Þjóðviljinn - 19.02.1986, Side 6

Þjóðviljinn - 19.02.1986, Side 6
MINNING Útboð Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd Byggíngadeildar borgarverkfræðings óskar eftir tilboðum í ýmsa þætti viðgerða og viðhalds á eldri hluta Sundlauga Reykjavíkur í Laugardal. Verkið felst í viðgerðum og viðhaldi á hluta sundlauga, sem samanstendur af stúku og byggingarhlutum hennar. Helstu verkþættir eru háþrýstiþvottur, múrviðgerðir, endursteypa, sprunguviðgerðir og sílanböðun utanhúss. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Fríkirkju- vegi 3, Reykjavík, gegn 10. þús. kr. skilatrygg- ingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðju- daginn 11. mars n.k. kl. 14. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikukjuvogi 3 Simi 25800 Söluskattur Viðurlög falla á söluskatt fyrir janúar mánuö 1986, hafi hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 25. þ.m. Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau eru orðin 20%, en síðan reiknast dráttarvextir til viðbótar fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með 16. mars. Fjármálaráðuneytið, 17. febrúar 1986. Auglýsing um styrki og lán til þýðinga á erlendum bókmenntum. Samkvæmt lögum nr. 35/1981 og reglugerö nr. 638/1982 um þýðingarsjóð, er hlutverk sjóðsins að lána útgefendum eða styrkja þá til úgáfu vandaðra erlendra bókmennta á íslensku máli. Greiðslur skulu útgefendur nota til þýðingar- launa. Skilyrði fyir styrkveitingu skulu einkum vera þessi: 1. Verkið sé þýtt úr frummáli, ef þess er kostur. 2. Upplag sé að jafnaði eigi minna en 1000 eintök. 3. Gerð og frágangur verka fullnægi almennum gæðakröf- um. 4. Eðlileg dreifing sé tryggð. 5. Útgáfudagur sé ákveðinn. Fjárveiting til þýðingarsjóðs í fjárlögum 1986 nemur 2.664.000 krónum. Eyðublöð undir umsóknir um framlag úr sjóðnum fást í menntamálaráöuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, og skulu umsóknir hafa borist ráðuneytinu fyrir 15. mars n.k. Reykjavík, 14. febrúar 1986. Stjórn þýðingarsjóðs. getrsuna- VINNINGAR! 25. Leikvika -15. Febrúar 1986 Vinningsröð: 2XX-X2X-222-211 kr. 310.720 1. Vinningur: 11 réttir 53997(4/10) 105078(6/10)+ 128409(6/10) kr. 7.833 59450 64072 74053+ 2. Vinningur: 10 réttir 7021 16359 46533* 11403 16541 49779 12635 20825 54757* 16038 40452 55418 41870 *=2/10 Kærufrestur er til mánudagsins 10. mars 1986 kl. 12:00 á hádegi. 80023+ 101792 81677+ 95725* +103296 128671 99737* 105076+ 128673 99875 105077+ 128675 108064+ 505775 128668 í.sh'Hskdr (It'trmmir. Íþrótltwtidstöditwi s-tSif’ttiti. /it'ykjttyik Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og á skrifstofunni í Reykjavík. Vinningsupphæðir geta lækkað, ef kærur verða teknar til greina. Handhafar nafnlausra seðla (+) verða að f ramvísa eða senda stofninn og fullar upplýsing- ar um nafn og heimilisfang til íslenskra Getrauna fyrir lok kærufrests. Sveinbjöm Guolaugsson Þeir falla nú hver af öðrum bar- áttumennirnir sem fremstir stóðu í kjarabaráttu verkalýðsfélag- anna og annarra hagsmunasam- taka launafólks í Reykjavík á kreppuárunum. í síðustu viku var kvaddur Þorlákur G. Ottesen einn af stofnendum Kron og varaformaður stjórnarinnar um langt skeið. í dag fer fram útför Sveinbjörns Guðlaugssonar vörubílstjóra, sem var fyrsti for- maður stjórnar Kaupfélags Reykjavíkur og nágrennis og stjórnarmaður á þriðja áratug. Sveinbjörn Guðlaugsson var fæddur í Þórðarkoti í Selvogi 17. mars 1902. Foreldrar hans voru hjónin Guðrún Guðmundsdóttir og Guðlaugur Hannesson sem þar bjuggu. Þau eignuðust 10 börn. Sveinbjörn fluttist til Reykja- víkur árið 1920 og fór að stunda sjómennskuna af kappi um 9 ára skeið en keypti sér þá vörubíl og varð einn af þeim fyrstu sem stunduðu akstur vörubíla sem að- alatvinnu. Um skólagöngu að loknum barnaskóla var ekki að ræða hjá Sveinbirni, frumstæð lífsbaráttan tók allan hans tíma frá barnsaldri. Hann var þó víð- lesinn og aflaði sér þannig stað- góðrar menntunar og skrifaði óvenju fagra