Þjóðviljinn - 15.02.1986, Page 2

Þjóðviljinn - 15.02.1986, Page 2
n IÐNTÆKNISTOFNUN ÍSLANDS Verkfræðingur, eðlis- eða efnafræðingur óskast til starfa hjá Málmtæknideild. Starfiö er á sviði efnistækni málma, sérstaklega: Efnisprófanir, styrkleika- og tæringarprófanir, ráð- gjöf um val á efnum. Rannsóknir, orsakir skemmda, svo sem brot og tær- ing. Reynsla og þekking á málmefnistækni er æskileg, en Iðntæknistofnun mun veita tækifæri til starfsþjálfunar eftir þörfum. í boði er fjölbreytilegt en krefjandi starf, sem gefur mikla möguleika á þekkingaröflun. Umsóknum með upplýsingum um menntun og fyrri störf ber að skilatil Iðntæknistofunar íslands, Keldna- holti, 112 Reykjavík, fyrir 1. mars nk., merkt: „Málmtæknideild". Hlutverk Iðntæknistofnunar er að vinna að tækniþróun og aukinni framleiðni í íslenskum iðnaði með því aö veita einstökum greinum hans og iðnfyrirtækjum sérhæfða þjónustu á sviði tækni- og stjórn- unarmála, og stuðla að hagkvæmri nýtingu íslenskra auðlinda til iðnaðar. Utboð - malbikun Hafnarfjarðarbær leitar tilboða í malbikun gatna og göngustíga sumarið 1986. Utboðsgögn verða afhent á skrifstofu bæjarverkfræð- ings Strandgötu 6, Hafnarfirði, gegn 2 þús. kr. skila- tryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 25. febrúar kl. 10 Bæjarverkfræðingur. Tt’ Útboð - gangstéttar Hafnarfjarðarbær leitar tilboða í lagningu steyptra gangstétta sumarið 1986. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu bæjarverkfræðings Strandgötu 6, Hafnar- firði, gegn 2 þús. kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudag 25. febrúar kl. 11. Bæjarverkfræðingur. FRETTIR Ríkisstjórnin Erlend lán án ábyrgðar Fiskvinnslunni verði heimiltað taka erlend lán tilað fjármagna útflutning eða útflutningsbirgðir. Lán til endurskipulagningar og tœknivœðingar fiskvinnslunnar hafi forgang í Byggðasjóði og Fiskveiðasjóði r I svari ríkisstjórnarinnar við til- lögum Sambands fiskvinnslu- stöðva um úrbaetur í málefnum fiskvinnslunnar kemur fram að ríkisstjórn ætli að beita sér fyrir því að Seðlbankinn semji nýjar reglur um útflutningslán. Er mið- að að því að fiskvinnslan geti tekið lán erlendis til að fjármagna útflutnings eða útflutningsbirgðir á milligöngu eða ábyrgðar ís- lensku viðskiptabankanna. Þá er ákveðið að endurgreiða á söluskatti til sjávarútvegsins fyrir árið 1986 renni til Aflatrygginga- sjóðs og frá honum til útvegs- manna og sjómanna. Þá kemur fram í svarinu að ríkisstjórnin hafi lagt fyrir Byggðasjóð og Fiskveiðisjóð að lán til fjárhagslegrar endurskipu- lagningar og tæknivæðingar fisk- vinnslunnar hafi forgang í lán- veitingum á þessu ári. Veitt verði lán til langs tíma, sem verði af- borgunarlaus fyrstu 2-3 árin. Verði veittar 330 miljónir króna á þessu ári í þessar lánveitingar. -S.dór Bœkur Utsala um allt land Pátttakendur 6 forlög og 40 bókaverslanir N ú hafa sex bókaforlög tekið sig saman um að bjóða yfir 70 nýja og nýlega bókatitla á lækk- uðu verði. Flestar bókanna eru gefnar út á árunum 1984 og 1985. Tvennt er þarna með nýjum hætti. Áður hafa ekki yngri bækur en tveggja ára verið boðn- ar á útsölum og nú eru yfir 40 bókaverslanir um allt land þátt- takendur í útsölunni. Er þannig konrið til móts við kaupendur utan Reykjavíkur í stað þess að áður hafa það einkum verið Reykvíkingar og nágrannar sem notið hafa góðs af bókamörkuð- unum. Bóksalar taka lægri sölu- laun af þessum bókum, meðan á útsölu stendur, en endranær og er þannig um að ræða sameiginlegt átak bókaútgefenda og bóksala. Hér er tilraun gerð til þess, að tengja saman jólamarkaðinn og sölu á öðrum árstímum og má ætla, að fólk taki þessari nýjung vel. Sumar þessara bóka, sem áður voru