Þjóðviljinn - 15.02.1986, Page 14

Þjóðviljinn - 15.02.1986, Page 14
ALÞYÐUBANDALAGHD FRÉITIR ALÞYÐUBANDALAGHD Kvennafylking Alþýðubandalagsins Opinn fundur Kvennafylkingin heldur opinn fund mánudagskvöldið 17. febrúar kl. 20:30 að Hverfisgötu 105. Dagskrá fundarins verður: 1. Undirbúningur að kvennastefnu um sveitastjórnarmál þann 12.-13. apríl næstkomandi. 2. Bréf frá Jafnréttisráði um tillögur að framkvæmdaáætlun ráðsins. 3. Starfið í málefnahópum Alþýðubandalagsins. 4. KAFFI RÓSA. 5. Baráttudagur kvenna 8. mars. 6. Önnur mál. Konur í Reykjavík og nágrannabyggðum sem hafa áhuga á öflugu starfi kvenna eru eindregið hvattar til að mæta á fundinn. Miðstöð kvennafylkingarinnar. Alþýðubandalagið Ólafsvík Opinn fundur um bæjarmálin Alþýðubandalagið í Ólafsvík heldur fund í Mettubúð, sunnudaginn 16. febrúar kl. 14. Á fundinum er ætlun að vinna í málefnahópum að gerð stefnuskrár AB fyrir bæjarstjórnarkosningarnar. Allt stuðningsfólk AB er að sjálfsögðu hvatt til að mæta og minnt er á að fólk þarf ekki að vera flokksbundið til að starfa með Alþýðubandalaginu. Vinnum saman að gjörbreyttum valdahlutföllum í bæjarstjórn, nýjum viðhorfum og nýrri sókn í bæjarmálum! Stjórnin ....... 1 ■ " 1 -........... AB Mosfellssveit Hreppsmálaráð heldur opinn hreppsmálafund mánudaginn 17. febrúar kl. 20.301 fundarað- stöðu hreppsmálaráðs í Hlégarði. Á dagskrá er umræða um skipulagsmál. Ásmundur Ásmundsson for- maður skipulagsnefndar I Kópavogi og Siguröur Gíslason skipulagsnefnd- armaður i Hafnarfiröi verða gestir fundarins. Flokksfélagar og stuðningsmenn eru hvattir til að mæta. Forval Alþýðubandalagsins á Akranesi Forval Abl. á Akranesi vegna bæjarstjórnarkosninganna verður í Rein sunnudaginn 16. febrúar kl. 16-18. Rétt til þátttöku í forvalinu eiga allir félagar og stuðningsmenn Alþýðubandalagsins, enda hafi þeir náð 18 ára aldri eða verði 18 ára á þessu ári. Félagar og stuðningsmenn, komið í Rein á sunnudaginn og takið þátt. Heitt á könnunni. Uppstillingarnefndin. AB Hveragerði Félagsfundur verður haldinn að^Heiðmörk 31 mánudaginn 17. febrúar kl. 20.30. Dagskrá: 1) Undirbúningur sveitarstjórnarkosninga 2) Tilhögun forvals og kosning starfsnefnda. AB Selfoss Forval - síðari umferð Siöari umferð vegna bæjarstjórnarkosninga í vor fer fram sunnudaginn 16. febrúar að Kirkjuteigi 7 Selfossi frá kl. 13 - 20. Atkvæðagreiðsla utan kjörstaðar verður að Kirkjuvegi 7 miðvikudag 12. febrúar og föstudag 14. febrúar frá kl. 19 - 22 báða dagana. Kosningarétt hafa allir fullgildir félagar í Alþýðubandalaginu með lögheimili á Selfossi. Uppstillinganefnd Djúpivogur Opinn fundur Alþýðubandalagið og Æskulýðsfylking Alþýðu- bandalagsins boðar til fundar um stefnu ríkisstjórn- : arinnar og kjaramálin í Félagsheimilinu í Djúpavogi föstudaginn 14. febrúarkl. 20.30. Ræðumenn verða Anna Hildur Hildibrandsdóttir og Hjörleifur Gutt- ! ormsson. Fyrirspurnir og umræður. Fundurinn er I öllum opinn. ________ Alþýðubandalagið Hjörleifur Höfn í Hornafirði Opinn fundur Alþýðubandalagið og Æskulýðsfylking Alþýðu- bandalagsins boðar til fundar um stefnu ríkisstjórn- arinnar og kjaramálin í Sindrabæ laugardaginn 15. febrúar kl. 15.00. Kaffi á fundarstað. Ræðumenn eru Anna Hildur Hildibrandsdóttir og Hjörleifur Gutt- ormsson. Fyrirsþurnir og umræður. Fundurinn er öllum opinn. Alþýðubandalagið