Þjóðviljinn - 16.02.1986, Side 7
Sviðsljósið
Anatolí Sjaranskí kominn vestur yfir Glienicke brúna og alla leið til ísraels. Með honum á myndinni er Shimon Peres
forsætisráðherra Israels.
Anatolí Sjaranskí
Sovéskur gyðingur, andófsmaður og tölvufrœðingur
Á þriðjudaginn áttu sér stað skipti
á njósnurum milli austurs og
vesturs og eins og oft áður fóru
þau fram á Glienicke brúnni
nærri Potsdam í útjaðri Berlínar.
Mikill vafi leikur hins vegar á rétt-
mæti þess að líta á þann sem
fyrstur kom yfir brúna að austan
sem njósnara. Anatolí Sjaranski
er á Vesturlöndum nefndur and-
ófsmaður gegn yfirvöldum í
Sovétríkjunum en fyrir 8 árum
fann sovéskur dómstóll hann
sekan um njósnir í þágu Banda-
ríkjanna.
Anatolí Borisovitsj Sjaranskí
sem meðal vina gegnir nafninu
Tolja fæddist í bænum Donetsk í
Úkraínu 20. janúar 1948 og er því
nýorðinn 38 ára gamall. Faðir
hans var blaðamaður, félagi í so-
véska kommúnistaflokknum —
og gyðingur. Tolja hélt til náms í
Moskvu og útskrifaðist frá tækni-
háskóla sem tölvufræðingur.
Réðst hann að námi loknu til
starfa á rannsóknarstofnun sem
tengist olíu- og gasiðnaði Sovét-
ríkjanna.
Ákœrður
um njósnir
Árið 1973 lenti hann fyrst í
útistöðum við yfirvöld þegar hon-
um var synjað um leyfi til að flytj-
ast til ísraels. f>á bættist hann í
stóran hóp gyðinga sem neitað
hafði verið um slíkt leyfi á þeim
forsendum að þeir byggju yfir
vitneskju um ríkisleyndarmál.
Næstu fjögur árin var hann þrí-
vegis handtekinn og settur inn í
hálfan mánuð í hvert skipti.
Ákærufhar hljóðuðu alltaf upp á
„óspektir“.
Arið 1976 tók Sjaranskí þátt í
stofnun Helsinki hópsins, sam-
tökum andófsmanna sem settu
sér það mark að fylgjast með því
hvort stjórnvöld héldu þau
ákvæði um mannréttindi sem
finna mátti í yfirlýsingu 35 ríkja
og kennd er við Helsinki. Næstu
mánuðina var hann iðulega túlk-
ur á fundum sem Helsinki hópur-
inn og gyðingar, sem neitað hafði
verið um að flytja til ísraels,
héldu í Moskvu með erlendum
fréttamönnum. Enda talar Sjar-
anskí mjög góða ensku.
Þann örlagaríka dag 15. mars
árið 1977 var Sjaranskí handtek-
inn enn á ný. Að þessu sinni
vegna ásakana sem birst höfðu í
blöðum um að hann væri njósnari
fyrir Bandaríkin og CIA. Sá sem
setti fram þessa ákæru var Sanja
Lipafskí en þeir Sjaranskí höfðu
áður deilt með sér húsnæði. So-
véskir andófsmenn hafa gefið þá
skýringu á framferði Lipafskís að
hann hafi verið milli steins og
sleggju vegna vandræða sem fað-
ir hans hafði ratað í. Faðir hans
hafði gerst sekur um fjármála-
misferli og átti yfir höfði sér
þungan dóm. Þetta notfærðu yfir-
völd sér til að beita Lipafskí
þrýstingi og fá hann til að bera
ljúgvitni gegn Sjaranskí.
Hœpnar
sakargiftir
Sjaranskí var hafður í haldi í
fimmtán mánuði og fékk ekki að
hafa nein samskipti við umheim-
inn allan þann tíma. Síðan var
hann dreginn fyrir rétt og í júlí-
mánuði árið 1978 dæmdur til
þriggja ára fangelsisvistar og til
viðbótar 10 ára vinnuþrælkunar.
Dómstóllinn fann hann sekan um
njósnir og andsovéskan áróður.
