Þjóðviljinn - 15.02.1986, Síða 6
ÚTBOÐ -
PÍPULAGNIR
Hagkaup hf. Lækjargötu 4, Reykjavík, óskar
eftir tilboði í hreinlætis-, hita- og slökkvilagnir
fyrir verslanamiðstöð í Kringlumýri í Reykja-
vík.
Tilboð óskast í eftirtalda verkþætti:
A. NORÐURHÚS
1. Hreinlætislagnir fyrir um 10.000 m2
húsnæði
2. Hitalagnir fyrir um 10.000 m2 húsnæði
3. Hreinlætistæki
4. Slökkvilagnir fyrir um 10.000m2 hús-
næði
B. SUÐURHÚS
1. Hreinlætislagnir fyrir um 15.000 m2 húsn-
æði.
2. Hitalagnir fyrir um 15.000 m2 húsnæði.
3. Hreinlætistæki
4. Slökkvilagnir fyrir um 15.000 m2 húsnæði.
Heimilt er að bjóða í lið A eða lið B eða báða
saman.
Útboðsgögn verða afhent á Verkfræðistofu
Sigurðar Thoroddsen hf. Ármúla 4, Reykja-
vík frá og með þriðjudeginum 18. febrúar
1986 gegn 10.000 kr. skilatryggingu.
Tilboðum skal skila til Hagkaups hf., Lækj-
argötu 4. Reykjavík fyrir kl. 11.00 þriðjudag-
inn 11. mars 1986 en þá verða þau opnuð
þar að viðstöddum þeim bjóðendum sem
þess óska.
HAGKAUP H.F., Lækjargötu 4, Reykjavík.
Blikkiðjan
Iðnbúd 3, Garöabæ
Önnumst þakrennusmiöi og
uppsefningu — ennfremur
hverskonar blikksmíöi.
Gerum föst verötilboö “
SIMI46711
Blaðberar óskast
Skerjafjörð
Miðleiti - Efstaleiti
Hamraborg
Álfhólsveg
DJÚÐVIIJINN S m> 681333
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, fyrir hönd Mal-
bikunarstöðvar Reykjavíkurborgar o.fl., óskar eftir til-
boðum í eftirfarandi:
1) 13400-17200 tonn af asfalti
2) 100-160 tonn af bindiefni fyrir asfalt (asphalt em-
ulsion).
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi
3, Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 18.
mars nk. kl. 11.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Fnkiikjiivegi 3 Simi 23800
ÍÞRÓTTIR
•orgils Óttar Mathiesen snýr á norsku vörnina í gærkvöldi. Þrátt fyrir slitið krossband í hné getur hann gert
indstæðingunum skráveifu. Mynd: E.ÓI.
Island-Noregur
Of naumur sigur
Sex markaforskot hvarfá skömmum tíma og Norðmenn
nálœgt jafntefli
Þeir hafa þá afsökun, landsliðs-
strákarnir, að þeir eru þungir og
þreyttir eftir erfiðar æfingar síð-
ustu daga. En samt sem áður ollu
þeir vonbrigðum með því að
missa niður sex marka forskot á
skömmum tíma í seinni hluta
síðari hálfieiks og það munaði
sáralitlu að Norðmönnum tækist
að jafna í lokin. En, íslenskur
sigur samt sem áður, 25-24, í fyrri
leik þjóðanna í Laugardalshöll-,
inni í gærkvöldi.
fsland hafði undirtökin fram-
anaf leiknum en Norðmenn náðu
þó forystu á 18. mínútu, 6-7. Þá
vara einsog íslensku strákarnir
vöknuðu aðeins til lífsins og með
góðum kafla breyttu þeir stöð-
unni í 9-7 og síðan í 14-11 fyrir
hlé. Sóknarleikurinn gekk nokk-
uð vel upp en eftir ágæta byrjun
datt varnarleikurinn niður.
Þegar 7 mínútur voru liðnar af
seinni hálfleik var staðan orðin
Evrópuineistarar Frakka
verða meðal andstæðinga íslands
í Evrópukeppni landsliða í knatt-
spyrnu 1986-1988. Skemmtileg
tilhugsun að eiga í vændum að sjá
Michel Platini, af mörgum talinn
besti knattspyrnumaður heims, á
Laugardalsvellinum.
Sovétríkin og Austur-
Þýskaland eru einnig í 3. riðli og
líka grannar okkar Norðmenn.
Noregur og Austur-Þýskaland
leika ekki í úrslitum HM í sumar
þannig að möguleiki ætti að vera
á að leika gegn þeim strax í vor
eða sumar.
Riðlarnir 7 í Evrópukeppninni
líta þannig út:
1. riðill: Spánn, Rúmenía,
Austurríki og Albanía.
2. riðill: Portúgal, Svíþjóð,
Sviss, Ítalía og Malta.