rithönd. Um menn- inguna gat hann sagt eins og Stef- án G. Stefánsson: Ég gat hrifsað henni af hrati sem hún vék mér meðan lúinn makrátt svaf meðan kátur lék sér. Sveinbjörn Guðlaugsson tók virkan þátt í starfi verkalýðs- hreyfingarinnar allt frá því að hann flutti til Reykjavíkur, fyrst í Dagsbrún og síðar í stéttarfé- lögum vörubílstjóra. A kreppu- árunum var það einn þáttur í starfi verkalýðsfélaga að stofna og reka pöntunarfélög. Um miðj- an fjórða áratuginn voru þessi pöntunarfélög orðin mjög fjöl- menn og öflug hér við Faxaflóann en engin kaupfélög starfandi nema Kaupfélag Reykjavíkur sem var fámennt. Sveinbjörn Guðlaugson var einn af þeim sem beittu sér fyrir því að öll þessi félög yrðu sameinuð í eitt öflugt kaupfélag. Eftir langvarandi og erfiða samninga var svo haldinn stofnfundur í ágústmánuði 1937. Hlaut félagið nafnið Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis og var Sveinbjörn Guðlaugsson kosinn formaður kaupfélagsins. Gegndi hann því starfi í 6 ár og átti sæti í stjórninni til 1960. Nú þykir það nokkur virðing- arstaða að vera formaður í kaupfélagi en þegar Sveinbjörn var formaður Kron ríkti ekki friður í því starfi. Þá voru tímar átaka og ofstækis í íslensku þjóðfélagi. Kaupmannastéttin LANDSBYGGÐIN hafði verið einráð í viðskiptalífi höfuðborgarinnar og sá nú veldi sínu ógnað af öflugu kaupfélagi. Viðbrögð kaupmanna voru ekki bara hörð samkeppni heldur skipulagðar ofsóknir gegn kaupfélaginu og öllum forustu- mönnum þess. Sveinbjörn fékk ríflega sinn skammt af þessum ár- ásum en lét þær ekki beygja sig. Þegar hann mætti sem heiðursgestur á aðalfundi Kron 1983 sýndi hann mér með nokkru stolti málskjöl í tveimur málum sem hann þurfti að höfða gegn ritstjórum Morgunblaðsins og Vísis vegna meiðyrða sem þar voru viðhöfð um kaupfélagið og forustumenn þess. Svo harðar voru þessar árásir blaðanna og ofstækið mikið í þjóðfélaginu að það kom með margvíslegum hætti niður á fjölskyldum for- ustumanna félagsins. Jafnvel börnin urðu fyrir aðkasti á göt- um. Sem samstarfsmaður Sveinbjarnar færi ég fram bestu þakkir fyrir mikið og farsælt starf fyrir okkar kaupfélag og sam- vinnuhreyfinguna. Þó að Sveinbjörn væri baráttumaður þegar það átti við var hann glað- vær og góður félagi meðal vina sinna og samstarfsmanna og munu margir minnast hans í dag með hlýjum huga. Árið 1943 giftist hann Margréti Jónsdóttur frá Höskuldsstöðum í Húnavatnssýslu. Þau eignuðust ekki börn en tóku að sér kjör- dóttur Margréti Guðrúnu sem nú er búsett í Reykjavík og gift Finni Guðmundssyni. Sendi ég þeim og öðrum vandamönnum hins látna samúðarkveðjur. Það er bjart yfir minningum um Sveinbjörn Guðlaugsson. Olafur Jónsson. Framhald af bls.5 uggar heimildir fyrir fréttinni. Þarna var sem sagt kveðinn upp sektardómur án undangenginnar rannsóknar og án þess að sak- borningur fengi borðið hönd fyrir höfuð sér. Nú skal ég ekkert um það segja hvort þessi dómur Sjónvarpsins verður metinn réttur eða rangur þegar þar að kemur. Hitt fullyrði ég að svona fréttamennska er óhæfa og stangast á við þau sjálf- sögðu mannréttindi, að allir séu saklausir þangað til sekt sannast. Þessi dæmi eru sérstaklega nefnd vegna þess að Sjónvarpið er langáhrifamesti fjölmiðill landsins og við verðum að gera þær kröfur, að þeir, sem þar starfa, virði mannhelgi og mannréttindi. Þeir mega undir engum kringumstæðum setjast í dómarasæti við fréttaflutning, það er bæði löglaust og siðlaust. Vaxtafárið Mörg verk núverandi ríkis- stjórnar eru umdeild, eins og eðlilegt er. En að mínu mati er hið svonefnda vaxtafrelsi eitt hið heimskulegasta, sem gert hefur verið á síðari árum í stjórn efna- hagsmála,ogerþámikiðsagt. Ég efast um að nokkur einn þáttur hafi átt stærri hlut að viðhaldi verðbólgu en vaxtakapphlaup, sem allt og alla er að sliga. Það kom nefnilega í ljós, að hækkun innlánsvaxta leiddi af sér hækkun útlánsvaxta, þótt yfirlýst væri í byrjun að slíkt ætti ekki að leyfa. Fróðlegt væri að fá uppgefið