Það er margt hæpið við þessa
njósnaákæru. Fyrir það fyrsta
hafa bandaríkjamenn harðneitað
því að Sjaranskí hafi njósnað
fyrir þá. En það sem vegur
þyngra er að fyrir handtökuna
lagði Sjaranskí áherslu á nauðsyn
þess að andófið færi fram fyrir
opnum tjöldum. „Styrkur minn
felst í því að ég hef ekkert að fela
og aðhefst ekkert sem brýtur
gegn lögunum. Ég ætti því ekki
að þurfa að óttast neitt," sagði
hann oft.
Árið 1974 gekk Sjaranskí í
hjónaband. Þá giftist hann Natal-
íu Stiglits sem flutti daginn eftir
brúðkaupið til ísraels. Þau voru
gefin saman af gyðinglegum
rabbína í Moskvu og yfirvöld
hafa lýst því yfir að þau telji gift-
inguna ógilda. Natalía, sem
breytti fornafni sínu í Avital, er
fjórum árum yngri en Sjaranskí
og síðan hún fór frá Sovétríkjun-
um hefur hún helgað krafta sína
baráttunni fyrir frelsun eigin-
mannsins. Hefur hún verið
óþreytandi við að tala máli hans
hjá stjórnmálamönnum austan
hafs og vestan og margir þeirra
hafa tekið málið upp í viðræðum
við sovéska ráðamenn, síðast
gerði Reagan það á fundinum
með Gorbatsjof í Genf í haust.
Telja margir að skýringanna á
frelsun Sjaranskís megi rekja til
þess fundar.
Níu óra
fangavist
Eftir dóminn var Sjaranskí
fyrst sendur í Kristopol f tngelsið
sem er 800 km austan við Mos-
kvu. í mars 1980 var hann fluttur í
vinnubúðir í Úralfjöllum þar sem
hann komst upp á kant við stjórn-
endur og eyddi fyrri helmingi árs-
ins 1981 í einangrun. Síðan var
hann aftur sendur til Kristopol og
þar hóf hann hungurverkfall í
september 1982 til að mótmæla
því að bréfaskipti hans við ætt-
ingja voru stöðvuð. í janúar 1983
heimsótti móðir hans, Ida Mil-
grom sem er 74 ára gömul, hann í
fangelsið og eftir þá heimsókn lét
hann af hungurverkfallinu enda
hafði honum verið leyft að skipt-
ast á bréfum við hana.
Ida Milgrom ásakaði fangelsis-
yfirvöld um að sinna ekki af
ásettu ráði um heilsufar sonarins.
Sagði hún hann lasburða eftir
sultinn, hann væri slæmur í maga
og veill fyrir hjarta. Kona Sjaran-
skís hefur bætt því við að hann
þjáist af gláku.
í nóvember 1984 var fjölskyld-
unni tilkynnt að Sjaranskí hefði
verið sendur í vinnubúðir í Perm í
Úralfjöllum og var það talið
benda til þess að yfirvöld væru að
slaka á klónni í afstöðu sinni til
hans því vist í vinnubúðum er tal-
in illskárri en í fangelsi. En Sjar-
anskí ritaði móður sinni bréf frá
Perm og kvað yfirvöld neita að
láta sig fá póstinn sinn og einnig
að senda bréf sín til ættingja, ann-
arra en hennar. Nú í janúar
skýrði Avital frá því að Sjaranskí
hefði verið refsað fyrir að mót-
mæla truflunum á bréfaskiptum
með því að fara í hungurverkfall á
nýjan leik.
Kominn vestur,
og hvað svo?
En nú er hann kominn vestur
um. Þegar hann var kominn yfir
Glienicke brúna var hann fluttur í
bandarískri herflugvél til Frank-
furt þar sem kona hans beið hans.
Fóru þau síðan rakleiðis til ísra-
els í fylgd tveggja rabbína. ísra-
elsk yfirvöld höfðu veitt Sjaran-
skí ríkisborgararétt árið 1974 og í
Frankfurt afhenti ísraelski sendi-
herrann í Vestur-Þýskalandi hon-
um ísraelskt vegabréf.
Mikill fögnuður braust út í ís-
rael þegar Sjaranskí og kona hans
komu þangað á þriðjudagskvöld-
ið og Sjaranskí hafði uppi heit-
strengingar um að halda áfram
baráttunni fyrir málstað sovéskra
andófsmanna.