Anna Hildur Hreppsmálaráð AB Borgarnesi boðar til fundar laugardaginn 15. febrúar kl. 14.00 í Röðli. Fundarefni undirbúningur sveitarstjórnarkosninga. Félagar og aðrir áhugamenn um væntanlegan stórsigurÁlþýðubandalagsins íkosningunum eru hvattirtil að fjölmenna. Nefndin viðtalstími borgarfulltrúa er á þriðjudögum kl. 17.30 til 18.30. Á þriðjudag 18. febrúar mætir Guðrún Ágústsdóttir. Guðrún AB Kópavogi Starfshópur um skipulags-, stjórnsýslu- og atvinnumál heldurfund í Þinghóli laugardaq- inn 15. febrúar kl. 13.30. Landbúnaöarstefnan Smíði stjórn- málamanna - Landbúnaðarstefna sú, sem rekin hefur verið hér á undan- förnum árum, er smíði stjórnmálamanna. Bændur hafa ekki mótað hana. Það hefur ekki mátt segja sannleikann og því er nú komið, sem komið er. Svo munu, efnislega a.m.k., hafa hljóðað orð, sem Egill Bjarnason, ráðunautur á Sauðár- króki, lét falla á ráðunautafund- inum, sem staðið hefur yfir á Hótel Sögu undanfarna daga. Egill Bjarnason mun hafa átt þátt í því af hálfu bændasamtak- anna að vinna að nýrri stefnu- mótun í landbúnaði. Hann lét ekki vel af árangri þess starfs. -Þetta hefur allt verið lokað niðri í skúffum hér fyrir sunnan. Þarna liggur höfuðmeinsemdin, sagði hann. -mhg Rafmagnsveitan Athugasemd Hr. ritstjóri. A forsíðu Þjóðviljans 12. febr- úar 1986, birtist frétt um orku- skuldir nokkurra aðila. Eftirfar- andi athugasemdir óskast birtar á, sama stað í blaði yðar á morgun: * Til þess að gefa hugmynd um heildarupphæð orkureikninga skal þess getið, að mánaðar- lega eru nú gefnir út orkureikn- ingar að fjárhæð um 265 milljónir króna sem jafngildir um 3.200 milljónum króna á ári. * Rafmagnsveitan telur það öfugmæli að nefna þá aðila „gælufyrirtæki", sem Raf- magnsveitan og starfsfólk hennar hefur átt hvað erfiðust samskipti við í innheimtu, með þeim eftirgangsmunum, bréf- askriftum, lokunarhótunum og lokunum, sem því fylgja. * Umræddir 19 aðilar hafa ekki „skuldað 40 milljónir í hálft ár eða lengur“. Hér er um að ræða upphæðina eins og hún er nú. * Notendur þessir skulda ekki umræddar fjárhæðir „í raf- orku". Þetta eru heildarskuldir fyrir raforku og heitt vatn, þ.e. bæði við Hitaveitu og Raf- magnsveitu. * Það er misskilningur að „fyrir- tækin njóti meiri velvildar en almenningur". Dráttarvextir bætast við vanskilaskuldir allra notenda frá eindaga skuldar og síst er gengið harðar fram í lok- unum hjá einstaklingum en fyrirtækjum. * Frestun lokunaraðgerða er því tvíeggjuð „velvild“. En lokun er alvarleg aðgerð, ekki síst þar sem fiskvinnsla eða annar við- kvæmur atvinnurekstur á í hlut og atvinna fjölda fólks er í húfi. Virðingarfyllst, Aðalsteinn Guðjónsson rafmagnsstjóri FÓLKÁFERÐ! Þegar fjölskyldan ferðast er mikilvægt að hver sé á sínum stað með beltið spennt. [tfar”" J Svavar Ragnar Kynningarfundir - Nýir félagar Starf og stefna AB Sunnudaginn 16. febrúar verður haldin kynning á starfi Alþýðubandalagsins. Kynningin er opin öllum, en nýir Alþýðubandalagsfélagar eru sérstaklega velkomnir. Fluttar verða stuttar framsögur um starf og stefnu Alþýðubandalagsins. Framsögumenn verða Svavar Gestsson formaður AB, Ragnar Arnalds formaður þingflokks AB, Kristín A. Ólafsdóttir varaformaður AB og Steinar Harðarson formaður Alþýðubanda- lagsins í Reykjavík. Steinar Kristín Að loknum fyrirspurnum til framsögumanna gefst