusamur köttur því hann lét sér ekki nægja að sálga minknum heldur rogaðist með hann heim að bæ, stökk inn um þvottahús- gluggann og lagði herfangið kirfi- lega frá sér þar á gólfið. - Þetta er rúmlega ársgamall fressköttur, svartur á lit og hin mesta veiðikló, sagði Jón bóndi Ingimundarson á Haukagili. - Hann sér enga mús í friði og hlífir heldur ekki fuglunum og það er okkur nú verr við, sagði Jón. Surtur hefur farið mjög skynsam- lega að þessum veiðum, þegar náð hálstaki á minknum og yfir- bugað hann þannig snöggt og auðveldlega en sjálfur sloppið við allar skrámur. Bærinn Haukagil stendur á gil- barmi. Lækur rennur eftir gilinu og er þar nokkuð um mink. Mikið gras er í brekkunni niður að læknum og er trúlegt, að kisi, sem oft er að snuðra niðri í gilinu, hafi laumast þar að minknum

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.