Sovésk yfirvöld hafa með því
að láta Sjaranskí lausan enn einu
sinni mátt láta undan þrýstingi frá
Vesturlöndum og þeim sem láta
sér annt um mannréttindi í
heiminum. En þau hafa einnig
„losað sig við“ næstþekktasta
andófsmanninn og þar með létt á
þeim þrýstingi sem þau eru beitt
hvarvetna birtast á Vestur-
löndum. Vafalaust lifa þau í von-
inni um að Sjaranskí bíði svipuð
örlög og margra annarra andófs-
manna sem koma vestur yfir: að
upplifa það að vestrænir fjölmiðl-
ar eru gjarnan jafnfljótir að
gleyma og þeir eru háværir.
—ÞH (Byggt á Reuter)
Vörubílstjórafélagið
Þróttur
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjarat-
kvæðagreiðslu við kjör stjórnar og trúnað-
armannaráðs. Tillögum (skv. lögum félags-
ins) um skipan stjórnar og trúnaðarmanna-
ráðs skal skilað til kjörstjórnar félagsins á
skrifstofu þess.
Framboðsfrestur rennur út kl. 17, föstudag-
inn 21. febrúar 1986.
Kjörstjórn
W' TILBOÐ
Óskast í eftirtaldar bifreiðar og tæki sem verða til sýnis þriðjudaginn
18. febrúar 1986 kl. 13.00-16.00 í porti bak við skrifstofu vora að
Borgartúni 7 og víðar.
Range Rover 4x4
Saab 900 GLI fólksbifreið
3 Subaru 1800 station 4x4
Mazda 929 station fólksbifreið
2 Lada station fólksbifreið
3 Lada Sport 4x4
1 Lada Sport 4x4
Toyota Hi Lux 4x4
4 Volvo Lapplander 4x4
UA2 452 4x4
Volkswagen Double Cabfólks- og sendib. Isuzu pic-up
GMC Rally Van fólks- og sendib.
Ford Econoline Wagon fólksbifreið
Ford Econoline sendibifreið
Mitsubishi Panel Van sendibifreið
Volvo F609 vörufl.bifreið
Electra Van 500 rafmagnsbifreið
bensín árg. 1978
bensínárg. 1982
bensínárg. 1982
bensín árg. 1980
bensínárg. 1982
bensín árg. 1981
bensínárg. 1982
bensínárg. 1980
bensín árg. 1980-82
bensín árg. 1982
diesel árg. 1982
bensín árg. 1982
bensín árg. 1978
bensín árg. 1980
bensín árg. 1980
bensínárg. 1981
diesel árg. 1978
árg. 1979
Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins Sætúni 6 Reykjavík:
2 stk. Hino KY-420 vörubifreið árg. 1980.
1 stik. Scania LT 7638 dráttarbifreið 6x4 árg. 1965.
Til sýnis hjá birgðastöð Vegagerðar ríkisins Grafarvogi:
2 stik. Festivagnar Trailmobil 13 tonn til vélaflutninga.
Til sýnis hjá Flugmálastjórn Reykjavíkurflugvelli:
2 stk. Loftþjöppur Sullivan á vögnum.
Til sýnis hjá Landsvirkjun Funahöfða 5, Reykjavík:
Fassi F.52 bílkrani
Tilboðin verða opnuð sama dag kl. 16.30 að viðstöddum bjóðend-
um. Róttur er áskilinn að hafna tilboðum sem ekki teljast viðunandi.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
Borgartuni 7, sími 26844
Söluíbúðir fyrir aldraða fé-
lagsmenn
Verzlunarmannafélagsins
Hvassaleiti 56-58.
Af sérstökum ástæðum eru nú nokkrar íbúðir lausar til
endurúthlutunar. Þeir félagsmenn V.R. sem ná 63ja ára
aldri á árinu 1986, eiga rétt á að kaupa íbúð, þó þannig
að félagar 67 ára og eldri eiga forgangsrétt á íbúðunum.
Þeim félagsmönnum V.R. sem áhuga hafa á að kynna
sér verð, greiðsluskilmála og teikningar er bent á að
koma á skrifstofu félagsins á 8. hæð Húsi Verslunarinn-
ar, Kringlunni 7 108 Reykjavík.
Umsóknareyðublöð liggja þar frammi.
Umsóknum þarf að skila til skrifstofunnar fyrir 20. fe-
brúar n.k.
Félagsmenn sem þegar hafa sótt um íbúðir en ekki
fengið úthlutað eru beðnir að ítreka umsóknir sínar.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
Sunnudagur 16. febrúar 1986 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7