innbundnar, verða nú fáanlegar í kiljuin. Afsláttur á bókunum leikur á 20-50%. Bókaforlögin, sem að útsöl- unni standa, eru Fjölvi, ísafold, Mál og menning, Bókhlaðan, Forlagið og Vaka-Helgafell. Útsalan hefst mánudaginn 17. febrúar og stendur í fjórar vikur. Er naumast að efa að bókavinir um allt land muni fagna þessu framtaki. -mhg Höfn Bjartari horfur Atvinnuástand hefur verið með daufara móti frá áramótum og munar þar auðvitað mestu um að togarinn Þórhallur Daníelsson hefur verið frá veiðum um nokk- urn tíma. Það hefur haft afger- andi áhrif, sagði Björn Grétar Sveinsson formaður Verkalýðs- félagsins Jökuls á Höfn í Horna- firði í samtali við Þjóðviljann í gær. „Annars er netavertíðin að hefjast og ef það gengur vel kvíð- um við ekki atvinnuleysi næstu mánuðina," sagði Björn. Bátar þar eystra hafa verið á línu frá áramótum en eru sem óð- ast að skipta yfir á net. Nokkuð atvinnuleysi hefur verið á Höfn frá áramótum, en þó ekki alvar- legt. Eins og menn rekur minni til varð Þórhallur Daníelsson fyrir því óhappi fyrir nokkrum vikum að reka stjórnlaust um höfnina og lagðist að því loknu á hliðina, og hann er nú að fara í viðgerð sem að sögn Björns mun taka um tvo mánuði. -gg Norrœna samvinna Tilboð í gjafavörudeild Ódýr 6 manna matarstell (20 stk.),kr. 3.078,- Ódýr 12 manna matarstell (42 stk.),kr. 5.570,- Ódýr glerglös frá kr. 46,- Einnig ódýrir matardiskar, skálar og fleira. L ia KORT Opið laugardag kl. 9-16. ÍS- OG EFTIR- RÉTTARGLÚSIN í ÚRVALI Jón Loftsson hf. Hringbraut 121 /A A_A_A_AA_ □ cdi MœaK uOJurjajijÆ □ líodd.jh yfó UHÍrlíUU«iUUltl llkl Sími 10600 Sumarvinna Norðurlöndum Nordjobb býður upp á sumarvinnufyrir 80 íslensk ungmenni á hinum Norðurlöndunum. Jafnmargir koma hingað a I sumar er ráðgert að bjóða 1.300-1.700 norrænum ung- mennum á aldrinum 18-26 ára að starfa í 6-10 vikur á tímabilinu 1. júní-31. ágúst á einhverju hinna Norðurlandanna. Þessi vinnutil- boð eru enn á tilraunastigi en til- raunin hófst í fyrra undir nafninu Nordjobb. Þá nutu u.þ.b. 1.000 norræn ungmenni góðs af þessum tilboð- um. Hingað til lands komu 45 ungmenni og jafnmörg fóru héð- an til starfa á hinum Norðurlönd- unum. Áhuginn var greinilega mikill því umsóknir voru u.þ.b. fimm sinnum fleiri en svo að hægt væri að sinna þeim. í ár gefst uþb. 80 íslenskum ungmennum kostur á að vinna hluta úr sumri í ein- hverju hinna Norðurlandanna og von er á jafnmörgum hingað. Hugmyndin að því að koma á fót svona vinnumiðlun er ættuð frá svonefndum Gyllenhammar- hóp en í honum áttu sæti framá- menn í atvinnulífi Norðurlanda, þ.á.m. Erlendur Einarsson for- stióri SÍS. í fvrra var stjórnun verkefnisins falin sænsku ráð- gjafafyrirtæki en það þótti ekki gefast nógu vel. Því hefur verið brugðið á það ráð að stofna sjálfs- eignarstofnunina Nordjobb utan um verkefnið og ráða starfsmenn til að sinna því í hverju landi. Framkvæmdastjóri Nordjobb er daninn Jon Peter Larsen en ís- lenskur starfsmaður Eyjólfur Pétur Hafstein. Vinnan sem ungmennunum býðst er af ýmsum toga, bæði utanhúss sem innan. Nordjobb útvegar húsnæði sem þátttakend- ur verða að greiða sjálfir en reynt er að halda húsaleigu í lágmarki. Launin eru samkvæmt töxtum viðkomandi verkalýðsfélaga á hverjum stað og er verið að vinna að því að ungmennin greiði skatta í sínu heimalandi. Upplýs- ingabæklingur hefur verið gefin út um starfsemi Nordjobb og er hægt að nálgast hann á öllum vinnumiðlunum og á skrifstofu Norræna félagsins í Norræna hús- inu, 101 Reykjavík. Þangað ber lika að senda umsóknir fyrir 1. mars nk. —ÞH 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 15. febrúar 1986

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.