Þjóðviljinn - 16.02.1986, Blaðsíða 19
„Blikurnar" byggja á efnismikilli sögu, en aðalpersónurnar í sjónvarpsþáttunum standa persónum bókarinnar talsvert að baki.
„Love Story“ stjarnan Ali McGraw sló ekki í gegn að nýju í þáttunum.
Vondur, verri, bestur
þrír framhaldsþœttir kvaddir
Hjónakornin Sue Ellen og JR í Dallas. „Þrjár grettur og eitt
bros eru einu tjáningarmeðul flestra leikaranna", segja banda-
rískir gagnrýnendur, en flestir eru þó sammála um að Larry
Hagman sé langbesti leikarinn í þáttunum, auk gömlu Hitchcock
leikkonunnar Barböru Geddis (sem leikur móðurina).
í sjónvarpinu eru um þessar
mundir þrírframhaldsþættir
að kveðja, síðasti þáttur „Kol-
krabbans" var í vikunni, „Dal-
las“ kvaddi nýlega og um
helgina er næst síðasti þáttur-
inn af Blikum á lofti. Tveir þeir
síðarnefndu eru bandarískir,
en „Kolkrabbinn" ítalskur.
Þegar litið er til baka yfir
nokkra af þeim evrópsku fram-
haldsþáttum sem sýndir hafa ver-
ið í vetur, t.d. „Til hinstu hvfldar"
frá Bretlandi og „Derrick" frá
Þýskalandi, er augljóst að tals-
verður gæðamunur er á því sem
við sjáum af þessu tagi frá Evr-
ópu og Ameríku. Hins vegar hafa
Bandaríkjamenn greinilega for-
skotið í gerð alvöru „sápuóperu"
eins og t.d. „Löður“, sem var ein-
hver alskemmtilegasti gaman-
þáttur sem gerður hefur verið
fyrir sjónvarp. „Staupasteinn“ er
einnig býsna glúrinn, ekki alveg
eins geggjaður og „Löður“ en
fullur af drepskemmtilegri sjálfs-
hæðni. Þættirnir eru teknir upp
með áhorfendum eins og
„Löður" og gefur það þeim aukið
líf, tilsvörin verða skarpari og
fyndnari. Við hliðina á því
hugljúfa bandaríska melodrama
sem síðar verður vikið að, þ.e.
„Dallas" og „Blikunum", eru
þessir gamanþættir beinlínis stór-
kostlegir og öll vinnubrögð frá
handriti og uppúr í allt öðrum
gæðaflokki.
„Þrjár grettur"
Um „Dallas“ þarf annars ekki
að hafa mörg orð. Þar fer saman
ÞÓRUNN
SIGURÐARDÓTTIR
lélegt handrit, leikstjórn og
leikur. Hins vegar eru þættirnir
gerðir eftir pottþéttri formúlu,
sem viðheldur spennu áhorfand-
ans, einkum ef hann er þreyttur,
leiður og sljór. Leikurinn, eink-
um hjá kvenfólkinu samanstend-
ur af, „þremur grettum og einu
brosi“ einsog bandarískur
gagnrýnandi orðaði það. „Og
engin innistæða fyrir neinu",
bætti hann við. Ef til vill væri
fljótlegast að koma hér upp sím-
svara sem gerði grein fyrir ör-
lögum söguhetjanna úr þessu, til
FLUGLEIÐIR
Aðalfundur Flugleiða hf.
verður haldinn fimmtudaginn 20. mars 1986
Kristalssal Hótel Loftleiða og hefst kl. 13.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 10. gr. samþykkta
félagsins.
2. Breytingar á samþykktum félagsins.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar verða afhentir á aðalskrifstofu
félagsins Reykjavíkurflugvelli, frá og með 13. mars nk. frá kl. 08.00
til 16.00.
Afhending atkvæðaseðla lýkur á hádegi fundardag.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu vera
komnar í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund.
Stjórn Flugleiða hf.
að firra íslenska áhorfendur
framhaldinu.
„Blikur á lofti“ eru strax mun
skárri, leikurinn aðeins betri, en
engin sögupersónanna er þó
nægilega velleikin til að bera
þetta efnismikla verk uppi.
Stundum finnst manni þátturinn
vera kynning á framlagi Banda-
ríkjamanna til heimsstyrjaldar-
innar, tölur og dagsetningar eru
ótrúlega fyrirferðarmiklar, en
þess á milli virðist hér vera fram-
hald á ímynd hins hugprúða
manns sem allt sér fyrir og ætíð
breytir rétt á örlagastundu, en
hann hefur löngum verið þaulset-
inn í bandarískum kvikmyndum.