3. riðill: Frakkland, Sovétrík-
18-12 og sex mínútum síðar stóð
20-14. Aðeins formsatriðí að
ljúka leiknum, eða hvað? En
fjögur norsk mörk í röð gjör-
breyttu gangi leiksins. ísland
náði þó að komast í 23-20 en þeg-
ar fjórar mínútur voru eftir höfðu
Norðmenn jafnað, 23-23. Atli og
Þorgils Óttar skoruðu en Jaco-
bsen skoraði, 25-24, þegar enn
var mínúta eftir. Manni yfir var
dæmd töf á íslenska liðið 14 sek.
fyrir leikslok. Þorgils Óttar kom
því niður í 10 sek. með því að láta
reka sig útaf og Þorbjörn Jensson
bjargaði síðan málunum með því
að brjóta hressilega á Jacobsen
langt úti á velli. Jacobsen sló
hann, báðir reknir útaf, en með
eina sekúndu og aukakast langt
fyrir utan áttu Norðmenn ekki
möguleika á að jafna.
Kristján Arason, Páll Ólafsson
og Atli Hilmarsson stóðu nokkuð
uppúr í íslenska liðinu. Atli var
in, Austur-Þýskaland, Noregur
og ísland.
4. riðill: England, Norður-
frland, Júgóslavía og Tyrkland.
5. riðill: Holland, Ungverja-
land, Pólland, Grikkland og
Kýpur.
ó.riðill: Danmörk, Wales,
Tékkoslóvakía og Finnland.
7.riðill: Belgía, Búlgaría, ír-
land, Skotland og Luxemburg.
Sigurvegararnir í riðlunum
leika í úrslitakeppninni árið 1988
ásamt gestgjöfunum, Vestur-
Þjóðverjum.
í Evrópukeppninni undir 21
árs var ísland fært milli riðla þar
sem þar eru mest fjögur lið í riðli.
ísland tekur þar sæti í ó.riðli, í
stað Walesbúa sem ekki senda
lið, og leikur því við Dani, Tékka
og Finna.
—VS/Reuter
einna kraftmestur og átti góðar
sendingar sem gáfu mörk og Páll
laumaði sér þrisvar inná línuna til
að skora. Annars fór flest úr-
skeiðis hjá íslenska liðinu síðasta
hluta leiksins — getumunurinn á
því og norska liðinu er það mikill
að eins marks sigur er lítið til að
gleðjast yfir.
Mörk íslands: Kristján Arason 8(2v),
Atli Hilmarsson 6, Páll Ólafsson 5, Guö-
mundur Guömundsson 2, Þorgils Óttar
Mathiesen 2, Bjarni Guömundsson 1 og
Geir Sveinsson 1.
Mörk Noregs: Akerö 8, Severeide
5(3v), Helland 4, Yven 2, Jacobsen 2,
Wangen 1, Kjendalen 1 og Sletten 1.
Þjóðirnar mætast aftur í dag í
íþróttahúsi Seljaskóla kl. 18.
—VS
Úrvalsdeildin
ÍR auð-
veld bráð
Fallnir ÍR-ingar voru íslandsmei-
sturum Njarðvíkinga auðveld bráð
suður með sjó í gærkvöldi. Ef ekki
helði komið til nokkuð kæruleysi
heimamanna þegar leið á lcikinn hefði
sigurinn orðið öllu stærri en 92-71
einsog hann hljóðaði uppá.
Njarðvíkingarnir voru flestir nokk-
uð köflóttir, aðeins Helgi Rafnsson
sýndi jafna frammistöðu út leikinn.
Valur fór á kostum í seinni hálfleik
eftir daufan þann fyrri. Hjá ÍR stóðu
Karl og Jóhannes uppúr meðal-
mennskunni, og báðir náðu sér sér-
staklega vcl á strik í seinni hálfleik.
- SÓM/Suðurnesjum
Njarövík 14.feb.
UMFN-ÍR 92-71 (50-31)
21-12, 30-16, 42-23, 50-31 - 59-35,
74-47, 86-63, 92-71.
Stig UMFN: Valur Ingimundarson
24, Jóhannes Kristbjörnsson 14, Helgi
Rafnsson 13, Kristinn Einarsson 11,
Hreiðar Hreiðarsson 9, Árni Lárusson
8, Ellert Magnússon 6, Teitur örlygs-
son 6, (sak Tómasson 1.
Stig ÍR: Karl Guðlaugsson 16, Jó-
hannes Sveinsson 12, Ragnar Torfa-
son 12, Jón Örn Guðmundsson 10,
Björn Steffensen 9, Vignir Hilmarsson
8, Hjörtur Oddsson 2, Björn Leósson
2.
Dómarar: Sigurður Valgeirsson og
Bergur Steingrímsson — sæmilegir.
Maður leiksins: Valur Ingimundar-
son, UMFN
Evrópukeppnin
Islandí
sterkum ríðli
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN; *-au9ardagur 15. febrúar 1986