hvað auglýsingar banka og sparisjóða hafa kostað síðan þetta stríð hófst. Mikið teldi ég þessa pen- inga betur komna í það að lækka fjármagnskostnað atvinnuveg- anna eða marghrjáðra húsbyggj- enda. Annars er það furðulegt að ýmsir virðast trúa því, að auglý- singar hafi engin áhrif á verðlag, að gjald fyrir auglýsingar komi almenningi ekkert við. Þessi skoðun hefur komið glöggt í ljós í umræðu um frjálst útvarp svok- allað og frjálsa fjölmiðlun yfir- leitt. Það sé nú eitthvað annað en ríkisfjölmiðlun, sem greitt sé fyrir af opinberu fé. Víst er á þessu mikill eðlismunur hvað efnisumfjöllun varðar. Ríkisfjöl- miölun hefur yfirlýsta skyldu til hlutlausra upplýsinga en frjáls fjölmiðlun þjónar fyrst og fremst yfirlýstum eigendum sínum. Nægir í því sambandi að benda á umfjöllun DV um kaffibaunamál annars vegar og Hafskipsmál hins vegar. En kostnaðurinn er borinn uppi af heildinni, auglýsingaverð getur hvergi annars staðar komið en frá auglýsendum og því meira sem auglýst er þess meira hlýtur vöruverð að hækka þegar til lengri tíma er litið og þar komum við að þeim punkti, að þeir, sem greiða fyrir vöru og þjónustu, eru jafnframt að greiða fjölmiðlum, sem þeir eru í hjarta sínu andvígir og telja að þjóni annarra hags- munum, en þeir komast ekki hjá að greiða það frekar en í sam- eiginlega sjóði landsmanna. í sjónvarpsfréttum 8. jan. kom fram, að auglýsingar íslendinga í nóvember og desember hafi kost- að 130 milj. kr. Því setur að mér óhug þegar boðað er nýtt banka- málafrumvarp þar sem vextir verða gefnir alveg frjálsir eða m.ö.o. að lögleiða eigi vaxtaok- ur. Halda menn virkilega að slík peningamálastefna gangi upp? Ég veit að tískuverslanir og önnur fyrirtæki á höfuðborgar- svæðinu geta greitt háa vexti, að maður tali nú ekki um afþreying- arstaði og vímuefnasala svo eitthvað sé nefnt, sem hefur mik- inn veltuhraða í viðskiptum, en framleiðslugreinarnar til sjós og lands, bundnar verðlagsákvæð- um eða verði á erlendum mörku- ðum og oft með lítinn veltuhraða, hafa enga möguleika á að taka þátt í slíku uppboði. Sama máli gegnir með verslunar- og þjón- ustufyrirtæki á landsbyggðinni, sem verða að liggja með stóra lagera en hafa lítinn veltuhraða, velta kannski tvisvar til þrisvar á ári sum hver. Minnki verðmætasköpun landsbyggðarinnar verður þess fljótt vart á höfuðborgarsvæðinu því að þróun síðustu ára bendir til þess, að hvert eitt nýtt atvinnu- tækifæri landsbyggðarinnar leiði af sér 5-6 ný þjónustustörf á höf- uðborgarsvæðinu. Því eru allar athygli verðar tillögur um jafnrétti milli landshluta, ekki bara jöfnun atkvæðisréttar held- ur miklu fremur að hver lands- hluti njóti þeirra verðmæta, sem hann skapar, til atvinnulegrar og félagslegrar uppbyggingar innan sinna vébanda. Krítarkortin Annars er sama hvert litið er, allt virðist miða að því sama, að styrkja beri og auka alla milliliða- starfsemi í landinu. Eitt nýjasta blómið á þeim akri er notkun krítárkorta. Nú skulu þeir, sem fá lánaða peninga, alls ekki greiða fyrir það sjálfir heldur skulu þeir, sem enn eru svo vitlausir að stað- greiða vöru og þjónustu, greiða líka fyrir þann aukakostnað, sem kortanotkunin hefur í för með sér, því allir vita, sem vilja vita, að 30-45 daga greiðslufrestur kostar peninga og þeir koma ekki frá öðrum en þeim, sem kaupa vöru og þjónustu. Að mati kaup- mannasamtakanna þýðir þessi kostnaður 5-6% hærra vöruverð. Ég held að mál sé fyrir okkur, sem unum þessu illa, að samein- ast um þá kröfu, að kortanotend- ur greiði sjálfir og einir þann kostnað, sem af kortanotkun óhjákvæmilega leiðir. Hér verður að láta staðar num- ið um stund, þar sem erindið allt rúmast ekki innan þess ramma, sem Landsbyggðinni er settur hverju sinni. Síðari hlutinn fjallar um landbúnaðarmál og mun hann birtur við fyrstu hentug- leika. Millifyrirsagnir eru blaðsins. - mhg 6 SIÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 19. febrúar 1986

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.