Leikurinn er ekki eins klisju-
kenndur og í Dallas, þar sem að-
eins drullusokkarnir megna að
vekja áhuga manns, hér reyna
menn að vera góðir af einhvers-
konar sannfæringu en yfirdrullus-
okkurinn Hitler megnar sjaldan
að halda athygli áhorfands.
ítalskir
yfirburðir
En séu „Blikurnar" slæmar og
„Dallas“ verri, þá bætir „Kol-
krabbinn" báða upp og vel það.
Sé það stefnana að blanda saman
ýmsum þáttum frá mismunandi
þjóðlöndum, get ég vel við unað,
því mér dugar einn þáttur á borð
við „Kolkrabbann" í viku. Þessi
þáttur er að vísu hvorki eins dýr
og „Blikurnar" né eins vinsæll og
„Dallas", en hann hefur þó verið
sýndur víða um lönd og nú er ver-
ið að vinna að framhaldinu.
Hér er á ferðinni efni sem unn-
ið er af fagkunnáttu og vand-
virkni, án þess að nokkru sinni sé
gengið á rétt áhorfandans til að fá
hæfilegan skammt af spennu, ást-
arlífi og bófahasar. Spurningin er
ekki bara um hráefnið, heldur
líka hvernig það er matreitt.
Grundvallarhugmyndin er mjög
Einn helsti leikari Itala, Michele Placido, fór snilldarvel með aðalhlutverkið i
„Kolkrabbanum".
góð og handritið yfirleitt frábært
(þótt þýðingin hafi stundum ver-
ið dálítið böggluð). Smáatriði í
texta, myndatöku og fáguðum
leiknum sögðu manni á áhrifarík-
an hátt það sem andlitsgrettur
leikaranna í Dallas megna aldrei.
Persónurnar eru heilar og marg-
ræðar, skúrkurinn getur grátið og
hetjan brugðist. Fyrir vikið trúir
maður á þessar persónur, vanda-
mál þeirra og vanmáttugar
lausnir. Þátturinn er náttúrlega
ekkert uppörvandi, - en er ekki
Mafían ennþá ósigruð á Sikiley?
Það heyrist manni amk. af frétt-
um.
Því má svo bæta við að nýr
framhaldsþáttur „Hótel“ hefur
hafið göngu sína í sjónvarpinu.
Ég hef ekki fylgst með honurn en
heyrði skýra konu segja að „þar
væru allir þjakaðir af hjarta-
gæsku, alveg upp úr þurru“. Sel
það ekki dýrara í bili.
„Kjötkássa
eða steik“
Það er forvitnilegt að skoða
þessa þætti með í huga úttektina
sem sýnd var s.l. þriðjudagskvöld
í þáttunum um sjónvarpið. Um
allan heim er verið að sýna fram-
haldsþætti, innlenda og innflutta.
Um leið og markaðurinn fyllist af
færibandaþáttum eins og Dallas,
fjölgar einnig velgerðum þáttum,
einkum frá Bretlandi og ýmsum
öðrum Evrópulöndum. Margir
spá því að smátt og smátt muni
markaðurinn hafna „kjötkáss-
um“ fyrir „steik“ og „sultutaui"
fyrir „ekta jarðarber“ eins og
annar bandarískur gagnrýnandi
flokkar framhaldsþættina. Að
menn muni smátt og smátt velja
metnaðarfyllri þætti þegar þeir
hafa samanburðinn rétt eins og
menn vilji heldur horfa á vel-
teflda skák en slæma. Aðrir segja
að tilgangur þátta á borð við
„Dallas“ sé einmitt að sljóvga
fólk og meðan spennuuppskrift-
inni sé fylgt skipti engu hvernig
þættirnir séu unnir að öðru leyti.
Og sjálfsagt mun framtíðin ein
skera úr um hvort við þurfum að
fylgjast með örlögum Sue Ellen
og Pam fram á grafarbakkann.
jt
FELAGSMALASTOFNUN
REYKJAVÍKURBORGAR
Fjölskyldudeild óskar eftir tilsjónarmönnum til aö styöja börn og unglinga.
Um er aö ræða 10-40 tíma á mánuði:
Fólk sem: - hefur gott innsæi og áhuga á mannlegum samskiptum.
- er hugmyndaríkt og hlýlegt í viðmóti, en jafnframt ákveöið.
- hefur tök á aö skuldbinda sig a.m.k. í V2 ár.
Getur sótt um, óháö menntun eða stööu.
Nánari upplýsingar veittar í síma 621611, kl. 10 ■
febrúar n.k.
12, alla virka daga fyrir 21