fundarmönnum tækifæri til að ræða við þingmenn flokksins í Reykjavík, borgarfulltrúa og tilvonandi frambjóðendur til borgarstjórnarkosninganna, forsvarsmenn málefnahópa og fulltrúa Æskulýðs- og Kvennafylkingar. Húsið opnar kl. -{4.30. framsöguræður hefjast kl. 15.00. Kaffiveitingar seldar á staðnum. Alþýðubandalagið - ÆFAB - Kvennafylkingin AB Akranesi Árshátíð verður haldin laugardaginn 1. mars nk. í Rein. Hátíðin hefst með borðhaldi kl. 20.00. Fjölbreytt skemmtiatriði. Nánar auglýst síðar. Skemmtinefndin Málefnahópar Alþýðubandalagsins Vettvangur flokksins fyrir umræður og stefnumótun. Hóparnir eru opnir félögum og stuðningsmönnum Alþýðubandalagsins. í þeim sitja fulltrúar þingflokks og framkvæmdastjórnar. AB og verkalýðshreyfingin. 1. fundur þriðjudaginn 18. febrúar kl. 20.30. Hópnum er m.a. ætlað að móta tillögur fyrir miðstjórnarfund flokks- ins 22.-23. febrúar nk. Mennta- og menningarmál. Næsti fundur þriðjudaginn 18.febrúar kl. 17.00. Meðal viðfangsefna er menningarpólitík stjórnvalda, skólamál og verkmenntun í landinu. Þeir sem vilja bætast í hópinn hafi samband við Guðrúnu Ágústsdóttur í s. 83209. Herinn - Nato - friðarbaráttan. Næsti fundur auglýstur síðar. Meðal viðfangsefna er skilgreining hugsanlegra áfanga að því lokamarkmiði að ísland verði herlaust, hlutlaust og friðlýst land. Þeir sem vilja bætast í hópinn hafi samband við Sólveigu Þórðardóttur í s. 92-1948. Fleiri málefnahópar munu fara af stað á næstunni, m.a. um valddreifingu og lýðræði, jafnréttismál, fjárhags- og viðskiptamál og sjávarútvegsmál. Fundarstaðir eru í Miðgarði Hverfisgötu 105. Félagar og stuðningsfólk! Skráið ykkur í málefnahópa AB hið fyrsta á skrifstofu flokksins Hverfisgötu 105 s. 17500. Alþýðubandalagið. Byggðamenn Alþýðubandalagsins Ráðstefna 15.-16. mars Ráðstefna Byggðamanna Alþýöubandalagsins um sveitarstjórnarmál og undirbúning kosninga 15. - 16. mars. Ráðstefnan er ætluð frambjóðendum Alþýðubandalagsins og öörum áhugamönnum um sveitarstjórnarmál. Fyrirhuguð dagskráratriði: 1) Kosningarundirbúningur, hagnýt atriði, 2) Réttindi og skyldur sveitar- stjórnarmanna. 3) Málsmeðferð í sveitarstjórnum. 4) Bókhald og fjárreiður. 5) Samskipti sveitarstjórna og ríkisins. 5) Starf Alþýðubandalagsins að sveitarstjórnarmálum. < Þeir sem áhuga hafa á að sækja þessa ráðstefnu tilkynni það til skrifstofu Alþýðubandalagsins Hverfisgötu 105. Sími 91-17500. Stjórn Byggðamanna Alþýðubandalagsins 14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 15. febrúar 1986 _ö- Húsnæöisscofnun ríkisins Tæknideild Laugavegi 77 R Simi 28b00 Utboö Samvinnuskólinn Bifröst óskar eftir tilboöum í byggingu þriggja einbýlishúsa byggðum úr timbri. Verk nr. A.14.03 úr teikningasafni tæknideildar Húsnæðisstofnunar ríkisins. Flatarmál húss 134 m2. Rúmmál 457 m3. Húsin verða byggð á landi Samvinnuskólans Bifröst Borgarfirði og skal skila fullfrá- gengnum 15. ágúst 1986. Afhending útboðsgagna er hjá tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins frá fimmtudeginum 20. febr. nk. gegn kr. 5.000.- skilatryggingu. Tilboðum skal skila til tæknideildar Húsn- æðisstofnunar ríkisins, Laugavegi 77, Reykjavík, eigi síðar en þriðjudaginn 4. mars nk. kl. 14.00 og verða þau opnuð að við- stöddum bjóðendum. f.h. Byggingarnefndar Tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.